Morgunblaðið - 08.08.1997, Síða 30

Morgunblaðið - 08.08.1997, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 AÐSEIMDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Ennum Njáluhöfund í GREIN, sem birt- ist eftir mig í Mbl. þ. 27. júlí sl., gat ég þess m.a. að rannsóknir á staðfræði Njálu bentu til þess að höfundur hennar hafi verið kunnugur á Aust- urlandi og víða gagn- kunnugur þar. Þessi fullyrðing hefur greinilega farið fyrir bijóstið á M. höf. Helgispjalls, því í sama blaði segir hann: „Þegar rætt er um Njálu festa menn sig oft í orðalag um áttir og staðhætti og full- yrða að það segi söguna um höfund- inn. Slíkt er harla varhugavert og segir raunar ekkert um höfundinn, heldur ýmislegt um afritara hand- rita. Sunnlenzkur afritari kemst öðruvísi að orði en Vestfirðingur, svo að dæmi sé tekið. Afritarar hafa breytt orðalagi og farið eftir málvenju í heimahéraði sínu án þess að það segi neitt um það, hvernig höfundur komst að orði í frumtexta sem er glataður. Þessi fræði eru hin óáreiðanlegustu og óvarlegt að leggja útaf þeim.“ Síðar í greininni segir hann: „Menn eiga því að gjalda varhug við að leggja of mikið uppúr stað- fræði og áttavísunum í fornsögum, ekki sízt Njálu þar sem mikill mun- ur er oft milli handrita." Það er rétt hjá M. að oft kemur fyrir að orðalagi í handritum er breytt og í stað þess kemur staðbundin mál- venja ritara. En það er alveg útí hött að gera staðfræðirannsóknir tortryggilegar þótt af- ritarar eigi það til að breyta orðalagi yfir í eigin málvenju. Ef hins- vegar það á við rök að styðjast að það sé mik- ill munur á staðfræði milli handrita Njálu, get ég ekki betur séð en að staðfræðirannsóknir á henni hafi verið vita til- gangslausar. Enda myndu þær aðeins gefa okkur vísbendingu um hvar á landinu hinir ýmsu afritarar væru kunnugir. Hér á eftir mun ég taka til með- ferðar þessa furðulegu fullyrðingu M. að það sé varhugavert að leggja of mikið upp úr staðfræði Njálu, enda sé oft mikill munur á milli handrita þar. Ég mun leiða rök að því að þessi staðhæfing sé alveg útí bláinn. Það hefur verið ritað margt um staðþekkingu Njáluhöfundar. Fræðimenn hafa jafnan talið að staðfræðin veitti vitneskju um upp- runa hins ritaða verks og heim- kynni höfundarins. Þess vegna hef- ur löngum verið lagt mikið upp úr staðfræðirannsóknum. Rannsóknir á staðfræði Njálu hafa farið fram um langt skeið, en þær eiga að sýna hvar höfundur hefur verið gagnkunnugur, en það Ólafur Guðmundsson 3200 MB Quantum harður diskur 15" TARGA hágæða skjár ATI Xpressions PCI skjlkort 16 hraða geisladrif Sound Blaster 32 hljóðkort 240W hátalarar 33.6 mótald með faxi Windows 95 Auk þess fylgja með Lon og Don 6 fslenskir leikir, 2 mánaða Intcrnctáskrift hjá Margmiðlun hf., Internetkynning hjá Xnet og 50% afsláttur af einu tölvu-* ;‘i námskeiði hjá Xnet I VINNSLUMINNI FÁRÁ MLEGT, Grensásvogi 3 • Sími 588 5900 • www.bttoivur.is Svæðisleiðsögu- menn leiðbeina ferðafólki gæti gefið vísbendingu um hvar hann hafi dvalið til langframa. Veil- ur í staðþekkingu gætu bent til þess, að þar hafi höfundur ekki dvalið langdvölum. Staðfræðirann- sóknir geta auðvitað ekki sannað hver hafi ritað Njálu, en þær geta útilokað mann eða menn, sem nefndir hafa verið í þessu sambandi. Fræðimenn þeir, sem um Njálu hafa íjallað, eru nær undantekning- arlaust þeirrar skoðunar að höfund- ur Njálu hafi verið í nánum tengsl- um við Austurland. Guðbrandur Vigfússon segir í inngangi að Sturlungu útgáfu sinni (Prolegomena 1878) um höfund Njálu: Staðfræðirannsóknir, segir Olafur Guð- mundsson, geta auðvit- að ekki sannað hver hafi ritað Njálu. „Hann hefur búið í Austfirðinga- fjórðungi austanverðum .. . ... Það eru staðfræðivillur hjá hon- um á Vestur- og Suðurlandi." Barði Guðmundsson (höfundur Njálu 1958) fullyrti að höfundur væri austfírskur. Hermann Pálsson: (Uppruni Njálu og hugmyndir. 1984.) „Stað- þekking höfundar bendir austur í Skaftafellsþing") Sigurður Nordal: (Um ísl. forn- sögur. 1968.) „Njáluhöfundur hefur verið í talsverðum tengslum við Austurland." Lars Lönrotta: (Njáls saga - A critical introduction.) „Það er aug- ljóst að hann skrifaði söguna á yfir- ráðasvæði Svínfellinga.“ Einar Ól. Sveinsson (Formáli að Brennu-Njáls sögu 1954) telur Njáluhöfund hafa verið austfirskan. Hann segir: „Aftur á móti tel ég réttmætt að telja að staðþekking hans i Skaftafellsþingi benti til langdvalar þar. Hann hefur sýni- lega þekkt rit, sem voru upprunnin þar og má það benda á hið sama.“ Það er eftirtektarvert að þessir ofangreindu fræðimenn, sem byggja álit sitt að miklu leyti á stað- fræðirannsóknum, eru allir fullviss- ir þess að Njáluhöfundur hafi verið í tengslum við Austfirði, og víða nákunnugur þar. Með hliðsjón af því, sem M. hef- ur sagt að það sé varhugavert að leggja of mikið uppúr staðfræði, ekki sist í Njálu, þar sem mikill munur sé oft milli handrita, hlýtur sú spurning að vakna hvort álit þessara þaulreyndu fræðimanna hafi ekki verið byggt á ótraustum grunni. Til þess að fá svar við spurning- unni um áreiðanleika handrita Njálu fór ég í smiðju til Einars Ó. Sveins- sonar, en ég hygg að það sé ekki á neinn hallað þótt maður segi að rannsóknir þessa varkára vísinda- manns á handritum Njálu séu í fremstu röð. Einar Ólafur segir: (Skírnir 1952) „Nokkuð öðru máli gegnir um Njálu. Elstu handritin, sem varðveitt eru, munu ekki vera nema svo sem 20 árum yngri en frumrit- ið, og þau eru 5, en á næstu hálfri öld bætast álíka mörg við. Kalla má, að texti þeirra allra sé líkur, að minnsta kosti borið saman við önnur fornrit. Texti þeirra er ekki grunsamlegur, virðist ekki benda á stórvægilega brenglun. Að þessu athuguðu virðist mega fullyrða: Frumtexti sögunnar er, ef svo má að orði kveða, í handritunum, ef við kunnum ráð til að finna hann.“ Mér sýnist þetta vera nokkuð afdráttarlaust svar. Þeim handrit- um Njálu, sem útgáfur eru byggðar á, er fullkomlega treystandi. Annað mál er svo það, hvaða rökstuðning M. hefur fyrir þeirri fullyrðingu að staðfræði í handrit- um Njálu sé lítt treystandi. Lúrir hann á einhverju, sem farið hefur fram hjá Einari Ólafi? MIKLAR breytingar hafa orðið á ferðalögum fólks hér innanlands á síðustu áratugum, ekki síst síðasta áratug. Áður fóru fjölskyldur með tjöld og svefnpoka og tjölduðu í birkilaut, helst við lítinn læk eða ársprænu. Þeir sem voru svo heppn- ir að eiga vini eða ættingja á við- komustöðum gistu hjá þeim nótt og nótt. Með tilkomu hringvegarins fóru fjölskyldur hring- inn og reyndi hver sem betur gat að setja hraðamet á þeirri leið. Með aukinni jeppaeign landsmanna var æ meira leitað inn á óbyggðasióðir. Áður var lítið um af- þreyingu fyrir ferðafólk, aðallega byggðasöfn og sundlaugar. Byggða- söfnin voru oft því marki brennd að þau líktust helst geymslustöðum, þar sem sjá mátti nokk- ur eintök af sams konar áhöldum eins og strokkum eða öskum sem voru rækilega merktir gefendum og tiltekið á hvaða bæ gefundur höfðu átt heima. Lítið var um útskýr- ingar hvernig áhöldin og verkfærin voru notuð áður fyrr, svo að lítið varð úr fræðslu fyrir yngri kynslóðina nema afar og ömmur væru með í ferð eða foreldrar í fjölskylduferðinni þekktu til gamalla verkhátta. Svo var ekki alltaf ef foreldrarnir höfðu alist Upplagt er, segir Birna G. Bjarnleifsdóttir, að leita til næstu upp- lýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn. upp í þéttbýli. Oft kom fyrir að sund- laugamar voru aðeins opnar fyrir hádegi eða um miðjan dag, en ekki að kvöldi þegar ferðamennirnir voru mættir á staðinn. Nú hafa mörg byggðasöfn merkt safngripina með fræðandi textum og myndum, sennilega eftir að skóla- börn fóru að heimsækja söfnin reglu- lega. Og stjórnendur sundlauga hafa komið til móts við þarfir ferðamanna með því að hafa opið lengur fram eftir kvöldi. Einnig hafa risið víða um land alls konar söfn og miðstöðv- ar, fræðasetur og sögusetur þar sem hægt er að fræðast um afmörkuð efni, ákveðið eldfjall, ákveðna ís- Iendingasögu, lífið i sjónum, ákveð- inn rithöfund og svo mætti áfram telja. Auk þess eru í boði alls konar ferðir og sýningar og ný lína í minja- gripum hefur litið dagsins ljós. Þegar fjölskyldan fór í sumarfrí hér innanlands áður fyrr var lítið spáð í eitthvað sem hét ferðaþjón- usta. Fjölskyldan fór einfaldlega í ferðalagið til að breyta um um- hverfi, heimsækja ættingja eða skoða landið. Nú hafa bændur víða um land reist gistirými fyrir ferða- menn, bensínsölurnar fylla ekki ein- göngu bensíntanka bílanna af bens- íni heldur einnig maga ferðamanna með pylsum, kjúklingum og frönsk- um. Starfsfólk sumra þessara staða hefur sótt námskeið til að læra að þjóna ferðamönnum. Brýnt er fyrir því að það sé að vinna í þjónustu- grein sem kallast ferðaþjónusta. Aukin ferðaþjónusta hefur bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar, bæði hvað snertir atvinnu, umhverfi, menningu og fleira. Bæði fyrir ein- staklinga og viðkomandi sveitarfélög. Einn af jákvæðum þáttum ferðaþjón- ustunnar er að við getum fræðst um leið og við ferðumst. Með því að heim- sækja söfn og sýningar í annarri byggð en okkar eigin getum við fræðst um skáldið sem þar bjó eða fólkið sem þar átti heima. Með aukn- um samskiptum fólks sem ferðast úr þéttbýli í dreifbýli eða öfugt fræð- umst við um lífshætti fólks í öðrum landshlutum. Það getur stuðlað að gagnkvæmum skilningi, aukinni samheldni og samkennd. Því er mikilvægt að það starfsfólk sem vinn- ur á söfnum og fræða- setrum, bæði í Reykjavík og úti um land, þekki staðreyndir um það sem verið er að sýna og geti ekki eingöngu tjáð sig á frambærilegri íslensku heldur einnig á erlendum tungumálum við þá er- lenda ferðamenn sem heimsækja staðinn. Á þessu er því miður mikill misbrestur þó að sums staðar sé þetta starf vel af hendi leyst. I fyrra- sumar heimsótti ég safn eitt þar sem áður bjó þjóðþekkt skáld. Starfs- stúlkan þar vissi hreinlega ekkert um skáldið, hvorki ævi né ritverk, og þeir gestir sem þangað komu voru jafnnær eftir heimsóknina. Aðeins pyngja þeirra var léttari. í sömu ferð heimsótti ég annað safn og þar þekkti starfsstúlkan ævi og ritverk manns- ins sem þar hafði búið og miðlaði upplýsingum af lýsandi ánægju og áhuga. Þar var mikill munur á. Ný- lega kom ég í Reykholt og skoðaði sýningu í Snorrastofu. Ánægjulegt var að heyra hvað starfsstúlkan þar var kunnug ævi Snorra, ritverkum hans og sögulegum staðreyndum. Mig langar að vekja athygli á ein- um þætti ferðaþjónustunnar í dreif- býlinu sem stuðlar að aukinni fræðslu, en hefur ekki verið kynntur nægjanlega ferðamönnum að mínu mati. Það eru svæðisleiðsögumenn sem starfa á hinum ýmsu svæðum landsins. Undanfarinn áratug hafa verið haldin námskeið í nær öllum kjördæmum landsins, þar sem nem- endur hafa kynnt sér ýmsan þjóðleg- an fróðleik í sínu kjördæmi. Nem- endur hafa lært um jarðfræði kjör- dæmis síns, sögulegar staðreyndir, plöntur og dýralíf, atvinnuvegi, bók- menntir og ferðamannastaði al- mennt. Svæðisleiðsögumennirnir hafa gengist undir próf, bæði munn- leg og skrifleg, og eru reiðubúnir að fræða þá ferðamenn sem heim- sækja þeirra landsvæði og hafa áhuga á að fræðast um það nánar. Þeir sem ferðast um ókunnar slóð- ir hafa jafnan áhuga á að kynnast lífsháttum fólks á viðkomandi svæði. Hvernig lífi lifir það fólk sem þar býr? Hvaða atvinnu stundar það? Hvernig er með samgöngur á vet- urna? Er fólkið einangrað? Eru þar skólar fyrir börnin og unglingana? Er erfitt að fá kennara til starfa? Eru iæknar til staðar ef fólk veikist? Hefur fólk hitaveitu? Er hún dýrari en heima hjá gestinum? Þessar spurn- ingar og aðrar álíka leita á hugann. Ekki eru allir ferðamenn svo heppnir að þekkja einhvern heima- mann og geta rakið úr honum garn- irnar. Þá er upplagt að leita til næstu upplýsingamiðstöðvar fyrir ferða- menn og athuga hvort ekki sé hægt að komast í ferð með svæðisleiðsögu- manni á þessu landsvæði, fá hann með sér í gönguferð eða í bílinn með sér í skoðunarferð. Svæðisleiðsögu- menn kynna sér ekki þjóðlegan fróð- leik eingöngu fyrir sjálfa sig heldur eru þeir reiðubúnir að miðla honum áfram til annarra, áfram til ferða- manna sem sækja þá heim og þar með til komandi kynslóða. Þannig getur ferðaþjónustan stuðlað að varð- veislu þjóðlegrar arfleifðar og jafn- framt aukinni víðsýni og samkennd meðal þjóðarinnar þegar vel tekst til. Birna G. Bjarnleifsdóttir Höfundur erfv. bnnkaútibússijóri. Höfundur er leiðsögumaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.