Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tölvuterror
' í frystihúsi Bakka í Bolungarvík er fullkomið tölvu-
kerfi flæðilínunnar notað til að skrá hvert handar-
vik og snúning starfsKVENNA (ekkr karla) og listi
ura frammistöðu hengdur upp tvisvar á dag. Par
má sjá nöfn og númer kvennanna, hvort þær
Utanríkisráðherra um staðfestingu Bretlands
á hafréttarsamningnum
Viðræðum um hafsbotns-
réttindi haldið áfram
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að í framhaldi af því
að Bretland hefur fullgilt hafréttar-
samning Sameinuðu þjóðanna verði
viðræðum við Breta um hafsbotns-
réttindi á Hatton-Rockall-svæðinu
haldið áfram. Þá segir hann að ís-
land muni viðhalda kröfu sinni til
fiskveiðiréttinda á alþjóðlega haf-
svæðinu sunnan landsins sem Bretar
gerðu áður kröfu til.
„Við teljum þetta mjög mikilvæga
ákvörðun hjá Bretum og við fógnum
henni,“ segir Halldór. Bretar hafa
lýst því yfir að þeir muni nú hætta að
miða við klettinn Rockall sem grunn-
punkt fyrir 200 mílna lögsögu sína.
Pað hefur annars vegar þau áhrif að
3.900 ferkílómetra svæði syðst í ís-
lenzku lögsögunni, sem Bretar gerðu
áður tilkall til, verður óumdeilt og
hins vegar að stórt hafsvæði sunnan
íslenzku lögsögunnar verður óum-
deilt alþjóðlegt svæði.
Greiðir fyrir samningum
um alþjóðlega svæðið
„Þessi ákvörðun Breta ætti að
greiða fyrir samningum í framtíðinni
um það svæði,“ segir Halldór.
„Möguleikar íslenzkra úthafsútgerða
fara fyrst og fremst eftir því hvort
veiðanlegur afli er á svæðinu en
sannleikurinn er sá að þetta svæði
hefur ekki verið nægilega kannað,
hvorki af okkur né öðrum.“
Halldór segir að kröfu íslands til
fiskveiðiréttinda á svæðinu verði við-
haldið en nokkur ár geti liðið þar til
niðurstaða fáist í þvi máli. „Þar er
ekki mikil veiðireynsla, hvorki hjá
okkur né öðrum,“ segir hann.
Rætt um nýja stöðu
Island, Bretland, írland og Dan-
mörk fyrir hönd Færeyja gera öll
kröfu til hafsbotnsréttinda á Hatton-
Rockall-svæðinu, sem er sunnan ís-
lenzku lögsögunnar. Fyrir sjö árum
var brezkum og íslenzkum sérfræð-
ingum falið að setja saman sameigin-
lega skýrslu um málið og átti hún að
verða grunnur frekari viðræðna ríkj-
anna. Skýrslugerðin hefur hins veg-
ar legið niðri um nokkurt skeið, með-
al annars vegna þess að Bretar áttu
ekki aðild að hafréttarsamningnum
og forsendur ríkjanna voru því ólík-
ar. Aðspurður hvort þess verði nú
farið á leit við Breta að skýrslunni
verði lokið og viðræður hafnar á ný,
segir Halldór að íslenzk stjómvöld
hafi alla tíð verið í sambandi við
Breta vegna málsins og haldið við
sjónarmiðum sínum og kröfum. „Við
munum halda áfram þeim viðræðum,
sem við höfum átt við þá á undan-
förnum árum, og ræða við þá um
þessa nýju stöðu. Það er þó ekki
hægt að ákveða neitt frekar um það
fyrr en við höfum fengið viðbrögð af
þeirra hálfu. Auk þess koma fleiri
þar að, Irar og Færeyingar."
Aðspurður hvort ekki sé orðið
brýnt að fá niðurstöðu um hafsbotns-
réttindin, nú þegar olíuleit sé hafin
við Rockall, segir Halldór: „Það hef-
ur alltaf verið brýnt og ekki hefur
dregið úr því.“
Halldór bendir á að landgrunns-
nefnd Sameinuðu þjóðanna hafi nú
tekið til starfa og sé það hlutverk
hennar að gera tillögur til strand-
rílqa um ytri mörk landgrunnsins.
„Þetta er að sjálfsögðu mikil breyt-
ing frá því sem áður var varðandi
landgrunnið," segir ráðherra.
VTkutÍTböð
Safnkortshafar fá að auki 3% afslátt í punktum.
alltlil alls
Iflilsslöíum * Finsiinslí • Guynvc||í • Guiisyíilu • li<ikjuigiilu Hulnuiliiði • Nnsjuil vlí Hoiiiðljuið • tkóymsoli • Slérulijullu • Vuguiu • Ayisiðu
Ökldiiliolt
Forysta íslands í Evrópuráðinu
Leiðtogafundur
og hálfrar
aldar afmæli
Sveinn Björnsson
-p^ÍKISSTJÓRNIN
B-f ákvað á liðnum
JL Wvetri að stofna
nýtt embætti sendiherra
hjá Evrópuráðinu í
Strassborg. Meðal ann-
ars til að mæta auknum
umsvifum ráðsins vegna
stækkunar þess við inn-
göngu Austur-Evrópu-
landa og undirbúa for-
mennsku Islands í ráð-
herranefndinni. Island
tekur þar við stjóm í
fyrsta sinn vorið 1999, á
50 ára afmæli Evrópu-
ráðsins, og sendiherr-
ann, Sveinn Bjömsson,
mun þegar gegna vara-
formennsku frá komandi
hausti. Ráðherranefndin,
sem skipuð er utanríkis-
ráðheirum allra aðildar-
landanna, fer með fram-kvæmda-
vald Evrópuráðsins, tekur af-
stöðu til ályktana þingmanna og
sérfræðinga.
Ráðherramir hittast reglulega
vor og haust og þess á milli funda
fastafulltrúar eða sendiherrar
ríkjanna. Síðustu ár hefur sendi-
herra Islands í París, Sverrir
Haukur Gunnlaugsson, sinnt Evr-
ópuráðinu og undanfarin tvö ár
var Sveinn Á. Bjömsson
varafastafúlltrúi við ráðið, en
hann er nú horfinn til starfa við
sendiráðið í Washington. Nafna
hans bíður talsvert verk í nýju
starfi og þegar í haust verður
annar leiðtogafundur ráðsins.
Þessa dagana fer mestur tími í
undirbúning hans, Jaques Chirac
Frakklandsforseti er gestgjafi og
af íslands hálfu sækir Davíð
Oddsson forsætisráðherra fund-
inn.
- Hvers vegna er efnt til
fyrstu leiðtogafunda ráðsins þeg-
ar nær hálf öld er liðin frá stofn-
unþess?
„Það er vegna stækkunar ráðs-
ins um helming á tíu ámm og
breytinga í Evrópu. Fyrsti fund-
ur leiðtoganna var í Vín 1993
þegar mörg ríki höfðu bæst við
eða vom í þann mund að koma
sér fyrir. Þá var skerpt á eftir-
litsþætti hvað þau varðar vegna
grundvallarreglna ráðsins og nú
verður framhaldið ákveðið:
stefna Evrópuráðsins mörkuð í
ljósi þróunar í álfunni, einkum
með tilliti til annarra fjölþjóða-
stofnana. Evrópuráðið er með
vissum hætti lykill að ESB og
NATÓ fyrir ríkin í austri.
Eg nefndi eftirht því áhersla
er lögð á að fylgjast með fram-
gangi lýðræðis og mannréttinda í
nýjum löndum, sem ekki byggja
á sömu hefð og gróin ríki ráðsins.
Sendinefndir fara til dæmis og
fylgjast með kosningum, farið
hefur verið í fangelsi og geðspít-
ala í löndunum og aðbúnaður at-
hugaður. Þegar mál-
um þykir mjög ábóta-
vant er ríki áminnt og
komið getur til brott-
vísunar úr ráðinu. En
aðstoð við nýju löndin
vegur jafnþungt, ég nefni sem
dæmi lagasetningu og fram-
kvæmd mála í dómstólum og
fangelsum. Einnig skólamál, heil-
brigðismál og umhverfismál;
jafnrétti kynþátta og trúarhópa".
- í hverju felst formennska í
ráðherranefndinni?
„Einkum fundarstjóm í nefnd-
inni nokkrum sinnum í mánuði og
foiystu í sumum vinnuhópum
hennar. Þá þarf að vinna með ut-
►Sveinn Björnsson er fæddur
árið 1942 og lagði stund á
frönsku, sögu og sfjórnmála-
fræði við háskólana í Manchest-
er og París. Hann hefur stafað í
utanrikisþjónustunni síðan
1969, við sendiráðin í Stokk-
hólmi, Bonn og London. Þá var
Sveinn siðameistari og skrif-
stofusfjóri í utanríkisráðuneyt-
inu og forsetaritari um fimm
ára skeið. Hann varð sendi-
herra íslands hjá Evrópuráðinu
síðastliðið vor.
anríkisráðherra landsins skýrslu
nefndarinnar, sem þinginu er gef-
in tvisvar á ári. Hvert land sfýrir
ráðherranefndinni í hálft ár, utan-
ríkisráðherrann er hinn formlegi
formaður og stýrir einum fundi á
tímabilinu. Vorið 1999 tekur ís-
land við af Ungveijalandi, einmitt
þegar hálfrar aldar afmæli Evr-
ópuráðsins ber upp þann 5. maí.
Ungveijar munu þannig undir-
búa hátíðarhöld af hálfú ráð-
herranefndinnar og íslendingar
annast þau að hluta til.“
- Hverjar eru aðalstofnanir
Evi-ópuráðsins?
„Mannréttindastofnanir, þing-
mannasamkunda með fulltrúum
þjóðþinganna, ráðherranefnd og
nær 1500 manna skrifstofa eru
helstu stofnanir. Einn íslending-
ur, Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir
Ergiin, er háttsett í skrifstofunni
og fer með jafnréttismál. Fag-
ráðherrar aðildarríkja hittast
reglulega og nefndi sérfræðinga
úr ráðuneytum og stofnunum
landanna. Sveitarstjómarráð-
stefna gegnir jafnframt veiga-
miklu hlutverki. Fastanefndir
hafa vitanlega samband við þing-
menn og sérfræðinga sinna
landa og ég hef þegar hitt ís-
lensku þingmennina sem hér
voru í júní. Beint samspil þings
og ráðherranefndar er annars í
nefnd þar sem skipst er á upp-
lýsingum.
Mannréttindanefnd
og dómstóll er ef til
vill það sem Evrópu-
ráðið er þekktast fyr-
ir. Nefndin tekur við
kærum og beinir innan við tí-
unda hluta þeirra til dómstólsins.
Þetta breytist væntanlega haust-
ið 1998 þegar stofnanimar tvær
verða sameinaðar og einn dóm-
ari í fullu starfi verður frá hveiju
aðildarríki. Þá er gert ráð fyrir
að öll ríkin hafi fullgilt mannrétt-
indasáttmála þess auk viðauka
og raunar vonast til að svo verði
strax í haust, íyrir leiðtogafund-
inn í október.“
lykill
að ESB og
NATÓ