Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Kírkjulistahátíð 1997 lokið Morgunblaðið/Kristján ROAR Kvam stjórnanda, einsöngvurunum Þóru Einarsdóttur, Birni Jónssyni og Keith Reed og Pass- iukórnum var vel fagnað í lok tónleikanna. Verðugt lokaverkefni TÓNLIST íþróttaskcmma á Akurcyri KÓRTÓNLEIKAR Sköpunin eftir Joseph Haydn, ein- söngvaran Þóra Einarsdóttir, Björn Jónsson og Keith Reed. Passíukórinn á Akureyri og hljómsveit undir stjórn Roars Kvams. Sunnudagurinn 1. júní 1997. LOKATÓNLEIKAR Passíukórs- ins á Akureyri voru haldnir í íþróttaskemmunni sl. sunnudag. Kórinn var stofnaður af Roar Kvam árið 1972 og var tilgangur- inn með stofnun hans að flytja hin stóru og þekktu kórverk tónbók- menntanna en einnig að kynna ný og óþekkt verk sem sjaldan eða aldrei eru flutt á íslandi. Ef litið er yfir starfsferil kórsins er ekki hægt að segja annað en að tilgang- inum með stofnun hans hafi verið náð því að á sl. 25 árum hefur hann haldið að jafnaði tvenna tón- leika á ári og efnisval verið bæði fjölbreytt og litríkt. Kórinn hefur verið ríkur þáttur í menningarlífi Akureyringa og víst er að einhver söknuður grípi bæjarbúa, hins veg- ar þurfa menn svo sem ekki að kvíða framtíðinni hvað kórstarf- semi varðar eins og þeim málum er nú háttað á Akureyri. Sköpunin eftir Haydn var verð- ugt lokaverkefni, metnaðarfullt og krefjandi. Hér er sögð sagan um sköpun heimsins á sex dögum og fund Adams og Evu. Verkið er einstaklega vel samið og og upp- byggt, tónlistin er fjölbreytt og undirstrikar textann á myndrænan hátt, verkið er frábærlega „orkes- trerað" og gerir miklar kröfur til hljómsveitarinnar ekki síður en til kórs og einsöngvara. Fyrst og fremst er það þó stjórnandinn sem þarf að halda öllu saman og fór Roar Kvam það vel úr hendi. Helst mátti finna að í upphafi: óöryggi í forleik og innkomum hljómsveitar í resitatífum en í heild var flutning- urinn góður og á köflum glæsileg- ur. Kórinn stóð sig með mikilli prýði og þrátt fyrir að hann væri ekki mjög fjölmennur var hann var þéttur og kraftmikill og eigi í fullu tré við hljómsveitina. Hlutverk erkienglanna sem segja söguna og Adams og Evu voru í höndum ein- söngvaranna; Björn Jónsson stóð sig ágætlega sem Úríel, röddin hæfði hlutverkinu vel og augljóst að hér er á ferðinni mjög efnilegur söngvari. Keith Reed söng hlutverk Rafaels og Adams á áhrifamikinn og sannfærandi hátt og var sam- vinna hans og hljómsveitar oft til mikillar fyrirmyndar. Þóra Einars- dóttir söng hlutverk Gabríels og Evu og í einu orði sagt þá var hún frábær og bar ekki skugga á hvort sem varðaði tækni eða túlkun. Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson TONLIST Ilallgrímsklrkja KÓRSÖNGUR Skólakór Kái-sness, Dómkórmn og einsöngvaramir Jóhanna S. Hall- dórsdóttir og Magnea Tómasdóttir fluttu íslensk og erlend kh’kjuverk, undir stjóm Þómnnar Bjömsdóttur og Marteins H. Friðrikssonar. Sumiu- dagurinn l.júni, 1997. KIRKJULISTAHÁTÍÐINNI 1997 lauk með kórtónleikum, er hófust með söng Skólakórs Kárs- ness sem flutti Stabat Mater eftir Pergolesi. Þetta fallega verk var mjög vel flutt af Skólakórnum en einnig komu fram fyrrverandi söngvarar í kórnum og sungu ein- söngsþættina og ber þar fyrst að nefna Magneu Tómasdóttur, sem er að hefja sinn feril sem söng- kona, eftir strangt nám erlendis. Söngur hennar var mjög góður, borinn uppi af góðri fagmennsku. Hún söng ein tvo þætti og einnig dúett með fyrrum söngfélaga, Jó- hönnu S. Haraldsdóttur, sem lauk 7. stigi nú í vor. Jóhanna hefur fallega rödd og söng sitt af þokka og öryggi. Þarna er á ferðinni gott efni, sem verður spennandi að fylgj- ast með í framtíðinni. Skólakór Kársness lauk svo verkinu með glæsilegum söng sínum, undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, við undirleik Marteins H. Friðrikssonar. Dómkórinn, undir stjórn Marteins, söng fjögur íslensk kórverk, Ég hef augu mín til fjallanna, eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Salutatio Mariae, eftir Jón Nordal, Magnificat, eftir Mist Þorkelsdóttur og Ave Maria, eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Dóm- kórinn var sérlega góður og flutti t.d. Salutatio Mariae Jóns Nordals og Ave Mariuna, eftir Hjálmar, sér- lega fallega. Skólakór Kársness flutti fimm erlend kórverk, Lyftu þínum augum upp, eftir Mendelssohn, sem var mjög fallega sungið. Sama má segja um Ave Maris Stella, eftir Grieg og Ave Maríuna eftir Kodály. Ég er heimsins ljós, eftir Nystedt, var ágætlega flutt og einnig Synir Jak- obs, eftir Pekka Kostiainen. Textinn er upptalning á sonum Jakobs í tón- leik, sem nefna mætti „skrækistíl" , sem var frábærlega vel útfærður af kórnum. Spyija má hvort höfund- urinn hafi verið að leita sér herg- bergisvistar í húsi fáránleikans en sem betur fer eru í húsi Hans, marg- ar vistarverur, og þá ekki rétt að hneykslast, þó tignunin og tilbeiðsl- an taki á sig hinar undarlegustu myndir. Dómkórinn, sem söng betur en nokkru sinni fyrr, og flutti Jubilate Deo, eftir Lassus, Ave verum corp- us, eftir Mozart, Locus iste og Christus factus est, eftir Bruckner, Ákall, eftir Wolf og síðast eftirstríðs- verkið, The Wall is Down, eftir Nystedt. Öll voru verkin mjög vel flutt, þó flytja hefði mátt stríðsverk- ið eftir Nystedt aðeins hraðar og þar með af meiri ákafa og styrk, þó það að öðru leyti væri mjög skýrlega mótað, undir öruggri stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Þar með lauk Kirkjulistahátíð 1997 og fór vel á því að tengja lok- in við þann söng er í kirkjunni finnst og þeirri framtíð sem er í ungum söngvurum barnakóranna. Það sem í heild hefur einkennt tónlistarflutn- ing á þessari Kirkjulistahátíð, er að sótt er til margvíslegra átta, lögð áhersla á nýsköpum verka en þar ber hæst frumflutning orgelkon- serts, eftir Hjálmar H. Ragnarsson, og fitjað er upp á tilraunum alls konar, ásamt því sem tilheyrir söng- starfi innan sjálfrar kirkjunnar. All- ur flutningur var mjög góður, enda sótt til þeirra er fremstir teljast á sínum sviðum. Þá ber einnig að geta þess, að aðsókn að tónleikum var mjög góð, jafnvel þó sólin reyndi að tæla menn til útivistar, eins og átti sér stað síðastliðinn sunnudag. Jón Ásgeirsson Ógleymanlegur Schubert FLUTNINGUR Schuils á lokakafla þriðja þáttar G-dúr sónötunn- ar var hápunktur Schubert-hátíðarinnar segir m.a. í umsögn. TONLIST Kirkjuhvoli PÍ ANÓTÓNLEIKAR Gerrit Schuil lauk Schubert-tónlist- arhátíðinni í Garðabæ með þremur verkum eftir Franz Peter Schubert. Laugardagurinn 31. maí,1997. SCHUBERT-hátíðinni í Garðabæ lauk sl. sunnudag, með því að Gerrit Schuil flutti þrjú píanóverk eftir meistara Schubert. Þar með lauk mjög sérstæðri hátíð og sá sem hélt henni saman, skipulagslega og listrænt, var Gerrit Schuil, með því að leika með íslenskum og erlendum söngvurum á sjö tónleikum og ljúka svo hátíðinni með einleikstónleik- um. Gerrit Schuil er mikill listamað- ur er kom sérlega skemmtilega fram í mótun hans á þremur píanó- verkum meistarans. Fyrsta verkið, 16 þýskir dansar op 33, er sérkenni- legt samsafn smáverka en þar er að finna margar iagperlur meistar- ans. Margt í þeim minnir á Chopin og ekkert líklegra en að hann hafi kynnst þessum smáverkum,sem gefin voru út 1825, þegar hann dvaldist í Vínarborg 1830-31. Það mætti svo sem halda því fram, að þessir dansar Schuberts séu í þeim stíl, sem var ráðandi á þessum tíma, undir nafninu þýskir dansar og því séu tengsl Chopins ekki tiltökumál. Gerrit Schuil lagði mjög mikla áherslu á sterkar andstæður í styrk og mótun, með kraftmiklum og hrynsterkum leik á móti fínlegum syngjandi línum og náði á þann máta að skapa þessum 16 dönsum sterka heild, svo þeir í raun urðu meira en röð af smádönsum. Tvær sónötur voru næstu við- fangsefni, fyrri í A-molI, sem gefin var út 1839, sem opus 143 en sam- kvæmt D merkingum er verkið nr. 784. Sú seinni, í G-dúr, var gefin út 1827, sem opus 78 og er í D listanum merkt nr. 894. A-moll sónatan hefst á dapurlegu stefi og strax í 9. takti birtist mjög þungbú- in tónhugmynd, sem hvað snertir tónblæ gæti hljómað vel í hljóm- sveitarbúningi. Gerrit Schuil, sem er lærður hljómsveitarstjóri, náði einmitt að undirstrika þetta baksvið verksins, eins og t.d. í ítrekuninni, þar sem leikið er með snögg styrk- leikaskipti og tónhugmyndin birtist í leik með þríólur og jafnan hryn, eitthvað sem sérlega gæti verið áhrifamikið í Iitbrigðum hljómsveit- ar, en var einstaklega áhrifamikið hjá Gerrit Schuil. Söngurinn er aldr- ei fjarri í túlkun Gerrits, eins og í hæga þættinum, þar sem sérkenni- legar andstæður hugmynda ráða ríkjum og blómstra í útfærslu aðal- stefsins, sem leikið er í bassanum en yfir því sindrar sama stef útfært í þríólum, tveimur áttundum ofar. Á eftir þessum ljóðræna þætti sem var afburða vel leikinn, kom hraður kafli, ákaflega „orkestral" en söng- lagið er þá aldrei ijarri og var þessi „svarthvíti“ þáttur glæsilega fluttur. G-dúr sónatan er mun viðameira verk en a-moll sónatan og upphaf hennar minnir á upphafshljóma fimmta píanókonsertsins eftir Beet- hoven, ekki að stefið sé eins, heldur sú stemmning sem þar ríkir, að byrja verkið mjög veikt með „me- diant“ í efstu rödd. Verkið er á köflum vel samið fyrir píanó, þó bæði bregði fyrir hljómsveitarrit- hætti og sönglagaútfærslu, syngj- andi laglínu með undirleik, sem er aldrei fjarri í hljóðfæratónsmíðum Schuberts. Þriðji þátturinn er hinn frægi menúett, með sínu und- urfagra tríói og þarna var Gerrit Schuil upp á sitt besta. Lokakaflinn er mjög erfiður og þar var leikur píanistans sérlega glæsilegur. Án þess að tilgreina eitthvað sérstakt, var flutningur hans á þessum kafla, hápunktur Schubert-hátíðarinnar. Haft er eftir Spaun, vini Schu- berts, að líklega verði hljóðfæra- tónlist Schuberts ekki metin til jafns við sams konar tónlist eftir Haydn, Mozart og Beethoven en á sviði sönglagagerðar sé hann óumdeilan- legur meistari. Víst er að hljóðfæra- tónlist hans átti erfitt uppdráttar og enn eru menn að leita fanga í verkum hans og að finna sér leið til að túlka verk hans. Gerrit Schu- il hefur fært okkur íslendingum þann Schubert, sem við höfum ekki þekkt sem best, jafnvel þeir sem töldu sig vera vel heima í söngverk- um hans og það sem þó er mest um vert, á þann hátt, að ekki mun gleymast þeim er á hlýddu. Jón Ásgeirsson Tímarit • ÚT er komið 13. hefti Málfregna, tímarits Is- lenskrar málnefndar, en útgáfa tímaritsins lá niðri í rúm fjögur ár. Stefnt er að útgáfu tveggja hefta á ári eins og áður. Nýr ritstjóri hefur verið ráðinn, Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður íslenskrar málstöðvar. í rit- nefnd sitja sem fyrr formaður og varaformaður Islenskrar málnefndar, Kristján Áma- son prófessor og Gunnlaugur Ingólfsson orðabókarritstjóri. Þetta fyrsta hefti Mál- fregna eftir langt útgáfuhlé er að mestu helgað nýjum hátíðisdegi íslenskunnar, degi íslenskrar tungu, sem haldinn var hátíðlegur í fyrsta sinn 16. nóvember 1996. í blaðinu er m.a. að finna ávarp forseta íslands á degi íslenskrar tungu og erindi Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra sem hann flutti 16. nóvember á samkomu menntamálaráðu- neytisins í Listasafni Islands en þar ræðir ráðherra tilgang og tilefni sérstaks hátíðis- dags íslenskrar tungu. Einn- ig eru í Málfregnum nr. 13 m.a. erindi Kristjáns Árna- sonar prófessors, Svein- björns Björnssonar háskóla- rektors og Friðriks Þórs Friðrikssonar kvikmynda- gerðarmanns, frá málrækt- arþingi Islenskrar málnefnd- ar um stöðu íslenskrar tungu 16. nóvember sl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.