Morgunblaðið - 03.06.1997, Page 64
'64 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
STEPHEN Baldwin og Jennifer
Aniston leika saman í næstu mynd
Nicholas Hytner „The Object of
My Affection“. Hún segir frá
manni sem á erfitt með að sætta
sig við það þegar kærasta hans
hrífst af homma. Aðrir leikarar
eru Paul Rudd, Alan Alda, Tim
Daly, og Nigel Hawthorne.
Julia Ormond hefur gert samn-
ing við Fox Searchiight um að
framleiða, leikstýra, og skrifa
_ handrit. Fyrsta verkefni hennar
er „Saving St. Germ“ um mömmu
sem trúir því ekki að sonur sinn
sé andlega vanheill.
Nick Nolte hefur sýnt áhuga á
að leika í stríðsmynd Terence
Malik „The Thin Red Line“. Í
heistu hlutverkum eru George
Clooney, Sean Penn, og Woody
Harrelson.
Max von Sydow ætlar að leika
á móti Robin Williams, Cuba
Gooding jr., og Annabella Sci-
orra í „What Dreams May Come“.
Williams leikur mann sem eltir
konu sína til undirheima eftir að
hún deyr. Söguþráðurinn minnir
óneitanlega á grísku goðsögnina
' um Orfeif og Evrídík.
Lynn Redgrave og Ian
McKelllen leika í „Father of
Frankenstein“. Myndin er byggð
á skáldsögu Cristopher Bram og
ij'allar um kvikmyndaleikstjórann
James Whale en hann leikstýrði
fyrstu Frankenstein myndunum.
Astralski leikstjórinn Geoffrey
Wright hefur fengið Antonio
Banderas til þess að leika í „The
Sparrow“. Hún er byggð á skáld-
sögu Mary Doria Russell um Jesú-
ítaprest sem er sendur af Vatíkan-
inu út í geim til að hafa samband
við geimverur.
Gwyneth Paltrow verður í
„The Runaway Jury“. Joel
Schumacher ætlar að leikstýra
og hugsanlega leika Edward
Norton og Sean Connery
einnig í myndinni sem er
byggð á enn einni spennu-
sögunni frá John Grisham
James Woods og
Sheryl Lee ætla að leika
í „Vampires“. Umfjöllun-
arefnið er að sjálfsögðu
vampírur og leikstýrir
John Carpenter
spennuhryllingnum.
JENNIFER Aniston
leikur aðalhlutverkið í „The
Object of My Affection“ sem
Nicholas Hytner leikstýrir.
Framsýningum frestað
FJÖLMIÐLAR í Bandaríkjunum
hafa skemmt sér að undanförnu
^með hrakspám fyrir nýjustu mynd
James Camerons „Titanic" og er
vinsælt að líkja vinsældarmögu-
leikum hennar við sökkvandi skip.
Kostnaðurinn við gerð „Titanic"
er kominn upp í 250 milljónir doll-
ara, nýtt kostnaðarmet, og enn
er hún í vinnslu.
Til stóð að frumsýna stórslysa-
myndina í kringum þjóðhátíðardag
Bandaríkjanna, 4. júlí, en nú hafa
stjórnendur Paramount, sem
framleiðir myndina í samvinnu við
20th Century Fox, gefið út frétta-
tilkynningu þar sem sagt er að
„Titanic“ verði frumsýnd fyrir jól-
in. Líklegur frumsýningardagur
er 19. desember.
Það eru fleiri myndir en „Tit-
LEONARDO DiCaprio og
Kate Winslet fara með aðal-
hlutverkin í „Titanic".
Losnaðu víð frtuna
úr fæðunnlf
Fat Binder er 100% náttúrulegt
fæðubótarefni sem binst við fitu
í meltingarveginum og hindrar að
likaminn nýti sér hana. Fitan sem
þannig er bundin skilst út úr
líkamanum en meltist ekki og
þú grennist.
Faest í ollisEn
bctri apótekitm.
PHARMANUTRIENTS-
ÞREKRAUN EHF.
FELLSMÚLA 24, SÍMI: 553 0000
anic“ sem verða frumsýndar
seinna en áætlað var. Margt bend-
ir til þess að „Copland" með Sylv-
ester Stallone komi ekki á mark-
aðinn fyrr enn í haust en það
átti að frumsýna hana í Banda-
ríkjunum 1. ágúst. Upphaflega
stóð til að sýna „Copland“, sem
er önnur leikstjórnartilraun
James Mangold, á Cannes-kvik-
myndahátíðinni í maí en ekkert
varð úr því.
Að sögn var myndin tekin úr
umferð eftir að kvikmyndaáhorf-
endur á tilraunasýningu lýstu því
yfir að myndin væri leiðinleg. Þá
ákváðu framleiðendur myndarinn-
ar, Miramax, að fara með
„Copland“ aftur í klippingu og
taka upp viðbótarefni.
Eitt vandamál varðandi endur-
tökur er vaxtarlag aðalleikarans
Stallones. Hann þyngdi sig um
tuttugu kíló fyrir upptökur en hef-
ur nú losað sig við þau aftur.
Kannski förðunarmeistararnir sem
sáu um útlit Eddie Murphy fyrir
„The Nutty Professor" geti hjálpað
til.
Eigum hljóðkúta og pústkerfi í flestar
gerðir bifreiða. Tveggja ára ábyrgð á
heilum kerfum. ísetning á staðnum.
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum
okkar i síma 588 2550
BílavörubúÖin
FJÖÐRIN
/ fararbroddi
SKEIFUNNI 2,108 REYKJAVÍK Sl'MI 588 2550
BIOIN I BORGINIMI
Sæbjöm Valdimarsson / Amaldur Indriðason
/ Anna Sveinbjamardóttir
BÍÓBORGIN Visnaðu *'A
Ein af slakari bókum Kings fær
ámóta meðhöndlun hjá B-mynda-
smið. Einhæf og óspennandi.
Donnie Brasco * * *
Johnny Depp og A1 Pacino eru stór-
fenglegir í vel gerðri mafíumynd
sem skortir einmitt fátt annað en
mikilleik. Fín skemmtun.
Lesið í snjóinn * *'A
Kvikmynd Billie August fer vel af
stað, andrúmsoftið er ógnvekjandi
og útlitið drungalega fallegt. Því
miður dregur afleitur leikur flestra
leikaranna og heimskuleg þróun
sögunnar, myndina niður stuðull
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Absolute Power * *
Blóðugt valdatafl á milli innbrots-
þjófs í vondum málum (Eastwood)
og forseta Bandaríkjanna (Hack-
man) er því miður alltof ótrúverðugt
og álappalegt. Fyrir forfallna
Eastwoodaðdáendur.
Anaconda * * *
Skemmtilegur frumskógatryllir þar
sem áhöld eru um hvor er meiri
anaconda Voigt eða slangan.
Scream * *
Unglingahryllingsmynd sem reynir
að vera frumleg en er frekar tilgerð-
arleg. Á þó góða spretti inná milli.
Private Parts **'A
Sjá Kringlubíó.
Tindur Dantes 'A
Með eindæmum slöpp hamfara-
mynd. Meira að segja tæknibrellurn-
ar bregðast í þetta skipti.
Michael * *
Travolta í essinu sínu sem Mikael
erkiengill hér á Jörðu í rómantískri
gamanmynd.
Donnie Brasco * **
Sjá Bíóborgin
HÁSKÓLABÍÓ
Absolute Power **
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Umsátrið **
Enn ein ástralska gamanmyndin um
hina sérkennilegu andfætlinga.
Frekar létt í vasa, allt saman.
Háðung * *'A
Frönsk orðsnillæd í hávegum höfð
við hirð Loðvíks undir lok 18. aldar.
Oft skemmtilegt oh litríkt bún-
ingadrama.
Tindur Dantes 'A
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Kolya ***
Töfrandi og hlý mynd sem yljar bíó-
gestum um hjartaræturnar
KRINGLUBÍÓ
Private Parts * *'A
Sjálfsæfisaga útvarpsmannsins
Howards Sterns sögð á gamansam-
an hátt og alvörulausan og mærir
viðfangsefnið útí það óendanlega.
Beavis og Butthead bomba
Bandaríkin *'A
Einhæf aulafyndni um kynfæri,
kynlíf og líkamsúrgang er vöru-
merki MTV flónanna. Afar leiði-
gjarnt og lágstemmt hnoð.
Veislan mikia * * *
Að hætti ítalskrar matargerðar er
myndin búin til úr fyrsta flokks
hráefni, er metnaðarfull, listræn,
rómatísk, ástríðufull, og síðast en
ekki síst er eftirbragðið einkar
ánægjulegt og skilur eftir góðar
minningar.
LAUGARÁSBÍÓ
Blóð og vín * *
Kuldalega gróf ofbeldismyndum ill-
gjamt fólk. Þrátt fyrir ágætisleik
Jacks Nicholson nær myndin aldrei
neinu flugiog drukknar í leiðindum.
Treystið mér ***
Einn Carrey nægir kvikmyndabrans-
anum. Hér fer hann á kostum sem
lögfræðingur sem hættir að geta log-
ið. Meinfyndin og ærslafengin
skemmtun fyrir alla, ekki síst hlunnf-
arin fómarlömb lögmannastéttarinn-
ar!
Crash ***
Cronenberg §allar að vanda um
hluti sem heilla og vekja ógeð. Crash
er á freudískum nótum og tekur
fyrir dauðaþrána og bæklað kynlíf.
REGNBOGINN
Scream **
Sjá Sambíóin Álfabakka
Supercop * * *
Hong Kong bardagalistarhretjan
Jackie Chan skemmtir áhorfendum
með teiknimyndaofbeldi og aulahú-
mor. Nýtur dyffrar aðstoðar Mic-
helle Yeoh í þessari sumarfeoðu sem
kemur manni í gott skap.
Rómeó og Júlía ***
Skemmtilega skrautleg nútímaút-
gáfa á sígildu verki Shakespeares.
Luhrman er leikstjóri sem vert er
að fylgjast með.
Englendingurinn ** *'A
Epísk ástarsaga. Meistaralega
framsrtt og frábærlega leikinmynd
um sanna ást. Óskarstykkið í ár !
STJÖRNUBÍÓ
Anaconda ***
Sjá Sambfóin, Álfabakka.
Amy og villigæsirnar * * *
Fjölskyldumynd sem er í einu orði
yndisleg. Fallega kvikmynduð, ágæt-
lega leikin og leikstýrt af næmni af
Carroll Ballard.
Einnar nætur gaman * *'A
Rómantísk gamanmynd sem kemur
’ócart fyrir ágætan leik og fyndið
handrit.
Undir fölsku flaggi ***
Góður samleikur stjarnanna í mynd-
inni gera hana að spennudrama frek-
ar en spennumynd. Ólíkleg en áhri-
farík.