Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 41

Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997 41 AÐSENDAR GREINAR Barátta við kjötkatlana Samband ísleiiskra myndlistarmanna, stofnað sem regnhlí- fasamtök sérfélaga myndlistarmanna en þau eru Félag ís- lenskra myndlistar- manna, íslensk grafík, Myndhöggvarafélag- ið, Textílfélagið, Leir- listafélagið og svo á síðari árum bættist við hópur einstaklinga sem vildi ekki vera í einhvetju fyrrtaldra félaga. Stjórnarkosningar fóru fram eftir tilnefn- ingu sérfélaganna. Þegar fjölgaði í hópi einstaklings- aðildar var lögum um stjórnar- kosningu breytt fyrir nokkrum árum á þann veg að kjósa um stjórn á aðalfundi og að allir fé- lagsmenn væru kjörgengir. Sam- kvæmt þeim er kjörtímabilið tvö ár og það á að kjósa tvo nýja inn í stjórn á hvetju ári. Núverandi stjórn SÍM er skipuð tveimur full- trúum einstaklinga og tveimur frá sérfélögunum. Kjörtímabili þess- ara tveggja frá sérfélögunum lýkur núna en þeir úr einstaklingaaðild sitja áfram í stjórn. Fjöldi félagsmanna þeirra hópa sem standa að SÍM eru núna: FÍM, fél. ísl. myndlistarmanna 114 Hópur einstaklinga 137 Grafíkfélagið 66 Myndhöggvarafélagið 73 Leirlistafélagið 38 Textílfélagið 40 Hópur einstaklinga og sérfélög- in kjósa sér síðan hvert tvo fulltrúa í fulltrúaráð. Með þessum breytingum á sín- um tíma á stjórninni var verið að færa hlutverk hennar í þá átt að gera stjórnina að framkvæmdaaðilum fulltrúaráðs og eru 10., 11. og 16. gr. laga SÍM hugsaðar sem aðhald á stjórn og til að tryggja að sjónar- mið aðildarfélaganna næðu fram að ganga. 10.gr. Fundir í full- trúaráði skulu haldnir mánaðarlega eða þeg- ar stjórn sambandsins eða fulltrúar einstakra aðildarfélaga óska þess. Sambandsfund skal halda ef 30 eða fleiri félagsmenn úr minnst þremur aðild- arfélögum æskja þess. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á sambandsfundum. 11. gr. Fulltrúaráðið gerir samn- inga fyrir hönd sambandsins, getur þó skipað þriggja eða fimm manna samninganefndir úr fulltrúaráðinu. Bera skal alla samninga undir full- trúaráðið til endanlegrar sam- þykktar og ræður þá einfaldur meirihluti ráðsmanna. 16. gr. SÍM er aðili í Norræna myndlistarbandalaginu, NKF, og tekur þátt í störfum þess eftir því sem tök eru á. Fulltrúaráð SIM tilnefnir þrjá menn til starfa fyrir íslandsdeild NKF. Fulltrúi stjórnar SÍM sé fjórði maður. Tilnefningin er til tveggja ára í senn, þó þann- ig að ætíð séu tveir fulltrúar með starfsreynslu í nefndinni. Fulltrúar skulu ekki sitja lengur en sex ár í senn. Fulltrúaráð tilnefnir einnig fulltrúaa SÍM í stjórn Sveaborgar, NKKK, til fjögurra ára í senn. Fulltrúinn skal þó ekki sitja lengur en eitt kjörtímabil. SÍM er aðili að IAA, hinum al- þjóðlegu samtökum myndlistar- manna. Uppbygging valds og ákvarðanataka hjá SÍM sem og flestum öðrum félögum er á þá leið að aðalfundur er æðsta vald, síðan félagsfundur, svo fulltrúar- áð, þar á eftir stjórn og svo fram- kvæmdastjóri. En þá erum við komin að stóra vandámálinu og alvarleika þess. Meirihluti núverandi stjómar hefur ekki framfylgt þessum lögum og hefur beinlínis hunsað ákvarðana- töku fulltrúaráðs. Ekki hafa verið lögð undir fulltrúaráðið mikilvæg mál svo sem hverjir eru tilnefndir í úthlutun listamannalauna eða í mikilvægar nefndir eins og list- skreytingasjóð. Það að skort hefur þessa valddreifingu í stjórnun er kannski orsökin fyrir þeirri óánægju sem smátt og smátt hefur verið að magnast upp og komið skýrast fram varðandi undirskriftir Stjórn SÍM á að vera stjóm allra félags- manna. Gréta Mjöll Biarnadóttír telur hana ekki geta leyft sér að ganga þvert á óskir félagsmanna. vegna úthlutunar starfslauna. Það segir einhverja sögu þegar yfir helmingur félagsmanna í SÍM skrifar undir þá áskorun til stjórn- ar SÍM og menntamálaráðherra að barist verði fyrir fjölgun starfs- launa og búnar til starfsreglur um úthlutun starfslaunanna. Þessi hópur sem skrifaði undir áskorunina er engin fýluhópur sem skilur ekki að sumt getur verið Gréta IVflöll Bjarnadóttir. betra en annað né hópur einstakl- inga sem sem lítur á starfslaun sem félagsþjónustu. Þarna er um að ræða fólk úr öllum listgreinum, m.a. sem hefur oft fengið úthlutað eða setið í úthlutunarnefndum. En allir sem skrifa undir eiga það sameiginlegt að vilja starfsréglur og telja annars hættu á að úthlut- un geti orðið of persónubundin og þá ekki eingöngu fagleg. Þessi þörf á valddreifingu er ein af ástæðunum fyrir því að fulltrúa- ráð SÍM, þ.e. fulltrúar sérfélaga og fulltrúar úr hópi einstaklinga samþykktu með öllum greiddum atkvæðum að bera upp tillögu um breytta stjórnskipan á næsta aðal- fundi á undan stjómarkjöri. Breyt- ingartillagan hljóðar á þá leið að öll félög og þá einnig hópur ein- staklinga ættu fulltrúa í stjórn SÍM. Auk fulltrúa sátu fund full- trúaráðs, formaður SÍM og tveir stjórnarmenn úr hópi einstaklinga og greiddu þau tvö síðasttöldu at- kvæði gegn tillögunni. Samkvæmt lögum SIM hefði þessi tillaga átt að fara með aðalfundarboði átaka- laust og vera borin upp á undan stjórnarkjöri. Fulltrúaráðið ætlaði aðalfundi að skera úr um tillöguna eins og lýðræðislegri stjórn sæmir. Meirihluti stjórnar SÍM sá ekki ástæðu til þess að fara eftir lögum. Jafnvel þótt að fulltrúar minntu á þessa samþykkt með sérstakri bók- un neitaði stjórn SÍM að fara að tilmælum fulltrúaráðs. Til að bjarga tillögunni inn á aðalfund skrifaði einn fulltrúa undir tillög- una fyrir hönd fulltrúa. En hvað er að gerast? Stjórn SÍM á að vera stjórn allra félagsmanna og getur því ekki leyft sér að ganga þvert á óskir félagsmanna og gegn lögum sam- bandsins eða hvað? Sérfélög og hópur einstaklinga tilnefnir til full- trúaráðs, fulltrúa sína við stjórnun SÍM og boðleið hins almenna fé- lagsmanns er eðlilega í gegnum fulltrúaráðið til stjómar. Það er því alvarlegt mál þegar fram- kvæmdarstjóm kýs að vera algjör- lega tengslalaus við hinn almenna félagsmann. Þá kemur upp spurningin fyrir hverja vinnur meirihluti stjórnar SÍM og hver er tilgangurinn? Er meirihluta stjómar SÍM e.t.v. stjórnað af einhveijum sem eiga hagsmuna að gæta í nefndum og starfslaunaúthlutunum. Er það einnig angi af sömu hagsmuna- gæslu að hringja með fúkyrðum á skrifstofu SÍM og skammast. Eða þegaj að sumir hóta að segja sig úr SÍM og telja sig hafa svo mikið vald að þeir hóta jafnvel að taka með sér starfslaunaúthlutunina og ráðstöfun sjóðanna. Sú var tíðin að listamenn vildu kenna sig við réttlæti þótt barátt- an við kjötkatlana hafi verið hörð. Það er ótrúlegt að nokkur vilji kenna sig áfram við þá lögleysu og óréttlæti sem meirihluti stjórn- ar SÍM hefur af barnaskap látið viðgangast. Framundan er annað hvort breyting á lögum um stjórn- skipan eða kosning eftir gömlu lögunum. Ef kosið er eftir gömlu lögunum þá á að kjósa tvo nýja menn inn í stjórn. Tveir úr hópi einstaklinga munu sitja annað ár. Sitja þeir fyrir hönd allra - eða eru þau fulltrúar einhvers hags- munahóps og hvers þá? Getur verið að sá sami hagmunahópur beijist fyrir því að loka hringnum með framboði sinna manna til stjórnar. Sú ofstjórn að vilja ekki samvinnu við fulltrúa allra félag- anna og hóp einstaklinga kallar á breytingu. Það er tækifæri til valddreifingar með þeirri laga- breytingartillögu sem lögð verður fyrir aðalfund SÍM. Þetta er hags- munafélag okkar allra. Hugsum því vel um hvernig og hveija við kjósum því það getur ráðið úrslit- um um hvort eitthvert réttlæti verði í stjórnun SÍM. Höfundur er formaður íslenskrar grafíkur ogfulltrúi í fulltrúaráði SÍM. RISASTÍFLUR hafa risið um allan heim allt frá fyrsta áratug tutt- ugustu aldar. Áhrif þeirra og uppistöðulóna á náttúru jarðar og jarðarbúa voru mönn- um lengi vel óljós, nema þegar lónin sökktu byggðum. En þegar fram liðu tímar blasti skelfíngin við: hræði- legar mannfórnir, eyð- ing byggða, náttúru- gersema og sögulegra minja, útrýming fjölda lífverutegunda, meng- un og efnahagslegt rugl. Islendingar voru saklaus börn í draumheimum stórvirkjana fram eftir öldinni, en nú hillir undir að þeir segi náttúru landsins stríð á hendur þrátt fyrir bitra reynslu af stórstíflum í öllum heimshlutum. Þetta virðist fremur haldast í hend- ur við viðhorf og virðingu manna í æðstu stöðum gagnvart náttúr- unni fremur en menntunarstigi. Skilningur þeirra og mat á náttúru- auðæfum birtist í því að ráðast á náttúru landsins, sjálft íjöreggið og éta það - í stað þess að hlúa betur að menntun og menningu, virkja sköpunarmátt fólks og vernda fjöreggið. Það sem ruglar dómgreindina líka eru gífurlegir fjármunir. Stórvirkjanir eru pen- ingasprengjur. Reyndar er ekki heil brú í stór- stíflugerð - ekki í nokkru tilfelli - þegar málin eru krufin til mergjar. Samt taka stjórnvöld sjaldan rök- um vegna þess að mik- ilvægar ákvarðanir sem varða líf okkar allra eru teknar við fámenn hringborð. Hvort sem lönd eru lýðræðisleg eða ekki er rammlega girt fyrir áhrif almennings með lagasetningum og reglugerðum. I flestum löndum jarðar eru einhvers konar landsvirkjanir. Sumar eru illræmdar stofnanir með sérstaka lögreglu eða jafnvel vík- ingasveitir. Alls staðar eru þær einskonar „Vatíkan" eða verndað ríki i ríkinu sem leggur engin spil á borð almennings, nema hálflok- aða ársreikninga. Margar þeirra eru sveipaðar hulu lýðræðis og hafa ýmislegt á pijónunum sem lítur vel út á sjónvarpsskjá, svo sem landgræðsla. Alþýða manna er mötuð á því sem snýst um hags- muni stofnananna en ekki fólksins. Þær gefa út heimatilbúnar skýr- ingar á áhrifum stórvirkjana - sleppa því óþægilega og vafasama. Leynd grúir yfir en voðaverkin tala úti um heimsbyggðina og ættu sannarlega að vera mönnum hér víti til varnaðar. Versta tilfellið til þessa, svo vitað sé, var þegar Banqiao-risastíflan í Henan í Kína brast árið 1975 eftir fellibyl, gífurlegt úrhelli og flóð. Framburður árinnar hlóðst fyrir rennslislokur, stíflan fylltist og brast. Milljónir manna misstu heim- ili sín og 230 þúsund manns féllu í valinn. Þessu voðaslysi sem menn setja í sama flokk og Chernobyl var haldið leyndu þar til árið 1995. Banqiao-stíflan átti að þola risaflóð sem kæmu aðeins einu sinni á 1000 árum. Hún var mannvirkjaprýði, álitin algjörlega hættulaus og gæti ekki sprungið. í þessu eina veðri er talið að 62 aðrar stíflur hafí brostið. Stíflumannvirki og uppistöðulón eru stærstu mannvirki jarðar. Þau eru ekki bara „falleg stöðuvötn" sem geyma vatnsforða til miðlunar. í stórstíflum felst mesta náttúru- farslega eyðilegging í einni fram- Stórstíflur eru ekki aðeins dauðagildrur út um heim, segir Guð- mundur Páll Olafsson í fyrri grein sinni, heldur eru þær og verða það einnig hér. kvæmd sem sögur fara af. Allar fullyrðingar um dásemdir uppi- stöðulóna, einkum stórra, hafa reynst blekkingar, ef ekki helberar lygar. Uti um allan heim eru sár sem seint eða aldrei gróa. Alvarleg- ustu stórslysin eru vissulega þegar stíflumar bresta og drepa fólk, en undarlega hátt hlutfall þeirra springur. Ástæður þess eru fleiri en ein og fleiri en tvær. Ein er verulegt áhyggjuefni fyrir Islendinga. Stór uppistöðulón geta framkallað jarðskjálfta. Vatnið fergir jarðskorpuna og hún sígur undan þunganum. Áhrifin geta komið fram á virkjanasvæðinu eða jafnvel á svæðum sem ekki teljast j arðskálftasvæði. í landi jarðskjálfta og eldvirkni eins og á íslandi þar sem jarðskorp- an er úthafsskorpa og þynnri en meginlandsskorpa er hættan meiri en ella, einkum þó á hliðrunar- eða jarðskjálftabeltum. Gosbeltið er líka hættusvæði vegna sprungumynd- ana sem vatn er talið þrýstast í og virkar eins og fleygur með smurn- ingu sem ýtir jarðlögum af stað. Fargið getur knúið fram jarð- skjálfta og jafnvel eldvirkni, en enginn veit hvar, hvemig eða hve- nær ósköpin dynja yfir. Jarðskorpu- hreyfingar í tengslum við breytilegt farg jökla á ístíma er talið hafa valdið mestu um gífurlegar sveiflur í eldvirkni á íslandi við lok síðasta jökulskeiðs en þá mun hraunaveita frá gosbeltunum hafa verið 30-40 sinnum meiri en nú. Eldvirk reksvæði svo sem ein- stæðir Köldukvíslarbotnar, Veiði- vatna- og Þjórsársvæðið, vatna- svæði Jökulsár á Fjöllum og mun víðar hljóta að bjóða hættunni heim. Samband milli uppistöðulóna og jarðskjálfta er fyrir löngu þekkt, eða allt frá árinu 1932. Jarðeðlis- fræðingar telja að yfir 70 stíflur í heiminum hafi framkallað jarð- skjálfta, og margar þeirra oft. Af stíflum sem hafa knúið fram jarð- hræringar yfir 4,0 á Riehter eru Hoover í Bandaríkjunum, Aswan í Egyptalandi, Koyna í Indlandi, Grandval í Frakklandi... listinn er mjög langur. Stórstíflur eru ekki aðeins dauða- gildrur út um heim heldur eru þær og verða það einnig hér. Þetta verð- ur því miður ekki umflúið. Þess vegna er það viðtekin venja að vinna hættumat þ.e.a.s. að áætla hvað gerist ef stífla brestur. Einnig er reynt að segja fyrir hveijar líkur séu á því að stífla bresti. Það er að vísu hæpnari útreikningur því enginn veit hvað getur gerst í landi eldvirkni, jarðhræringa, snjóflóða og hamfarahlaupa. Hveijar voru til dæmis líkur á eldgosi í Heimaey? Samt gaus. Fyrir íslendinga verður ógnin af stíflum að teljast sérlega ískyggileg og ærin_ ástæða að fara að öllu með gát. Ég er þess full- viss að þingmenn íslendinga vilja þjóðinni vel og vilja upplýsa hana um hættumat stórvirkjana. Ef virkjanir eru hættulausar hvað er þá svona Ieyndardómsfullt? í hvaða læstu skúffu er hættumatið á nú- verandi stíflum eða á fyrirhuguð- um stíflum á hálendi íslands? Hættumatið eða úttektin á því hvað gerist er til - meira að segja vönduð úttekt. Hvers vegna fá þingmenn og þjóð ekki að vita um ógnina eða hættuleysið? Ræður þar velvilji gagnvart þingi og þjóð eða mun hrikta í máttarstoðum flestra stj órnmál aflokka? Þeir se_m fullyrða að stórstíflur á hálendi íslands séu hættulausar þekkja annaðhvort ekki til sögu stórstíflna eða jarðvísinda eða eru vísvitandi að blekkja fólk. Það er hæpið að hægt sé að byggja full- komlega öruggar stíflur í landi íss og eldvirkni. Ekki svo að skilja að menn vandi sig ekki við stíflugerð- ir. En meðalaldur stíflna í heiminum er aðeins um sextíu ár og alltof hátt hlutfall þeirra springur. Auð- vitað eru ótal óvissuþættir í stíflu- gerð sem mannlegur máttur ræður ekki við. Þess vegna eru allar full- yrðingar um styrka stjórn mann- sandans yfír ólgandi straumvötnum og náttúruöflunum blekking og rugl. Smáflóð í Þjórsá síðastliðinn vetur sem ekki tókst að hemja er* skýr vitnisburður um raunverulega getu okkar og þekkingu. í annarri grein mun ég víkja nokkuð að því sem af getur hlotist þegar fiktað er í ofurviðkæmu vist- kerfi íslands. Höfundur cr rithöfundur og náttúrufræðingur. Forðum okkur háska frá... Um stórstíflur, uppistöðulón ogjarðskjálfta Guðmundur Páll Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.