Morgunblaðið - 30.05.1997, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Gunnar Vigfússon
ALLS útskrifuðust 190 nemendur frá MR í gær og stilltu þeir sér að venju upp til Ijósmyndatöku skammt frá Háskóla íslands þar
sem margir þeirra munu eflaust sækja nám næsta vetur.
190 stúdentar
útskrifaðir frá MR
MENNTASKÓLINN í Reykja-
vík brautskráði 190 stúdenta í
gær við hátíðlega athöfn í Há-
skólabíói, þar af 69 úr mála-
deild, 41 úr eðlisfræðideild og
80 úr náttúrufræðideild.
Átta nemendur hlutu ágætis-
einkunn, 86 hlutu fyrstu ein-
kunn, 72 hlutu aðra einkunn og
24 þriðju einkunn. Dúx stúd-
entaárgangsins var Kristján
Rúnar Kristjánsson með ágætis-
einkunnina 9,34 og semídúx
varð Ásgeir Sigfússon með
ágætiseinkunnina 9,19.
Aðrir sem hlutu ágætisein-
kunn á stúdentsprófi voru Katr-
ín Jónasdóttir, Birna Auberts-
dóttir, María S. Guðjónsdóttir,
Axel Ólafur Smith, íris Ellen-
berger og Agla Jael Friðriks-
dóttir.
Morgunblaðið og kærastan
Kristján Rúnar segir að
honum hafi komið á óvart að
verða dúx árgangsins, ekki síst
fyrir þær sakir að hann var
þriðji hæstur þegar
árseinkunnir voru birtar.
Hann segir að fyrir utan
námið taki áhugi hans á
stærðfræði mikinn tima, auk
kærustunnar, en einnig hefur
hann æft sund í mörg ár. „Ég
hef líka borið út Morgunblaðið
í tæpan áratug og því verið
kominn á fætur um fimmleytið
á morgnana til að vera búinn
með útburðinn klukkan sjö. Ég
var með 300 blöð fyrir jól, en
eftir áramót minnkaði ég aðeins
við mig, ekki síst vegna þess að
blaðið kom stundum svo seint
að ég mátti hafa mig allan við
að ná í skólann tímanlega," segir
hann.
Kristján Rúnar er á leið til
Skagen í Danmörku ásamt
kærustu sinni á morgun, þar sem
hann ætlar að vinna i síld, og
segir það starf kærkomna hvíld
frá próflestri og sæmilegasti
undirbúningur fyrir nám í
stærðfræði í Háskóla íslands
sem hann byijar á í haust.
Dux scholae var Jóel Karl
Friðriksson, nemandi í 4. bekk,
sem hlaut ágætiseinkunnina
9,73.
Sumarlokanir
sjúkrahúsanna
Barna- og
unglinga-
geðdeild-
um lokað
SUMARLOKANIR á deildum
á geðlækningasviði Ríkisspít-
alanna hafa verið ákveðnar.
Barnageðdeild verður lokað í
fimm vikur og unglingageð-
deild verður lokað í fjórar vik-
ur í sumar.
Deild 12 verður lokuð frá
8. júní til 19. júlí, deild 26 frá
20. júlí til 30. ágúst og deild
33-C á sama tíma. Barnageð-
deild verður lokuð frá 15. júní
til 19. júlí og unglingageð-
deild frá 30. júlí til 16. ágúst.
Deild 11 verður lokuð 1.
júní til 5. júlí en þó er það
ekki að fullu frágengið og
gæti breyst og sama er að
segja um deild 19, sem áætlað
er að ioka frá 12. júlí til 24.
ágúst og dagvistun „Skafti“
sem áætlað er að verði lokað
frá 28. júní til 3. ágúst. Teig-
ur á Flókagötu 31 verður lok-
aður frá 29. júní til 5. ágúst.
Húðlækningadeild lokað í
14 vikur á ári
Húðlækningadeild Ríkis-
spítalanna verður lokuð í sum-
ar frá 16. júní til 25. ágúst.
Deildin er með ellefu rúm og
er opin fimm daga vikunnar.
Einnig er deildinni gert að loka
í ijórar vikur í kringum jól og
páska. Deildin er því lokuð í
heild í íjórtán vikur á ári.
I
I
>
>
I
Breikkun Gullinbrúar
Tillaga um
framkvæmdir
í ár felld
TILLAGA borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um að ráðist yrði á
þessu ári í framkvæmdir við breikk-
un Gullinbrúar frá Stórhöfða og um
gatnamót við Hallsveg, var felld á
síðasta fundi borgarráðs.
Tillaga Sjálfstæðisflokksins gerði
ráð fyrir að þegar yrði gengið til
viðræðna við ríkisvaldið um að
tryggja að framkvæmdir við breikk-
un Gullinbrúar frá Stórhöfða og I
gegnum gatnamótin við Hallsveg
hefjist þegar á þessu ári. Lagt var
til að skoðaður yrði sá möguleiki að
borgin fjármagnaði framkvæmdina
þar til fjármagn fengist til þeirra
samkvæmt vegaáætlun.
í tillögu Reykjavíkurlista, sem
samþykkt var í borgarráði eftir að
tillaga sjálfstæðismanna hafði verið
felld, er gert ráð fyrir að hefja hönn-
un framkvæmdanna og að 5 miHjóna
króna lán verði veitt til Vegagerðar-
innar til að kosta hönnunina.
-----♦ ♦ 4----
Leikskólakennarar
Atkvæði um
verkfall talin á
þriðjudag
LEIKSKÓLAKENNARAR greiddu í
gær og t fyrradag atkvæði um hvort
Félag íslenskra leikskólakennara
eigi að boða verkfall 22. september
næstkomandi hafi kjarasamningar
ekki tekist fyrir þann tíma.
Að sögn Þrastar Brynjarssonar,
varaformanns félagsins, verða at-
kvæði talin næstkomandi þriðjudag,
en beðið er atkvæða utan af landi.
Útkoma á samræmdum prófum í 10. bekk grunnskóla
Meðaltal var hæst í dönsku
>
I
>
HÆSTA meðaltal var í dönsku á
samræmdum prófum í vor en niður-
staða samræmdra prófa liggur fyr-
ir. Lægsta meðaltal var í stærð-
fræði, en Rannsóknastofnun upp-
eldis- og menntamála ákvað að láta
árangur á stærðfræðiprófínu, sem
olli nokkrum deilum í vor, standa
óbreyttan.
Samkvæmt upplýsingum frá
RUM og eins og sjá má á meðfylgj-
andi töflu, var hæsta meðaltal í
dönsku 7,7 og 7 í ensku f Reykja-
vík og 5,4 í stærðfræði. Hæsta
meðaltal í íslensku var 6,9 í ná-
grenni Reykjavíkur.
Lægsta meðaltal í stærðfræði,
4,3 og íslensku 6,0, var á Vestfjörð-
um og á Suðurnesjum. í dönsku var
lægsta meðaltai 6,8 á Vestfjörðum
og í ensku var lægsta meðaltal 6,0
á Vestfjörðum og á Suðurlandi.
Samræmd próf 1997
Meðaltöl í fjórum samræmdum námsgreinum eftir landshlutum'
Stærðfræði íslenska Danska’ Enska
Án Án Án Án
frávika Allir frávika Allir frávika Allir frávika Allir
Landshlutar Pjöldi M FjBldi M Fjöldl M Fjöldi M Fjöldi M Fjöldi M Fjöldi M Fjöldi M
Reykjavlk 1344 5,4 1391 5,3 1337 6,8 1386 6,8 1276 7,7 1324 7,6 1335 7,0 1386 6,9
Nágrenni Reykjavíkur 897 5,3 910 5,3 893 6,9 907 6,8 865 7,6 875 7,6 897 6,8 909 6,8
Suðurnes 268 4,3 281 4,2 267 6,0 282 5,9 265 7,2 279 7,1 268 6,3 282 6,2
Vesturland 244 4,8 260 4,8 245 6,5 260 6,3 238 7,0 253 6,9 246 6,1 261 6,0
Vestfirðir 156 4,3 158 4,3 153 6,0 156 6,0 151 6,8 155 6,8 151 6,0 154 6,0
Norðurland vestra 198 5,3 201 5,2 193 6,6 197 6,6 191 7,1 194 7,1 197 6,3 200 6,3
Norðurland eystra 431 4,6 433 4,6 431 6,3 434 6,3 405 6,9 407 6,9 424 6,2 427 6,2
Austurland 205 4,8 208 4,8 204 6,4 207 6,4 197 7,4 200 7,4 205 6,2 208 6,2
Suðurland 342 4,8 346 4,8 343 6,4 347 6,4 331 7,2 335 7,2 341 6,0 345 6,0
Landið allt 4085 5,1 4188 5,0 4066 6,6 4176 6,6 3919 7,4 4022 7,3 4064 6,6 4172 6,5
Aths. Meðaltölin byggjast á stigafjölda en ekki samræmdri einkunn og eru á kvarðanum 0-10.
1 Birt eru meðaltöl sem annars vegar byggjast á frammistöðu nemenda sem þreyttu próf án frávika og hins vegar á frammistöðu
allra nemenda sem þreyttu prófín (með eða án frávika). Meðaltal prófa undanfarin ár hefur verið reiknað án frávika.
' Samtals tóku 67 nemendur próf í sænsku og 25 nemendur próf I norsku i stað dönsku. Einkunnir þessara nemenda eru ekki með
í töflunni.
i
t
Tillaga fulltrúa sjálfstæðismanna í borgarráði Reykjavíkur
Hafnarstræti
verði opnað
BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæð-
isflokksins hafa lagt fram tillögu
í borgarráði um að umferð um
Hafnarstræti til austurs verði opn-
uð á ný þar til fyrir liggur af-
greiðsla á deiliskipulagi að svæð-
inu.
í greinargerð með tillögunni
segir að á fundi 25. mars sl. hafi
borgarráð samþykkt að loka Hafn-
arstræti til austurs. Lögð var
áhersla á að um bráðabirgðalausn
væri að ræða þar til deiliskipulag
svæðisins hefði verið endurskoðað.
Fram kemur að formaður skipu-
lags- og umferðamefndar hafi
upplýst að tillagan hafi verið unnin
í samvinnu við tengilið stjórnar
Miðborgarsamtakanna og því hafi
borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins ekki lagst gegn tillög-
unni.
Síðan segir: „Nú hefur hins veg-
ar komið í ljós að afgreiðsla borg-
arráðs byggði ekki á réttum upp-
lýsingum. Með bréfi dagsettu 7.
apríl sl. mótmælir stjóm Miðborg-
arsamtakanna ákvörðun um lokun
Hafnarstrætis. Á fundi borgarráðs
8. apríl sl. er bréf stjómar Miðborg-
arsamtakanna vísað til umsagnar
Borgarverkfræðings og Borgar-
skipulags. Einn fundur hefur þegar
verið haldinn með fulltrúum stjórn-
ar Miðborgarsamtakanna. Á þeim
fundi mun lokun Hafnarstrætis
ekki hafa fengist rædd og engar
vísbendingar um að það standi til.
Því leggja borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins til að umferð um
Hafnarstræti til austurs verði opn-
uð á nýjan leik þar til að fyrir ligg-
ur afgreiðsla á deiliskipulagi að
svæðinu.“
Afgreiðslu tillögunnar var frest-
að á fundi borgarráðs.
I
»