Morgunblaðið - 03.06.1997, Page 27

Morgunblaðið - 03.06.1997, Page 27
1 I MORGUNBLAÐIÐ______________________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 27 j ERLENT Urhellisrigning á Norður-Spáni Milljarðatjón í borginni San Sebastian Malaga. Morgunblaðid. TJÓN sem talið er nema milljörð- um króna varð í borginni San Se- bastian á Norður-Spáni á sunnu- dag þegar yfir gekk gífurleg úr- hellisrigning. Borgarstjórn San Sebastian hefur farið fram á að lýst verði yfir neyðarástandi og beðið stjórnvöid í Madrid um fjár- hagsaðstoð. Mikil rigning var á Norður- Spáni á laugardag og einkum að- fararnótt sunnudagsins. Mikið hafði rignt í San Sebastian um nóttina en ósköpin hófust um klukkan níu á sunnudagsmorgun þegar ægilegt úrfelli hófst. Á innan við einni klukkustund féllu alls 80 lítrar af vatni á hverjum fermetra lands. Á tólf klukkustundum rigndi heilum 230 lítrum af vatni á hverj- um fermetra. Okumönnum bjargað af þaki bifreiða sinna Rafmagn fór af, hús fylltust af vatni og hjálparsveitir, sem fóru á bátum um götur San Sebastian þurftu að bjarga ökumönnum af þaki bifreiða sinna. Lestarferðir féllu niður og loka þurfti hrað- brautum sökum vatnselgsins. Tjónið á Norður-Spáni er talið nema milljörðum króna. Borgar- stjórn San Sebastian sagði í gær að allt benti til þess að tjónið sem orðið hefði þar á opinberum mann- virkjum næmi 500 miljónum króna, hið minnsta. Ljóst væri að millj- arðatjón hefði orðið í borginni þeg- ar allt væri saman talið. Mikil mildi þykir að hamfarir þessar skyldu ekki kosta mannslíf. Borgarstjóri San Sebastian hefur farið fram á aðstoð frá Madrid í samræmi við lög um bætur vegna náttúruhamfara. Viðlíka óveður reið síðast yfir árið 1992 og varð þá einnig milljarðatjón í San Se- bastian. Spá batnandi veðri Veður hefur verið heldur rysjótt á Spáni á undanförnum vikum. Mikið hefur rignt einkum í norður- hluta landsins og þrumur og eld- ingar verið tíðar. Veðrið hefur verið skaplegra í suðurhlutanum þótt þar hafi einnig rignt og fersk- ir vindar blásið. Veðurfræðingar spá batnandi veðri en spænskt máltæki segir að sumarið hefjist fertugasta dag maímánaðar og þá fyrst geti menn hengt upp kápu sína. Reuter IBUAR San Sebastian á Norður-Spáni virða fyrir sér bilageymslu sem fylltist af aur og vatni í úrhellisrigningu í borginni um helgina. Sátt um landa- mæri Neptun í Rúmenínu, Reuter. FÓRSETAR Rúmeníu og Úkraínu skrifuðu í gær undir sáttmála sem gæti aukið möguleika Rúmena á að fá fljótan aðgang að Atlants- hafsbandalaginu, NATO. Emil Constantinescu, forseti Rúmeníu, og Leoníd Kútsma, Úkraínuforseti, skrifuðu undir sáttmálann, sem kveður á um lausn landamæradeilna sem staðið hafa síðan þýskir nasistar og Sov- étríkin gerðu með sjér samkomu- lag fyrir um það bil 60 árum. Sáttmálinn, sem skrifað var undir í gær, hefur verið þijú ár í smíðum. Gert er ráð fyrir að hann bindi enda á deilur um land sem Rúmenar urðu af þegar nasistar og Sovétríkin sömdu, en enn er ágreiningur um landamæri í Svartahafi, þar sem báðir telja vera miklar olíu- og gaslindir. J Sækja hart eftir aðild 1 Með því að setja niður landa- mæradeilur við Úkraínu hafa Rúm- enar aukið til muna mögleika sína á aðild að NATO, að því er Const- antinescu tjáði fréttamönnum í gær. Þess er vænst að Pólverjum, Tékklendingum og Ungvetjum verði boðin aðild að NATO á ráð- stefnu í Madríd í næsta mánuði. Rúmenar og Slóvenar sækja hart eftir því að þeim verði einnig veitt aðild. „Faðir semtexms“ sviptir sig lífi Fyrirfór sér með öflugri sprengju Prag. The Daily Telegraph. TEKKNESKI sprengjusérfræðing- urinn Bohumil Sol, sem var kallaður „faðir semtexins", hefur svipt sig lífi með heimasmíðaðri sprengju sem innihélt þetta alræmda sprengiefni. Sprengjan var svo öflug að tékk- neska lögreglan var í fyrstu ekki viss um hversu margir hefðu beðið bana og það tók hana sólarhring að finna allar iíkamsleifar Sols. Sex manns eru enn á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir sprengingunni, sem eyðilagði anddyri heilsuhælis í bæn- um Jesenik. Eftir að hafa rannsakað líkamsleifarnar telur lögreglan nú fullvíst að Sol hafi verið sá eini sem lét lífið í sprengingunni. „Þetta er öflugasta sprengja sem við höfum rannsakað," sagði sprengjusérfræð- ingur tékknesku lögreglunnar. Sol var 63 ára fyrrverandi starfs- maðui' Semtin-sprengiefnisverk- smiðjunnar, sem framleiðir Semtex- sprengiefni. Þótt hann hafi ekki fundið sprengiefnið upp, vann hann við framleiðslu þess í þijá áratugi og var kallaður „faðir semtexins" vegna þekkingar sinnar. Heltekinn af sprengjum „Hvað sprengiefni varðaði var Sol „ofursérfræðingur“,“ sagði einn fyri'verandi starfsbræðra hans. „Hann var ótrúlegt gáfnaljós en ein- um of áhugasamur. Þetta var helsta áhugamál hans og þráhyggja. Um leið og Saxelfur fraus á veturna var hann korninn út á ísinn til að sprengja göt á hann.“ Sol var í meðferð vegna þunglynd- is í Priessnitz-heilsuhælinu í norður- hluta Mæris. Hann skildi ekki eftir sjálfsmorðsbréf en lögreglan telur að hann hafi valið anddyri heilsuhæl- isins til að svipta sig lífi vegna óánægju með forstöðumenn þess. „Hann átti í deilum við starfsmenn- ina þai' sem þeir urðu að segja hon- um að hætta að angra aðra sjúkl- inga með því að skjóta upp flugeld- um í tíma og ótíma,“ sagði talsmað- ur lögreglunnar. Harðir dómar yfir Bandidosmeðlimum Kaupmannahöfn. Morgunblaöiö. TVEIR meðlimir mótorhjólaklúbbs- ins Bandidos hafa verið dæmdir í tíu og ellefu ára fangelsi fyrir drápstil- raun á Vítisengli á síðasta ári. Sá sem fékk þyngri dóm var auk drápstilraunar dæmdur fyrir brot á vopnalögunum. Vinur þeirra fékk fjögur ár fyrir að hafa aðstoðað þá. Dómurinn þykir mjög þungur og er álitinn skilaboð til annarra um að dómskerfið taki ómildum höndum á stríðandi gengjum mótorhjólaklúbb- anna. Á þessu ári er reiknað með að hið opinbera greiði um 450 milljónir ÍSK vegna sérráðstafana lögreglu í bar- áttunni við gengin. Sérráðstafanirnar eru ætíð sýnilegar, þegar réttað er yfir meðlimum gengjanna, því þá standa lögreglumenn vopnaðir vél- bysslim og klæddir skotheldum vest- um vörð í nágrenni dómshússins. 2-13 júní seljum við silkiblómin og trén okkar á hreint frábœru verði. Falleg silki- blómfegra og lífga upp á umhverfið hvaða tíma árs sem er. Mikið og fjölbreytt úrval. Komið og gerið góð kaup Opið : Má til Fi 9-18 Föstudaga 9-19 Bíldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 510 8020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.