Morgunblaðið - 03.06.1997, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERIIMU
Heldur meira um
sumarlokanir í ár
HELDUR meira verður um sumar-
lokanir frystihúsa í sumar en í
fyrra að sögn Arnars Sigurmunds-
sonar, formanns Samtaka fisk-
vinnslustöðva. Algengast er að fyr-
irtækin loki í júlí eða ágúst, í 2-3
vikur.
I kjarasamningum sem gerðir
voru nú í vetur var gert ráð fyrir
því að kæmi til samræmdra sumar-
lokana í fiskvinnslufyrirtækjum
þyrfti það að liggja fyrir í upphafi
nýs orlofsárs. „Okkur sýnist að
vegna þessa verði heldur meira um
tímabundnar iokanir í framtíðinni
sem tengjast sumarleyfum. Þannig
að fyrirtækin reyna að skipuleggja
rekstur sinn samkvæmt þessu og
það hefur þær afleiðingar að minna
er ráðið af sumarfólki en áður. Þá
má búast við að einhver fyrirtæki
loki þegar líða fer á kvótaárið.
Yfirleitt hefur ríkt ánægja með
sumarlokanir með þessum hætti
en á næsta ári verður sú breyting
á að fiskvinnslufólk tekur út sitt
orlofsleyfi í dögum líkt og aðrir
launþegar," segir Arnar.
Vfnarborg
Zurich
Áællun í sumar
Á sunnudögum:\ .6. -15.6.
Á laugardögum :21.6. - 30.8.
Til Vínar: 14.6., 28.6. og 5.7.
FráVín: 21.6., 28.6., 19.7. og 26.7.
Li'igmarksdvöl: 7 clngar. • Háninrksdvöl: I niJmiöur.
Uqfið sambaml við söluskrifstofurcða
símsöluilcilil Flugleióa í síma SO SO100
(svarað mánud. ■Joslmt kl. 8 -19 ogá laugard. kl. B-16.)
VcfurFluglciða áIntcmettm: www.icelamlair.is
Netfangfyriralmetmarupplýsingar.info@tcelamlair.is
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferÓafélagi
' Flugog flugvallarskattar.
Sviss og Austurríki
v Morgunblaðið/Golli
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarútvegsráðherra, flytur ávarp sitt við Reykjavíkurhöfn á sjómannadaginn.
„Gera allt til að hafa
fé af sjómönnum“
JÓNAS Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, sendi út-
gerðarmönnum tóninn í ræðu sinni
við hátíðahöldin í Reykjavík. Hann
sagði suma þeirra beita valdi tii að
arðræna sjómenn. Þorsteinn Páls-
son, sjávarútvegsráðherra, sagði að
halda þyrfti áfram að þróa stjórn-
kerfi fiskveiðanna á grundvelli
markaðslögmála. „Krafan um nýjan
sjávarútvegsskatt hljómar eins og
öfugmælavísa um þessar mundir og
við þessar aðstæður," sagði Þor-
steinn Pálsson, sjávarútvegsráð-
herra, í ávarpi sínu til sjómanna.
„Það er lán þjóðarinnar að eiga
heiðarlega og framsækna útgerðar-
menn,“ sagði Jónas Garðarsson í
ávarpi sínu. Það er því miður ekki
hægt að segja um þá alla. Meðal
útgerðarmanna er að finna menn
sem gera allt sem þeir geta til að
hafa fé af sjómönnum. Það, sem
er enn verra, er að félagsskapur
þeirra, LÍÚ, hvetur þá til að hafa
rangt við. Það hafa fallið dómar
og úrskurðir, þar sem ótvírætt hef-
ur komið fram að kvótabraskið
stenzt ekki lög, ekki samninga og
alls ekki það siðferði sem er nauð-
synlegt milli manna.
Arðræna sjómenn
Samt eru til menn, og það undir
forystu heildarsamtaka útgerðar-
manna, sem gefa sig hvergi og með
valdi arðræna sjómennina. Það er
von mín að þeir útgerðarmenn, sem
hafa skömm á þeim félögum sínum,
gangi í lið með okkut' sjómönnum
í þeirri baráttu sem við eigum í. “
sagði Jónas Garðarsson.
Hljómar eins og
öfugmælavísa
„Við þurfum að halda áfram að
þróa stjórnkerfi fiskveiðanna á
grundvelli markaðslögmála," sagði
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráð-
herra, í ávarpi sínu til sjómanna.
„Krafan um nýjan sjávarútvegs-
skatt hljómar eins og öfugmælavísa
um þessat' mundir og við þessar
aðstæður. Slíkut' skattur veikir
samkeppnisstöðu sjávarútvegsins í
heild og myndi hafa lamandi áhrif
á útflutningsframleiðsluna og á at-
vinnulíf landsbyggðarinnar.
Til þess að standast öðrum þjóð-
um snúning í lífskjarabaráttunni
þurfum við að standa öðrum þjóðum
feti framar í rekstrarhagkvæmni.
Til þess að skapa meiri þjóðar-
tekjur þurfum við að gefa fyrirtækj-
unum í sjávarútvegi meira svigrúm
til þess að leggja fjármuni í vöruþró-
un og markaðsstarfm," sagði Þor-
steinn Pálsson.
Margir sjómenn
heiðraðir
Jón Gunnar Kristinsson, sjómað-
ur, hlaut afreksbikar Sjómanna-
dagst'áðs fyrir bjöt'gunarafrek.
Hann lagði líf sitt í hætt er hann
kafaði undir kúfiskbátinn Æsu IS
og náði að losa björgunarbátinn frá
skipinu á um fjögurra metra dýpi,
er æsa fórst 25. júlí 1996.
Níu aldraðir sjómenn voru heiðr-
aðir fyrir störf sín að sjómennsku.
Það voru þeirGarðar Þorsteinsson,
stýrimaður, Guðmundur Ibsen,
skipstjóri, Hans Ragnar Sigutjóns-
son, skipstjóri, Ingólfur S. Ingólfs-
son, vélstjóri, Jóhann Magnússon,
skipstjóri, Sigurbjörn Halldór
Bernódusson, sjómaður, Skúli Ein-
arsson, matsveinn, Stefán Guð-
mundsson, skipstjóri og Stefán
Nikulásson, skipstjóri.
Þá fengu olíuskipið útgerðir olíu-
skipsins Kyndils og frystitogarans
Vigra viðurkenningar fyrir að sýna
árvekni i öryggismálu áhafna.
Halöu samband og
fáðu bækllng og tilboð!
Shoðaðu-verð og gaaði Schaofl.
Ístraktor
SMIÐSBÚÐ 2, GARÐABÆ #SÍMI: 565 65 80
SNUDU Afl
KEPPINAUTJU
MEÐ SCHAEFF
Yfirburðir í afkastagetu og endingu eru árangur
áratuga þróunar þýsku sérfræðinganna hjá
SCHAEFF - enda er verið að uppfylla kröfur
atvinnumanna sem vilja aðeins það besta.
jfRAKTORSGAFA
OLgoglipurmeSdrifi"'"
Wrtsiýriáöllumhjólum
hra«|0SS í"nnaS,ý'in9U (servó)
rtaölengi aö iraman ogaftan’
°9 margt fleira. -GOTT VERÐ
Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ
Verkföll eru
neyðarúrræði
GUÐJÓN A. Kristjánsson, forseti
FFSÍ, flutti hátíðarræðu á ísafirði.
Hann sagði vandræðagang stjórn-
valda í hvalveiðimálum vera okkur
til skammar. Þá veittist hann að
stjórnvöldum fyrir að festa kvóta-
kerfið óbreytt í sessi og sagði þá
meðal annars: „í engu ríki í hinum
svokallaða vestræna heimi er verið
að hverfa aftur til lénsherraveldis
miðalda með tilheyrandi forréttind-
um sægreifanna og vaxandi stétt
leiguliða í sjávarútvegi."
Guðjón fjallaði einig um kjaramál
og sagði þá: „Ég verð að segja það
hreint út að verkföll eru algjör neyð-
arúrræði og afar leitt að forysta
LÍÚ skuli aldrei fást að raunveru-
legu samningaborði án þess að þjóð-
félagið beri af verulega skaða vegna
verkfalls. I þessu tilfelli voru þeir
fjölmörgu útgerðarmenn, sem alltaf
hafa staðið rétt að málum, alltof
vægir í gagnrýni sinni á þá félaga
sína, sem héldu upp kvótabraski
með þátttöku sjómanna. Ef samtök
útgerðarmanna hefðu beitt sér gegn
þátttöku sjómanna í kvótakaupum,
en ekki varið þau óheillavinnu-
brögð, hefðu þeir heiðarlegu ekki
orðið af þeim tekjum sem raun varð
á.“
Samningar án verkfalla
„Ég ætla rétt að vona að næstu
kjarasamninga fyrir fiskimenn um
land allt megi gera án verkfalla. Á
Vestfjörðum hefur að undanförnu
staðið hörð deila verkafólks og at-
vinnurekenda um kaup og kjör.
Vissulega er það svo að deilur
manna í milli geta valdið sárum sem
gróa seint. Sá sem viðheldur ósætti
vegna vinnudeilu inn í framtíðina
hittir sjálfan sig fyrir að lokum.
Við höfum öll það markmið að á
Vestfjörðum megi á nýjan leik
byggja upp betri framtíð. Góð sátt
byggist á því að báðir gefí eftir.
Starfskjör og afkoma fólks og fyrir-
tækja á Vestfjörðum þarf til fram-
tíðar að vera jafngóð og annarra
landsmanna," sagði Guðjón A.
Kristjánsson.