Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Dagar
Ólafs
bekks
FERÐAMÁLARÁÐ Ólafsfjarð-
ar, félög og fyrirtæki í bænum
efna til kynningardaga, svo-
nefndra „Daga Ólafs bekks“
en hann var landnámsmaður
Ólafsfjarðar ásamt Gunnólfí
hinum gamla.
Dagskráin hófst formlega í
gærkvöld með leik Leifturs og
Vals á Ólafsfjarðarvelli. í dag,
föstudag, verður hestaleiga
opin fram eftir kvöldi, gallerí,
náttúrugripasafn, golfvöllur og
sundlaug verða opin sem og
um helgina.
fjölbreytt dagskrá verður á
laugardag, m.a. verður
útimarkaður við Tjarnarborg,
Tröllaskagatvíþraut og sýning
á þjóðbúningum verður opnuð
í gagnfræðaskólanum, en hún
verður opin laugardag og
sunnudag frá kl. 14 til 17 og
21 til 23. Hótel Ólafsfjörður
býður upp á sjávarrétti um
helgina, en á laugardagskvöld
verður lögð áhersla á suðræna
saltfiskrétti.
Bæjarráð
Iðnaðarsvæði
í Krossanes-
haga gert
byggingahæft
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur falið
tæknideild bæjarins að leggja fyrir
ráðið tillögu um hvernig gera megi
fyrirhugað iðnaðarsvæði í Krossa-
neshaga norðan Hlíðarbrautar
byggingarhæft í áföngum ásamt
kostnaðaráætlun um einstaka
áfanga. Leggja á tillöguna fram
fyrir lok næsta mánaðar.
Leitað eftir styrk til
tækjakaupa
FJÁRÖFLUNARNEFND rann-
sókna- og sérfræðibókasafns Há-
skólans á Akureyri hefur leitað eft-
ir fjárstyrk frá Akureyrarbæ til
kaupa á tækja- og tæknibúnaði
fyrir safnið, en það verður opnað í
nýjum húsakynnum á Sólborgar-
svæðinu 6. september næstkom-
andi. Bæjarráð frestaði afgreiðsiu
þessa erindis á meðan unnið er að
framtíðarskipan bókasafnsmála á
Akureyri.
Lyfsala í Hagkaup
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt leyf-
isveitingu til handa Ingvari Þór
Guðjónssyni lyfjafræðingi, en heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyti
leitaði eftir umsögn bæjarstjómar
um leyfí til lyfsölu að Fumvöllum
17, þar sem verslun Hagkaups er
til húsa á Akureyri.
Stöðuleyfum verbúða sagt upp
SAMÞYKKT var á fundi bæjarráðs
í gær að segja upp stöðuleyfum
verbúða og annarra mannvirkja við
Fiskitanga með 6 mánaða fyrirvara,
frá 1. september næstkomandi.
Stjóm Hafnasamlags Norðurlands
hafði óskað eftir að stöðuleyfum
verbúðanna yrði sagt upp vegna
fyrirhugaðra framkvæmda við vest-
urbakka Fiskihafnarinnar.
Úrbætur í áhaldahúsi
VINNUEFTIRLIT ríkisins hefur ít-
rekað kröfur um úrbætur á hús-
næði áhaldahúss bæjarins við
Tryggvabraut og óskað eftir tíma-
settri áætlun þar um. Bæjarráð
hefur falið bæjarstjóra og bæjar-
verkfræðingi að móta tillögur um
lausn málsins og leggja fyrir bæjar-
ráð fýrir ágústlok.
Skógræktar-
ferð Varðar
VÖRÐUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna á Akureyri, efnir
til árlegrar skógræktarferðar á
morgun, laugardaginn 9. ágúst.
Farið verður á einkabílum frá
Kaupangi við Mýrarveg kl. 13
og ekið að Gullbrekku í Eyja-
fjarðarsveit þar sem plantað
verður í Varðarlund undir ör-
uggri leiðsögn þingmannsins
Tómasar Inga Olrieh. Að lok-
inni gróðursetningu verður tek-
ið til við að grilla ofan í mann-
skapinn en áætlað er að halda
heim á leið um kl. 17.
Framkvæmdum
við Giljaskóla flýtt
BÆJARRÁÐ Akureyrar gekk í
gær frá tillögu til bæjarstjórnar
um endurskoðun á fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs, en samkvæmt henni
hækka tekjur bæjarins um 172
milljónir króna frá því sem áætlað
var við gerð fjárhagsáætlunar í
desember síðastliðnum og verða
samtals 2.080.500 þúsund krónu.
Rekstrargjöld hækka um 172,6
milljónir og verða samtals
1.643.965 þúsund krónur.
Gjaldfærð fjárfesting hækkar
um 32 milljónir, einkum vegna
aukinna eignakaupa sem tengjast
skipulagi. Eignfærð fjárfesting
hækkar um 101,6 milljónir króna
sem kemur til af ákvörðun um að
flýta framkvæmdum við byggingu
Giljaskóla, en fyrirhugað er að
ljúka uppsteypu hússins nú í ár.
Samtals verður því varið um 350,7
milljónum króna í ár í eignfærða
fjárfestingu, en 247,3 í gjaldfærða
fjárfestingu.
Auknum útgjöldum umfram
tekjur verður mætt með lántöku
að upphæð 50 milljónir króna og
aukinni skerðingu á veltufjármun-
um.
Leiðir til
skuldasöfnunar
Sigurður J. Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, bókaði á
fundi bæjarráðs að hann geri ekki
ágreining um að endurskoðuð fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs verði lögð
fyrir bæjarstjórn. „Mikil röskun á
framkvæmdum leiðir til þeirrar
niðurstöðu að skerða þarf
veltufjármuni verulega og taka ný
lán. Þetta leiðir til lakari greiðslu-
stöðu og skuldasöfnunar,“ segir í
bókun Sigurðar. í bókun Heimis
Ingimarssonar, Alþýðubandalagi,
kemur fram að afstaða flokksins
til endurskoðaðrar fjárhagsáætl-
unar muni koma fram í bæjar-
stjórn, en næsti fundur er á þriðju-
dag.
Ekki ný útgjöld
Guðmundur Stefánsson, Fram-
sóknarflokki, sagði að vegna þeirr-
ar ákvörðunar að flýta fram-
kvæmdum við Giljaskóla væri farið
nokkuð fram úr þeirri áætlun sem
samþykkt var við gerð fjárhagsá-
ætlunar í desember. Það myndi
hins vegar jafna sig fljótt út aftur,
þar sem ekki væri um að ræða ný
útgjöld heldur tilfærslu á þeim.
„Staða bæjarsjóðs er sterk, hún
veikist tímabundið vegna þessarar
tilfærslu á framkvæmdum, en til
lengri tíma litið er ekki um að
ræða neina skuldasöfnun," sagði
Guðmundur.
Byggingar og grænmetisrækt
FÉLAGARNIR Jón Eiður Ár-
mannsson og Birgir Hólm Þór-
hallsson hafa verið í Skóla-
görðum Akureyrar við Síðu-
skóla í sumar en auk þess að
rækta grænmeti standa krakk-
arnir í miklum byggingafram-
kvæmdum. Þeir Jón og Birgir
Lafa reist sér myndarlegan
skúr, hæð með risi, og voru
önnum kafnir við að mála
bygginguna í gærdag.
Trölla-
skaga-
tvíþraut
JORIS Rademaker opnar sýn-
ingu í Café Karólínu næstkom-
andi sunnudag, 10. ágústkl. 14.
Á sýningunni verða þrívíð
verk sem eru samsett úr mis-
munandi hlutum, nýjum og
gömlum. Með því að setja saman
tvo mismunandi hluti kemur
fram ný merking, en þessi sýn-
ing er yfírlitssýning á tilraunum
síðustu fimm ára. Listamaður-
inn segir um verkin í fréttatil-
kynningu að þau séu eins og
ljóð; lítið efni en mikið innihald.
Joris hefur starfað að myndlist
í tíu ár, þar af fimm ár á ís-
landi. Hann hefur tekið þátt í
ijölda samsýninga og haldið níu
einkasýningar, nú síðast í Ný-
listasafnin í Reykjavík. Sýningin
stendur til 31. ágúst. Engin boðs-
kort eru send út en allir velkomn-
ir á opnun sýningarinnar.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
FRAMKVÆMDUM við Giljaskóla verður flýtt og hefur bæjarráð samþykkt endurskoðaða fjárhags-
áætlun sem felur í sér rúmlega 100 milljóna króna hækkun eignfærðra fjárfestinga í því skyni.
Fjárfestingar bæjarsjóðs hækka um 100 milljónir króna
Morgunolaðið/Bjöm Gíslason
TRÖLLASKAGATVÍÞRAUT,
sem skíðadeild Leifturs og fleiri
standa að, verður á morgun,
laugardaginn 9. ágúst og er
þetta í fjórða sinn sem til henn-
ar er efnt. Að þessu sinni verð-
ur hún í tengslum við daga
Ólafs bekks sem haldnir verða
á sama tíma í Ólafsfirði.
Þrautin felst í því að hlaupið
verður frá ráðhúsinu á Dalvík
upp Böggvisstaðadalinn og yfír
Reykjaheiði og niður að Reykj-
um í Ólafsfírði. Þaðan verður
hjólað eftir gamla þjóðveginum
sem liggur í vestanverðum fírð-
inum og niður í bæ. Keppt verð-
ur í flokkum karla og kvenna
og einnig verður flokkur trimm-
ara án tímatöku. Einnig verður
sérstakur flokkur göngufólks,
sem gengur yfir heiðina en lýk-
ur þátttöku án þess að hjóla.
Gönguflokkurinn er fyrir þá
sem hafa gaman af góðri og
hollri hreyfíngu, en áætlað er
að hún taki um fjóra klukkutíma
og er hún liður í skipulögðum
gönguferðum sem skíðadeildin
stendur fyrir á hveiju sumri.
Mæting í þrautina og
gönguna er við félagheimilið
Tjarnarborg kl. 10.30 en þang-
að á einnig að koma með hjól-
in. Farið verður með rútu yfir
til Dalvíkur.
Þrívíð verk
í Deiglunni