Morgunblaðið - 08.08.1997, Síða 20

Morgunblaðið - 08.08.1997, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Arabar fagna nýjum tón hjá Albright Jerúsalem, Aiexandríu. Reuter EGYPSKIR og jórdanskir ráða- menn fögnuðu í gær ummælum Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, um deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs. Albright, sem stefnir að því að fara til Mið- Austurlanda í lok ágúst til að reyna að hraða friðarviðræðum, lagði áherslu á mikilvægi þess að deiluaðilar vinni saman en fari ekki út í einhliða aðgerðir. Einnig sagð- ist hún fylgjandi þeirri leið að láta land af hendi fyrir frið. Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, hefur hins vegar varað Palestínumenn við að vænta of mikils í friðarsamningum og lýst yfir andstöðu við að láta af hendi land fyrir frið. Afstaða Bandaríkj- anna er þó talin mikilvæg þar sem Bandaríkin eiga beina aðild að frið- arviðræðunum auk þess sem þau eru helsti stuðningsaðili ísraels. Arafat harðorður Yasser Arafat, leiðtogi sjálf- stjórnarsvæða Palestínumanna, sagði í gær að refsiaðgerðir ísraels- stjómar jafngiltu stríðsyfirlýsingu og talsmaður Fatah, flokksbrots innan Frelsissamtaka Palestínu, sagði samtökin opin fyrir öllum möguleikum. ísraelar brugðust reiðir við ummælunum sem þeir kölluðu stuðningsyfírlýsingu við áframhaldandi hryðjuverk. Sýrlendingar huga að hervæðingu Það eru ekki eingöngu Palestínu- menn sem senda Israelum tóninn þessa dagana. Fyrr í vikunni hvatti málgagn sýrlenskra stjórnvalda arabaríkin til að hervæðast og við útskriftarathöfn á miðvikudag sagði Hikmat Shihabi, háttsettur embættismaður innan Sýrlands- hers, að friðarviðræður séu ekki eina leiðin til að endurvinna Gólan- hæðirnar og að ábyrgð og skyldur sýrlenskra hermanna eigi eftir að aukast á næstunni. Hernumdu svæðin lokuð Mikil spenna hefur verið í sam- skiptum ísraela og Palestínumanna frá því að sprengjutilræði grandaði 13 manns í Jerúsalem í síðustu viku. Auk þess sem ísraelsstjórn hefur fryst allar greiðslur til sjálf- stjórnar Palestínumanna, hefur hún látið handtaka 170 Palestínu- menn og lokað hernumdu svæðun- um. Lokun svæðanna þýðir hrun atvinnu- og efnahagslífs innan þeirra auk þess sem lokunin hindr- ar tugi þúsunda Palestínumanna í að sækja vinnu í ísrael. Sáttatilraunir árangurslausar Ásakanir hafa gengið á víxl á milli ísraela og Palestínumanna og sáttaumleitanir Egypta og Jórdana reynst árangurslausar. Stjórn Net- anyahus hefur sakað Arafat um að líta fram hjá starfsemi hryðju- verkamanna á sjálfstjórnarsvæðun- um. Þá hefur hann hótað því að ísraelar muni ekki standa við gerða samninga herði stjórn Arafats ekki aðgerðir gegn öfgamönnum. Arafat sagði í gær að stjórn sín bæri hvorki ábyrgð á tilræðinu í síðustu viku né tengdist því á nokk- urn hátt. Hann sakaði stjórn Netanyahus um að draga úr líkun- um á friði með aðgerðum sem auki á örvæntingu palestínskra borgara. Egypskir og jórdanskir embættis- menn hafa einmitt varað við því að Arafat sé ekki í nógu sterkri stöðu til að fullnægja kröfum ísra- ela og að aðgerðir ísraelsstjórnar muni einungis veikja stöðu hans og styrkja herská öfl íslamskra harðlínumanna. Þrír þeirra sem lifðu af flugslysið á Guam látnir Of snemmt að segja til um orsakir Agana, Washington. Reuter. BANDARÍSKIR rannsakendur leita nú í flaki Boeing 747-300 þotu suður-kóreska flugfélagsins Korean Air Lines (KAL) að vís- bendingum um orsakir þess að flugvélin fórst. Fulltrúi samgöngu- öryggisráðsins (NTSB) sagði í gær að of snemmt væri að geta sér til um orsakir. Þrír þeirra er komist höfðu lífs af úr slysinu létust á sjúkrahúsi á Guam í fyrrinótt. Tuttugu og sjö af þeim 254 sem voru um borð lifðu af. Flugvélin var á leið frá Seoul í Suður-Kóreu til Guam. Flestir far- þega voru kóreskir og á leið í sum- arfrí eða brúðkaupsferð. Veður var vont þegar komið var til lendingar á Guam, úrhellisrigning og þoka. Ekki mun hafa verið hvasst. Vélin hrapaði í fjallshlíð um fímm kíló- metra frá flugbrautarenda. Þegar hún kom niður rakst hún á olíu- leiðslu og eldur kom upp í henni. Fram hefur komið að aðflugs- tæki á flugvellinum, svonefndur svifhallageisli, sem leiðbeinir flug- mönnum í myrkri eða slæmu skyggni, hafi verið óvirkur vegná viðgerðar. George Black, starfs- maður NTSB, dró í gær úr mikil- vægi þessa. „Það var vel kunn staðreynd að svifhallageislinn væri óvirkur," sagði hann á frétta- mannafundi. Útbúnaður sem þessi er algeng- ur á flugvöllum um allan heim. Ef hans nýtur ekki við geta flug- menn reitt sig á ratsjárgeisla sem veitir upplýsingar um fjarlægð frá brautarenda og síðan er flughæð lækkuð stig af stigi eftir því sem flugvélin nálgast brautina. Þessi aðferð krefst þó betri veðurskilyrða og meira skyggnis en notkun svif- hallageislans. Upplýsingaritar flugvélarinnar, svörtu kassamir svonefndu, bárust til Washington á miðvikudag og hófst þá þegar rannsókn á innihaldi þeirra. Black sagði að ekki væri óalgengt að rannsókn öryggis- nefndarinnar á orsökum flugslysa tæki rúmt ár. Hann nefndi sem dæmi að síðar í þessum mánuði yrði haldinn síðasti fundur ráðsins vegna slyssins er DC-9 þota banda- ríska flugfélagsins ValuJet fórst á Flórída í maí í fyrra. Björgunarsveitamenn hættu í gær leit að líkum í flaki flugvélar- innar til þess að rannsakendur gætu einbeitt sér að leit að vís- bendingum um orsakir slyssins. Talið er að um 100 lík séu enn í flaki vélarinnar. Aðstæður á slys- stað eru erfiðar, flakið liggur dreift um svæði sem vaxið er hnífskörpu grasi og hiti er um 35 gráður. Reuter Einræktaður með nýrri tækni KÁLFURINN sem hér sést ásamt „móður" sinni er einrækt- aður með nýrri japanskri tækni. Með þessari nýju tækni má framleiða allt að 200 nautgripi úr einu frjóvguðu eggi. Japönsk bændasamtök segja þetta mikla framför þar sem með fyrri ein- ræktunaraðferðum hafi einung- is verið mögulegt að framleiða þijá til fjóra kálfa úr hverju eggi- Ibúatala Þýzka- lands nær hámarkí ÍBÚAR Þýzkalands hafa aldrei verið fleiri en nú. Samkvæmt nýj- ustu tölum þýzku hagstofunnar búa nú 82.012.000 manns í land- inu, sem þýðir fjölgun um 195.000 frá árinu 1995, eða 0,2% milli ára. Samkvæmt spá hagstofunnar, Statistisches Bundesamt, hefur íbúafjöldinn náð hámarki sínu. Sérfræðingar hennar gera ráð fyr- ir að á fyrstu áratugum komandi aldar fækki íbúunum jafnt og þétt. Þannig verði íbúafjöldinn kominn niður í 78,4 milljónir árið 2020, 2030 verði hann orðinn 74,3 millj- ónir og árið 2040 muni ekki fleiri en 68,8 milljónir búa í Þýzkalandi, fjölmennasta landi Evrópu utan Rússlands. Ástæðu fjölgunar íbúanna nú er að rekja til innflytjendastraums eingöngu, því árum saman hefur tala nýfæddra í Þýzkalandi verið töluvert lægri en látinna. Hægir á flutningi frá austri til vesturs í tölum hagstofunnar kemur einnig fram, að á árinu 1996 fluttu 166.000 manns frá Austur- til Vestur-Þýzkalands, 14.000 fleiri en fluttust frá vestri til austurs. Á árinu 1991, fyrsta árinu eftir sam- einingu landsins, fluttu 170.000 fleiri frá austri til vesturs en öfugt. Samtals hafa 1,5 milljónir Austur- Þjóðverja flutzt vestur frá samein- ingarárinu 1990. Utsalan í fullum gangi * Tökum upp vörur á hverjum degi «55U 'Toppskóri rinn Toppskórinn við Ingólfstorg sími: 552 1212 ó^'ð áf 9'">ainn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.