Morgunblaðið - 03.06.1997, Page 41

Morgunblaðið - 03.06.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 41 AÐSENDAR GREINAR Nú gengur þetta ekki lengur! Viðbótarkvótann verður að bjóða út til leigu. NÚ LIGGUR fyrir tillaga Hafrannsókn- arstofnunar um 32.000 tonna aukn- ingu veiði úr þorsk- stofninum og 15.000 tonna aukningu veiði úr rækjustofninum. Umsvifalaust hækka hlutabréf í hlutafé- lögum, sem eiga mikinn kvóta. Fyrir- hugaðar gjafaúthlut- anir kvóta eru þann- ig farnar að fita hlutabréfaeigendur. Dæmi um slíkt til- efnislaust eldi kvóta- eigenda eru fleiri. Ritari þessarar greinar hefur fregnir af kvótaeiganda, sem sann- arlega hefur þá iðju að aðalstarfi. Hann á einhver 200 tonn af þorskkvóta, en hefur ekki gert út árum saman, heldur leigir kvótann árlega. Af því hefur hann 15-19 milljónir króna í tekjur á ári. Til að komast fram hjá reglum um, að ekki megi leigja kvóta af skipi nema tvö ár án þess að missa hann, selur hann skipið og kaupir nýtt eftir tvö ár og færir kvótann milli skipa. Síðan heldur hann áfram iðju sinni og lifir æðigóðu lífi við það eitt að aka í jeppanum sínum. Endurgjaldslaus úthlutun við- bótarþorskkvóta núna, mundi bæta svo sem þremur milljónum króna við árlegar tekjur þessa sægreifa. Þetta gengur ekki. Að láta þessa viðbótarúthlutun þorsk- og rækju- kvóta bæta hundruðum milljóna króna við eignir fyrirtækja eins og ÚA, Samheija, Þormóðs ramma, Skagstrendings hf. eða Síldar- vinnslunnar nær engri átt. Lands- lýðurinn sættir sig ekkert við, að eigendur þessara fyrirtækja séu fitaðir með úthlutun endurgjalds- lauss kvóta á sama tíma sem al- menningur, - eigandi kvótans að nafninu til skv. lögum, fær ekkert í sinn hlut. Fyrir liggur í skoð- anakönnun, að 75% þjóðarinnar telur þetta óverjandi. Engu að síður hefur þetta fram til þessa verið stefna ríkisstjórnarinnar og sýnir óneitanlega mik- inn pólitískan kjark, - að ekki sé sagt algera fyrirlitningu á viðhorf- um almennings. Allt, sem hér hefur verið rakið eru staðreyndir. Þá er komið að skoðun á málinu. í þessari stöðu er ekki nema ein ásætt- anleg lausn. Viðbótar þorsk- og rækjukvótann verður að bjóða út til sölu á markaði. Eig- andi auðlindarinnar, - almenning- ur í landinu, fengi þannig markaðs- verð fyrir eign sína og þeir, sem kaupa vildu greiddu það verð, sem þeir eru tilbúnir til. Hlutabréfaeig- endur í sjávarútvegi mundu ekki fitna að tilefnislausu og heldur ekki sæaðallinn að öðru leyti. Eðlilegt framhald væri síðan að endurgjaldslaus kvóti yrði skertur um fimmtung eða svo á ári og sá hluti boðinn út til sölu til eins til fimm ára hveiju sinni. Að fimm árum liðnum væri auðlindin aftur komin í hendur eiganda síns, sem þá nyti arðs af henni eftir því sem markaðurinn væri tilbúinn til að greiða fyrir þau afnot. Sú ríkis- stjórn, sem ekki notar það tæki- færi, sem nú er til að markaðs- væða afnot af auðlindinni er í and- stöðu við 75% þjóðarinnar. Hún býr til jarðveg fyrir uppreisn. Sú spurning vaknar, hvort nú sé ekki kominn tími til, að þessi 75% þjóðarinnar, sem ekki sætta sig við frekari milijarðagjafir til sæaðalsins, láti stjórnarflokkana frétta, að þau kunna ekki að meta, hvernig málefnum ríkisins er að þessu leyti stjórnað þvert ofan í yfirgnæfandi meirihluta þjóðar- Siðlausar gjafir til sæ- aðalsins eru óverjandi, segir Jón Signrðsson, en á sama tíma eru mörg mikilvæg svið samfélagsins svelt. innar. Væri ekki tilvalið, að þessi stóri meirihluti léti þingmenn og ráðherra stjórnarflokkanna nú duglega heyra hug sinn með sím- tölum, bréfum, símbréfum og við- tölum við masrásir útvarpsstöðv- anna og svo með skrifum í blöðin. Skilaboðin væru einföld: Þetta gengur ekki lengur! Viðbótarkvót- ann í þorski og rækju á að selja á leigu á uppboði t.d. til lækkunar ríkisskuldanna. Siðlausar gjafir til sæaðalsins eru óveijandi á sama tíma og mörg mikilvæg svið sam- félagsins eru svelt. Afleiðingin yrði hagstæð fyrir núverandi leig- uliða sæaðalsins, því að kvótaverð mundi stórlækka. Allir myndu hagnast nema sæaðallinn og hann hefur þegar fengið nógar gjafir. Næsta skref verður svo að heimta þær aftur. Geri almenningur í landinu, einn og einn eða í hópum, ekkert í þessu máli, geta menn sjálfum sér um kennt, að stjórnendur landsins skuli komast upp með að gefa út- völdum þau verðmæti, sem al- menningur á. Alvörulýðræði verð- ur þvi aðeins virkt, að almenningur láti með friðsamlegum hætti vita hvað hann vill. Höfuðatriðið er, að hér er á ferð- inni málefni, sem varðar okkur hvert og eitt og við eigum öll að láta vita af okkur. Þá gætu stjórn- endur landsins fundið, að það er farið að hitna undir þeim. Höfundur er framkvæmdastjóri iðnfyrirtækis. Jón Sigurðsson. Þráðlaus Telia Handy heímilissími á frábœru verði. Léttur o þœgilegur 10 númera skammvalsminni 72 klst. rafhlaða í biðstöðu innbyggt loftnet Endurval ÞOSVURQesNMMMÞ Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800 http://www.simi.is/simabunadur/simabunadur/ Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 • Þjónustumiðstöðin í Kirkjustræti, sími 800 7000 og á póst- og símstöðvum um land allt. - kjarni málsins! Viltu komast lengra? Nissan Patrol draumur allra alvöru jeppamanna. Gerió verósamanburó. Komió og reynsluakió Breyttur sýningarbíll á staónum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.