Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SÁ fyrsti kominn á land, Friðrik Þ. Stefánsson t.v. mundar rotarann, en Kristján Guðjónsson heldur laxinum í heljargreip þannig að hann sýni ekkert fararsnið. Morgunblaðið/Ámi Sæberg ÞAÐ gekk hvorki né rak þjá þeim félögum Hallgrími Gunnars- syni t.v. og Gunnari Helgasyni á bökkum Þverár í Borgarfirði. Sjö fyrstu laxarnir úr Norðurá SJÖ laxar voru komnir á land úr Norðurá í Borgarfirði á há- degi í gær, en enn var beðið eftir fyrstu löxunum úr Þverá og Laxá á Ásum. „Áin er að hreinsa sig núna og við höfum séð talsvert af laxi að ganga, bæði á Stokkhylsbroti og uppi í Fossi,“ sagði Friðrik Þ. Stefáns- son formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur í samtali við blaðið í gærdag. Friðrik veiddi fyrsta lax sumarsins, tæplega 10 punda hrygnu við Skerið í Norðurá. Laxinn tók flugu, Black Sheep túbu. Friðrik sagði menn hæst- ánægða þó skilyrði hefðu verið slæm. Fyrsta daginn var áin mikil, gruggug og vatnshitinn aðeins fjórar gráður. í gær var mikill hiti í Borgarfirði snjóbráð í ánni, en þó var áin farin að hreinsast og hlýna. Laxarnir voru sex 7,5-10 pundaáaðal- svæðinu og auk þess veiddist einn 8,5 punda á Kálfhylsbroti í Stekknum, en hann tilheyrir Munaðarnessvæðinu um þetta leyti. Þá hafa nokkrir laxar sloppið, m.a. tveir sem taldir voru 15-18 punda. Þverá var skoluð og erfið til veiða. Að sögn Jóns Ólafssonar, eins leigutaka árinnar hafa menn séð lax á nokkrum stöðum í ánni, en þeir hafa ekki tekið. Efri hluti Þverár, I^jarrá, verð- ur opnaður 7. júní. I Laxá á Ásum var enginn lax kominn á þurrt er blaðamaður Morgun- blaðsins leit þar við um miðjan gærmorgun. Veiði hófst síðdeg- is á sunnudag. Veiðimenn sem renndu í ána höfðu þó orðið varir við lax, í svokölluðum Dulsum. Nú opna árnar hver af ann- arri, á fimmtudagsmorgun hefst þannig veiði í Blöndu og Laxá í Kjós og 7. júní verður Kjarrá opnuð. Efnahagur íslenskra heimila samkvæmt Hagtölum mánaðarins Skuldír og eignir juk- ust jafnt á síðasta ári SKULDIR íslenskra heimila jukust um 25 milljarða á föstu verðlagi á síðasta ári en í fyrsta skipti frá 1980 jukust eignir jafnmikið. Lang- stærstur hluti skuldanna tengist fjármögnun náms, íbúðarhúsnæðis og annarrar eignaöflunar. Kemur þetta fram í nýjasta hefti Hagtalna mánaðarins, riti Seðlabankans. Eignir heimilanna námu í lok árs 1996 1.153 milljörðum króna en skuldir 349 milljörðum og er því hrein eign 804 milljarðar. Með eign- um teljast eignir í lífeyrissjóðum en ekki eignarhlutir í fyrirtækjum eða lausafjármunir, svo sem innbú. íbúðir eru stærstur hluti eignanna eða 48% og þar á eftir kemur eign í lífeyrissjóðum, nærri 25%. Fjár- eignir koma næst, 20%, en til þeirra teljast innstæður í bönkum, skulda- bréfa- og skammtíma verðbréfa- eign og bílar eru 7% eigna heimil- anna. Skuldir við lánakerfíð námu í árs- lok 1996 349 milljörðum króna. Juk- ust þær um 33 milljarða frá 1995 en 25 milljarða á fostu verðlagi eða um 7,7% miðað við 6,6% árið áður. Stærstur hluti skuldanna er við hús- næðislánasjóði, tæplega 57%, 19,5% eru við bankakerfíð, við lífeyrissjóði rúm 11% og við LÍN rúm 10%. Aðr- ar skuldir eru m.a. við tryggingafé- lög og verðbréfasjóði. Allt frá árinu 1980 hefur eigin- fjárhlutfall heimilanna farið lækk- andi þar til í fyrra. Eignir hafa aukist jafnt og þétt en skuldir jafn- framt meira en í fyrra var nánast jafnvægi. Hæst skulda- hlutfall á íslandi Þá eru skuldir heimilanna i hlut- falli við ráðstöfunartekjur bornar saman við það sem gengur og ger- ist í öðrum löndum í fyrrnefndri grein um efnahag heimila í Hag- tölum mánaðarins. Til að leiðrétta samanburð er bætt við áætlaðri hlutafjáreign íslenskra heimila en hún er jafnan talin með hjá erlend- um þjóðum. Er ísland borið saman Skuldir og hrein eign heimila í nokkrum löndum Hlutfall af ráðstðfunartekjum Skuldir Hrefn eign ísland 128 447 Kanada 105 490 Bandaríkin 101 515 Bretland 110 563 Japan 112 674 Frakkland 70 423 Ítalía 33 646 við Bandaríkin, Japan, Frakkland, Ítalíu, Bretland og Kanada. Kemur fram að sem hlutfall af ráðstöfunartekjum eru skuldir ís- lenskra heimila 128 og hrein eign 447 og hefur ísland hæsta hlutfall skulda en lægst hlutfall hreinnar eignar fyrir utan Frakkland. Hjá Bandaríkjamönnum er hlutfall skulda 101 á móti 515 í hreinni eign, á Ítalíu eru skuldir 33 á móti 646 í hreinni eign, Kanada 105 á móti 490, svo dæmi séu tekin. Við erum búnir að semja „VIÐ erum einfaldlega búnir að semja en þeir eru sjálfir með sína samninga. Ef þeir semja um eitt- hvað meira er það bara þeirra. Þetta er réttur félaganna, valdið liggur hjá þeim en ekki samböndunum," sagði Bjöm Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambands ís- lands, aðspurður um hvort hugsan- lega yrði gripið til aðgerða af hálfu annarra verkalýðsfélaga ef samið yrði um meira við verkfallsmenn á Vestfjörðum en almennt var samið um í vor. Aðspurður sagði Björn Grétar að þau félög VMSI sem væru búin að semja hefðu friðarskyldu. Einu upp- sagnarákvæði samninganna tengd- ust kaupmáttarþróun í helstu við- skiptalöndum. Hann sagði ekki eins- dæmi að einstakir landshlutar hefðu náð hærri kauptöxtum en aðrir. ----------» ♦ ♦---- Samræmd próf tvisvar á ári Gætu hafist um næstu áramót SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir, for- maður stefnumótunarnefndar um endurskoðun aðalnámskráa grunn- og framhaldsskóla, segir það jafnvel geta komið til framkvæmda þegar á næsta skólaári að samræmd próf í tíunda bekk grunnskóla verði lögð fyrir tvisvar á ári, fyrir áramót og að vori. I tillögum nefndarinnar, sem kynntar voru í ríkisstjórn sl. föstu- dag, kemur fram að með þessu fyrir- komulagi verði nemendum gert mögulegt að Ijúka grunnskólaprófí um áramót og hefja nám í fram- haldsskóla strax í janúar. „Ég tel að þetta geti verið hvetj- andi fyrir duglega nemendur að leggja sig fram og geta klárað grunnskólann fyrr. Fyrir hina eru þetta líka skilaboð um að ef þeir væru duglegir og legðu sig fram þá hefðu þeir þennan möguleika," segir Sigríður Anna. Hún kveðst telja það mögulegt að hrinda þessari breytingu í fram- kvæmd án mikils undirbúnings, en það sé þó nokkuð dýrt. Menntamála- ráðherra hafi svigrúm fram á haust- ið til að skoða tillöguna betur og í ljósi umræðunnar um samræmd próf að undanförnu sé ekki hyggi- legt að hrapa að neinu. i Útgerðarmenn á Vestfjörðum farnir að huga að breyttum útgerðarháttum Ekkí enn farið að selja kvóta Þokkaleg staða hjá Básafelli VESTFIRSKIR útgerðarmenn sem rætt var við í gær bundu vonir við að skriður kæmist á samningamál á fundi verkfallsmanna á Vestfjörðum og viðsemjenda þeirra hjá ríkissátta- semjara í gær. „Ennþá erum við ekki í neinum vandamálum en ef þetta heldur áfram í einhveijar vikur í viðbót þá liggur Ijóst fyrir að það verður farið að selja einhvern kvóta,“ sagði Magnús Reynir Guðmundsson, formaður stjómar Gunnvarar og ís- húsfélags ísafjarðar. Meta stöðuna af alvöru Fyrirtækin tvö gera út Júlíus Geirmundsson, sem liggur í ísa- fjarðarhöfn með fullfermi af karfa, Framnes, hálffrystitogara sem ligg- ur við bryggju og þarf losun á rækju úr frystilest og Stefni sem hefur aflað hráefnis fyrir landvinnslu ís- húsfélagsins. „Það er ekkert hægt að segja um það á þessari stundu hvað gerist en í lengstu lög höldum við í okkar kvóta,“ sagði Magnús Reynir. Ingimar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Frosta í Súðavík, sagði aðspurður að fyrirtækið væri ekkert farið að huga að því að leigja frá sér kvóta til loka fískveiðaársins vegna þess hve verkfallið hefði dreg- ist á Ianginn. Bæði skip Frosta liggja við bryggju með fullar lestar. Ingi- mar vildi engu um það svara hvort hann teldi koma til greina að leigja kvóta frá skipunum ef verkfall dregst frekar á langinn. Arnar Kristinsson, framkvæmda- stjóri Básafells, sagði að þokkaleg staða væri varðandi skip fyrirtækis- ins. Sléttanesið landaði á Þingeyri eins og áður en þar er ekkert verk- fall. Nóg pláss er í lestum Orra og Skutull verður viku til viðbótar á veiðum. „Það segir sig sjálft að eftir að skipin stoppa láta menn kvótann ekki falla niður. Við vorum búnir að stilla málið þannig af að við áttum rækju fyrir allan okkar flota út físk- veiðiárið," sagði Arnar. „Við erum ekki í vandræðum ennþá en ef verk- fallið tefst í einhveijar vikur í viðbót er ljóst að það verður farið að selja einhvern kvóta.“ Hólmadrangur, togari samnefnds fyrirtækis á Hólmavík, kom inn til heimahafnar vegna sjómannadags- ins en hélt að því búnu aftur í veiði- ferð sem áætlað er að standi fram í miðjan júní. „Síðan á hann að fara í slipp og eftir það kemur í Ijós hvað verður, það er ekkert ákveðið," sagði Gústaf Daníelsson, framkvæmda- stjóri Hólmadrangs. Gústaf sagði að miðað við framhald verkfalls væri óljóst hvernig hægt yrði að landa rækju úr skipinu. Fram hefur komið að Hólma- drangur íhugi að loka rækjuvinnslu sinni á Hólmavík til hausts en Gúst- af varðist í gær allra frétta af fyrir- ) ætlunum fyrirtækisins ef til þess j kemur að verkfall dragist á lang- i inn. Hann sagði þó að ef ekkert breyttist gæti verið að í þessum mánuði eða upp úr næstu mánaða- mótum yrði farið að huga að þvj að gera ráðstafanir til þess að kvóti skipa fyrirtækisins ónýtist ekki í lok fiskveiðiársins. Hólmadrangur á 6-700 tonna rækjukvóta ónýttan. Auk vinnslunnar á Hólmavík rekur Hólmadrangur rækjuvinnslu á , Drangsnesi sem báturinn Víkurnes sér fyrir hráefni en ekkert verkfall er á Drangsnesi, fremur en á Þing- eyri, Bíldudal og Tálknafirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.