Morgunblaðið - 08.08.1997, Side 10

Morgunblaðið - 08.08.1997, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ f Flugfélag íslands semur við bílaleigur Sértilboð fyr- ir farþega FARÞEGUM sem fljúga með Flug- félagi íslands og kaupa farseðil fram og til baka býðst nú bílaleigu- bíll fyrir 2.660 kr. á sólarhring. Innifalið er 100 km akstur, trygg- ing og virðisaukaskattur. Sala á þessum kjörum hefst fimmtudaginn 14. ágúst og stend- ur tilboðið frá 15. ágúst til 30. september. Gildir ofangreint verð fyrir ódýrasta flokk bílanna, til dæmis Opel Corsa og Nissan Micra. Samstarfsaðilar Flugfélags ís- lands í þessu tilboði eru Bílaleigan ALP, Bílaleiga Akureyrar-Europ- car, Hertz, Bílaleiga Húsavíkur og Bílaleigan Ernir á ísafirði. Hægt er að fá bílana leigða í Reykjavík, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Höfn, Vestmannaeyj- um og ísafirði. Afmælishátíð í Mosfellsbæ MOSFELLSBÆR á 10 ára afmæli næstkomandi laugardag 9. ágúst, og verður ýmislegt á döfinni af því tilefni. Skrúðganga leggur af stað á laugardaginn kl. 13.30 frá Nóatúni að Hlégarði og þar hefst dagskrá kl. 13.45. Kiukkan 14.45 verður skrúðganga að íþróttasvæðinu þar sem fram fara Hálandaleikar. Klukkan 16 verður stór sýning á verkum Sverris Haraldssonar opn- uð á Hulduhólum og spannar sýn- ingin allan feril listamannsins. Hún verður opin alla daga nema mánu- dag frá klukkan 14 til 18 út mán- uðinn. Um kvöldið verður dagskrá í Hlégarði og hefst kl. 20. Þar verða veitt verðlaun fyrir fallegasta garðinn í Mosfellsbæ. Þá býður Mosfellsbær bæjarbú- um til grillveislu, funk- og jazz- hljómsveitin Interstate spilar og Signý Sæmundsdóttir syngur. Há- tíðinni lýkur með flugeldasýningu. Prófastur settur í embætti BISKUP íslands, hr. Ólafur Skúla- son, mun setja sr. Ingimar Ingi- marsson í embætti prófasts í Þing- eyjarprófastsdæmi sunnudaginn 10. ágúst kl. 11 við messu á Þórs- höfn. Sr. Örn Friðriksson lét af því embætti um síðustu mánaðamót sökum aldurs. Sr. Ingimar var skip- aður prófastur frá 1. ágúst sl. Sr. Ingimar varð stúdent frá Akureyri 17. júní 1949 og lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Islands 1953. Frá 1953 hefur sr. Ingimar gegnt sóknarprestsembætti í Rauf- arhafnarprestakalli á Sauðanesi og í Vík í Mýrdal. Biskupskjör hafið Atkvæði talin 6. september KOSNING biskups stendur nú yfir en kjörgögn voru send til kjör- manna síðastliðinn þriðjudag. Þeir hafa skilafrest til og með föstudegi 29. ágúst og verða atkvæði talin eftir að liðinn er viku kærufrestur. Ákveðið hefur verið að talning fari fram laugardaginn 6. septem- ber klukkan 11 árdegis í skrifstofu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Fái enginn hreinan meirihluta at- kvæða kemur til annarrar umferðar og er talið að endanleg úrslit geti legið fyrir 10. október. Sími 555-1500 Mosfellsbær Brattholt Ca 150 fm einbýli auk bilskúrs. Verð 10,8 millj. Garðabær Stórás Rúmgóð ca 70 fm 2-3 herb. íb. á neðri hæð í tvíb. Ný eldinnr. Reykjavík Leirubakki Góð 4ra herb. íb. ca 90 fm á 3. hæð. Fráb. útsýni. Verð 6,6 millj. Hafnarfjörður Breiðvangur Sérlega glæsileg ca 190 fm neðri hæð. í tvíb. auk bllskúrs. 5 svefnh. Áhv. byggsj. ca 2,7 millj. Verð 13,2 millj. Gunnarssund Til sölu er góð 3ja herb. íb. á jarðh. Álfaskeið Einbýlishús á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið endurn. Ath. skipti á lítilli (b. Reykjavíkurvegur Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lítið áhv. Verð 4,3 millj. Fasteignasala, Strandgötu 25, Hfj. Árni Grétar Finnsson, hrl. Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl. \................ .......... « Húsnæðisstofnun bregst við Ríkissak- sóknara sent bréf VEGNA frétta í DV á miðvikudag og fimmtudag um sölu Húsnæðis- stofnunar ríkisins á húseign í Hafnarfirði sendi forstjóri stofnun- arinnar, Sigurður E. Guðmunds- son, fjölmiðlum eftirfarandi orð- sendingu í gær: „Húsnæðisstofnun ríkisins hefur í dag ritað Ríkissaksóknara bréf í tilefni af fréttaflutningi, síðustu daga, vegna sölu á ónafngreindu húsi í Hafnarfirði. Er það gert með vísan til laga nr. 80/1993, um aðgerðir gegn peningaþvætti.11 -kjami málvins! FRÉTTIR Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson JÓN A. Jónsson með 6 punda fisk sem hann fékk i Hraunfossi, efsta veiðistað Hellisár. Rangárnar á toppinn og veiði glæðist nyrðra RANGÁRNAR, eystri og ytri, hafa gefið af sér flesta laxa í sumar og miðað við gang mála er erfitt að sjá fyrir að einhver á skjóti sunnlensku stóránum ref fyrir rass úr þessu. Góðar fregnir berast einnig að norðan þar sem líf hefur færst í smálaxagöngur og sá fiskur sem gengur er afar vænn. í gær höfðu Rangárnar gefið samanlagt nálægt 1.500 laxa, eystri áin rétt rúmlega 800 og ytri áin tæplega 700 stykki, að sögn Þrastar Elliðasonar Ieigu- taka Ytri-Rangár. Síðustu daga hefur verið slæmt veður, en Ytri- Rangá haft vinninginn, enda helst hún tær á meðan Eystri- Rangá litast mjög. „Það hafa veiðst 25-30 laxar á dag í Ytri- Rangá þrátt fyrir óveðrið," sagði Þröstur. Glæðist fyrir norðan Orri Vigfússon sagði í gærdag að eitt 70 laxa holl hefði rekið annað í Laxá í Aðaldal og væri uppistaðan í veiðinni stór smálax. Sagði Orri að veiðin hefði orðið meiri ef áin hefði ekki orðið skol- uð í hinum stífu sunnanáttum síð- ustu daga. Orri var annars að ljúka 4 daga holli í Selá ásamt félögum sínum og veiddi hópurinn 54 laxa á fjórar stangir á fjórum dögum. „Það er sama sagan í Selá, þetta er stór smálax og tals- vert af fiski að ganga. Ain er komin í tæpa 350 laxa sem er meira en ég bjóst við í byrjun vertíðar," sagði Orri. Líflegt í Hellisá á Síðu í Hellisá á Síðu hafa veiðst um 180 laxar og á annan tug sil- unga. Áin er ekki fiskgeng og eru þetta fiskar sem keyptir eru úr Lárósstöðinni á Snæfellsnesi. Sleppt hefir verið tvívegis í ána samtals 500 fiskum. Þá er áætlað að sleppa 200 til viðbótar ein- hvern tíma í þessum mánuði. Veiðisvæðið er um 5 kílómetrar og eru 20-30 álitlegir veiðistaðir á þessum kafla. Veiðin hófst 12. júlí og verður veitt út september. Hellisá er um 20 km frá þjóð- veginum og er fyrst ekið upp Lakaveg og síðan svokallaðan línuveg sem liggur með háspenn- ulínu Landsvirkjunar. Vegurinn er ekki fólksbílafær. Auðvelt er að veiða í ánni og hafa margir veiðimenn fyllt kvóta sinn, sem eru 5 fiskar á stöng á dag. Síð- asta holl sem var við veiðar náði 26 eða 27 löxum sem þeir veiddu víðs vegar um ána. Veitt er á þijár stangir og fylgir nýtt glæsi- legt veiðihús leyfunum. Þrettán laxar úr Geirlandsá Þrettán laxar voru komnir á land úr Geirlandsá á Síðu sl. þriðjudag en þá voru Suðurnesja- menn að hætta veiðum. Hollið fékk 3 laxa, tvo 11 punda og einn sem aðeins vó 10 pund. Meðalvigt fisksins, sem veiðst hefir, er uni1 7,5 pund. Nokkuð er af laxi í ánni sem reyndar er þekkt sjóbirt- ingsá. Sjóbirtingurinn er ekki far- inn að ganga í ána að neinu markj en einn fiskur hefir þó veiðzt. í vorveiðinni fengust 136 fiskar og veiddust þeir á tímabilinu 1.-26. apríl. Hlutafé Dagsprents aukið um 70 milljónir Morgunblaðið/Kristinn ELÍAS Snæland Jónsson og Stefán Jón Hafstein ritstjórar Dags- Tímans og Eyjólfur Sveinsson stjórnarformaður Dagsprents. Nýr ritstjóri ráðinn að Degi- Tímanum HLUTAFÉ Dagsprents sem gefur út Dag-Tímann verður líklega auk- ið um 70 milljónir á næstu dögum. Þetta kom m.a. fram á blaða- mannafundi hjá Degi-Tímanum í gær er tilkynnt var að Elías Snæ- land Jónsson myndi í dag taka við starfi sem annar tveggja ritstjóra blaðsins með Stefáni Jóni Hafstein. Hlutafé Dagsprents er í dag um 60 milljónir króna að nafnvirði en með auknu hlutafé mun það fara upp í 100 milljónir að nafnvirði. Eyjólfur Sveinsson stjómarformað- ur segir að mest af nýju hlutafé sé þegar búið að selja, en enn eigi þó eftir að ræða við áhugasama aðila. Hann vill ekki gefa upp hvað- an nýtt hlutafé muni koma, en seg- ir að það muni m.a. koma frá ein- staklingum og fyrirtækjum. Að sögn Eyjólfs er aukið hlutafé útgáfunnar liður í því að breyta blaðinu og bæta það á næstu mán- uðum, en í því skyni var einnig ákveðið að bæta við nýjum rit- stjóra og að fjölga á ritstjórn. Ráðninguna bar brátt að Elías Snæland Jónsson sagði á blaðamannafundinum í gær að ráðninguna hefði borið brátt að, en hann hefði ákveðið að slá til og sér fyndist spennandi að taka þátt í því verkefni að gera blaðið stærra, öflugra og fjölbreyttara. Elías Snæland fæddist að Skarði i Bjamarfirði, Strandasýslu, 8. jan- úar 1943. Elías er kvæntur Önnu Kristínu Brynjúlfsdóttur latínu- kennara og rithöfundi. Þau eiga þrjú börn. Hann var blaðamaður við Tímann 1964 til 1973, ritstjóri Nýrra þjóðmála 1974 til 1976, blaðamaður og ritstjómarfulltrúi Vísis 1976 til 1981, ritstjóri Tímans 1981 til 1984 og aðstoðarritstjóri DV frá apríl 1984. ■ §> i < V ; c. c: ( ! < \i i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.