Morgunblaðið - 03.06.1997, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNI1997 47
SIGURÐUR SNÆVAR
HÁKONARSON
+ Sigurður Snæv-
ar Hákonarson
fæddist á Seyðis-
firði 13. nóvember
1929. Hann lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 27. maí síðast-
iiðinn. Foreldrar
iians voru Jón Há-
kon Sigurðsson frá
Seyðisfirði, f. 17.
júní 1905, d. 11. jan-
úar 1987, og Sigur-
björg Sigurbjörnsd.
frá Ekkjufelli,
Norður-Múlasýslu,
f. 1. apríl 1905, d.
24. júní 1970. Sig-
urður átti eina systur Sigfrid f.
30. desember 1930. Hún er gift
Guðmundi Jónssyni f. 11. mars
1929. Börn þeirra eru: Sigur-
björg, Sigurður Helgi og Hákon
Þröstur.
Sigurður var í sambúð með
Ragnheiði Magnúsdóttur, f. 22.
desember 1930, d. 4. september
1993. Þau eignuðust tvíbura,
Jens og Otto, f. 11. apríl 1954.
Þau voru í sambúð í um þrjú
ár. Jens er málarameistari, bú-
settur í Reykjavík, Otto er
múrarameistari og er búsettur
í Svíþjóð. Barnabörn Sigurðar
eru orðin fimm.
Sigurður fluttist til Reykja-
víkur að loknu fullnaðarprófi
og hóf þá störf og nám hjá föð-
urbróður sínum, Jens Sigurðs-
syni og Otto A. Michelsen skrift-
vélavirkjameisturum og lauk
sveinsprófi árið 1954, meistara-
réttindi fékk hann árið 1957.
Árið 1983 var starfs-
heitið skriftvéla-
virki lagt niður og
fenga þeir sem það
starfsheiti báru
starfsheitið raf-
eindavirki. Sigurður
varð rafeindavirkja-
meistari 26. júlí
1983.
Árið 1952 fór Sig-
urður í námsferð til
Bandaríkjanna til
að kynna sér Marc-
hant, Friden og
Monroe reiknivélar.
Sigurður vann
óslitið hjá þeim Jens
og Otto þar til Jens féll frá en
Otto rak fyrirtækið áfram og
vann þá Sigurður þar áfram þar
til hann stofnaði sitt eigið fyrir-
tæki ásamt Erni Jónssyni sem
hlaut nafnið Skrifvélin árið
1958. Þar starfaði Sigurður þar
til hann réðst til Pósts og síma
9. nóvember 1959 á Ritsíma-
verkstæðið. Hann var skipaður
iðnaðarmaður 1. janúar 1960,
símaverkstjóri 1. mars 1966,
símvirkjameistari 1. mars 1985
og tæknifulltrúi 1. september
1986. Sigurður fór til London
árið 1972 til að kynna sér Oli-
vetti-fjarrita. Vegna breytinga
á skipulagi Póst- og símamála-
stofnunar var Sigurður fluttur
á birgðavörslu Pósts og síma
1. nóvember 1991 og gegndi því
starfi þar til hann lést.
Utför Sigurðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Við Sigurður kynntumst 1952
þegar ég vann aukavinnu á verk-
stæði Ottos A. Michelsen á kvöldin,
þá var hann starfandi þar og naut
ég tilsagnar hans í viðgerðum á
skrifstofuvélum og búnaði og hefur
sú tilsögn reynst mér happadijúg í
starfi mínu. Ég hóf störf hjá Póst-
og símamálastofnun snemma árs
1952 og starfaði þar óslitið til nóv-
emberloka 1996.
Árið 1963 var ég settur verkstjóri
á Ritsímaverkstæðinu og varð þá
yfirmaður Sigurðar, var hann góður
og samviskusamur starfsmaður og
hafði hag stofnunarinnar að leiðar-
ljósi. Sigurður var einn af okkar
bestu tæknimönnúm og kunni þá
list að gera við hlutina þó varahluti
skorti, það var ekki öllum lagið og
tíðkast ekki nú til dags. Sigurður
var ljúfmenni þrátt fyrir oft hrjúfa
framkomu og stórkarlalæti. Hann
var mjög greiðvikinn og gerði mörg-
um manninum greiða án þess að
ætlast til umbunar. Hann var ekki
skaplaus maður, en kunni að temja
sjálfan sig. Þeir eru orðnir margir
rafeindavirkjarnir sem hafa notið
leiðsagnar Sigurðar á lífsleiðinni og
veit ég ekki til að þar hafi margir
skuggar fallið á.
Það lýsir best innra manni Sigurð-
ar hversu vel hann hugsaði um for-
eldra sína meðan þeir voru enn á
lífi og hversu náin kynni hafa tekist
með þeim Jóhanni Jóhannessyni sem
hefur starfað á Ritsímaverkstæðinu
en Jóhann er fatlaður og hefur Sig-
urður hert hann upp í sjálfstæði sínu
og verið honum góður félagi og
traustur vinur.
Það verður að geta mesta áhuga-
máls Sigurðar en það var laxveiði,
ég minnist góðra stunda með Sig-
urði og Jóhanni á bökkum Urriðaár
á Mýrum, Grímsár, Stóm-Laxár,
Elliðaánna og fleiri staða. Þar var
oft glatt á hjalla og margt brallað.
Það er erfitt að minnast góðs drengs
það er af svo mörgu að taka. Sigurð-
ur kom til dyranna eins og hann var
klæddur, hann var trúr sinni köllun
en virti um leið skoðanir annarra á
mönnum og málefnum. Líf Sigurðar
var ekki tómur dans á rósum, hann
bar veikindi sín með karlmennsku
og ró, enda ekki sú manngerð sem
bar tilfinningar sínar á torg. Við sem
nutum þeirra forréttinda að starfa
með honum erum auðugri af þeirri
reynslu.
Það er mikil eftirsjá í góðum dreng
eins og Sigurði og ég minnist með
þakklæti vináttu okkar og samstarfs
og ég veit að ég mæli fyrir munn
annarra samstarfsmanna hans.
Það er huggun í harmi fyrir eftirlif-
andi systur, syni, bamabörn og aðra
eftirlifandi ættingja að eiga jafnljúfar
og góðar minningar og eru eftir Sig-
urð. Þær verða bestu eftirmælin um
hann. Ég bið algóðan guð að styrkja
eftirlifandi ástvini Sigurðar í harmi
þeirra. Blessuð sé minning hans.
Baldvin Jóhannesson.
Mig langar að minnast Sigurðar
Hákonarsonar með örfáum orðum.
Ég var svo lánsamur að eiga hann
að vini. Leiðir okkar hafa legið sam-
an í mörg ár. Ég kynntist Sigurði
fyrst sem unglingur í gegnum syni
hans Jens og Ottó. Á heimilinu var
mér vel tekið og varð strax hlýtt til
Sigurðar.
Sími 562 0200
fiiiiimiir
MINNINGAR
Sigurður var rólegur maður og
þægilegur í viðmóti og hafði
skemmtilega kímnigáfu og jafnan
léttur í lund og varð honum tíðrætt
um þá þætti tilverunnar sem honum
þóttu skemmtilegir eða spaugilegir,
svo það var eftirsóknarvert að vera
í hans félagsskap. Enda hef ég átt
margar góðar stundir með Sigurði
bæði á heimili hans og við veiðiskap
í hinum ýmsu ám en við vorum veiði-
félagar árum saman. Það var gaman
að koma við á Bergþórugötunni og
spjalla um heima og geima. Það var
vel tekið á móti öllum, ungum sem
gömlum, og fannst Kristjáni, litlum
syni mínum, sérstaklega gaman að
heimsækja Sigga veiðimann, eins og
hann kallaði hann, enda var Sigurð-
ur einstaklega barngóður. Sigurður
vel vel gefinn maður og vel að sér
um ýmsa hiuti og hafði áhuga á
mörgu. En eitt var það þó sem átti
hug hans allan og það var stanga-
veiðin, hún var hans aðaláhugamál.
Á því sviði var hann minn lærimeist-
ari og hafði þar af miklu að miðla
og deildum við oftast stöng við veið-
ar í hinum ýmsu ám. Sigurður var
kappsamur og laginn laxveiðimaður
og gladdist hjartanlega yfir góðum
feng. Hann hlakkaði allan veturinn
til veiðitímabilsins á sumrin og not-
aði hann til að undirbúa allt af kost-
gæfni, yfirfór veiðidót og endurnýj-
aði, og ekki bara fyrir sjálfan sig
heldur mig líka. Við veiddum í hinum
ýmsu ám, en „toppferðin" á hveiju
ári var farin í Hrútafjarðará. í veiði-
ferðum var hann allra manna glað-
astur. Nú verða ekki fleiri slíkar
ferðir farnar. En þeir sem voru svo
heppnir að njóta góðra stunda með
honum munu ylja sér við minning-
arnar um þær.
Sigurður var laginn við allt hand-
verk og hafði gott verksvit. Hann
starfaði sem rafeindavirkjameistari
hjá Pósti og síma og var búinn að
starfa þar í áratugi.
Sigurður var myndarlegur maður,
höfðinglegur á velli. Einhvern veginn
kom það mér í opna skjöldu þegar
hann veiktist svo skyndilega og Ijóst
var hvert stefndi. Hann tók veikind-
um sínum af æðruleysi.
Sigurður var traustur maður og
áreiðanlegur, átti það til stöku sinn-
um að setja upp grímu og má vera
að þeim, sem ekki þekktu Sigurð,
hafi fundist hann hijúfur við fyrstu
kynni en þeir sem kynntust honum
voru fljótir að komast að raun um
að maðurinn var einkar ljúfur í um-
gengni og skapgóður og illa tókst
honum að fela hversu hjartahlýr hann
var og ávallt tilbúinn að rétta hjálpar-
hönd og þeir voru ýmsir sem nutu
þess hve greiðvikinn og hjálpsamur
hann var. Gæti hann fært eitthvað
til betri vegar það sem úrskeiðis hafði
farið hjá hans fólki, gerði hann allt
sem hann gat og hugsaði ekki um
eigin hag.
Það er með miklum söknuði að ég
kveð þennan heiðursmann sem bjó
yfir miklum mannkostum.
Hann er farinn alltof fljótt. Ég
hefði svo gjarnan viljað eiga hann
lengur að. Eg sakna vinar í stað.
Við Hanna og synir okkar vcttum
sonum Sigurðar, Jens og Ottó og fjöl-
skyldu Sigurðar alla samúð okkar.
Þórir Georgsson.
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 5531099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreylingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RÓSA MAGNÚSDÓTTIR,
Suðurgötu 17,
Sandgerði,
lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur föstudaginn
30. maí.
Jarðsett verður frá Hvalsneskirkju laugar-
daginn 7. júní kl. 14.00.
Guðni M. Sigurðsson,
Björn Z. Sigurðsson,
Sigríður Bragadóttir,
Lilja Bragadóttir,
Guðjón Bragason,
barnabörn og
Sigríður Sigurjónsdóttir,
Bente Niisen,
Birthe Sigurðsson,
Halldór Georgsson,
Hólmþór Morgan,
Elín Ólafsdóttir,
barnabarnaböm.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
GUNNAR ÓLASON
umsjónarmaður eldvarna,
Gautalandi 15,
Reykjavík,
sem lést miðvikdaginn 28. maí, verður jarðsung-
inn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 4. júnf
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast
hans, er bent á Krabbameinsfélagið eða önnur líknarfélög.
Guðrún Sigríður Sverrisdóttir,
Katrín Gunnarsdóttir,
Ragnar Þórisson,
Hrafnhildur Lára, Ellen og Guðrún Edda Ragnarsdætur.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa,
BJÖRGVINS PÁLSSONAR
verkstjóra
frá Hvoli,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmunda Björgvinsdóttir, Sigurður Þ. Auðunsson,
Þórey Björgvinsdóttir, Ólafur Pálsson,
Óskar Björgvinsson, Steina Fríðsteinsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GESTUR HANNESSON
pípulagningameistari,
Jöldugróf 16,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag,
þriðjudaginn 3. júnf, kl. 13.30.
Hilmar Gestsson, Hanna Kristinsdóttir,
Gyða Gestsdóttir, Ingibjörg Axelsdóttir,
Viðar Gestsson, Halldóra Karlsdóttir,
Erla Gestsdóttir, Skarphéðinn Njálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og jarðarför
SVEINS EIRÍKSSONAR.
Sérstakar þakkir til Málarafélags Reykjavfkur
og lækna og hjúkrunarfólks á hjartadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Thea Þórðardóttir,
Gunnar Sveinsson, Katrín Baldvinsdóttir,
Erik Sveinsson,
Þórir Sveinsson, Jónína Hjaltadóttir,
Birgir A. Sveinsson, Karin Larsen
og barnabörn.