Morgunblaðið - 30.05.1997, Síða 60
60 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
Vinnusmiðja
í kvik-
myndagerð
►SUNDANCE-stofnun Ro-
berts Redfords stendur ekki
eingöngu fyrir kvikmyndahá-
tíð í janúar á hverju ári heldur
styrkir hún óþekkta kvik-
myndagerðarmenn með ýmsu
móti. Eitt verkefni Sundance-
stofnunarinnar er „Film-
makers/Screenwriters Lab“
sem er haldið árlega íjúní.
Fjölmargir upprennandi kvik-
myndagerðarmenn sækja um
að komast að í þessari vinnu-
smiðju í Park City í Utah. í
ár eru 19 valdir til þess að
mæta og vinna með verk sín í
náinni samvinnu með þekktum
leikurum og kvikmyndagerð-
armönnum.
Meðal ráðgjafanna í ár eru
Kathryn Bigelow, Allison And-
ers, Anjelica Huston, Baz Lu-
hrman, Alfred Woodard og
Michael Lehmann. Nöfn þátt-
takendanna eru ekki þekkt en
kannski maður ætti að nótera
þau hjá sér af því þau gætu
ANJELICA Huston er einn af
ráðgjöfunum í vinnusmiðju
Sundance-stofnunarinnar.
verið sljörnur framtíðarinnar:
Hisano Masayuki, Andre Codr-
escu, Theodore Thomas, Rick
Famuyima, Kimberley Pierce,
Laurie Weeks, DeMane Davis,
Khari Streeter, Philip Kan
Gotanda, Joshua Goldin, Greg
Sax, Garret Williams, Matthew
Dixon, Tacita Dean, Alex
Munoz, Everton Sylvester,
Scott Heim, Loretta Todd, og
Josslyn Luckett.
MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Eyðimerkurtunglsýki
(Mojave Moon)-k k 'h
Marco Polo
(Marco Polo)k k
Tækifærishelvíti
(An Occasional Hell)+ k
Adrenalín
(Adrenalin)
Golfkempan
(Tin Cup)k ★ ★
Drekahjarta
(Dragonheart)-k ★ ★
Meðeigandinn
(The Associate)~k 'h
Ráðgátur:
Hverfull tími
(TheX—Files: Tempus Fugit)-k
-kV2
Kekkir
(Curdled)-k'h
Strákar
(Boys)-k
Líf eftir Picasso
(Surviving Picasso)-k 'h
Stelpuklíkan
(Foxfire)-k k 'h
Næturkossinn langi
(The LongKiss Good Nig-
ht)-kkrk
Emma
(Emma)k k k
Niðurtalning
(Countdown)k k 'h
Skólabílsránið
(Sudden Terror Hijacking
of School Bus 17)k
Vélrænir böðlar
(Cyber Trackers)k 'h
Hann heitir Hatur
(A Boy Called Hate)k 'h
Þrumurnar
(Rolling Thunder)k 'h
Vinnið gegn fíla-
penslum og bólum
!SAGl
* silicol skin
Silicol Skih
Viðurkeswd lausn við húövandamáium
Endurteknar rannsóknir hafa staðfest árangur Silicol skin
í baráttunni gegn fílapenslum, bólum og feitri húð.
íslenskar leiðbeiningar fylgja. Fæst í flestum apótekum.
-kjarni málsins!
FOSTUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Sjónvarpið ►20.35 Hættuspil og
hetjudáðir í háloftunum: Ekki vantar
h-in í viðfangsefni sannsögulegu
sjónvarpsmyndarinnar Ferjuflugið
(Mercy Mission: TheRescue of
Flight 771,1993). Scott Bakula leik-
ur flugmann á lítilli Cessnu sem vill-
ist yfir Kyrrahafi og Robert Loggia
er flugmaður farþegavélar sem kem-
ur honum til bjargar. Ég hef ekki
séð þessa en Martin og Potter segja
leikarana ná myndinni á flug og
gefa kkk (af fimmmögulegum).
Leikstjóri Roger Young.
Sjónvarpið ►23.05 Skoski meina-
fræðingurinn Iain McCallum hefur
a.m.k. einu sinni áður spreytt sig á
morðgátu hér í Sjónvarpinu en í
McCallum (McCallum: Touch,
1996) berst hann gegn útbreiðslu
bakteríusýkingar - og er það
kannski morðgáta út af fyrir sig.
John Hannah leikur þennan kvens-
ama meinafræðing og er heldur lit-
laus miðað við hinn eina sanna Tagg-
art. Leikstjóri Richard Holthouse.
Stöð2 ^13.00 og 0.40 Hinkostu-
lega og hrollvekjandi kjarnafjöl-
skylda Addams-fjölskyldan varð
fyrst til í teiknimyndasögum, síðan
í amerísku sjónvarpi og loks í nýleg-
um bíómyndum Barrys Sonnenfeld.
Seinni myndin Gildi Addams-fjöl-
skyldunnar (Addams Family Valu-
es, 1993) var jafnvel ívið skemmti-
legri en sú fyrri, þar sem klækja-
kvendið Joan Cusack reynir að koma
sér í mjúkinn hjá fjölskyldunni og
Christina Ricci í hlutverki dótturinn-
ar Wednesday er send í sumarbúðir.
Anjelica Huston, Raul Julia og Chri-
stopher Lloyd eru öll til sóma. Mynd-
ina vantar herslumun, aðeins skarp-
ari og skeleggari brodd. ★ ★ 'h
Stöð 2 ►20.55 Saga baldinnar
blökkustúlku sem vill bepast til
menntunar og sjálfstæðis en mætir
ýmsum hindrunum, ekki síst eigin
þungun, er efni myndarinnar Stelpa
í stórborg (Just Another Girl On
Thel.R.T., 1993). Frumstæð mynd
og klisjukennd. Leikstjóri Leslie
Harris, sem þreytir hér frumraun
sína. ★
Stöð 2 ^22 .35 Martin Donovan
leikstjóri nær upp töluverðri
stemmningu framan af í lýsingu á
tveimur ólíkum mönnum sem búa í
íbúðablokk í Buenos Aires, þar sem
ekki er allt sem sýnist, en breska
bíómyndin Morð í Buenos Aires
(Apartment Zero, 1989) ve rðuræ
tilgerðarlegri eftir því sem hún þró-
ast yfir í spennumynd með pólitískan
og kynferðislegan undirtón. Kvik-
myndafíklar kunna að falla fyrir list-
rænum rembingi. Áhugaverð á köfl-
um. ★ ★
Sýn ►21.00 Égjáta mig sigraðan:
Um síðustu helgi lofaði ég því að
fímmti kafli myndaflokksins um
Apaplánetuna væri sá síðasti - en
lofaði upp í ermina á mér. Nú birt-
ist Apaplánetan 6 (Farewell to The
Planet of the Apes). Ég hef aldrei
heyrt á hana minnst og er að hugsa
um að halda því áfram.
Sýn ►23.50 Bandaríska dellugam-
anmyndin Háskólafyrirsætan
(Campus Man, 1987) segir frá há-
skólastúdent sem fer að framleiða
almanök með karlkyns fyrirsætum
og dettur í lukkupottinn. Svo vill til
að dellan er sannsöguleg en myndin
verður ekkert betri fyrir það. Rétt
þolanleg afþreying í neyð. Leikstjóri
Ron Casden og aðalhlutverk John
Dye, Kim Delaney og Kathleen Wil-
hoite. ★ 'h
Árni Þórarinsson
MYNDBÖND
Morð á besta tíma
Glæpastundin
(Crime Time)____________
Sakamálamynd
kk'h
Framleiðendandi: David Pupkew-
itz. Leikstjóri: George Sluizer.
Handritshöfundur: Brendan So-
mers. Kvikmyndataka: Jules Van
Den Steenhoven. Tónlist: David A.
Stewart. Aðalhlutverk: Stephen
Baldwin, Pete Postelwaite, Sadie
Frost, Geraldine Chaplin. 105 mín.
Bretland. Háskólabíó 1997. Útgáfu-
dagur: 22. maí. Myndin er bönnuð
börnum innan 16 ára.
GEORGE Sluizer varð fyrst fræg-
ur fyrir hina hollensku hrollvekju
„The Vanishing" en hún hafði að
geyma eitt
óhugnanlegasta
lokaatriði kvik-
myndasögunnar.
Endurgerð „The
Vanishing" sem
Sluizer leikstýrði
einnig var ekkert
annað er ósköp
venjuleg banda-
rísk spennumynd.
Með „Glæpa-
stundinni" er Sluizer komin aftur á
slóðir hins hollenska meistaraverks
síns. Myndin fjallar um óheilbrigt
samband sem myndast á milli rað-
morðingja (Pete Postelwaite) og
leikara (Stephen Baldwin) sem leik-
ur morðingjann í sjónvarpsþáttum,
sem segja frá nýjustu morðunum
sem framin hafa verið. Leikarinn
þarf morðingjann til að halda starfi
sínu og morðinginn nýtur þess að
sjá verknað sinn á skjánum.
Þetta er mjög óþægileg mynd að
horfa á, en það er einmitt ætiunar-
verk hennar. Einungis fyrsta morðið
er sýnt, en síðan tekur hinn glans-
andi heimur sjónvarpsins við, sem
gerir æsifréttir úr öllu. Myndin deil-
ir kröftuglega á þennan ýkta fjölm-
iðlaheim og tekst betur upp en hin
misheppnaða ádeila sem Oliver
Stone gerði í mynd sinni „Natural
Born Killers". Maður veit aldrei
hvort taka á myndina alvarlega eða
ekki og vekur það óþægilega tilfinn-
ingu. Baldwin nær aldrei tökum á
hlutverki leikarans, en hann klúðrar
því ekki. Pete Postelwaite er kjörinn
í hlutverk morðingjans og skapar
eftirminnilega persónu úr hinum
hversdagslega raðmorðingja, sem
verður frægur fyrir ódæðisverk sín.
Tæknilega er myndin vel gerð og
söngrödd Marianne Faithful sem
byijar og endar myndina gefur henni
draumkenndan blæ.
Ottó Geir Borg
Skugga-
hliðar
alríkis-
lögregl-
unnar
Aftökulistinn
(The Assassination File)
Spcnnumynd
★ ★
Framleiðendandi: Craig Zadan og
Neil Meron. Leikstjóri: John Harri-
son. Handritshöfundur: Bruce Mill-
er. Kvikmyndataka: Robert Draper.
Tónlist: Tone Hauser. Aðalhlut-
verk: Sherilyn Fenn, Tom Verica,
Dan Buler, Paul Winfield. 101 mín.
Bandaríkin. Cic Myndbönd 1997.
Útgáfudagur: 20. maí. Myndin er
bönnuð bömum innan 16 ára.
SHERILYN Fenn leikur FBI
starfsmanninn Lauren Jacobs, sem
lítur út fyrir að vera nýjasta stjarna
alríkislögregl-
unnar. En þegar
þingmaðurinn
sem hún er feng-
in til að vernda
er myrtur, án
þess að hún geti
nokkuð gert,
ákveður hún að
leggja starfið á
hilluna og byija
nýtt líf. Myndin hefst tveimur
árum eftir það, en þá hafa sönn-
unargögn komið fram sem varpa
nýju ljósi á morðið á þingmannin-
um og einnig á starfsemi alríkis-
lögreglunnar í heild sinni. Dregst
Lauren nauðug inn í málið og kem-
ur hinn gamli starfsferill hennar
að notum, því fleiri vilja hana feiga
en hjálpa henni.
„Áftökulistinn" er fyrirsjáanleg
formúlumynd, sem er prýðilega
gerð. Sherilyn Fenn er ekki slæm
leikkona og ræður vel við hið
klisjulega hlutverk Lauren, á með-
an aðrir leikarar standa sig hvorki
áberandi vel né áberandi illa. Hin
vinsæla hugmynd um einhveija
leynireglu innan ríkisstjórnarinnar,
sem er yfir alla hafin, er vel út-
færð í myndinni. Nokkur vel gerð
spennuatriði eru til staðar í „Af-
tökulistanum“, sem ættu að svala
þorsta mestu spennufíklanna.
Ottó Geir Borg
Sumarskólinn sf.
Kstarf^1
Víð emm reynsluméstír og ódýrastiT
Um 40 matshæfir framhaldsskólaáfangar eru í boði.
Kennsla fer fram í júní. Verð er kr. 11.800 fyrir einn
áfanga og kr. 18.800 fyrir tvo áfanga.
Skráning er þessa viku og n.k. mánudag, kl. 17:00-19:00 í
Odda, Háskóla íslands og í símum 565-6429 og 564-2100.
5