Morgunblaðið - 08.08.1997, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 08.08.1997, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 35 MINIMINGAR ESTER SVAN JÓNSDÓTTIR + Ester Svan Jónsdóttir fæddist á Norðfirði 20. janúar 1925. Hún lést á Borgar- spítalanum í Reykjavík sunnu- daginn 3. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Petrún Björg Gísladóttir og Jón Sigfússon. Systkini Esterar sammæðra voru 11 og eru fjög- ur þeirra á lífi. Systkini hennar samfeðra voru 5 og eru 3 þeirra á lífi. Eiginmaður Esterar er Sigurfinnur Ólafs- son húsgagnasmíðameistari og eiga þau einn son, Gunnar, sem kvæntur er Unu Sveinsdóttur og eiga þau 4 börn. Ester verð- ur jarðsungin frá Fossvogs- kirkju í dag klukkan 15.00. Ester frænka er dáin. Með henni er gengin ein skemmtilegasta og hlýjasta manneskja sem við höfum þekkt. Við eigum henni margt að þakka og líf okkar hefði verið fá- tækara án hennar. Ester var móðursystir okkar og bjó „fyrir sunnan" frá því að hún var ung kona. Maður hennar er Sigurfinnur Ólafsson, sem stóð sem klettur við hlið hennar alla tíð, hlýr og elsku- legur maður, sem við metum mikils. Það var alltaf jafn spennandi þegar við vorum krakkar og ung- lingar heima í Neskaupstað þegar fréttist að nú væri von á Ester frænku austur. Það var fylgst vandlega með skipafréttunum og stundirnar taldar þar til Esja eða Hekla kæmi til Norðfjarðar, eins og sagði alltaf í skipafréttunum. Með Ester frænku kom sólskinið, hvemig sem viðraði og dagarnir hjá ömmu í Enni voru fullir af lífi og fjöri. Að jafnaði var gestkvæm- ara en ella í Enni þegar Ester var fyrir austan því fólk sóttist eftir samvistum við hana. Léttur hlátur- inn var smitandi og frásagnarhæfi- leikarnir stórkostlegir og öllum leið vel í návist hennar. Árin liðu og hlutirnir snerast við, nú vorum það við sem sóttum Ester frænku heim í Reykjavík eða Kópavoginn og fyrir okkur var alltaf pláss og allt- af vorum við jafn velkomin. Það verður ekki á neinn hallað þótt sagt sé að gestrisni hennar og ást- úð hafi ekki átt sinn líka. Hvenær sem okkur bar að garði, voru mót- tökurnar jafn stórfenglegar og það var ekki bara kaffisopi sem á borð var borinn, ó nei, það var veislu- borð á hvaða tíma sólarhringsins sem var og það var alltaf pláss fyrir ættingjana að austan, sama hversu húsnæðið var lítið. Og það var ekki aðeins pláss fyrir okkur, það var líka pláss fyrir vinina og síðar meir börnin okkar þegar þau þurftu húsaskjól syðra. Við gátum treyst á að Ester vissi hvar börnin okkar var að finna; ef þau voru ekki hjá henni þá voru þau væntan- leg og hún kom því örygglega til skila ef þau þyrftu að hafa sam- band heim. Hjá Ester frænku áttu þau, eins og við, öruggt skjól. Þrátt fyrir að Ester hafi ekki gengið heil til skógar síðustu árin, glataði hún ekki léttleika sínum og á stuttri banalegu var hann enn til staðar. Við viljum með þessum fá- tæklegu orðum þakka henni fyrir allt. Elsku Siggi, Gunnar, Una og barnabörn, við sendum ykkur okk- ar innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu Esterar frænku. Ríkey, Elma og Friðrik. Mig langar til að kveðja kæra vinkonu mína með nokkrum orðum. Við Ester urðum vinkonur 16 ára gaml- ar og ávallt síðan eða í nær 60 ár. Engri manneskju var eins gaman og auðvelt að hlæja með og það jafnvel mitt í miklum erfið- leikum. Hún hafði svo smitandi hlátur, að ég tali nú ekki um prakkarasvipinn sem fylgdi með. Já, það var gaman að vera nálægt henni Ester og hlýjan streymdi frá henni. Hún mátti aldrei neitt aumt sjá og barngóð var hún alveg sér- staklega, enda hændust börn mjög að henni. Það var mikil sorg fyrir hana að geta ekki eignast eigin börn, en hún og Siggi maðurinn hennar ættleiddu einn son, Gunn- ar, sem var þeim mikill gíeðigjafi svo og barnabörain fjögur. Ester hafði átt lengi við veikindi að stríða og tók þeim með ótrúlegu æðru- leysi. Hún var frekar upptekin af veikindum annarra en_sínum eigin, það lýsir henni vel. Ég vil þakka þér, vinkona mín, fyrir samveruna öll þessi ár; Megi guð blessa þig. Ása Hjálmarsdóttir. Mig langar að minnast frænku minnar með örfáum orðum. Ester ólst upp í stórum systkinahópi fyrr á öldinni í Neskaupstað og bjó síð- ar í Reykjavík. Hjá henni sannaðist best að þar sem er hjartarúm er húsrúm. Það mæddi mikið á henni og hennar heimili þegar við systk- inabörnin lögðum leið okkar að austan til Reykjavíkur til lengri eða skemmri dvalar. Óhætt er að segja að þar var hinn fasti punktur og víst er að henni þótti sælla að gefa en að þiggja. Það er ómælt hvað hún lagði á sig til þess að leiðbeina okkur og tryggja velferð okkar. Persónulega á ég Ester mikið að þakka, því ekki var látið staðar numið eftir að ég hafði náð áttum í stórborginni og var orðin veraldar- vön. Þá tók við endalaus umhyggja fyrir allri fjölskyldunni minni og látlaus þörfin til þess að láta af hendi rakna. Lítið dæmi en minnis- stætt er þegar ég þurfti að leggj- ast á sjúkrahús í Hafnarfirði fyrir 33 árum síðan. Dóttir okkar hjón- anna var þá 8 mánaða gömul. Est- er og Siggi lögðu á sig að sækja hana til mágkonu minnar, fara með hana heim til sín til þess að klæða hana upp í fínan kjól og halda síð- an í sjúkraheimsókn á spítalann í Hafnarfírði. Allar ferðirnar voru í strætó og hefur þessi sjúkravitjun eflaust tekið stærstan part af sunnudeginum. Svona var allt hennar líf, hún gaf endalaust af sér og hirti lítið um hvað kom í staðinn. Óhjákvæmilega hlýnar manni við tilhugsunina að hafa átt þess kost að ferðast í gegn um líf- ið með fólki eins og Ester. Siggi minn, við hjónin biðjum guð um að vera með þér í sorg þinni. Frænku mína kveð ég með orðum séra Valdimars Briems: Far þú í friði, Friður pðs þig blessi, Hafðu þökk fyrir alit og allt. Emilía Jónsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasið- um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega linulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grcinunum. Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum SIGURBJÖRN Bárðarson vann sinn þriðja heimsmeistaratitil í gæðingaskeiði í röð á Gor- don frá Stóru-Ásgeirsá í fyrradag og er í B úrslitum í fimmgangi og vel inni í keppninni um stigahæsta keppanda mótsins. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson ATLI Guðmundsson á Hróðri frá Hofsstöðum er nú í fremstu víglínu í fimmgangi og freistar þess að ná HM titlinum á sunnudag í úrslita- keppninni. Spennan í algleymingi Besti árangur íslendinga í forkeppni fjórgangs til þessa LOKSINS er raunhæfur möguleiki á sigri í fjórgangi þegar Styrm- ir Árnason á Boða frá Gerðum náði öðru sætinu í forkeppni eft- ir góða sýningu í gær. HÖSKULDUR Jónsson á Þyti frá Krossum er kominn í A úrslit i fjórgangi og mun gera atlögu að titlinum á sunnudag. HESTAR GLEÐI og örlítil vonbrigði voru hlut- skipti íslendinga á heimsmeistara- mótinu í Seljord í Noregi í gær. Frammistaða íslendinga í fíórgangi reyndist betri en vænst var en nið- urstaðan í fimmgangi varð heldur lakari en búist var við. Öllum á óvart skaust Bandaríkjamaðurinn Will Co- vert í efsta sætið á Dyni frá Ytra- Skörðugili en Atli Guðmundsson er efstur Islendinga á Hróðri frá Hof- stöðum. Það sem hinsvegar gladdi var að Styrmir Ámason á Boða frá Gerðum var í efsta sæti fjórgangs þar til síðasti keppandinn Irene Re- ber Þýskalandi lauk keppni á Kappa frá Gerðum. Hlaut hún 7,40 í ein- kunn en Styrmir var með 7,13 sem virtist óeðlilegur munur því sýning- amar voru mjög svipaðar að gæðum. Hefur þar munað því Styrmir var 12. í röðinni í keppni af 39 keppendum. Var greinileg stígandi í einkunnum eftir því sem leið á keppnina eins og algengt er að gerist. Jafnir í þriðja sæti eru Höskuldur Jónsson á Þyti og Martin Guldner Þýskalandi á Hugarburði frá Guggenberg með 7,10 og jöfn í fímmta sæti eru Unn Kroghen Noregi á Hruna frá Snartar- stöðum og Sveinn Hauksson sem keppir fyrir Svíþjóð á Hrímni frá Ödmarden með 7,07. Vignir Siggeirs- son á Þyrli frá Vatnsleysu er í tíunda sæti með 6,5 og hefur því möguleika á að vinna sig upp í B úrslitunum þótt ekki virðist það líklegt á þessari stundu. Tveir íslendingar í A úrslitum í öðru og þriðja sæti og einn í B úrslitum er framar björtustu vonum um árangur í ijórgangi. Athygli vakti slök frammistaða heimsmeistarans fyrrverandi Bemd Viths frá Þýskalandi sem keppti á sínum gamla hesti Röðli frá Gut El- lenbach en þeir höfnuðu í 12. sæti. Páll Bragi Hólmarsson hafnaði í 13. sæti á Hrammi frá Þóreyjarnúpi og þykir mörgum sem skörð séu farin að myndast í hið óvinnandi fjórgangs- vígi Þjóðverja. Bandaríkin komin á blað Atli Guðmundsson og Hróður skut- ust á toppinn í fimmgangi eftir prýði- lega sýningu en Sigurbimi Bárðar- syni hafði ekki gengið eins vel á Gordon frá Stóru-Ásgeirsá en náði þó inn í B úrslit, hafnaði í áttunda sæti með 6,33. Stuttu síðar kom Bandaríkjamaðurinn með feiknagóða sýningu á Dyni og skaust í efsta sætið. Karly Zingsheim Þýskalandi skaut Atla aftur fyrir sig með mis- heppnaðan skeiðsprett að hiuta á annarri langhlið en hlaut 6,87 en náði ekki fyrsta sætin af Will Co- vert. Síðasta og bjartasta von íslend- inga Sigurður V. Matthíasson á Hug- in frá Kjartansstöðum kom síðastur inn á en náði ekki toppsýningu og hafnaði í fjórða sæti með 6,68. Dorte Rasmussen Danmörku á Gneista frá Busbjerg hafnaði í fimmta sæti með 6,53. Þrír íslendingar eru í B úrslit- um, Gylfí Garðarson sem keppir fyr- ir Noreg á Vals frá Gerðum er sjötti með 6,47 ásamt hollensku dömunni EIs van der Tas á Hilmi frá Skjóðu, Sigurbjörn áttundi með 6,33 og Há- kon Pétursson sem keppir fyrir Ítalíu er níundi á Draupni frá Sauðárkróki með 6,20. í tíunda sæti er Norðmað- urinn Bjöm R. Larsen á Stelpu frá Brekkum með 6,07. Harður róður á öllum vígstöðvum Þótt ekki sé hægt að segja að stað- an sé slæm þá er þetta ekki drauma- staðan í fímmgangi, spurningin er sú hvort Atla eða Sigurði V. takist að knýja fram sigur T úrslitum. Þar verður á brattann að sækja því ef allt gengur upp hjá Karly Zingsheim verður hann þungur í skauti en svo er engan veginn útilokað á sá banda- ríski haldi sigursætinu og yrði það vissulega illskárri kostur en að missa titilinn til Þýskalands. Sigurður Sæ- mundsson og Sigurður Marínusson aðstoðarmaður hans voru vígreifir þegar rætt var við þá að keppni iok- inni í gær. Sagði sá fyrrnefndi að nú loksins væri raunhæfur möguleiki á sigri í fjórgangi og keppnin í fimm- gangi væri einungis hálftiuð. Reikn- uðu þeir alveg eins með því að gamli refurinn Sigurbjöm myndi vinna sig upp í A úrslit og þá færi nú að fær- ast fjör í leikinn á sunnudag þegar úrslitin færu fram. Þá bentu þeir á að Feykir, hestur Karlys, væri oft mjög erfiður í úrslitum og einnig kæmi í ljós hvort reynsluleysi Will Coverts yrði honum að falli. Þetta væri í raun galopið og hörkuspenn- andi. í dag mun koma til kasta Loga Laxdal og Sprengju-Hvells en dag- skráin hefst með 250 metra skeiði. Þá verður opnunarathöfn þar sem heiðursgestur mótsins frú Vigdís Finnbogadóttir mun heiðra samkom- una með nærveru sinni. Að henni lokinni hefst forkeppni í tölti og verða þá línur i stigakeppni mótsins famar að skýrast. Veðrið var samt við sig á mótsstað í gær, logn og léttskýjað og hitinn upp undir þq'átíu stig. Þyk- ir mörgum nóg um. Athyglisvert er hversu vel hrossin bera sig undir álagi í svo miklum hita og sýnir vel góðan aðlögunarhæfileika íslenska hestins. ^ Valdimar Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.