Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Margrét Þóra
ÞESSIR krakkar eru úr Æskulýðsfélagi Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Ungmenni í breiðþotu til Akureyrar
Fjölmenni í popp-
messu í flugskýli
GLAÐBEITTUR hópur ungmenna,
um 360 talsins, steig út úr Lockheed-
Tristar breiðþotu flugfélagsins Atl-
anta á Akureyrarflugvelli á sunnu-
dag og skundaði beint í flugskýli
Flugfélags Norðurlands. Þar var
haldin poppmessa að viðstöddu fjöl-
menni, en gestirnir eru félagar í
æskulýðsfélögum kirkjunnar á
Reykjavíkursvæðinu. Flugfélagið
Atlanta lánaði Æskylýðssambandi
kirkjunnar í Reykjavíkurprófasts-
dæmum vélina endurgjaldslaust.
Skemmtilegur dagur
Þegar allir höfðu komið sér fyrir
í risastóru flugskýlinu hófst messan,
en prestar úr Eyjafjarðarprófasts-
dæmi þjónuðu fyrir altari og sr. Jóna
Lísa Þorsteinsdóttir prédikaði.
Tónlistin var fjölbreytt, hljóm-
sveitin Nýir menn lét til sín taka,
hornafiokkur úr Tónlistarskólanum
á Akureyri lék og Björn Steinar
Sóibergsson, organisti Akureyrar-
kirkju, lék á orgel. Þá aðstoðuðu
unglingar við messugjörðina.
Þær voru sammála um það vin-
konurnar Rut, Erna, Elfa, Rakel,
Ingunn og Gulla sem allar eru í
Æskylýðsfélagi Hjallakirkju í Kópa-
vogi að dagurinn hefði verið afar
skemmtilegur. „Eg fór til dæmis í
fyrsta skipti í flugvél," sagði Rut
og var himinlifandi yfir þeirri reynslu
og Erna hafði aldrei komið fljúgandi
til Akureyrar og þótti það líka svolít-
ið sport. Flugið tók um tuttugu mín-
útur og sögðu stelpurnar að mikið
fjör hefði verið á leiðinni. Krakkarn-
ir töluðu saman og sungu. En hvern-
ig var messan? Jú, stúlkunum þótti
hún ágæt, en hefðu samt viljað
meira fjör, meira af lögum sem allir
kunna. „En dagurinn hefur verið
rosalega skemmtilegur."
Blíðskaparveður var yfir öllu land-
inu á sunnudag og á leiðinni suður
yfir heiðar á ný var flogið yfir jökla
og þeir skoðaðir en efnið „náttúran
sem kennslustofa Guðs“ var til íhug-
unar á heimleiðinni.
AKUREYRI
Mörg skemmtiatriði á sjómannadaginn á Akureyri
Hátíðarhöld í blíðskaparveðri
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Sjómenn heiðraðir
ÞRIR sjómenn voru heiðraðir á Akureyri nú á sjómannadaginn
og fór athöfnin fram við minnisvarða um týnda sjómenn við
Glerárkirkju. Þeir sem heiðraðir voru að þessu sinni voru Agn-
ar B. Óskarsson, Gylfi Heiðar Þorsteinsson og Jón Sigurðsson.
Allir eiga þeir langan og farsælan sjómennskuferil að baki.
BYKO kaupir
rekstur Metró
SJÓMANNADAGURINN var hald-
inn hátíðlegur í blíðskaparveðri á
Akureyri á sunnudaginn. Sjó-
mannadagsráð stóð fyrir ijölskyldu-
hátíð við Oddeyrarbryggju og þang-
að kom mikill fjöldi fólks á öllum
aldri og skemmti sér vel.
Hátíðin hófst með ávarpi Stein-
gríms J. Sigfússonar, alþingis-
manns og formanns sjávarútvegs-
nefndar Alþingis, en síðan sté
Magnús Scheving á svið og brá á
leik með gestum. Magnús náði vel
til yngri kynslóðarinnar en einnig
tókst honum að fá fullorðna fólkið
til að sleppa sér lausu. Götuleikhús-
ið skemmti gestum og gangandi og
þá var fjöldi skemmtilegra leik-
tækja á svæðinu.
Jakahlaup og
Smugubikarinn
Á pollinum innan við göngubrúna
við Strandgötu var keppt í þrautum.
í jakahlaupi áttu keppendur að
hlaupa eftir nokkrum plastkubbum
og synda stutta vegalengd í flotgöll-
um. Það var Kristján Vilhelmsson,
einn framkvæmdastjóra Samherja,
sem fór með sigur af hólmi í jaka-
hlaupinu.
í keppni um Smugubikarinn áttu
keppendur að synda dágóða vega-
lengd í flotgöllum, sprengja blöðru
á miðjum pollinum (í Smugunni)
og synda til baka. Þetta reyndist
hin mesta þrekraun en svo fór að
Stefán Hauksson frá Samheija
hafði nokkuð öruggan sigur.
Dagskráin á laugardeginum riðl-
aðst að þvi leyti að róðrarkeppnin
féll niður vegna óhagstæðra veður-
skilyrða. í innanhússknattspyrnu
sjómanna fögnuðu Samheijamenn
sigri en A-lið yíðis EA fór með sig-
ur af hólmi. í golfmóti sjómanna
var það hins vegar Sigvaldi Torfa-
son, skipvetji á Árbaki EA, togara
UA, sem bar sigur úr býtum.
SAMNINGUR á milli BYKO hf. og
Bílanausts hf. um kaup BYKO á
rekstri bygginga- og heimilisvöru-
verslunarinnar Metró á Akureyri
eru á lokastigi. Að sögn Jóns Helga
Guðmundssonar, forstjóra BYKO,
er stefnt að því að reka alhliða
byggingavöruverslun í húsnæði
Metró á Furuvölium 1 sem áfram
verður í eigu eigenda Bílanausts.
Hann segir að verslunin verði
rekin með nafni Metró til að byija
með en þegar fram í sækir undir
merkjum BYKO. „Við ætlum að
kynnast markaðnum áður en við
förum í stórar aðgerðir." Verslunin
verður lokuð fyrri part vikunnar,
m.a. vegna vörutalningar en Jón
Helgi segir stefnt að því að opna
aftur nk. föstudag.
Öllu starfsfólki Metró á Akur-
eyri, um 10 manns, hafði verið sagt
upp störfum. Jón Helgi segir að
BYKO muni taka yfir þær starfs-
skyldur sem á fyrirtækinu hvíla
gagnvart starfsfólkinu.
BYKO rekur byggingavöruversl-
anir í Reykjavík, Kópavogi, Hafnar-
firði og Keflavík og hyggst nú einn-
ig hasla sér völl á Akureyri.
Einn tryggasti nemandi VMA
Morgunblaðið/Kristján
ALLS 146 nemendur voru brautskráðir frá VMA sl. laugardag og á myndinni er hópurinn ásamt
skólameistara sínum, Bernharði Haraldssyni. 86 stúdentar brautskráðust, 17 húsasmiðir, 13 vélstjór-
ar, 10 bifvélavirkjar, 6 meistarar, 5 sjúkraliðar, 4 nemendur sérdeildar, 1 pípulagningamaður, 1 vél-
smiður, 1 stálskipasmiður, 1 rennismiður og 1 netagerðarmaður.
4. stigs vélstjórar brautskráðir frá VMA í fyrsta sinn
Vonandi upphaf að meiri
tækni- og verkmenntun
Fékk
sjöunda
skírteinið
„MUGGUR Matthíasson er einn
tryggasti nemandi okkar. í hvert
sinn sem hann hefur fengið
brautskráningarskírteini hefur
hann sótt um nám að nýju. Hann
hefur í dag fengið 7. skírteinið,"
sagði Bernharð Haraldsson,
skólameistari Verkmennaskól-
ans á Akureyri, við skólaslit sl.
laugardag.
„Muggur hefur lokið alls 330
einingum, sem nemur eininga-
fjölda nær tveggja og hálfs stúd-
entsprófs. Slíkt hefur enginn
gert fyrr hér á landi svo vitað
sé. Muggur hefur meðfram námi
kennt dálítið og staðið sig vel.
Hann hefur og látið í Ijós þann
draum sinn að verða skólameist-
ari.“
Árið 1990 lauk Muggur námi
í vélvirkjun og 1993 útskrifaðist
hann sem vélavörður frá skólan-
um. Ári síðar útskrifaðist hann
með stúdentspróf af tæknisviði
Morgunblaðið/Kristján
MUGGUR Matthíasson með
blómvöndinn sem Bernharð,
skólameistari VMA, færði
honum við skólaslitin.
og lauk meistaraskóla fyrir vél-
virkja. Árið 1995 lauk hann 2.
og 3. stigi vélstjórnar og sl.
laugardag útskrifaðist hann með
4. stigi vélstjórnar.
„Ég þakka honum tryggðina
með þessum litla blómvendi og
bendi honum jafnframt á að hann
á t.d. alveg eftir nám á sjúkra-
liðabraut og á hússtjórnarsviði.
Þangað er hann auðvitað vel-
kominn, strax næsta haust eða
síðar ef honum hentar það bet-
ur,“ sagði Bernharð ennfremur.
VERKMENNTASKÓLANUM á Ak-
ureyri var slitið í þrettánda sinn sl.
laugardag og fór athöfnin fram í
íþróttahöllinni.
4. stigs vélstjórar voru nú braut-
skráðir frá skólanum í fyrsta sinn.
„Það er mikill áfangi því nú getum
við veitt sambærilegt nám og Vél-
skóli íslands, einir skóia utan
Reykjavíkur. Megi það verða öllum
til góðs. Þessi dagur er því dagur
nýs árangurs, við höfum með góðra
manna hjálp stigið enn eitt skrefið
að vera verkmenntaskóli," sagði
Bernharð Haraldsson skólameistari
í skólaslitaræðu sinni.
Hann sagði að menntun ætti ekki
aðeins að vera fáanleg á suðvestur-
horninu, hún ætti að vera sem flest-
um tiltæk, hvar í sveit sem þeir
byggju. „Eg vona að þetta stutta
skref okkar sé upphafið að aukinni
tækni- og verkmenntun við Eyja-
fjörð.“
Nemendur hafa aldrei verið jafn-
margir í VMA og í vetur. Við upphaf
skólaársins voru um 1.100 nemendur
skráðir í dagskóla á Eyrarlandsholti
og á Dalvík. í ræðu Bernharðs kom
fram að fyrir tæpum 16 árum, er
hafist var handa um byggingu Verk-
menntaskólans, var reiknað með og
reyndar sett á prent, að væntanlegur
nemendafjöldi yrði um 650-700
manns. Samkvæmt sömu prentuðu
heimildum skyldi skólinn fullbúinn á
innan við 10 árum en nú eru aðeins
um 70% húsa hans risin.
í sumar hefst vinna við gerð nýs
húss fyrir trésmíðadeildina, um
1.000 fm að flatarmáii. Vonast er
til að byggingunni verði lokið síðla
árs 1998, um 10 árum síðar en gert
var ráð fyrir í upphafi. í ráði er að
stofna sérstaka vetraríþróttabraut
við VMA, í tengslum við íþrótta-
brautina sem fyrir er. Bernharð
sagðist vonast til að haustið 1998
yrði hægt að bjóða upp á kennslu í
vetraríþróttum við skólann.
Matvinnsiubraut er vinnuheiti á
nýrri námsbraut sem verið er að
undirbúa við skólann. í máli Bern-
harðs kom fram að kannski yrði
farið að kenna á matvinnslubraut
næsta haust, í síðasta lagi haustið
1998.
Niðjamót
Afkomendur Sigurlaugar Jónasdóttur og Helga Eiríkssonar
frá Botni verður haldið á Hótel Vín, Hrafnagili, Eyjafirði,
21. júní nk. og verður sett kl. 14.00. Þeir, sem ekki hafa
nú þegar skráð sig, vinsamlegast geri það sem fyrst.
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Helgu Hallgrímsdóttur, sími 463 1241 og
Þór Aðalsteinssyni, sími 463 1238.