Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 59

Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 59 BRÉF TIL BLAÐSINS Er hægt að hjálpa sér sjálfur? Frá EIsu Petersen: í MORGUNBLAÐINU 18. apríl 1996 birtist grein eftir Björk Gunn- arsdóttur, þar sem fjallað er um sjálfhjálp sjúklinga þ.á m. þeirra sem eiga í langvarandi erfiðleikum vegna gigtarsjúkdóma. Greinar- höfundur vekur athygli á sjö bekkja kerfi hjá Æfingabekkjum Hreyfingar í Ármúla þar sem hún hefur fengið aukinn styrk og hreyfigetu við að stunda bekkina. Ef til vill þótti mér greinin at- hyglisverð fyrir það að ég hef sjálf stundað þá sjálfhjálp sem Björk fjallar um og kom það mér alls ekki á óvart að hún skyldi fá auk- inn styrk og bætta heilsu við þá þjálfun sem unnt er að fá í æfinga- bekkjunum. Ég er aðeins ein af ljöldamörgum sem hafa notið kerf- isins og styrkst við að stunda það og get því heils hugar tekið undir með Björk. Það sem rekur mig til að skrifa, er viðtal í Morgunblaðinu 25. mars sl. við Sigrúnu Knútsdóttur sjúkra- þjálfara og þar varar hún við „töfralausnum" og segir sjúkra- þjálfara hafa farið þess á leit við landlækni að kannað verði sann- leiksgildi „villandi auglýsinga í ijölmiðlum um árangursríkar með- ferðir gegn kvillum og sjúkdóm- um“. Ekki veit ég hvort æfinga- bekkjakerfið sé talin meint fölsk töfralausn, að mati sjúkraþjálfara, og ekki held ég því fram að bekk- irnir geti komið i stað sjúkraþjálf- ara en samt þykir mér full ástæða til þess að vekja athygli á því tæki- færi til sjálfhjálpar sem bekkirnir eru. Ég hef heyrt fólk tala um bekkina sem algjört tilgangsleysi og peningaeyðslu en í öllum tilfell- um hefur það verið gert af þekk- ingarleysi og oft bara sagt út í loftið og það er einmitt viðhorfið sem ég hef fundið þegar ég hef talað um bekkina. Talandi dæmin eru svo mörg að ég get ekki látið hjá líða að benda á möguleikana sem bekkirnir gefa til þess að styrkja sig og auka vellíðanina. Ég hef séð konur sem í fyrstu hefur orðið að hjálpa upp á bekkina og ofan aftur, margar sem ekki hafa getað gert allar æfingarnar og oft hef ég tekið eftir því að konum hefur hund- leiðst á bekkjunum. En ef unnið er með æfingakerfinu og styrkur- inn eykst, og ég tala ekki um ef línurnar lagast, kemur upp löngun- in til þess að halda áfram og við- halda þeim árangri sem hefur náðst og auka hann. Máli mínu til stuðnings eru nokkrar yfirlýsingar af mörgum sem sem ég hef fengið hjá „bekkjafélögum" mínum. Sesselja Lúðvíksdóttir hefur stundað kerfíð reglulega tvisvar í viku undanfama 8 mánuði með góðum árangri. Hún segir að hreyf- ingar bekkjanna henti sér afar vel, en hún er haldin parkinsonveiki. Vöðvar hafa styrkst og stirðleiki minnkað til muna. Sesselju þykir notalegt umhverfi og glaðlegt sam- ferðafólk ekki spilla fyrir og sér alls ekki eftir þeim tíma sem hún hefur eytt á bekkjunum. Katrín, 53 ára, segist ekki hafa komist ofan af bekkjunum þegar hún byrjaði og varð að velta sér fram af þeim en með tímanum breyttist það. Hún er með axlar- mein og vefjagigt og hafði verið illa haldin í 4 ár og gat ekki einu sinni reimað skóna sína sjálf. Eftir lyijameðferð og ótal nuddtíma sem ekki báru árangur gerði hún sér grein fyrir því að að hún yrði að reyna að hjálpa sér sjálf. Hún dreif sig í jóga og síðan bekkina og þá fóru hjólin að snúast. „Við að styrkja bakvöðva og fá nudd á háls- og höfuðsvæði jókst blóð- flæði til axlanna. í dag er ég með stinna og sterka vöðva á maga, fótum, baki og alls staðar. Við það að finna að ég styrktist og lít bet- ur út fór ég ósjálfrátt að borða minna svo ég hef þar að auki lést um 12 kíló á einu ári“. Já þetta með kílóin er athygli- vert. Þegar ég var að byija í bekkj- unum sagði kona við mig, „hvað ert þú að gera hér, ekki þarft þú að ná af þér aukakílóum? - Það er útbreiddur misskilningur meðal margra kvenna að þær þurfi ekki að stunda líkamsrækt^ ef líkams- þunginn er eðlilegur. Ég hef lesið að beinþynningin sem ógnar eldri konum í dag sæki fremur á grann- ar konur en þéttholda og er því ef til vill enn mikilvægara fyrir þær að styrkja stoðkerfi líkamans. Næg hreyfíng, útivist og rétt mataræði er ef til vill miklu mikilvægara í baráttunni við beinþynninguna en hormónarnir sem gefnir eru helst öllum konum eftir fertugt, þó að stundum þurfi auðvitað að hafa þetta allt í bland. Eftir að ég fór að stunda æfingbekkina hefur mér þótt mikiu skemmtilegra í skíða-, golf-, og gönguferðum, vegna þess að ég er miklu styrkari í fótum og baki og þreytist því síður. Margar konur sem ég þekki veigra sér við að fara í líkamsrækt ef til vill vegna aldurs, feimni, fitu eða þær halda að það sé ekki „fyr- ir þær“. Bekkirnir eru fyrir allar konur. Móðir mín, 82 ára, hefur sótt sér styrk í bekkina og vinkona mín bakveik, sem loksins fann tíma fyrir bekkjaprógram, segist ekki hafa rétt úr sér í fjöldamörg ár fyrr en nú. Já, þetta er engin lygi, bekkirnir gera ótrúlega hluti fyrir skrokk manns. Það kemur ekkert í stað heilsunnar þegar hún er far- in og er það þess virði að hugsa gaumgæfilega um það að ef til vill borgar sig að eyða einhverju í forvarnarstarfið því það er dýrt að vera veikur. Kristín Ágústsdóttir fékk Lúpus, sem er alvarlegur sjúkdómur, í allt stoðkerfið í fyrir fimm árum. Hún átti erfitt með gang og allar hreyf- ingar en bytjaði að stunda bekkina reglulega skömmu eftir að hún veiktist og telur að það sé ekkert vafamál að æfingarnar í bekkjun- um hafi styrkt hana og aukið veru- lega blóðstreymi til vöðvanna. Auk þess segir hún að vöxturinn hafi lagast og appelsínuhúð minnkað, en það er einmitt kvilli sem angrar margar konur. Því segi ég það, stundum er það átak að drífa sig út að ganga, synda eða gera eitthvað fyrir sjálf- an sig. Oft er svo freistandi að sitja heima og hafa það gott, það þekki ég vel. En það er svo nauð- synlegt fyrir sál og líkama að finna að hægt sé að bæta heilsu sína og finna líkamann styrkjast og það er hægt að hjálpa sér sjálfur með ýmsu móti. Æfíngabekkirnir eru kjörin lausn til sjálfshjálpar og vona ég að við sem höfum notið þeirra fáum að gera það áfram og þessi greinarstúfur verði hvatning til þeirra sem þurfa á „styrk“ að halda. ELSA PETERSEN. Giljalandi 21, Reykjavík 2 Sumarnámskeið í Hafnarfjarðarkirkju Frá Þórhalli Heimissyni: Á KOMANDI sumri verður boðið upp á fjölbreytt námskeiðahald fyr- ir börn og fullorðna í Hafnarfjarðar- kirkju. Byijað var á slíku síðasta sumar fyrir fullorðna og tókst það mjög vel. Nú verður aukið við nám- skeiðum fyrir börn og unglinga. Í júní verður boðið upp á kvöld- vökur um trúmál öll miðvikudags- kvöld. 4. júní er efnið kristin trú og „mystik" eða dulspeki. Verður rætt um hvað dulspeki er og hvern- ig hún og kristin trú fara saman. 11. júní verður íjallað um djöfulinn og hið illa, hvað Biblían segir um hann og hvernig og hvaðan hug- myndirnar hafa þróast um stöðu „andstæðingsins". 18. júní fjöllum við um spurninguna um eilífa lífið, hvort það sé til og hvað það sé. Kvöldvökunum Iýkur 25. júní með umfjöllun um endurholdgunarkenn- inguna og kristna trú. Sr. Þórhallur Heimisson stjórnar kvöldvökunum og kynnir umræðuefnið, en góður tími gefst til fyrirspurna. Heíjast kvöldvökumar kl. 20.30 og er að- gangur ókeypis. Sunnudaginn 29. júní fellur guðs- þjónusta niður en í stað þess verður farið með rútu til Þingvalla þar sem sr. Heimir Steinsson prestur og staðarhaldari tekur á móti ferða- löngum og annast leiðsögn. I ágúst býður Hafnarfjarðar- kirkja upp á þrjú vikulöng nám- skeið fyrir böm á aldrinum 6-11 ára, dagana 5.-8. ágúst, 11.-15. PARTAR BÍLAPARTASALA KAPLAHRAUNI 11-220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI 565 3323 - FAX 565 3423 EIGUM FYRIRLIGGJANDI NÝJA OG NOTAÐA VARAHLUTI í FLESTAR GERÐIR BÍLA HÚDD - BRETTI - STUÐARA HURÐIR - LJÓS - GRILL AFTURHLERA - RÚÐUR ágúst og 18.-22. ágúst. Hvert nám- skeið stendur frá kl. 13.00-17.00. Umsjón hefur Bára Friðriksdóttir. Hver dagur hefst með helgistund. Síðan verður farið í leiki, ferðalög, föndrað, sungið og í stuttu máli haldnar sumarbúðir, nema hvað börnin fara heim að loknum hveij- um degi. Vikan kostar 1.500 kr. og fer skráning fram í Hafnar- fjarðarkirkju. Einnig verður boðið upp á ævintýranámskeið fyrir ungl- inga, 13-14 ára, í ágúst og verður það kynnt síðar. Nánari upplýsingar um allt sumarstarfið er að fá í síma kirkjunnar. SR. ÞÓRHALLUR HEIMISSON, prestur við Hafnarfjarðarkirkju. breyttan skilafrest á atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12 á föstudögum. Auglýsingadeild Sími 569 11 11 * Símbréf 569 11 10 » Netfang: augl@mbl.is ^óírate^ 897 5523 L 15 JrtWAi.Mhl RAÐGREIÐSLUR V/SA ITIL 36 MÁNAÐA , Antiksýning Sölusýning á einstaklega fallegum munum; m.a. húsgögnum, teppum, postulíni, silfri o.fl. verður haldin dagana 31. maí til 3. júní á Grand Hótel, Reykjavík, Sigtúni. Opið daglega kl. 14-22. Tökum góða hluti í umboðssölu. Óviðjafnanlegt verð miðað við gæði. nfíb -Olofnnö 19T7-*. muntt Klapparstíg 40, sími 552 7977 HÓTEL REYKJAVIK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.