Morgunblaðið - 30.05.1997, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 33
KJARADEILAN Á VESTFJÖRÐUM
inar-
jara
fyrri hækkanir. Taldi hann að ætlunin
væri að nota þessa hækkun gegn
þeim félögum sem þá yrði með Iausa
samninga. Sagði hann slæmt að þeg-
ar samningar yrðu lausir hjá öðrum
yrðu Vestfirðingar ekki með í slagn-
um. „Eg held að annað fólk hafi von-
ast til þess, að við yrðum leiðandi
afl. Ég hef ekki trú á að þeir sem
þá verða með lausa samninga, Bolvík-
ingar og Tálknfirðingar, dugi vel í
slagnum."
Varðandi 12 þúsund króna ein-
greiðslu eftir gildistöku samnings
sagði Pétur að það væri gert til að
koma til móts við fólk sem hefði haft
lausa samninga frá 1. janúar. Eðlilegt
hefði verið að láta alla samninga gilda
frá áramótum. Nefndi hann ýmis önn-
ur atriði samningsins og sagði álit
sitt á þeim.
Langt frá markmiðum um
lágmarkslaun
Sagði Pétur það meginatriði að
kröfur félaganna um lágmarkslaun
næðust ekki fram með miðlunartillög-
unni. Eftir 1. mars árið 2000 yrðu
byijunarlaun 69.604 kr. og 70.323
eftir eitt ár í fiskvinnslu. Þetta væri
verulega langt frá því 100 þúsund
kr. marki sem menn hefðu sett sér
að ná. „Við verðum að meta tillöguna
út frá þessu,“ sagði hann og vakti
athygli á dæmi um launabreytingar
í hóplauna- og bónuskerfum sem
dreift var á fundinum. Hækkun á
tímakaupi að frádreginni lækkun á
bónus er samkvæmt því 3,56%. Það
eru 20 krónur á klukkustund eða
3.466 kr. á mánuði. „Þetta er hækk-
unin. Ég held að ekki sé hægt að
leggja þetta fyrir öðruvísi," sagði for-
maður ASV.
„Ég má kannski ekki segja eða
leggja neitt til, ef ég mætti það þá
myndi ég segja að menn ættu að fella
þetta,“ sagði Pétur Sigurðsson í lok
ræðu sinnar.
Aðeins einn fundarmaður tók til
máls, Heiðar Guðbrandsson úr Súða-
vík, og talaði hann á móti miðlunar-
tillögunni.
Atkvæðagreiðsla í dag um miðlunartillögu sáttasemjara
Almenn hækkun 17,37%
á samningstímanum
Meðal atriða í miðlunartillögunni vegna
kjaradeilunnar á Vestflörðum er 12 þúsund
króna eingreiðsla og að kaup á að hækka við
gildistöku samningsins um 5,2%. Jóhannes
Tómasson kynnti sér tillöguna.
AÐILAR í kjaradeilunni á
Vestfjörðum kynntu sér
í gær efni miðlunartillögu
ríkissáttasemjara. For-
manni Vinnuveitendasambands
Vestfjarða finnst tillagan ganga
lengra en sambandið var tilbúið að
ganga að í samningum en forseta
ASV finnst hún ekki ganga nógu
langt. Atkvæðagreiðsla um tillög-
una fer fram í dag og verða at-
kvæði talin hjá sáttasemjara á
morgun.
í útdrætti ríkissáttasemjara um
efni tillögunnar segir að hliðsjón sé
höfð af atriðum sem aðilar urðu
sammála um í kjaraviðræðunum,
öðrum kjarasamningum og sérað-
stæðum á Vestfjörðum. Gildistími
samningsins er frá 4. apríl til 31.
desember 2000. Um helstu efnisat-
riðin segir sáttasemjari meðal ann-
ars:
„Myndað er nýtt taxtakerfi þar
sem álags- og aukagreiðslur falla
inn í grunnkaup. Færðar eru 54 kr.
úr bónus í kauptaxta fiskvinnslu-
fólks sem myndar stærri stofn fyrir
yfirvinnu og vaktaálag. Þannig
hækka lágmarkstaxtar og yfirvinna
um 23%. Tekjuáhrif þessara breyt-
inga að upphafshækkun meðtalinni,
eru um 8% á heilu ári miðað við
algengt vinnumynstur."
Þá segir að í hráefnisskorti og á
sérstökum frídögum hækki laun
fiskvinnslufólks um 23% og að al-
mennar hækkanir séu samtals
17,37% frá upphafi tii loka samn-
ingstímans. Þær eru þessar:
Við gildistöku samnings 5,2%, 1.
janúar 1998 4%, 1. janúar 199
3,65% og 1. mars 2000 3,5%. Þá
skal inna af hendi eingreiðslu að
upphæð kr. 12.000 innan 15 daga
frá gildistöku samnings til starfs-
manna sem nú eru í fullu starfi og
unnið hafa í 6 mánuði hjá sama
fyrirtæki.
Lágmarkstekjutrygging starfs-
manns sem starfað hefur hjá sama
fýrirtæki í fullu starfi sl. fjóra mán-
uði verður kr. 72.000 á mánuði og
orlof lengist í 27 daga í áföngum á
næstu tveimur árum. Þá hækkar
hópákvæði í rækjuvinnslu sérstak-
lega eftir að hluti þess hefur verið
færður í taxta og greiðsla fýrir slæg-
ingu á físki hækkar sérstaklega.
Þá er í samningnum nýr launa-
taxti fyrir stjórnendur lyftara með
10 tonna eða meiri burðargetu.
Réttur til desember- og orlofsupp-
bóta er rýmkaður og eru þær hinar
sömu og í samningum Verkamanna-
sambandsins. Desemberuppbótin er
kr. 25.100 á þessu ári, kr. 26.100
á þvi næsta, kr. 27.100 1999 og
28.500 árið 2000. Orlofsuppbótin
er kr. 8.400 á þessu ári, kr. 8.800
á því næsta, kr. 9.000 árið 1999
og kr. 9.500 árið 2000 en geta ber
þess að samningur Verkamanna-
sambandsins nær. ekki svo langt
fram á árið 2000 að hann taki til
orlofs- eða desemberuppbóta.
Þá eru hertar reglur um lágmarks-
hvíld í miðlunartillögunni. Heimilt
er að gera fyrirtækjasamninga um
nánar tilgreinda efnisþætti, þar á
meðal lágmarksbónus í fýrirtækjum
sem reynst hafa undir meðaltali á
Vestfjörð.um og eftir tveggja mánaða
starf í sama fyrirtæki hefur starfs-
maður öðlast kauptryggingarrétt.
Þá eru í tillögunni breytt og ítar-
legri ákvæði um sérþjálfaða bygg-
ingaverkamenn og tækjastjórnend-
ur, m.a. um hlífðarföt.
Úrslit gætu legið fyrir laust
eftir hádegi á morgun
Félagar í sjö verkalýðsfélögum á
Vestfjörðum annars vegar og hins
vegar í Vinnuveitendafélagi Vest-
fjarða, Vinnuveitendasambandi ís-
lands og Vinnumálasambandinu
greiða í dag atkvæði um miðlun-
artillöguna sáttasemjara. Kjörgögn
verða send ríkissáttasemjara í fyrra-
málið og er hugsanlegt að úrslit
hennar liggi fyrir fljótlega eftir há-
degi.
Hátt í 700 félagar eru í verkalýðs-
félögunum innan ASV sem verið
hafa í nærri sex vikna verkfalli.
Félögin eru: Baldur á ísafírði, Verka-
lýðsfélag Hólmavíkur, Verkalýðsfé-
lag Patreksfjarðar, Verkalýðs- og
sjómannafélagið Súgandi á Suður-
eyri, Verkalýðsfélagið Skjöldur á
Flateyri, Verkalýðsfélagið Bi-ynja á
Þingeyri og Verkalýðs- og sjómanna-
félagið Álftfirðingur á Súðavík. At-
kvæðagreiðsla fer fram á hveijum
stað og stendur frá kl. 9 til 21.
Vinnuveitendur greiða atkvæði á
lögfræðiskrifstofu Björns Jóhanns-
sonar á ísafirði þar sem Vinnuveit-
endafélag Vestfjarða hefur aðsetur.
Innan vébanda þess eru einkum
fiskverkendur en ýmis þjónustufyr-
irtæki sem aðild eiga að samningn-
um eru ýmist innan VSÍ eða Vinnu-
málasambandsins.
Ríkissáttasemjari annast taln-
ingu atkvæða og verða kjörgögn
send með morgunflugi frá ísafirði.
Fengust þær upplýsingar á skrif-
stofu sáttasemjara í gær að talning
myndi líklega hefjast um hádegi og
að henni gæti lokið fljótlega uppúr
hádeginu. Atkvæði verkalýðsfélag-
anna verða talin sameiginlega.
Til að unnt sé að fella miðlunartil-
lögu þarf fjórðungur atkvæðisbærra
félagsmanna að greiða atkvæði
gegn henni og meirihluti þeirra sem
tekur þátt í kosningunum. Þannig
verður félag að ná 50% þátttöku í
kosningum eigi að vera unnt að
fella miðlunartillögu.
Lýkur nær sex
vikna verkfalli með
miðlunartillögu?
2. apríl
Verkfall hefst hjá ASV.
3. apríl
Verkfalli frestað eftir einn dag.
20. apríl
Verkalýðs- og sjómannafélag
Bolungarvíkur semur, svo og
verkalýðsfélögin á Tálknafirði
og Bíldudal.
21. apríl
Verkfall skellur á aftur.
25. apríl
Samið við nokkra fískverkend-
ur á Patreksfirði og víðar.
15. maí
Slitnar uppúr viðræðum milli
ASV og Vinnuveitendafélags
Vestfjarða.
16. og 17. maí
Verkfallsverðir koma í veg fyr-
ir löndun úr Páli Pálssyni,
Stefni og Bessa í Reykjavík
og Hafnarfirði.
21. maí
Samúðarvinnustöðvun Hlífar í
Hafnarfírði og Dagsbrúnar í
Reykjavík vegna löndunar úr
vestfírskum skipum kemur til
framkvæmda.
20. maí
Verkfallsverðir kanna úr lofti
hvort fiskiskip séu á leið til
löndunar.
21. maí
Löndun úr Bessa trufluð á
Grundarfirði.
25. maí
Verkfallsverðir fylgjast með
Bessa er hann kemur til heima-
hafnar í Súðavík en löndun var
ekki reynd.
25. maí
Forsætisráðherra og félags-
málaráðherra boða deiluaðila á
fund í Reykjavík til að gera
grein fyrir stöðunni.
26. maí
Sáttasemjari fær deiluaðila til
að gera sér grein fyrir málum
á fundi í Karphúsinu.
27. maí
Átök á Drangsnesi vegna
löndunar úr rækjubátnum Vík-
urnesi.
Löndun úr Framnesi trufluð á
Hvammstanga.
Sáttasemjari íhugar að ieggja
fram miðlunartillögu.
28. maí
Komið í veg fyrir löndun úr
Andey á Sauðárkróki.
29. maí
Verkalýðsfélagið á Raufarhöfn
kemur í veg fyrir löndun úr
Andey þar.
29. maí
Miðlunartillaga sáttasemjara
berst ASV og vinnuveitendum
vestra.
30. maí
Atkvæði greidd um miðlun-
artillöguna.
Meiri kostn-
aðaraukien
hjá öðrum
VINNUVEITENDUR á Vestfjörðum
fóru yfir miðlunartillöguna á fundi á
ísafirði í hádeginu í gær. Þeir segja
tillöguna ganga lengra en þeim finnst
æskilegt en hallast þó fremur að því
að samþykkja hana til að Ijúka verk-
fallinu þannig að hefja megi eðlilegan
rekstur á ný.
„Það er ljóst að miðlunartillagan
gengur lengra en við vorum tilbúnir
að ganga í samningunum og leiðir til
enn meiri kostnaðarauka fyrir vestf-
irsk fyrirtæki en þau fyrirtæki bera
sem þegar hafa samið," sagði Einar
Jónatansson formaður Vinnuveit-
endafélags Vestfjarða í gær er hann
var inntur álits á tillögunni.
Einar sagði að hver og einn félags-
maður vinnuveitenda myndi greiða
atkvæði eins og honum litist en hann
greiðir sjálfur ekki atkvæði þar sem
búið er að semja á félagssvæði hans,
Bolungarvík.
„Hins vegar var kjaradeilan komin
í þann hnút að menn sáu enga leið
út úr henni með samningum þannig
að við mæltum ekki gegn því að miðl-
unartillaga yrði lögð fram,“ sagði
Einar.
„Tillagan gerir ráð fyrir 5,2% kaup-
hækkun í byrjun í stað 4,7% eins og
í öðrum samningum og 12 þúsund
króna eingreiðslu og nokkrum öðrum
atriðum svo sem eins og að menn
öðlist rétt til kauptryggingar eftir 2
mánuði hér en 4 í öðrum samningum.“
Einar vildi einnig benda á að alls
staðar þar sem samið hefur verið á
Vestfjörðum á svipuðum nótum og
annars staðar á landinu hafí félög
samþykkt slíkan samning.
„Það er kannski erfitt að standa
gegn þessari tillögu eftir allan þennan
tíma og allar þessar hörmungar en
þar er gengið lengra en almennt ger-
ist í landinu og við erum ekkert hrifn-
ir af því. Ég á samt von á því að hún
verði samþykkt af hálfu okkar vinnu-
veitenda ef það verður til þess að
verkfallinu linni þótt það sé ekki að
heyra á Pétri Sigurðssyni," sagði
Magnús Reynir Guðmundsson stjórn-
arformaður íshúsfélags ísfirðinga.
„Við vonum að hún verði samþykkt
og að fólk sjái tilgang í því vegna
þess að þétta ástand er orðið skeifi-
legt. Fólk heldur að það sé hægt að
byija aftur eins og ekkert hafi í skor-
ist en það er mikill misskilningur.
Fólk er farið að flytja af svæðinu og
orðið uppgefíð á ástandinu. Það þarf
töluverðan tíma og fyrirhöfn til að
komast í gang.
En þrátt fyrir allt er nú töluvert í
tillögunni sem gefur mönnum hér
nokkuð umfram það sem annars stað-
ar fékkst. Við vorum andvígir því að
stytta kauptryggingartímann, að
menn færu á tryggingu eftir tvo
mánuði í stað fjögurra eins og verið
hefur, en féllumst á að samþykkja
það ef það yrði til þess að leysa deil-
una. Það gerðist hins vegar ekki og
við drógum það út en sáttasemjari
setur þetta ákvæði inn á ný og við
verðum bara að taka því.“