Morgunblaðið - 29.05.1997, Page 58
r> 'i
58 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
hfl£>£R V£6NA } Fv>n
£TOZ
S&H /COMA N'ALÆCT- \
Þéfí'________________
ufsil
X#TLÁ&>U Ek*P\
JÐF’AþéZSONÞ-
£PR£Tr..VAnJ/£>
AMÖ6 NOTX'
J-eqt/
Grettir
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
IT 5 TOO BAD YOU CAN T TALK, SNOOPY..
IF YOU COULD, l'LL 8ET TOU LUOULDN'T
5AV "COOL," OR"UiHATE^/ER"OR"MOPROBLEM"
Verst að þú getur ekki talað, Snati, ef þú Ég er viss um að þú myndir segja
gætir það er ég viss um að þú segðir ekki: eitthvað reglulega mikilvægt...
„Svalt!“, eða „gildir einu“ eða „ekkert mál“. „Fótboltamamma“.
BREF
UL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Félagar
Pólýfónkórsins
Frá Undirbúningsnefnd:
Á ÞESSU ári eru liðin 40 ár frá
því að Pólýfónkórinn hóf starfsemi
undir forustu Ingólfs Guðbrands-
sonar. Sunnudaginn 22. desember
1957 efndi nafnlaus hópur undir
hans stjórn til jólatónleika í
Laugarneskirkju, en æfingar höfðu
hafist þá fyrr um haustið.
Það var svo 8. apríl 1958, sem
kórinn hélt sína fyrstu tónleika
undir nafninu Pólýfónkórinn í
Gamlabíói. Bæði nafn kórsins og
verkefnaval vöktu þá þegar nokkra
athygli. Það var þó ekki síst flutn-
ingur kórsins á sjálfri efnisskránni
sem varð listunnendum tilefni til
umræðna og menn veltu vöngum
yfir.
Stíll og söngmáti kórsins stungu
nokkuð í stúf við það sem almenn-
ingur átti að venjast fram að þessu
og sýndist sitt hverjum í þeim efn-
um. Óhætt er að segja að kórinn
hafi strax á þessuum fyrstu tónleik-
um markað sér bás í íslenskri tón-
listarmenningu og verið trúr þeim
grunntóni sem þá var sleginn.
Verkefnavalið þróaðist síðar yfír í
stærri verkefni, sem eins og öllum
er Ijóst, eru samsett úr smærri
perlum en mynda saman eina list-
ræna og óijúfanlega heild í túlkun
og flutningi.
Saga kórsins fyrstu 30 árin er
til í bókarformi undir nafninu „í
ljósi líðandi stundar“ og kórinn gaf
út hljómplötur og geisladiska og
enn mun til nokkurt upplag af flest-
um plötunum í vörslu kórsins.
Einnig er varðveitt töluvert af
upptökum kórsins hjá Ríkisútvarp-
inu, þótt sumt hafi aldrei verið tek-
ið upp og annað glatast.
Það er mikið áhugamál þeirra,
sem hugsa til starfs Pólýfónkórsins
á fyrri árum, að þessar upptökur
verði varðveittar til framabúðar og
gerðar aðgengilegar fyrir alla með
útgáfu á hljómdiskum, annaðhvort
verkin í heild eða útdrættir og sýn-
ishorn af verkefnavali kórsins.
Kórinn hefur ekki starfað nú í
áratug, en í tilefni af þessum tíma-
mótum ætla félagar Pólýfónkórsins
að beita sér fyrir samkomu föstu-
daginn 30. maí 1997 í Gullhömrum
í Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg 1.
Hlaðborð með heitum og köldum
réttum að hætti hússins verður á
boðstólum ásamt tónlistarflutningi.
Samkoman hefst kl. 20.00 og verð-
ur nánar auglýst síðar. Tilkynna
þarf þátttöku fyrirfram.
Vonandi geta allir sem einhvern
tíma tóku þátt í starfsemi Pólýfón-
kórsins gefið sér tíma til að hitt-
ast föstudagskvöldið 30. maí,
spjalla saman og rifja upp gamlar
minningar og fá fréttir hver af
öðrum.
Nánari upplýsingar gefa: Friðrik
í síma 588-0222 (Salatbarinn Hjá
Eika, Fákafeni). Edda í síma
581-2795, Kolfinna í síma
553-8955, Ólöf í síma 565-6799,
Ásbjörg í síma 553-9242.
F.h. undirbúningsnefndar:
ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR;
Holtsbúð 48, Garðabæ.
An bindindis
engar forvarnir
Frá Umdæmisstúku nr. 1:
VORÞING umdæmisstúkunnar nr.
1 1997 beinir eftirfarandi alvöru-
orðum til þjóðarinnar.
I. Hér þarf ekki að eyða mörg-
um orðum að því sem öllum er ljóst
að áfengisneysla er alvarlegur ljóð-
ur á ráði þjóðarinnar og hefur
margskonar slæmar og hættulegar
afleiðingar. Það hlýtur því að vera
almennt áhugamál að minnka þá
neyslu og fínna ráð til þess. Til
þess að árangur náist er fyrsta
skilyrðið öflug bindindishreyfíng.
Vorþingið hvetur alla til að hugsa
alvarlega um slíka þjóðarvakningu.
II. íslensk bindindishreyfing
verður mörgu að sinna. Hún verður
málsvari heilbrigðra lífshátta svo
að íslenskum börnum verði ljóst að
áfengi er hættulegur hlutur og
mikið öryggi að forðast það. í al-
mennri umræðu í landinu leggur
bindindishreyfingin heilbrigðum
lífsvenjum lið til að bijóta niður
eftirspurn áfengis og annarra
vímuefna. Jafnframt stefna bind-
indismenn hvarvetna að því að
skemmtanalíf og allur mannfagn-
aður sé áfengislaus.
III. Baráttan gegn áfenginu er
víða erfið eins og sakir standa.
Sumar Evrópuþjóðir láta undan eit-
urlyfjatískunni og stefna að því að
skrá eiturlyfjaneytendur og láta þá
sækja sín eiturlyf í opinberar stofn-
anir svo að þeir þurfi ekki að fjár-
magna neysluna með ránum og
hryðjuverkum. Þannig sé hægt að
láta fólkið fá „hrein vímuefni á
réttu verði“ og öll okurverslun með
eitrið hverfi í eitt skipti fyrir öll.
En hlutverk bindindishreyfiungar
yrði enn meira, þar sem hún yrði
að snúast gegn opinberum dreifi-
stöðvum ríkisins og sporna gegn
sífelldri fjölgun skrásettra neyt-
enda.
IV. Hvernig sem mál snúast og
að hve miklu leyti sem opinber af-
skipti mótast af uppgjöf og undan-
haldi eða viðnámi sem sýnir sig í
að halda neyslu að einhveiju leyti
í skefjum, verður það og er tví-
mælalaust þjóðamauðsyn að efla
bindindishreyfingu.
Vorþingið var vel sótt. Um-
dæmistemplar er Jón K. Guðbergs-
son, sem nú var endurkjörinn ein-
huga eins og raunar framkvæmda-
nefndin öll.
UMDÆMISSTÚKA NR. 1.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.