Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 23 ÚRVERINU Morgunblaðið/Kr.Ben. FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og Sævar Gunnars- son, formaður SSI, virða fyrir sér bátslíkan, sem Grindvíkingar færu forsetanum að gjöf. * Atelur seinagang í kjarasamningum FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti Grindavík á sjó- mannadaginn og var viðstaddur há- tíðahöldin þar. Grindvíkingar notuðu tækifærði og færðu forsetanum lík- an af gömlum bát að gjöf. Sævai' Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambands íslands flutti hátíðarræðu dagsins og átaldi hann útgerðar- menn harkalega fyrir seinagang í samningamálum. Hann sagði jafn- framt að breytingar á vinnulöggjöf- inni fengju falleinkun. „Kjarasamningar sjómanna hafa nú verið lausir frá áramótum, og ekki er í sjónmáli að nýir verði gerð- ir á næstunni," sagði Sævar. „A síð- asta vori var vinnulöggjöfinni breytt og í tengslum við þá breytingu reyndi félagsmálaráðherra að telja fólki trú um að í breytingunni fælist það, að kjarasamningagerðin yrði skilvirkari. Reynslan hefut' orðið önnut', og breytingar á lögunum fá falleinkunn. Útvegsmenn ekki til viðtals Eins og lög segja til um var lokið við gerð viðræðuáætlana fyrir verka- lýðsfélög sjómanna 10 vikum áður en samningar runnu út. Samkvæmt áætluninni fór málið til sáttasemjara þann 16. desember síðastliðinn, þar sem ekkert hafði gerst í samninga- málum fyrir þann tíma. Síðasti fund- ur í kjaradeilunni var haldinn 24. janúar, og var sá fundur stuttur. En á hvetju stendur í kjaraviðræð- unum? Svarið er í sjálfu sér einfalt. Fulltrúar útvegsmanna hafa ekki verið til viðtals um þau atriði sem helst brenna á sjómönnum. í kröfu- gerð sjómanna er að finna kröfu um löndunarfrí á loðnu og síldveiðum, kröfu um hækkun á slysa- og ör- orkubótum, og kröfu um að allur afli sem seldur er til vinnslu innan- lands verði seldur um fiskmarkaði. Margt fleira mætti nefna úr kröfu- gerðinni, en það verður ekki gert hér. Krafan fæst ekki rædd Kröfunni um að allur afli sem seldur er til vinnslu innanlands verði seldur um fiskmarkaði, hefur verið hafnað af hálfu útgerðarmanna og fæst hún ekki rædd. Á opinberum vettvangi snúa útvegsmenn gjarnan út úr kröfunni, og loka síðan eyrun- um ef reynt er að leiðrétta málflutn- ing þeirra. Engu að síður hafa út- gerðarmenn sjálfir með hátterni sínu komið því til leiðar að ekki verður hægt að ganga frá samningum sjó- manna fyrr en það stóra vandamál, með hvaða hætti aflinn er verðlagð- ut', hefur verið leyst. Eins og málum et' háttað í dag á verðlagning að heita ftjáls. Það frelsi hafa útgerðar- menn túlkað með þeim hætti, að þeir sem seljendur geti einhliða ákveðið hvað þeir sem kaupendur greiða fyrir fiskinn. Þetta þýðir nteð öðrum orðum að skilyrði til ftjálsrar verðlagningar eru ekki fyrir hendi, þegar kaupandi og seljandi er einn og sami aðilinn. I kjarasamningi sjómanna og út- vegsmanna er skýrt ákvæði um að þessir aðilar eigi að semja sín í milli um það fiskverð sem greitt er. Um þetta fyrirkomulag var samið að undirlagi LÍÚ í síðustu samningum, en það hefur ekki gengið upp, ástæða þess er lítill vilji útvegs- manna til að koma í veg fyrir þátt- töku sjóntanna í kvótakaupum, og sífelldar hótanir um brottrekstur ef menn reyna að fara eftir ákvæðum kjarasamninga. Virða lög að vettugi Með öðrum orðum, sjómenn greiða útgerðarmönnum gjald fyrir það eitt, að fá að veiða aflaheimildir sem hið opinbera hefur úthlutað út- gerðarmönnum án endurgjalds. En hver ber mesta ábyrgð á því, hvern- ig þessum málum er nú komið? Það er löggjafarvaldið, vegna þess að þar hafa lögin um stjórn fiskveiða verið sett. Lögin sem bjóða upp á þessi vinnubrögð útgerðarmanna. En lög- gjafarvaldið hefut' líka sett lög sent banna að kostnaður við kaup á veiði- heimildum sé dreginn ft'á heildar- verðmæti afla áður en aflahlutir sjó- rnanna eru reiknaðir. En því ntiður hefur hluti útgerðarmanna virt þau lög að vettugi og látið sjómenn greiða auðlindaskatt til sín af sam- eiginlegri auðlind þjóðarinnar. Hér á landi hafa verið starfandi fiskmarkaðir allt frá árinu 1987. Samtök sjómanna telja eðlilegast að verðmyndun á sjávarfangi eigi sér stað á ftjálsum uppboðsmörkuðum. Krafa samtaka sjómanna er sú að annað hvort verði afli seldur um fisk- markaði eða verðlagning tengd því verði sem þar myndast, þannig verð- ur verðmyndun með eðlilegum hætti,“ sagði Sævar Gunnarsson. Þrátt fyrir að íslendingar slái hvert bókunarmetið á fætur öðru þessa dagana í ferðir til sólarstranda, þá eigum við þó enn laus sæti í örfáar ferðir til Portúgals og Mallorca í sumar. Bókunarstaða 31. maí Portúgal Mallorca rigningu um mest allt land hiti 4-11 stig, hlýjast austanlands“ Lágmúla 4: st'mj 569 9300, grœnt tnírner: 800 6300. HafnarfirÖi: sími 565 2366; Keflavík: sími 421 1353, Selfossi: stmi 482 1666, Akureyri: sími 462 5000 - og hjá umboðsmönnum um land allt. 4. júní 11. júní 18. júní 25. júní 2. júlí 9. júlí 16. júlí 30. júlí 6. ágúst 13. ágúst ^ 20. ágúst * laus sæti í aðrar ferðir Ætlar uppselt 4. júní 6 sæti laus 11. júní 9 sæti laus 18. júní uppselt/biðlisti 25. júní 10 sæti laus 2. júlí uppselt 9. júlí 17 sæti laus 16. júlí 16 sæti laus 30. júli 20 sæti laus 6. ágúst uppselt/biðlisti 13. ágúst örfá sæti laus 20. ágúst uppselt/biðlisti uppselt uppselt/biðlisti uppselt/biðlisti 13 sæti laus 9 sæti laus uppselt 23 sæti laus uppselt/biðlisti uppselt uppselt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.