Morgunblaðið - 29.05.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 47
SKOLASLIT
STUDENTSHUFURNAR settar upp.
MorgunblaWGolli MONIKA Sóley Skarphéðinsdóttlr klæddist kjóln-
um sem færði heimi sigur í fatahönnunarkeppni
BURDA í vetur.
Skólaslit Fjölbrautaskólans í Breiðholti
3.000. stúdentinn brautskráður
MARÍA Ingimarsdóttir, dux scholae, tekur við skírteini sínu úr hendi Kristínar Arnalds, skólameistara.
náttúrufræðibraut voru braut-
skráð níu stúdentsefni. Af þeim
fékk hæstu meðaleinkunn, Hrefna
Sylvía Sigurgeirsdóttir, 7,6.
Bryndís og Jón Baldvin
heiðursgestir
Meðal viðstaddra við braut-
skráninguna, var stór hluti stúd-
entahópsins sem brautskráðist frá
Menntaskólanum á ísafírði fyrir
20 árum og flutti Páll Tómasson
kveðju þeirra til skólans og ný-
stúdenta. Sá hópur var sá síðasti
sem brautskráður var af þeim
hjónum Bryndísi Schram og Jóni
Baldvin Hannibalssyni, en þau
stjórnuðu skólanum af myndar-
skap fyrstu tíu árin, og sá fyrsti og
eini sem Bryndís brautskráði, en
hún gegndi starfi skólameistara
um eins árs skeið í fjarveru bónda
síns. Þau hjón voru sérstakir heið-
ursgestir við athöfnina á laugar-
dag og flutti Bryndís viðstöddum
kveðju frá þeim hjónum.
Við athöfnina var einnig stadd-
ur hópur stúdenta sem braut-
skráðust frá Menntaskólanum á
ísafirði árið 1987 og flutti Stella
Hjaltadóttir nokkur orð fyrir
þeirra hönd. Þá flutti fulltrúi Vest-
fjarðadeildar Sjúkraliðafélags Is-
lands, Emma Rafnsdóttir, nokkur
orð, og færði þeim nemendum sem
luku prófi á sjúkraliðabraut rósir
að gjöf.
Þegar stúdentsefnin höfðu sett
upp húfur sínar, flutti skólameist-
ari Framhaldsskólans, Björn
Teitsson, nokkur orð og síðan
flutti ávarp „Dux schoale“ Hilmar
Magnússon. Vakti ræða hans
kátínu á meðal viðstaddra enda
gamansöm og vel flutt. Undir lok
athafnarinnar fluttu fjórir nýstúd-
entanna þrjú þjóðlög, lögin Island,
ljóð Jónasar Hallgrímssonar,
Ki'ummavísur eftir Jón Thorodd-
sen og Vísur Vatnsenda-Rósu.
Halda skal gildi
menntunar á lofti
í ræðu sinni við athöfnina sagði
Bjöm Teitsson, skólameistai’i
meðal annars og beindi orðum sín-
um sérstaklega til þeirra sem voni
að brautskrást frá skólanum: „Við
lifum líklega á bestu tímum sem
runnið hafa upp yfir Islendinga.
Við lifum við betri lífskjör en flest-
ar aðrar þjóðir. Fjölskyldur hér á
landi eru yfírleitt býsna vel efhum
búnar og gera prýðilega við börn
sín. En það er ekki víst að þetta
verði alltaf svona. Best er að gá
vel að sér. Nokkrar blikur eru á
lofti. Fólk þarf að mennta sig vel
til að auka þekkingu sína og víð-
sýni, af hvorugu fæst seint nóg.
Sumt bendir nú hins vegar til þess
að við íslendingar metum mennt-
un ekki nægilega mikils. Til dæm-
is virðist íslenskt atvinnulíf ekki
borga nógu vel fyrir hana. Þetta
þurfa sem flestir að íhuga. Ég vil
skora á ykkur að halda á lofti gildi
menntunar, hvar sem þið komið.“
kenningar, fyrir góðan námsárang-
ur á stúdentsprófi, fyrir árangur í
stærðfræði og raungreinum og fyrir
góðan árangur í íslensku.
Aðrir sem hlutu viðurkenningu
fyrir námsárangur og vel unnin
störf voru: Eiríkur Jóhann Einars-
son, Elva Sif Grétarsdóttir, Einar
Gunnar Karlsson, Hannes Jóhanns-
son, Jóhann B. Elíasson, Ólafur
Einar Hrólfsson, Eygló Pétursdótt-
ir, Guðmundur Ingvar Jónsson,
Guðrún Júlíusdóttir, Ingvar Þór
Kristjánsson, Jónína Magnúsdóttir,
Ólafur Jóhannesson, Sigurrós Páls-
dóttir, Sonja Sigurðardóttir, Sólveig
María Magnúsdóttir, Stefán Hauk-
dal Jónasson, Þóra B. Karlsdóttir
og Þórunn Día Steinþórsdóttir.
FJÖLBRAUTASKÓLANUM í
Breiðholti var shtið 27. maí sl. Þá
brautskráði skólinn 214 nemendur,
119 luku stúdentsprófi og 73 luku
starfsréttindanámi.
Bestum árangri á stúdentsprófi
náði María Ingimarsdóttir af nátt-
úrufræðibraut. Fimm nemendur
luku prófum með ágætiseinkunn.
Við skólaslitin útskrifaðist 3000.
stúdentinn, 300. húsasmiðurinn og
1000. nemandinn lauk verslunar-
skólaprófi frá skólanum. Um 140
manns starfa við skólann. 1434
nemendur innrituðust í dagskóla
og 760 í kvöldskóla. Mikil fjöl-
breytni er í útskriftarhópnum, þar
sem anna- og áfangakei-fi skólans
gerir nemendum mögulegt að ljúka
námi á fleiri en einu sviði og braut.
Sumarskóli verður starfræktur við
skólann í sumar og hefst kennsla í
júníbyrjun.
Kristín Arnalds, skólameistari,
minntist í upphafi ræðu sinnar
Guðmundar Sveinssonar, fyrsta
skólameistara Fjölbrautarskólans í
Breiðholti, en hann lést 16. febrúar
sl. Ræddi skólameistari m.a. um
ræktun landsins og sagði frá gróð-
urreit sem skólanum var úthlutað
árið 1995, við Úlfljótsvatn, í tilefni
20 ára afmæhs skólans. Er það orð-
ið að venju að skólameistari fari
með nemendur sína í gróðursetn-
ingarferð á vorin.
Athygli vekur velgengni nem-
enda, á námsbrautum tengdum
fatagerð, textíl og hönnun, í fata-
hönnunarkeppnum hérlendis. í al-
þjóðlegri fatahönnunarkeppni Sm-
irnoff, sem fram fór hérlendis fyrir
skemmstu, urðu nemendur skólans
í 1., 3. og 5. sæti keppninnar. í
BURDA-fatahönnunarkeppninni í
vetur hlutu nemendur Fjölbrauta-
skólans 1., 2. og 3. sæti.
Tveir nemendur skólans, þær
Lilja Eggertsdóttir, píanó, og
Rakel Júlía Sigursteinsdóttir,
flauta, léku við útskrift. Snævar
Sigurðsson talaði fyrir hönd út-
skriftamema og bróðir hans, Sig-
þór Sigurðsson flutti ávarp 10 ára
stúdenta.
Kynningarfun d u r.
BUSÍNiSSOBjlCTS'
Microsoft
BREYTA ehf
Stoðkerfi fyrir stjórnendur í
Microsoft Office umhverfi
EJS og Breyta, í samvinnu við Business Objects Nordic, kynna
möguleika stjórnenda til þess að nálgast upplýsingar og vinna úr þeim,
m. a. með OLAP greiningu. Kynningarfundur verður í þingsölum Hótels
Loftleiða, föstudaginn 30. maí nk. kl. 8.30 til 12.00.
Efni fundarins er eftirfarandi:
Vöruhús gagna oe Microsoft
Örn Arason, EJS
Fyrirspurna- skýrslugoröar- og OLAP greiningarkerfið Business Objects
Marc Dibiaso, Business Objects Nordic
SQL Server og önnur stoðkerfi í MS Office og MS BackOffice
Ásgrímur Skarphéöinsson, EJS
Markmið og undirbúningur fyrir uppbyggingu vöruhúss gagna hjá EIMSKIP
Cylfi Hauksson, Eimskip
Stoðkerfi fyrir ákvarðanatöku í nútíð og framtíð
Atli GuÖmundsson, Breytu
< , r < fy n n - V *■- U 1 1 O * ' . i r t
h t t p / / vy v / w « ? 1 =;