Morgunblaðið - 29.05.1997, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997 53
NÍU fyrir brokk og tölt, frábær árangur hjá Hugin,
knapi er Sigurður Matthíasson.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
KAPPI frá Hörgshóli kominn í röð hinna bestu meðal kynbóta-
hesta, knapi er Sigurður Sigurðarson.
KRINGLA frá Kringlumýri er með frammistöðu sinni orðin þriðja
hæst af klárhryssum fyrir hæfiieika, knapi er Sigurður Sigurðarson.
STIRNIR frá Syðra-Fjalli, enn einn álitlegur stóðhestur sem kem-
ur fram á sjónarsviðið, knapi er Sigurður Matthíasson.
Hnikast 1 rétta átt
*®Gí)
CO®?
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Bensínstöðvar
og helstu
byggingavöruverslanir.
Dreifing: Hringás ehf.,
Langholtsvegi 84, s. 533 1330.
ÍS3
mnci
DRÁTTAR-
BEISLI
Eigum fyrirliggjandi dráttarbeisli í flestar
gerðir bifreiða. Rafmagnstengi einnig
fáanleg. Nánari upplýsingar fást hjá sölu-
mönnum okkar í síma 588 2550.
segir Kristinn Hugason hrossaræktarráðunautur
HESTAR
Víðivellir
í Reykjavík
HÉRAÐSSÝNING
KYNBÓTAHROSSA
í KJALARNESÞINGI
EITT hundrað fímmtíu og sjö
hross hlutu fullnaðardóm á héraðs-
sýningu kynbótahrossa'í Kjalarnes-
þingi í síðustu viku. Dæmt var á
fjórum stöðum, Hafnarfirði, Kópa-
vogi, Reykjavík og Mosfellsbæ, en
yfirlitssýningin fór fram að Víðivöll-
um hjá Fáki og sömuleiðis verð-
launaafhending á sunnudegi. Annar
tveggja dómnefndarmanna, Krist-
inn Hugason hrossaræktarráðu-
nautur, kvaðst að vonum ánægður
með útkomu hrossanna í dómi.
Sagði hann rúmlega 50% hryssn-
anna hafa náð yfir gömlu ættbókar-
mörkin, 7,50, og tæplega þriðjung-
ur þeirra náði yfir 7,75. Þetta sé
vel viðunandi árangur í samanburði
við sýningar undanfarinna ára og
ljóst að ræktunin hnikast í rétta
átt. Hinsvegar hafi sér fundist
vanta meir af hryssum með einkunn
yfir 8.
Dómana á
einn stað
Kristinn kvað tímabært að hesta-
menn í Kjalamesþingi íhugi hvort
ekki sé hægt að sameinast um einn
stað fyrir dómstörfin því það væri
bæði tafsamt að vera stöðugt að
skipta um staði auk þess sem eðli-
legt væri að hrossin séu dæmd við
sem líkastar aðstæður. Sagðist
Kristinn svo sem ekki eiga að hafa
skoðun á því hvaða staður væri
valinn en benti þó á að reiðhallimar
nýttust vel fyrir sköpulagsdóma.
Nefndi hann í því sambandi reiðhall-
irnar í Kópavogi og Víðidalnum sem
álitlega kosti.
Kappi kominn í
fremstu röð
Klárhestarnir tóku forystuna á
meðal stóðhesta og var þar fremst-
ur í flokki Kappi frá Hörgshóli sem
áður hafði hlotið rétt yfir átta í
aðaleinkunn þá fimm vetra gamall.
Hann hækkar verulega bæði fyrir
sköpulag og kosti, er með jafnar
einkunnir, 8,33 fyrir sköpulag og
8,37. Kappi er hæst dæmda hross
sýningarinnar og með þessum ár-
angri skipar hann sér á bekk með
fremstu kynbótahestum landsins.
Hæsta einkunnin er 9,5 fyrir stökk
en næst kemur 9,0 fyrir tölt, vilja
og fegurð í reið, 8,5 fyrir geðslag
og brokk, sem stóð í 9,0 í síðasta
dómi. í flokki sex vetra og eldri
hesta hlutu þrír hestar auk Kappa
yfir átta í einkunn. Tveir þeirra,
Ferill frá Hafsteinsstöðum og Sjóli
frá Þverá, með háar hæfileikaein-
kunnir, Ferill með 8,59 þar af 9,0
fyrir stökk og vilja. Sjóli er með
9,5 fyrir stökk og 9 fyrir skeið og
vilja. Báðir eru þeir með rétt þokka-
lega sköpulagseinkunnir. Ejórði
hesturinn, Otkell frá Tóftum, nær
sér hinsvegar upp á sköpulaginu,
er með 8,13, þar af 9 fyrir fótagerð
sem telst nú gott undan Otri en
skýringanna er líklega að leita í
móðurlegginn þar sem við sögu
kemur hestur frá Laugarvatni. Ot-
kell er með 7,87 fyrir hæfileika.
Sjö aðrir hestar í þessum flokki
hlutu yfir gömlu ættbókarmörkin,
7,75.
Góð sending úr
Þingeyjarsýslu
í fimm vetra flokki stóð efstur
Stimir frá Syðra-Ejalli í Suður-
Þingeyjarsýslu, stórmyndarlegur
klárhestur með góðum fótaburði og
verklegur í allri framgöngu. Hann
er undan Safír frá Viðvík og líklega
fyrsti stóðhesturinn undan þeim
ágæta hesti sem eitthvað kveður
að. Móðurfaðir hans er Sokki frá
Kolkuósi og líklega er þetta sömu-
leiðis fyrsta hrossið út af honum
sem einhverja athygli vekur. Stirnir
er með 9 fyrir hófa og tölt og 8,5
fyrir öll önnur atriði í hæfileikum
að frátöldu geðslagi, 8,0, og að
sjálfsögðu skeiði, 5,0. Þrír aðrir
hestar náðu yfír 8,0 í aðaleinkunn,
þeir Geisli frá Reykjavík með 8,09,
Sindri frá Högnastöðum með 8,06
og Tónn frá Torfunesi með 8,03,
en hann er klárhestur með 8,23
fyrir sköpulag og fær 9 fyrir bak
og lend og samræmi. Einn hestur
til viðbótar náði yfír 7,75, Öngull
frá Akurgerði, með 7,88.
Aðeins þrír fjögurra vetra hestar
hlutu fullnaðardóm og er lítandi á
tvo þeirra, þá Huginn frá Bæ í
Strandasýslu og Markús frá Lang-
holtsparti. Huginn er með 9 fyrir
tölt, brokk og vilja og stendur vel
undir því. Hann fær 8,24 fyrir
hæfíleika, sem er einstakt hjá fjög-
urra vetra skeiðlausum hesti. Það
sem hinsvegar skyggir á er sver
háls, enda fær hann ekki nema 7,5
þar. Þessu er nokkuð öfugt farið
með Markús sem fær 8,05 fyrir
sköpulag en nær einnig 9 í hæfileik-
um fyrir stökk. Efnilegir folar en
ekki gallalausir frekar en svo marg-
ir aðrir.
Háar sköpulags-
einkunnir
Ellefu fjögurra vetra folar hlutu
sköpulagsdóm og náðu sjö þeirra
viðunandi einkunn. Vert er að geta
tveggja þeirra, í fyrsta lagi Seifs
frá Efra-Apavatni, sem er undan
Stígi frá Kjartansstöðum, og Freyju
Kjarvalsdóttur frá Efra-Apavatni.
Hann hlaut hvorki meira né minna
en 8,40, er með 9,5 fyrir höfuð, 9
fyrir háls og herðar og bak og lend,
8,5 fyrir samræmi, 8 fyrir hófa, 7,5
fyrir fótagerð og 7 fyrir réttleika.
Fróðlegt verður að sjá hvernig þessi
háa einkunn mun standast tímans
tönn. Hinn hesturinn er Kormákur
frá Kjarnholtum, undan Svarti frá
Unalæk og stóðhestamóðurinni
frægu, Glókollu frá Kjarnholtum.
Hann hlýtur 8,20, er með 7,5 fyrir
höfuð, 8,5 fyrir háls og herðar, bak
og lend og hófa, 8,0 fyrir sam-
ræmi, fótgerð og réttleika.
Kringla I háum tölum
Fimm hryssur sex vetra og eldri
hlutu yfir átta í aðaleinkunn og
stóð þeirra efst Sonnetta frá
Sveinatungu með 8,10, en jöfn
henni var Hátíð frá Hóli, báðar með
8,10 en tölvan sjálfsagt fundið ein-
hvern brotamun. Báðar vel vakrar,
sér í lagi Hátíð, sem er með 9,5
fyrir skeið. En það var líklega
hryssa í þriðja sæti sem vakti hvað
mesta athygli, Kringla frá Kringlu-
mýri, sem hlaut 8,58 fyrir hæfileika
og þar af 5,0 fyrir skeið. Hún fær
9,5 fyrir tölt og fegurð í reið, 9
fyrir brokk, stökk og vilja og 8,F
fyrir geðslag. Með þessum árangi
er hún þriðja hæst í hæfileikum s
klárhryssum.
í úrslitaupptalningu af héraðs-
sýningunni í Morgunblaðinu í gær
féllu út efstu fimm vetra hryssurn-
ar, en þar náði aðeins ein hryssa
yfir átta í einkunn. Þar var að verki
Gnótt frá Dallandi sem er undan
Orra frá Þúfu og Grósku frá Þúfu,
eigandi er Þórdís Sigurðardóttir en
knapi var Atli Guðmundsson. Fyrir
sköpulag fékk hún 8,30, fyrir hæfi-
leika 7,89 og 8,09 í aðaleinkunn.
Næst henni var ísbjörg frá Ólafs-
vík, undan Kolfínni frá Kjamholtum
og Rjúpu frá Steðja. Eigandi er
Stefán S. Kristófersson, knapi
Vignir Jónasson. Fýrir sköpulag
hlaut hún 7,63, hæfileika 8,23, að-
aleinkunn 7,93. í þriðja sæti varð
svo Von frá Mýrdal II, undan Kol-
finni frá Kjamholtum og Nellý frá
Mýrdal, eigendur Gísli Þórðarson
og Magnús Norðdahl, sem sat
hryssuna. Fyrir sköpulag fékk hún
7,75, hæfileika 8,07 og aðaleinkunn
7,91.
Engin af fjögurra vetra hryssun-
um náði yfir 8 í einkunn. Tvær
þeirra náðu yfir átta fyrir sköpulag,
Gæska frá Fitjum með 8,13 og
Spóla frá Stóra-Ármóti með átta
slétta og þar af 9 fyrir bak og lend.
Efsta hryssan, Nótt frá Hlemmi-
skeiði, náði yfir átta fyrir hæfileika,
8,21, þar af 8,5 fyrir tölt, stökk og
fegurð í reið.
I lokin er vert að geta þess að
notkun reiðhjálma fer mjög vaxandi
og sáust þó nokkrir knapar ríða
með reiðhjálm í kynbótasýningunni
og er það vel. Eiga þeir knapar
hrós skilið sem ganga á undan með
góðu fordæmi og mæta með reið-
hjálma á þeim vettvangi þar sem
ekki er skylda að bera þá.
Valdimar Kristinsson
BílavörubúSin
FJÖÐRIN
í fararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVlK SÍMI 588 2550
tSESUZS