Morgunblaðið - 03.06.1997, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
rTillögurnar koma
þa'g'ilega á óvart
Utgarðarmenn fagna
þvf aö Hafró leggi til
stóraukinn þorsk-
kvóta á nseata
fiskvelðiári og eni
búnir að reikna
út sinn hlut.
VÁÁÁ, stórkostleg heppni,, ótrúleg heppni, yfirnáttúruleg heppni. Lukku Stjáni hefur
enn einu sinni hreppt stóra vinninginn . . .
Veiðihús byggt við Laxá í Kjós
VEIÐIFÉLAG Laxár í Kjós sam-
þykkti á aðalfundi sínum fyrir
skömmu að reist skyldi nýtt og
glæsilegt veðihús við ána. Bygging
hússins hefst bráðlega og er áætlað
að verkinu verði lokið vorið 1998
þannig að veiðimenn við Laxá á
næsta sumri verði fyrstir til að
nýta sér aðbúnaðinn. Til þessa hef-
ur vantað veiðihús við Laxá, veiði-
menn hafa haft setustofu og borð-
sal í skólahúsinu að Ásgarði og sfð-
an náttað sig í svefnskálum fyrir
vestan skólann. „Þetta eru mikil og
góð tíðindi og bætt verður úr brýnni
þörf. Það er ekki búið að ákveða
nákvæmlega stærð eða lögun. Ein
hugmyndin er að húsið verði í kana-
A
A
rúiíŒim i Mmémiéí
FIMMTUDAGINN 5. JÚNÍ KL. 20.00
R
R
Johannes Brahms: Háskólaforleikurinn
Richará Strauss: Hornkonsert
Piotr Tchoikovsky: Sinfónía nr. 4
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255
MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HLJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN
dískum bjálkakofastíl. Það eina sem
ég get sagt er að það verður veg-
legt með 20 fermetra herbergjum
fyrir veiðimenn og annan aðbúnað
í stíl við það. Það er heldur ekki
búið að ákveða nákvæmlega stað-
setninguna. Veiðifélagið viil hafa
húsið skammt neðan við svefnskál-
ana við Ásgarð sem eiga að vera
bústaðir starfsfólks veiðihúsins, en
leigutakarnir vilja hafa húsið nokkru
neðar, við Laxfoss. Úr þessu verður
skorið fljótlega, en undirbúnings-
vinna er hafin,“ sagði Ásgeir Heið-
ar, fulltrúi leigutaka árinnar í sam-
tali við Blaðið. Aðspurður sagði hann
áætlað að húsbyggingin muni kosta
allt að 60 millj. kr.
Silungsveiði glæðist
Mjög góð veiði var f Eiliðavatni
fyrir um viku síðan, en dofnaði
nokkuð í sunnanáttunum og slag-
veðrinu sem verið hefur megnið af
vikunni. Þá hefur veiði í Þingvalla-
vatni tekið nokkuð vel við sér. Á
sjóbirtingsslóðum í Skaftafellssýsl-
um, s.s. í Grenlæk og Eldvatni á
Brunasandi hefur verið nokkuð góð
veiði þótt sumar sé á næsta leyti
og sjóbirtingur eigi að vera farinn
út í hafsauga í mat. 9 punda birting-
ur veiddist í Eldvatni fyrir skömmu.
Þá hefur verið mjög góð veiði á
neðstu svæðum Þorleifslækjar að
undanförnu að sögn Ingólfs Kol-
beinssonar í Vesturröst, sem selur
veiðileyfi á svæðið. „Það hafa kom-
ið menn sem hafa keypt leyfi, til
að kaupa sig á svæðið aftur, því
fyrir um 10 dögum kom mikið af
góðri sjóbleikju á svæðið. Það hafa
fáir farið enn sem komið er, en
aflinn hefur verið upp í 30 stykki
á stöngina, mest 2-3 punda fiskur
og allt að 5 punda þeir stærstu.
Þetta svæði hefur stundum verið
nefnt Grímslækjarsvæði. Bleikjan
tekur flugu best og brúnar púpur
og svo „Heimasætan" hafa gefið
best,“ sagði Ingólfur.
Ingólfur sagði enn fremur að
fregnir hefðu borist af góðum skot-
um í sjóbirtingsveiði á Hrauni í
Ölfusá. „Birtingurinn kemur og fer
með sjávarföllunum á þessum tíma
og menn eru að taka hann á beitu
og spón á aðfallinu," sagði Ingólfur.
Fjölmenn ráðstefna í Háskólabíói
Deyjandi einstakl-
ingar þurfa sér-
staka umönnun
FJÖLDI starfsfólks í
heilbrigðisgeiranum
sækir þessa dagana
fróðleik í sínu fagi, þar sem
ýmist er nýlokið ráðstefn-
um, þær standa yfir eða eru
framundan. Þannig hafa
hjúkrunarfræðingar nýlok-
ið málþingi um lífsgæði
sjúklinga. I gær og í dag
stendur yfir norræn ráð-
stefna á vegum Nordisk
Fövening för Psykosocial
Onkologi. Er hún ætluð fag-
fólki sem sinnir andlegri og
félagslegri umönnun
krabbameinssjúklinga frá
upphafi greiningar og á
meðan þörf krefur. Á
fimmtudaginn nk. hefst
þriggja daga norræn ráð-
stefna um umönnun við
ævilok á vegum samtak-
anna Nordisk Förening Omsorg
vid livets Slut. Er það félagsskap-
ur heilbrigðisstarfsmanna sem
vinnur við meðferð og umönnun
deyjandi sjúklinga. Þátttakendur
í þeirri ráðstefnu eru 700 úr öllum
stéttum heilbrigðisgeirans. Val-
gerður Sigurðardóttir yfirlæknir
er í forsvari fyrir báðum þingun-
um.
- Er þessi félagsskapur um
umönnun til á Islandi?
„Nei, en jafnvel stendur til að
stofna hann í haust, því mikil
þörf er á að opna umræðuna um
þessi mál í þjóðfélaginu."
- Hvert verður aðalumræðuefn-
ið?
„Aðalþemað er dauðinn, sorgin
og líknin. Við nálgumst þessi
málefni út frá læknisfræðilegu,
heimspekilegu, menningarlegu,
félagsfræðilegu og sálfræðilegu
sjónarhorni."
- Snýst umræðan um alia sjúkl-
ingahópa?
„Já, í raun og veru. Starfsfólk
sem sinnir krabbameinssjúkling-
um er mest áberandi innan sam-
takanna, því að sá sjúklingahópur
er fjölmennastur. Þeir sjúklingar
hafa fleiri og erfiðari einkenni en
aðrir, sem kallar á sérhæfða með-
ferð og umönnun. Annar stór hóp-
ur er sjúklingar sem sinnt er inn-
an öldrunargeirans. Sömu grund-
vallarreglur eiga þó við um alla
deyjandi, hvort sem eru börn,
gamalmenni eða aðrir.
Við erum að reyna að koma því
á framfæri að sjúklingar við lok
lífsins þurfi sérhæfða meðferð,
umönnun og líkn. Það tekur hins
vegar tíma að breyta hugsunar-
hætti fólks. Við höfum
alltof lengi gengið út
frá því að hægt væri
að lækna alla sjúkdóma
með framförum og
nýrri tækni. Dauðanum
var ýtt í burtu í stað þess að taka
mið af aðstæðum.“
- Hvers konar meðferð fá sjúk-
lingar?
„Svokallaða líknar- eða ein-
kennameðferð sem byggist á því
að lina verki og önnur líkamleg
einkenni, jafnframt því sem tekið
er á félagslegum og sálrænum
þáttum. Mikilvægt er að sjúkling-
ur fái tækifæri til þess að ræða
mál sín og aðstæður. Við þykj-
umst ekki geta læknað en leggjum
áherslu á að vera alltaf til taks
og taka strax á þeim vandamálum
sem upp koma. Það þýðir ekki að
alltaf sé verið að tala um dauð-
ann, heldur er mikið hlegið og
gert að gamni sínu. Spurningin
snýst um að gera hvern dag eins
góðan og hægt er.“
- Er ekki almennt of lítið rætt
Valgerður Sigurðardóttir
Að ná hverjum
degi eins góð-
um og hægt er
►Valgerður Sigurðardóttir
fæddist í apríl 1952 í Reykjavik.
Hún lauk stúdentsprófi frá MR
1972, læknisfræði frá HÍ 1978.
Hún lauk sérfræðinámi í
krabbameinslækningum við
Karólínska sjúkrahúsið í Stokk-
hólmi, þar sem hún aflaði sér
sérþjálfunar í andlegum og fé-
lagslegum stuðningi við
krabbameinssjúklinga. Dokt-
orsprófi lauk hún 1996. Hún
hefur unnið á íslandi síðan
1989, lengst af hjá Leitarstöð
og í Heimahlynningu Krabba-
meinsfélagsins. Frá 1989 hefur
hún unnið í heimahlynningu
Krabbameinsfélagsins. Maki
Valgerðar er Ágúst Ólafur Ge-
orgsson þjóðháttafræðingur og
eiga þau tvö börn.
um dauðann í íslensku þjóðfélagi?
„Jú og hluti af þessari ráð-
stefnu, sem haldin er til skiptis á
Norðurlöndunum, er að taka upp
umræðuna, auka hana í samfélag-
inu, auka þekkingu heilbrigðis-
stétta, stuðla að rannsóknum og
draga fram í hveiju landi fyrir sig
þá sem vinna að þessum mála-
flokki, því þeir eru íjölmargir. Á
ráðstefnunni koma til dæmis fram
20 íslenskir fyrirlesarar sem allir
vinna að þessu málum. Þetta eru
prestar, læknar úr ýmsum stéttum,
hjúkrunarfræðingar, félagsráð-
gjafar, sálfræðingar og fleiri.“
- Þegar kemur að því að hætta
að lækna og fara að líkna er það
rætt jafnt við aðstandendur og
sjúklinga?
„Já og það er mikilvægt að hafa
fjölskylduna með í meðferðarein-
ingunni, enda eru alvar-
leg veikindi og dauði
fyrst og síðast mál fjöl-
skyldunnar. Hún er upp-
lýst stig af stigi eins og
sjúklingurinn. Henni er
veittur stuðningur við að takast á
við aðstæður. Reynt er að byggja
upp kerfi til að fylgja eftir aðstand-
endum eftir andlát sjúklingsins. Á
ráðstefnunni er því ekk einungis
fjallað um sjúklinginn og aðstand-
endur heldur líka um starfsfólkið,
þvl þetta er mjög krefjandi vinna
sem margir koma að.“
- Hvað er brýnast íþessum efnum
hér á landi núna?
„Það er að líknandi meðferð
verði viðurkennd sem hluti af heil-
brigðiskerfinu og fái rými til þess
að þróast. Alveg eins og við hugs-
um sérstaklega vel um verðandi
mæður og nýfædd börn, teljum
við að gilda eigi það sama við lok
lífs. Deyjandi einstaklingar húa
við sérstök vandamál og þurfa því
sérstaka nálgun, aðstæður og
umönnun."