Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Elskulegur eiginmaður minn, EGGERT ÓLAFSSON bóndi, Þorvaldseyri, Austur-Eyjafjöllum, lést á heimili sínu laugardaginn 24. maí sl. Útför hans fer fram frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 31. maí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vildu minnast hans, láti Heilsugæsluna í Vík njóta þess. Reikningsnúmer 2701 í Landsbanka (slands í Vík. Ingibjörg Ólafsson. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, GUNNAR ÓLASON umsjónarmaður eldvarna, Gautlandi 15, Reykjavík, lést á Landspítalanum að morgni miðviku- dagsins 28. maí. Guðrún Sigríður Sverrisdóttir, Katrfn Gunnarsdóttir, Ragnar Þórisson, Hrafnhiidur Lára, Ellen og Guðrún Edda Ragnarsdætur. + Elskuleg dóttir okkar, systir og barnabarn, SARA KRISTINSDÓTTIR, Hverfisgötu 5, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 30. maí kl. 13.30. Kristinn Óskarsson, Kristín María Indriðadóttir, Marta Kristinsdóttir, Fróði Kristinsson. + Föðursystir mín, SIGRÚN MARTA JÓNSDÓTTIR (LÓA), Suðurgötu 10, Sauðárkróki, sem andaðist þriðjudaginn 20. maí, verður jarðsungin frá Sauðárkróks- kirkju laugardaginn 31. maí kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Björg Ragnarsdóttir. + Faðir okkar, SIGURÐUR S. HÁKONARSON, Bergþórugötu 51, Reykjavík, lést þriðjudaginn 27. maí. Útförin tilkynnt síðar. Jens og Ottó Sigurðarsynir. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, teng- dafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR KRISTINN BJÖRNSSON, Arnarheiði 8, Hveragerði, lést á heimili sínu þriðjudaginn 27. maí. Guðríður Jóna Indriðadóttir, Bjarni Halldór Kristinsson, Þrúður Brynja Janusdóttir, Indriði Kristinsson, Margrét Guðrún Karlsdóttir, Grétar Jón Kristinsson, Ástrós Gyða Kristinsdóttir, barnabörn og bamabarnabörn. ÁGÚSTA RÓSA ANDRÉSDÓTTIR + Ágústa Rósa Andrésdóttir fæddist á Bakka í Bjarnafirði í Strandasýslu 15. nóvember 1915. Hún lést á sjúkra- húsi Akraness 22. mai síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Júlíana Guðmundsdóttir, f. 26. júní 1874, d. 2. september 1956, og Andrés Jóhannsson bóndi á Bakka og síðar á Gíslabala, f. 2. maí 1876, d. 27. september 1943. Júlíana og Andrés eign- uðust átta börn auk Ágústu og er einn bróðir, Magnús Bakk- mann, á lifi en hann býr á Akra- nesi. Þau sem eru látin voru Jón, lést frumvaxta, Jóhann, bóndi á Gíslabala og á Bassa- stöðum, Ólafur Jóhannes, sjó- maður á ísafirði, fórst í róðri frá ísafirði 23 ára gamall, Sól- mundur, bóndi á Gíslabala, lést 29 ára gamall, Rósa lést ung. Magnús Bakkmann eldri, lést ungur, og Vilborg á Gíslabala, lést 23 ára gömul. Júlíana átti tvo drengi með fyrri manni sín- um Jóni Þorsteinssyni er fórst i róðri frá Gjögri og eru þeir báðir látnir. Þeir voru Sigurð- ur, lést frumvaxta og Sigurður Árni, sjómaður á Isafirði og síðar í Hafnarfirði. Hinn 1. júní 1938 giftist Ágústa fyrri manni sínum, Guðlaugi Franklín Steindórssyni, f. 16. febrúar 1914, d. 25. janúar 1967. Þau skiidu. Þau eignuðust tvö börn. 1) Dreng, f. 26. október 1936, d. 27. október 1936. 2) Jennýju Sólborg, f. 16. júlí 1936, hús- móður á Akranesi. Börn Jennýjar eru Ágústa ólöf sem á fjögur börn, Diðrik, Guðnýju, Dagnýju og Bjarka; og Guð- laugur Kristinn sem á tvö börn, Egil Guðvarð og Drífu Dröfn. Hinn 23. mars 1943 giftist Ágústa seinni manni sinum Ól- afi Elíassyni, f. 31. júlí 1912, d. 27. september 1995. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Halldóra, f. 6. maí 1943, d. í dag verður til moldar borin tengdamóðir mín Ágústa Rósa Andrésdóttir. Nú þegar þú leggur af stað í þessa ferð langar mig að minnast annarrar ferðar sem við fórum fyrir nokkrum árum. Mig langar til að nefna hring- ferðina sem við fórum. Þetta hafði verið draumur hjá þér í mörg ár, því Austfirðina langaði þig að sjá því oft hafði verið haft á orði við þig að þar sæir þú Strandirnar í annarri mynd en muninn sástu, því undirlendið er meira fyrir aust- an. Þegar lagt var af stað áttum við ekki von á góðu, því sjaldan hafði rignt eins mikið og þann dag, en sem betur fer varð það ekki raunin því Austfirðimir skört- 15. maí 1943. 2) Ól- afur, f. 8. júní 1944, d. 16. mars 1997, húsasmíðameistari og kennari á Akra- nesi, kvæntur Ástu Rannveigu Kristj- ánsdóttur, synir þeirra Elías Halldór og Kristján. 3) Andrés, f. 6. sept- ember 1951, aðal- bókari á Akranesi, kvæntur Guðlaugu Rósu Pétursdóttur, dóttir þeirra Ág- ústa Rósa, hennar börn Andrés Már og Aðalheiður Rósa. 4) Júlíus Magnús, f. 23. mars 1953, vörubílstjóri, kvæntur Sigrúnu Bjömsdóttur, sonur þeirra Jóhann Ragnar. Ágústa átti heima á Bakka til 1921, en flutti þá ásamt for- eldrum sínum og systkinum að Gislabala í Arneshreppi í Strandasýslu. Árið 1922 fór hún til Njáls Guðmundssonar móðurbróður síns og Margrét- ar konu hans á Njálsstöðum í sömu sveit og dvaldi þar til ársins 1929 er hún fór aftur að Gíslabala til foreldra sinna. Árið 1932 fór hún til Reykjavík- ur eftir ársdvöl í Hnífsdal. í Reykjavík stundaði hún ýmis störf. Það var svo upp úr 1940 að hún fór sem vinnukona að Svarfhóli í Stafholtstungum í Borgarfirði. Árið 1947 flytja Ágústa og Ólafur að Lambhaga í Skilmannahreppi í Borgar- firði. Þar bjuggu þau til 1954 að þau flyija á Akranes, þar sem þau bjuggu fyrst á Heiðar- braut ^l, síðan á Vesturgötu 117. Árið 1996 fluttist Ágústa á Dvalarheimilið Höfða á Akra- nesi. Eftir að komið var á Akra- nes, vann hún m.a. í frystihúsi, í vegavinnu, á hóteli (Forna- hvammi), mjólkurbúð o.fl. Ág- ústa hefur tekið þátt í félags- störfum, m.a. í kvenfélögum og stúkunni Akurblómi á Akra- nesi. Ágústa verður jarðsungin frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. uðu sinni fegustu mynd með sól og yfir tuttugu stiga hita. Og þvílík ferð að fá svona gott veður í þær þijár vikur sem við vorum á ferðalagi. Það er líka gott að vita til þess að ferðasöguna ritaðir þú niður. Þegar við ókum inn Hrútafjörðinn á þínar æsku- slóðir var farið að líða að ferðalok- um. Áttum við samt eftir að fara í margar góðar ferðir saman. Og það er gott til þess að hugsa að margar af ferðum þínum í gegn- um tíðina skráðir þú á blað og gerðir úr þeim heillandi sögur. Það var margs að sakna eftir að þú fluttir af Vesturgötunni því gott var að koma í létt spjall og góðar kökur. Að lokum vill fjölskyldan öll I stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla Yerið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. SKEMMUVEGI 48, 200 KOP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 senda starfsfólki Höfða og á A- deild Sjúkrahúss Akraness alúðar- þakkir fyrir einstaka umönnun og hlýju okkur til handa í hennar miklu veikindum. Það eru búin að vera stór áföll í okkar litlu fjölskyldu á stuttum tíma, tengdafaðir, mágur og tengdamóðir öll horfin yfir móðuna miklu á innan við tveimur árum. Elsku Gústa mín, ég vona að þér líði nú vel og vona að sonur og eiginmaður hafi tekið vel á móti þér í þínum nýju heimkynn- um. Öllum ástvinum sendi ég samúð- arkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín tengdadóttir, Sigrún. Eitt það versta við að eldast er að vera sífellt að kveðja gamla vini og samferðamenn, sem hverfa yfir móðuna miklu. Það minnir okkur líka á að öll erum við á sömu leið, misjafnlega erfiðri leið uns yfir lýkur. Við viljum þó trúa því að eitthvað taki við, „meira að starfa guðs um geim“. Síðustu mánuðir voru henni Gústu erfiðir bæði líkamlega og andlega, þótt hún 'kvartaði ekki. í miðju veik- indastríði missti hún son sinn úr sama sjúkdómi og hún barðist við sjálf. Það var kannski hennar síð- asta afrek í lífinu að geta fylgt honum til grafar, þá komin í hjóla- stól. Ég ætla ekki að fara að rekja ætt né uppruna, það geta aðrir betur. En ég vissi að hún var kom- in af traustu fólki af Ströndum og þangað leitaði hugurinn oft. En ég vil þakka fyrir samfylgd hennar í st. Akurblómi í 27 ár. Hún gekk í regluna 10. mars 1975 og kunni strax vel við sig í þeim hópi, enda kunnug flestum af öðrum vett- vangi. Hún lét sig sjaldan vanta á fundi og var alltaf tilbúin til starfa þegar þörf var á, hvort sem var að baka fyrir fund eða basara eða lesa upp eitthvað til skemmtunar. Það hagaði þannig til með búsetu okkar við Vesturgötuna að það var bein lína að taka hana með á fundi eða spilakvöld í stúkunni. En svo flutti hún inn á Höfða sl. haust. Hún hafði hlakkað til að flytjast á dvalarheimilið og láta dekra við sig, eins og hún orðaði það. En því miður naut hún þess ekki lengi. Síðast mætti hún á fund hjá okkur 2. des. en upp úr því fóru kraftarn- ir að þverra, en hugurinn var skýr til hinstu stundar. Enn er höggvið skarð í raðir reglunnar á Akranesi, en við minn- umst góðu stundanna í stúkuhús- inu og ferðalaganna, einnig þegar við dvöldum í Galtalækjarskógi, síðast vorið 1995. Við vottum innilega samúð börnum, barnabörnum og öðrum ættingjum. Allra bíður ævikvöld því enginn framhjá stígur. I trú á drottins dýrð og völd hver dagur ris og hnígur. (H.H.) Fyrir hönd st. Akurblóms, Helga Helgadóttir. H H Eríidrykkjur H H Simi 562 0200 ^ rxxxxxxxxxYrl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.