Morgunblaðið - 03.06.1997, Side 35

Morgunblaðið - 03.06.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 35 11 FRAKKLANDI Reuter. lingsmanna á kosningavöku sósíalista. ífall irac Alain Juppé gengur á fund for- seta til að segja af sér embætti í kjölfar kosningaúrslitanna. Þ'i'N'GKO'SNIS-QAR í: F'RAKKLÁivD! ÚRSLIT Kjör- Þing- fylgi,% sæti Vinstri flokkar alls 48,36 319 Sósíalistar CC co cc 245 Kommúnistar 3,7 37 Græningjar 1,6 8 Ýmsir 4,1 29 Hægri flokkar alls 46,04 258 RPR 23,6 140 UDF - . 20,9 109 Ýmsir - 1,4 8 Þjóðarfylkingin 5,6 1 Samtals 100,00 577 V I N S T R I Og þar með efnahagsaðgerðir Josp- ins og félaga og afleiðingarnar sem þær hafa fyrir undirbúning mynt- bandalagsins. Dýr loforð Það verður dýrt að efna loforð Jospins um aðgerðir í atvinnumálum, menntamálum og sjúkratryggingum. Enn er ekki ljóst hvort endurskipulag skatta og niðurskurður aðstoðar við fyrirtæki nær að borga brúsann. Jospin segir að hann geti auðvitað ekki gert allt strax, það þurfi tíma til að lækna Frakkland af kröm at- vinnuleysis og misréttis. Aðrir for- kólfar vinstrimanna eru stórorðari og segja mikilvægt að grípa strax til afgerandi aðgerða, fólk verði að sjá, á næstu dögum og vikum, að atkvæð- unum hafi verið vel varið. Boðað var í kosningabaráttu vinst- rimanna til tveggja áríðandi funda: fyrst sérfræðinga sem meta eiga stöðu efnahagsmála og síðar í sumar forystu launþegahreyfínga, atvinnu- lífs og ríkisstjómar til að ræða stytt- ingu vinnuviku úr 39 stundum í 35, hækkun lágmarkslauna úr rúmum 6.000 frönkum í 7.000 og fleiri atriði atvinnumála. Forgangsmálin eru ann- ars atvinna fyrir alla, menntamál og rannsóknir. Sjúkratryggingar fylgja fast á eftir og svo uppstokkun skatta- mála; lækkun virðisauka á nauðsynja- vöru og hækkun hátekju- og ijár- magnstekjuskatts. Áherslur hægri- flokka voru aðrar; fyrst og fremst að halda hagvexti með svipaðri stefnu og lækka tekjuskatt. Vinnuvika og lágmarkslaun lentu í skugganum. Breytingar í sjúkratryggingamálum og málefnum innflytjenda hafa verið gerðar og þeim átti vitanlega að halda. Af því verður ekki; lögin kennd við Juppé, Pasqua og Debré verða tekin til endurskoðunar. „Þess vegna er ég ánægður," sagði alsírskur leigu- bílstjóri við blaðamann í gær, „sósíal- istar eru ekki í bankastjóraleik, þeir hugsa um fólk og muna að útlending- ar eru líka fólk.“ Færri í stjórn og fleiri konur NÝ RÍKISSTJÓRN verður mynd- uð í Frakklandi á næstu dögum undir forsæti Lionels Jospins og eru þegar hafnar vangaveltar um hverjir muni skipa helstu ráð- herraembætti. Jacques Delors, fyrrum forseti framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, er talinn koma sterklega til greina sem utanríkisráðherra en sjálfur segir hann allt tal um slíkt ein- ungis vangaveltur. Dominique Strauss-Kahn, sem er höfundur áætlunar sósíalista um 700 þúsund ný störf, er talin liklegust í embætti fjármálaráð- herra og Martine Aubry hefur verið nefnd sem atvinnumálaráð- herra. Catherine Trautmann, borgarsljóri Strassborgar, er oft- ast nefnd sem ráðherra sveit- arstjórnarmála og Jack Lang sem mennta- og menningarmálaráð- herra. Elisabeth Guigou er talin líklegur félagsmálaráðherra. Þá eru líkur á að Dominique Voy- net, leiðtogi græningja, og Ro- bert Hue, leiðtogi Kommúnista- flokksins, muni eiga sæti í ríkis- stjórninni. Úrslita kosninganna var beðið með mikilli spennu í kjördæmi Jean Tiberis, borgarstjóra París- ar. Tiberi hefur verið mikið í umræðunni í tengslum við ýmis hneykslismál en náði þó 53,5% atkvæða í síðari umferð kosning- anna. Trautmann, borgarstjóri Strassborgar, átti einnig í vök að veijast og vann sæti sitt með 50,1% atkvæða. Nokkrir af helstu þungavikt- armönnum hægrimanna féllu hins vegar af þingi og má nefna Jacques Toubon, fráfarandi dómsmálaráðherra, og Jean- Francois Mancel, aðalritara flokks nýgaullista, RPR. Þjóðarfylking Le Pens, sem hlaut 15% atkvæða í fyrri umferð kosninganna, mest í Suður- Frakklandi og Elsass, fékk ein- ungis einn mann kjörinn, i borg- inni Toulon. Konum fjölgar mjög á þingi og verða alls 62 eða 11% þing- heims, langflestar úr röðum vinstrimanna. 35 konur sátu á síðasta þingi eða 5,7% þing- manna. Þegar ríkisstjórn Alains Juppés tók við völdum voru þrett- án konur í ríkisstjórn en átta þeirra voru farnar úr embætti áður en stjórnin fór frá. Jospin hyggst skipa mun fámennari stjórn en Juppé og verða ráðherr- ar líklega ekki fleiri en 15, þar af væntanlega 5 konur. Jospin hefur einnig látið í veðri vaka að hann vilji að ráðherrar sinni því starfi einvörðungu. Algengt er að franskir stjórnmálamenn gegni þingmennsku eða séu borg- arstjórar samhliða því að vera ráðherrar. Samkvæmt skoðanakönnun er birtist í dagblaðinu Le Monde í gær nýtur Jacques Chirac stuðn- ings meirihluta kjósenda þrátt fyrir hrakfarir hægrimanna um helgina. 61% aðspurðra sögðust vilja Chirac áfram í embætti. Þegar hins vegar var spurt hver ætti að fara með mest völd í land- inu nefndu 58% Jospin en 37% Chirac. Sex af hveijum tíu Frökk- um telja að sambúð vinstri stjórn- ar og hægrisinnaðs forseta muni ekki endast í fimm ár. Nær helm- ingur aðspurðra, eða 46%, taldi ólíklegt að kosningarnar myndu breyta miklu um stöðu mála í landinu. Landgræðsluplöntur smitaðar með örverum sem auka vöxtinn Morgunblaðið/RAX HANAN Lea El-Mayas og Sigurður Greipsson sýna mismunandi vöxt á jafngömlum púrrulauk eftir því hvort svepprót hefur verið notuð eða ekki. Laukurinn í pottinum sem Hanan er með var smitað- ur með jarðvegsbakteríum en ekki púrrulaukurinn í hinum pottinum. Sjálfbær gróð- urframvinda Vísindamenn hjá Landgræðslunni láta sér ekki nægja að skoða þann hluta jurtanna sem vex upp úr jörðinni. Þeir þróa aðferðir við að framleiða örverur sem gera plöntum kleift að vaxa hraðar og spjara sig án tilbúins áburð- ar. Helgi Bjarnason kynnti sér starfíð. EG KYNNTIST vandamálum gróðureyðingar í uppvexti mínum þegar ég vann hjá Landgræðslunni á sumrin. Mér þótti þetta heillandi svið, mennt- aði mig til að geta tekist á við vanda- málin og tókst að fá starf við það,“ segir Sigurður Greipsson líffræðingur hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti. Hann er alinn upp í Haukadal í Bisk- upstungum þar sem faðir hans, Greip- ur Sigurðsson, var landgræðsluvörð- ur. Sigurður, sem er með doktors- gráðu í vistfræði, og kona hans, Han- an Lea El-Mayas, sem er með dokt- orsgráðu í líffræði, vinna að athyglis- verðum rannsókna- og þróunarverk- efnum hjá Landgræðslunni. Lúpínufræin smituð Þessi árin beinist athygli þeirra að því að gera landgræðsluplönturnar sjálfbærar, þannig að hægt verði að draga úr notkun tilbúins áburðar. Ekki þarf að hafa mörg orð um það hvað það hefði mikla þýðingu fyrir landgræðslustarfið ef hægt er að draga úr kostnaðinum við áburðar- gjöf, auk þess sem meiri líkur eru á skjótari árangri í uppgræðslustarfinu. „Mikilvægt er að koma af stað sjálf- bærri gróðurframvindu. Það gerum við til dæmis með því að sá lúpínu sem bindur köfnunarefni úr loftinu og færir í jarðveginn og undirbýr landið fyrir náttúrulegan íslenskan gróður og víkur svo fyrir honum. Markmið iandgræðslustarfsins er að búa til sjálfbær vistkerfi," segir Sig- urður þegar rætt er við þau hjónin í rannsóknaraðstöðu þeirra í Gunnars- holti. Hanan stjórnar framleiðslu á Rhizobium-jarðvegsbakteríum sem mynda hnúð á rótum lúpínu og ann- arra belgjurta og binda köfnunarefni. Starfið snýst um að velja bestu stofn- ana af þessum jarðvegsbakteríum og framleiða smitefni fyrir lúpínu- og baunagrasfræ. Þau segja að skortur á smitefni hafi verið aðalvandamálið við að nota lúpínu og aðrar belgjurtir í stórum stíl til landgræðslu. Það hafi nú verið leyst. Eru nú framleidd átta tonn af lúpínufræi í fræverkunar- stöð Landgræðslunnar í Gunnarsholti og samsvarandi magn af smitefni. Hanan og Sigurður taka þátt í nýju alþjóðlegu verkefni sem felst í því að að þróa aðferðir til að fram- leiða og nota svepprót til að flýta uppbyggingu vistkerfa í snauðum jarðvegi. Svepprótin eykur virkni róta meigresis, baunagrass og yfirleitt allra landgræðsluplantna, eykur upp- töku fosfórs og annarra næringar- efna, gerir plönturnar þurrkþolnari og þoinari gagnvart plöntusjúkdóm- um. „Þegar verið er að hefja upp- græðslu á söndum vantar alveg nær- ingarefni og nauðsynlegar örverur fyrir rótakerfi plantnanna. Rannsókn- ir okkar hafa sýnt að með því að sá melgresi í sandinn og bera árlega á hann áburð tekur um tíu ár að byggja upp sjálfbjarga vistkerfi. Ef hægt væri að smita plönturnar í upphafi, annað hvort með því að húða fræið með viðkomandi örverum eða pianta smituðum bakkaplöntum, tæki þetta mun styttri tíma og spara mætti háar fjárhæðir í áburðarkaupum," segir Sigurður. Hann bætir því við að svepprótin sé lykilatriði við vistvæna ræktun þar sem notkun tilbúins áburðar er takmörkuð. Prófað í sumar Hanan og Sigurður eru í evrópsk- um vinnuhópi sem vinnur að þekking- arleit á þessu sviði og þau stjórna undirbúningi alþjóðlegrar ráðstefnu á vegum hans í Reykjavík í júlí. Ráð- stefnan fjallar um þróun á smitefnun- um og hvernig hægt sé að nota þau í stórum stíl. Hanan og Sigurður segja afar mikilvægt að taka þátt í þessari þróunarvinnu enda geti niðurstöðurn- ar valdið straumhvörfum í land- græðslu. Framlag þeirra hjóna þykir mikilvægt vegna þess áð þau hafa möguieika á að hagnýta þekkinguna í stórum stíl við uppgræðslu á íslandi. Svepprótin verður notuð í fyrsta skipti í stórum stíl hér á landi í sum- ar. Melgresi og baunagras sem sáð er í bakka er smitað með þessum örverum og plantað úti í náttúrunni í tilraunaskyni. „Ég vona að hægt verði að fjölda- framleiða smitefnið og koma því á markað eftir nokkur ár. Þá getum við byggt upp vistkerfi á sjálfbærari og öruggari hátt en nú,“ segir Sigurð- ur Greipsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.