Morgunblaðið - 08.08.1997, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Sprengjutilræðið í World Trade Center
Fórnarlömb
bera vitni
New York. Reuter.
FÓRNARLÖMB sprengjutilræðis í
World Trade Center háhýsunum í
New York báru vitni í málshöfðun
alríkissaksóknara gegn meintum
leiðtoga tilræðismanna, og sam-
verkamanni hans, fyrir rétti í New
York í gær. Sex manns fórust í til-
ræðinu og rúmlega þúsund slösuðust.
Saksóknari hóf mál sitt á þriðju-
dag gegn Ramzi Yousef, sem gefið
er að sök að hafa búið sprengjuna
til og komið henni fyrir, og sam-
verkamanni hans, Eyad Ismoli, sem
sakaður er um að hafa ekið bílnum
sem notaður var til að flytja sprengj-
una inn í bílageymslu í kjallara há-
hýsanna. Segir saksóknari Yousef
og Ismoli hafa verið þátttakendur í
skipulagðri hermdarverkastarfsemi
gegn Bandaríkjunum. Búist er við
að réttarhöldin standi í þrjá til fjóra
mánuði.
Sprengjan sprakk skömmu eftir
hádegi 26. febrúar 1993. Fjórir mús-
límskir bókstafstrúarmenn voru
fundnir sekir um aðild að tilræðinu
við réttarhöld 1994 og var hver
þeirra dæmdur í 240 ára fangelsi.
Yousef og Ismoli flúðu land sama
kvöld og sprengjan sprakk, en sá
fyrrnefndi náðist i Pakistan 1995 og
Ismoli var handtekinn í Jórdaníu í
fyira.
í upphafsræðu Levs Dassins, sak-
sóknara, kom fram að sannanir væru
fyrir því að Yousef hefði fundið sér
samverkamenn, keypt efni til
sprengjugerðar, komið upp
„sprengjuverksmiðju“ og leigt sendi-
ferðabílinn sem notaður var til að
flytja sprengjuna inn í bílageymsl-
una. Lögmaður Yousefs, Roy Kulcs-
ar, hefur lítið látið uppi um vömina,
en gefið i skyn að veist verði að sönn-
unargögnum saksóknaraembættis-
ins.
Dassin sagði ennfremur i upphafs-
orðum sinum að saksóknari myndi
ennfremur leggja fram yfirlýsingu
sem Yousef hafi gefið við rannsókn-
armenn þegar verið var að flytja
hann til Bandaríkjanna eftir hand-
tökuna í Pakistan. Sagði Dassin að
Yousef hefði játað að hafa staðið að
sprengjutilræðinu oggortað af henni.
„Hann sagðist hafa viljað láta annað
háhýsið falla á hitt og verða þúsund-
um borgara að bana,“ sagði Dassin.
Meðal vitna í málinu er starfsfólk
ýmissa fyrirtækja sem hafa starfsemi
í húsunum tveim, og starfsfólk hafn-
aryfirvalda í New York og New Jers-
ey, sem hafa umsjón með húsunum.
Fjórir starfsmenn þeirra létust í til-
ræðinu. Fimmta fórnarlambið var
starfsmaður Vistahótelsins sem er í
byggingu áfastri háhýsunum. Sjötta
fórnarlambið var sölumaður er var á
bíl í kjallaranum þegar sprengjan
sprakk.
Reuter
Stærsta tromma heims
STÆRSTA trumba heims, sem
er 3,3 metrar í þvermál, var af-
hjúpuð í Kuala Lumpur í gær.
Trumbusmiðir frá Malaysíu og
Kína unnu saman að gerð hennar
en alls munu 45 trumbuslagarar
leika listir sínar á hljóðfærið á
góðgerðartónleikum á laugar-
dag.
ERLEIMT
Holbrooke snýr sér að
Bosníu-Serbum
Sarajevo. Reuter.
RICHARD Holbrooke, sérlegur
sendimaður Bandaríkjastjórnar, hélt
í gær til bosnísku höfuðborgarinnar
Sarajevo, til þess að beita harðlínu-
menn í forystu Bosníu-Serba þrýst-
ingi, en þeim er gefið að sök að
grafa undan friðarsamkomulaginu
sem Holbrooke átti þátt í að koma
á 1995.
Holbrooke átti í gær fund með
stjóm Bosníu, sem fulltrúar ailra
þjóðabrotanna þriggja eiga sæti í, og
meðlimum forsætisráðs landsins, þar
á meðal serbneska harðlínumannin-
um Momcilo Krajisnik, en þetta var
í fyrsta sinn í þijár vikur sem hann
mætti á fundi ráðsins. Fyrir fundinn,
sem fram fór í einu úthverfa
Sarajevo, sagði Holbrooke að sameig-
inlegar stofnanir þjóðabrotanna svo
sem forsætisráðið væru „lífsríauðsyn-
legur hluti" Dayton-friðarsamkomu-
lagsins, og að hann myndi á fundin-
um leggja að meðlimum þess að
„vinna betur saman".
Holbrooke lét þau orð falla í fyrra-
dag að það væru Krajisnik og aðrir
bandamenn hins eftirlýsta stríðs-
glæpamanns Radovans Karadzic,
sem framar öðrum væru sekir um
að standa í vegi fyrir umsaminni
framkvæmd friðarsamkomulagsins.
Karadzic segist reiðubúinn að
svara til saka
í viðtali við þýzka dagblaðið
Siiddeutsche Zeitung, sem birti út-
drátt úr því á miðvikudag, sagðist
Karadzic vera reiðubúinn til að svara
fyrir þá glæpi sem hann er ákærður
fýrir, svo lengi sem réttarhöldin færu
fram á yfírráðasvæði Bosníu-Serba.
„Ég legg til að [alþjóðlegi stríðs-
glæpa-]dómstóllinn í Haag fái með-
ferð ákærumálanna gegn mér og
öðrum Serbum frá Bosníu-Herzego-
vínu í hendur okkar eigin dómstól-
um,“ var haft eftir Karadzic í blað-
inu. „Ég myndi svara til saka undir
eftirliti Haag-dómstólsins og alþjóða-
samfélagsins. Þetta væri eina heið-
virða leiðin fyrir mig út úr þeirri
snúnu stöðu sem nú er uppi,“ sagði
hann.
Reuter
RICHSARD Holbrooke, sérlegum sendimanni Bandaríkjastjórn-
ar, virðist hér vel skemmt er hann heimsótti hermenn SFOR-
sveita NATO í bosníska bænum Tuzla, áður en hann hélt til
fundar við leiðtoga Bosníu í Sarajevo í gær.
Tyrkland
Flokkur
múslima
bannaður?
Ankara. Reuter.
VURAL Savas, ríkissaksóknari
Tyrklands, krafðist þess á miðviku-
dag að starfsemi Velferðarflokks-
ins, flokks heittrúaðra múslima,
yrði bönnuð vegna þess að hann
hefði beitt sér fyrir stofnun ísl-
amsks ríkis, sem byggði á sharia,
lögmálum íslams, grundvölluðum á
Kóraninum.
„Lýðveldið Tyrkland stendur
frammi fyrir hættu á sharia og frek-
ar en nokkru sinni fyrr í sögu þess,“
sagði Savas í 80 síðna skjali sem
hann lagði fyrir dómstól í Ankara.
Dómstóllinn tók málið fyrir í maí
og Velferðarflokkurinn fær nú
mánuð til að leggja fram skriflega
málsvörn.
Velferðarflokkurinn er stærstur
á tyrkneska þinginu og leiðtogi
hans, Necmettin Erbakan, neyddist
til að láta af embætti forsætisráð-
herra í júní vegna þrýstings frá
hernum, sem vill stemma stigu við
uppgangi heittrúaðra múslima.
Bili Clinton Bandaríkjaforsetí vill gera tóbaksfíknina útlæga
Reykingabanni
spáð eftir aldamót
Dýrkeypt
dagblað
Brussel. Reuter.
MAÐUR nokkur í Antwerpen,
sem lagði bíl sínum við verslun
til að kaupa dagblað, komst að
því þegar hann sneri aftur að
þjófar höfðu brotið rúðu í bílnum
og tekið með sér skjalatösku með
gulli og demöntum að andvirði
átta milljóna belgískra franka,
eða 15 milljóna króna.
Maðurinn starfar hjá demanta-
fyrirtæki í Antwerpen, helstu
miðstöð demantaviðskipta í heim-
inum. Þegar hann hafði keypt
blaðið sá hann tvo menn taka til
fótanna með þýfið. Þeir komust
undan í bifreið, sem er skráð í
Hollandi, og síðan hefur ekkert
sést til þeirra.
Washington. The Daiiy Telegraph.
LÍKLEGT er, að bandarískum
ríkisstarfsmönnum verði bannað
að reykja í vinnunni, jafnt utan-
dyra sem -innan. Er hér um að
ræða enn eina atlögu Bills Clint-
ons, forseta Bandaríkjanna, að
tóbaksiðnaðinum og þá líka reyk-
ingafólki og búist er við, að hann
undirriti reglugerð þessa efnis fyr-
ir vikulok.
Ekki er bannað að reykja í
Bandaríkjunum en Clinton vill, að
litið verði á tóbakið sömu augum
og önnur fíkniefni. Spá því sumir,
að fljótlega eftir aldamót megi
fara að tala um nýtt bann svipað
því, sem var með áfengið snemma
á þessari öld. Því yrði þó ekki
haldið til streitu með lögunum ein-
um, heldur með að gera reykinga-
fólki lífið leitt á alla lund.
Framfaraspor eða
forsjárhyggja?
Ýmis samtök, sem beijast gegn
reykingum, hafa fagnað ákvörðun
Clintons en sumir aðrir telja hana
enn eina árás Stóra bróður á rétt-
indi þegnanna. Clinton vill sam-
ræma allar núverandi takmarkanir
við reykingum, sem eru með ýmsu
móti, og til dæmis eiga foringja-
klúbbarnir í hernum, sem hafa
verið undanþegnir banni, að verða
reyklausir.
Eins og fyrr segir verður bann-
að að reykja inni í opinberum
byggingum og einnig úti í garði
en leyfilegt verður þó að koma upp
sérstöku reykherbergi ef loftræst-
ingin er góð. Munu þessar reglur
litlu breyta víða, til dæmis í banda-
ríska hermálaráðuneytinu og í
fleiri ráðuneytum þar sem menn
verða nú að velja á milli þess að
reykja eða halda starfínu.
í Bretlandi er áróðurinn gegn
reykingum ekki jafn mikill og í
Bandaríkjunum en ýmis fyrirtæki
þar í landi hafa þó ekki aðeins
bannað starfsfólki sínu tóbak-
snotkun innandyra, heldur einnig
úti fyrir húsinu.
Þannig er það líka á flestum
breskum sjúkrahúsum en þau hafa
mörg komið fyrir sérstöku reyk-
herbergi. Var það ekki síst gert
til að unnt væri að hafa uppi á
sumum starfsmönnunum og jafn-
vel sjúklingum líka.