Morgunblaðið - 08.08.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚ ST 1997 21
LISTIR
Níilíinainynd-
list og trú
KRISTÍN Reynisdóttir; Skjól, 1997 járn og gler.
MYNPLIST
Skálholtsstaöur
MYNDHÖGGVARA-
FÉLAGIÐ í REYKJAVÍK
Samsýning 17 listamanna,
til 14. október nk.
í UMHVERFI Skálholtskirkju
stendur nú yfir sýningin „Kristni-
taka“. Sautján listamenn hafa
unnið verk í samstarfi Mynd-
höggvarafélags Reykjavíkur,
Skálholtsstaðar og Skálholtsskóla.
Sýningin er sett upp til að vekja
umræður um list og trú í sögulegu
samhengi, nú þegar líður að þús-
und ára afmæli kristnitökunnar í
landinu. Gömul og ný gildi trúar-
innar eru skoðuð í samtímanum í
ljósi fortíðarinnar og fara lista-
mennirnir ólíkar leiðir í útfærslu
verka sinna.
„Þér eruð salt jarðar“ er titill á
verki Hans Bruckner, fengin úr
Nýja textamentinu, Mt.5,13. Text-
inn er þræddur í himinbláan fána
með hvítum stöfum á þýsku.
Fáninn blaktir við hún í heim-
keyrslu Skálholts og veðrast á ljóð-
rænan hátt. Sólveig Eggertsdóttir
hefur sett upp áletruð umferðar-
skilti með boðorðunum tíu, á víð
og dreif um svæðið. Hún kallar
verk sitt „Ný umferðarlög, sam-
þykkt á Alþingi íslendinga árið
1000“. Opinber almenningsskilti
verða á vegi gesta staðarins og
minna á boðorðin og þjóna því
nýjum tilgangi í framsetningu
Sólveigar. Finna B. Steinsson leit-
ast við að tengja fortíð við nútíð
í verki sínu „Saltarinn“. Þijú
blá/hvít skilti sýna stækkaða
myndskreytingu saltbauka, af
dreng sem stráir niður salti. I stað
lýsinga á gæðum saltsins yfirfærir
Finna texta úr Biblíunni, Laxdæla
sögu og frásögn úr íslenskri þjóð-
sögu á skiltin. í verki Finnu er
nútímamyndmál algengrar neyslu-
vöru notað sem upplýsingamiðill
um tengsl trúar og sögu á óform-
legan hátt. Kristín Reynisdóttir
byggir verk sitt „SkjóT' á kross-
tákninu. Uppistaða úr járnkrossi
með fjórum háum glerveggjum
mynda skjól fyrir veðri úr öllum
áttum. Staðsetning verksins er
valin á hæð þar sem er vítt út-
sýni, skammt frá Skálholtskirkju.
Umgjörð verksins er látlaus og
stílhrein, krossinn myndar skjól
og vísar um leið á kirkjuna sem
griðastað. Inga Jónsdóttir hefur
sett upp skilti úr plexigleri í járn-
ramma í rústum fjárhúss. Skiltið
er þakið myndarömmum úr sjón-
varpsfréttum RÚV af málefnum
kirkjunnar og hefur titilinn „Boð-
berar“. Inga kastar ljósi á starfs-
semi og hlutverk kirkjunnar bæði
innan og utan hennar, frá ýmsum
sjónarhornum. Hver mynd segir
sína sögu og getur áhorfandinn
púslað saman sýnishornum eftir
minni og rifjað upp málefni síð-
ustu ára á gagnrýninn hátt. Hann-
es Lárusson deilir á siðferði í verki
sínu „Tjald og mötukassi" þar sem
hlutirnir snúast um að svala hvöt-
um mannsins án þess að afhjúpa
persónu hans.
Hér er lagt upp með fjölþætta
sýningu og er ástæða til að hvetja
fólk að heimsækja staðinn. Aðrir
sem eiga verk á sýningunni eru
Guðjón Ketilsson, Páll Guðmunds-
son, Valka, Kristinn E. Hrafnsson,
Ólöf Nordal, Sólrún Guðbjörns-
dóttir, Þóra Sigurðardóttir, Svava
Björnsdóttir, Anna Eyjólfsdóttir,
Jón Sigurpálsson og Halldór Ás-
geirsson.
Hulda Ágústsdóttir
Islenska
einsöngs-
lagið
Á GÖNGUM Gerðubergs hljóma nú
einsöngsraddir, en verið er að und-
irbúa Ljóðatónleika Gerðubergs. Yf-
irskrift þeirra er að þessu sinni ís-
lenska einsöngslagið. Tónleikarnir
verða haldnir 16. ágúst kl. 14.30 á
stóra sviði Borgarleikhússins í
tengslum við Menningarnótt Reykja-
víkurborgar.
Söngvararnir sem fram koma á
tónleikunum eru átta: Björn Jónsson
tenór, Gunnar Guðbjörnsson tenór,
Elsa Waage alt, Finnur Bjarnason
baríton, Hanna Dóra Sturludóttir
sópran, Ingveldur Yr Jónsdóttir
mezzósópran, Judith Gans sópran
og Þóra Einarsdóttir sópran. Jónas
Ingimundarson leikur með á píanó,
en hann hefur einnig undirbúið og
tekið saman alla dagskrá tónleik-
anna.
Á efnisskrá er að finna þverskurð
af íslenskum einsöngsperlum eftir
mörg helstu tónskáld okkar frá lok-
um síðustu aldar fram til okkar tíma.
Forsala aðgöngumiða er þegar
hafin í Borgarleikhúsinu.
r \
BIODROGA
Jurtasnyrtivörur
Enn meiri verðlækkun
Nú á allt að seljast
- fyrirfiölskHldima-