Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jennifer Murray ætlar fyrst kvenna að fljúga þyrlu umhverfis hnöttinn
Ekki róleg
heimakær amma
„MÉR HEFÐI aldrei dottið í hug
að fara í svona flug á meðan
börnin mín voru litil enda þurftu
þau á mér að halda. Eftir að
börnin uxu úr grasi og ég varð
amma hefur mér gefist tækifæri
til að láta drauma mína um að
ferðast út um víða veröld ræt-
ast. Ég hef aldrei verið rólega
heimakæra amman," sagði Jenni-
fer Murray, breskur þyrluflug-
maður, á Reykjavíkurflugvelli í
gær. Jennifer stefnir að því að
verða fyrsta konan til að fljúga
umhverfis hnöttinn á þyrlu.
Jennifer og Quentin Smith,
aðstoðarflugmaður, verða fyrstu
Bretarnir til að ná sama marki.
Þau eru þegar komin langleiðina
því áætlað er að ferðinni ljúki í
Denham á Englandi 15. ágúst nk.
Jennifer og Quentin lögðu upp í
flugið 10. maí sl. Þau fljúga yfír
28 lönd og taka 80 sinnum elds-
neyti á allri leiðinni.
Stórkostleg ferð
Jennifer sagði að ferðin hefði
verið hreint út sagt stórkostleg
og erfitt að nefna einn hluta
framyfír annan. „Mér fannst al-
veg yndislegt að fá að fylgjast
með því þegar Kinveijar tóku
formlega við Hong Kong af Bret-
um. Að fljúga yfir Rússland var
mikil lífsreynsla og meiriháttar
að koma til Alaska. Við flugum
yfir pýramídana í Egyptalandi
og áfram væri lengi, lengi hægt
að telja,“ sagði hún.
Hún sagði að erfiðasta flugið
hefði verið frá Kanada til Græn-
lands. „Veðrið var leiðinlegt og
vélin í þyrlunni fór að gefa frá
sér einkennilegt hljóð á miðri
leiðinni. Við voru ansi tauga-
veikluð á tímabili. Allt fór hins
vegar vel og hingað er ég kom-
in. Ég verð að viðurkenna að ég
er svolítið þreytt en spenningur-
inn yfir fluginu heldur mér gang-
andi,“ sagði Jennifer og játti þvi
að flugið væri svo sannarlega
þess virði.
„Hér er heldur ekki aðeins um
að ræða að selja met. Við erum
að safna peningum til að koma
börnum til hjálpar. Ekki aðeins
börnum í vanþróuðu ríkjunum
því fjöldinn allur af börnum í
ríkari löndum á um sárt að binda,
sum börn eiga t.a.m. ekki kost á
menntun eða hafa orðið fyrir
kynferðislegu ofbeldi," sagði
hún.
Tvímenningarnar stefna að
því að safna samtals 58,5 milljón-
um til styrktar börnum víðsvegar
í heiminum.
Byijaði að fljúga fyrir
tveimur og hálfu ári
Hún sagðist hlakka til að hitta
eiginmann sinn og dóttur á Bret-
landi og tók fram að hún hefði
hitt barnabörnin tvö, eins og
þriggja ára, í Hong Kong. „Þau
eru of ung til að átta sig á því
hvað ég er að gera, en auðvitað
sakna ég þeirra og þau mín þeg-
ar við sjáumst ekki í langan
tíma,“ sagði Jennifer.
Jennifer, sem er 56 ára og var
búsett í Hong Kong um 30 ára
skeið, er menntaður listamaður
og textílhönnuður og stofnandi
tveggja fyrirtækja í Hong Kong
og Tælandi. Hún hóf að stunda
þyrluflug fyrir tveimur og hálfu
ári og hefur 600 flugtima að
Morgunblaðið/Jim Smart
QUENTIN og Jennifer héldu fluginu áfram i gærmorgun. Þau
fljúga eins hreyfils Robinsson-þyrlu.
baki. Jennifer á fleiri áhugamál
en fíugið því hún hefur tekið
þátt í maraþonhlaupi í London.
Quentin Smith, sem er 32 ára,
á að baki meira en 4.000 flugtíma
enda hefur hann stundað flug frá
unga aldri. Hann hefur einnig
stundað kappakstur. Quentin
rekur þyrlufyrirtæki í Bretlandi.
Jennifer segir að ferðin hafi
gengið samkvæmt áætlun og eig-
inlega gott betur því að hún hafi
gert ráð fyrir að koma til íslands
9. ágúst.
Sendiherrabú-
staðurinn í París
Seldur
fyrir 218
milljónir
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
hefur selt hús íslenska sendi-
herrans í París fyrir 218
milljónir íslenskra króna.
Ráðuneytið áformar að
kaupa annað hús fyrir sendi-
herrann. Sendiherrann er að
kanna þau hús sem koma til
greina og mun gera tillögu
til ráðuneytisins um húsa-
kaup.
Að sögn Stefáns Hauks
Jóhannessonar, skrifstofu-
stjóra í utanríkisráðuneytinu,
var sendiherrabústaðurinn
kominn til ára sinna og þurfti
mikið viðhald. Þess vegna
hefði verið ákveðið að selja
hann og finna annað hent-
ugra húsnæði sem væri ódýr-
ara í rekstri. Sendiherrabú-
staðurinn er glæsilegt hús í
dýru hverfi og sagði Stefán
Haukur að ráðuneytið hefði
vonast eftir að fá hærra verð
fyrir hann. Húsnæðismark-
aðurinn í París hefði hins
vegar verið í lægð að undan-
förnu og ekki talið líklegt að
hærra verð fengist fyrir hús-
ið. Ráðuneytið myndi aftur á
móti væntanlega njóta góðs
af ástandinu á markaðinum
þegar nýtt hús yrði keypt.
Hann sagði óvíst hvort heim-
ild til að kaupa nýjan sendi-
herrabústað yrði nýtt á þessu
ári eða næsta.
Sendiherrann í París er í
bráðabirgðahúsnæði meðan
leitað er að nýju húsi.
Sjúkraþjálfarar uggandi
vegna breyttra reglna
SJÚKRAÞJÁLFARAR telja að
breyttar reglur Tryggingaráðs
um þátttöku sjúklinga í greiðslum
fyrir sjúkraþjálfun muni geta leitt
til aukinna innlagna á sjúkra-
stofnanir og fjölgunar legudaga.
Stjórnir Félags íslenskra sjúkra-
þjálfara og Félags sjálfstætt
starfandi sjúkraþjálfara hafa
samþykkt ályktun þar sem hörm-
uð er ákvörðun Tryggingaráðs og
varað er við áhrifum breyting-
anna, sem hún hefur í för með sér.
Sigrún Knútsdóttir, formaður
Félags íslenskra sjúkraþjálfara,
segir að Tryggingastofnun ríkis-
ins hafi á síðasta ári samþykkt
að fjölga stöðugildum í sjúkra-
þjálfun í göngudeildarþjónustu
um 15 og á þessu ári um 4,5 til
Telja að sjúkl-
ingum verði
haldið lengur
á stofnunum
að mæta brýnni þörf. Hún hafi
aðallega skapast vegna þess að
nú sé reynt að hafa sjúklinga
ekki lengur á sjúkrastofnunum
en nauðsyn krefji og veita þeim
endurhæfingu á göngudeildum.
Þannig hafi legudögum
snarfækkað og þar sé jafnframt
komin skýring á því hvers vegna
útgjöld Tryggingastofnunar ríkis-
ins vegna sjúkraþjálfunar fari 80
milljónir fram úr áætlun, eins og
greint var frá í Morgunblaðinu í
gær.
Sigrún bendir á að þarna sé
verið að mæta kostnaði á göngu-
deildum sem annars hefði orðið á
sjúkradeildum, nema þar hefði
hann orðið mun hærri. Sjúkra-
þjálfun á göngudeild kosti um
1.850 krónur á dag en umönnun
sjúklings sem liggur inni á stofn-
un hlaupi á tugum þúsunda.
Þurfa að greiða helming
kostnaðar
Sigrún segir að margir sjúk-
lingar sem hingað til hafi ekki
greitt fyrir sjúkraþjálfun muni
eftir breytingu þurfa að gera það.
Hún nefnir t.d. þá sem fá heila-
blóðfall eða hjartaáfall. Slíkir
sjúklingar eru útskrifaðir eins
fljótt og hægt er. Tryggingastofn-
un hefur greitt fyrir sjúkraþjálfun
þeirra að fullu meðan þeir eru í
endurhæfingarþörf. Eftir breyt-
ingu þurfi þeir að greiða helming
kostnaðar sjálfir eða yfir 900
krónur fyrir hvert skipti, séu þeir
ekki öryrkjar eða orðnir 67 ára.
„Við höldum að þetta geti orðið
til þess að sjúklingum verði hald-
ið lengur inni á stofnunum vegna
þess að þeir geti ekki borgað fyr-
ir þjálfun. Fyrir þá sem ekki eru
í vinnu og þurfa að lifa af sjúkra-
dagpeningum skiptir þetta veru-
legu máli,“ segir Sigrún. Hún
segir að foreldrar fatlaðra barna
þurfi að greiða alls 7.000 krónur
fyrir sjúkraþjálfun áður en þau
fái ókeypis þjálfun.
Nýtt Naust á að
rúma 700 manns
NÚ STANDA yfir breytingar á
veitingahúsinu Naustinu en nýver-
ið tók Valur Magnússon yfir rekst-
ur staðarins. Að sögn Vals er ætl-
unin að opna staðinn meira en
verið hefur og verður hægt að
ganga á milli þar sem áður var
veitingastaðurinn Naustið og
Naustkráin í kjallara hússins. Auk
þess verður ris Naustsins tekið í
notkun en þar voru áður geymslur.
„Þetta verður gjörbreytt hús,
líflegra og léttara en áður, s_ann-
kallað gleðihús,“ segir Valur. í allt
mun staðurinn rúma um 700
manns.
Valur segir að innréttingarnar
í gamla Naustinu verði látnar halda
sér að hluta en miklar breytingar
verði á fyrirkomulagi veitingastað-
arins. „Yfirbragðið verður allt
glaðværara og léttara. Matseðill-
inn verður fjölbreyttari og eldhúsið
opið lengur. Á föstudags- og
laugardagskvöldum verður t.d.
hægt að panta spænska smárétti
(tapas) frameftir öllu.“
Á að höfða til
30 ára og eldri
Að sögn Vals er ætlunin að
höfða til fólks eldra en þrítugt og
er hann þess fullviss að markaður
sé fyrir stað ætlaðan þessum ald-
urshópi. „Lífsmynstur á Islandi
hefur gjörbreyst síðustu 10-15
árin. Nú er miklu algengara að
fólk fari út um helgar en fyrir 15
árum. Það er t.d. orðið mjög al-
gengt að fólk hittist frekar á kaffí-
eða veitingahúsum en heima hjá
sér. í því samhengi hef ég mikla
trú á skemmtistöðum sem tengjast
veitingahúsum eins og Naustið
kemur til með að gera.“ Valur seg-
ir að leikin verði lifandi tónlist
bæði á veitingastaðnum og á barn-
um
)
i
i
i
I
>
I
I
I
I
I
Í
i
i
i
i
i
i