Morgunblaðið - 08.08.1997, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Nú kr. 1990
Með OSRAH Dulux EL qetur þú sparað allt að kr. 4.700
Soluaðilar
Arvirl
virkinn Selfossi
Bygat oa búið Reykjavík
BYKU Kópavogi
BYKO Hafnarfírði
BYKO Reykjavík
Geisli Vestm. eyjum
KEA Rafl.deild Akureyri
Ljós & Orka Reykjavík
Lónið Höfn
Magasín Reykjavík
R.O. Rafbúð Keflavík
Radiovinnustofan Akureyri
Rafbúðin Álfask. Hafnarfírði
Rafþj. Sigurdórs Akranesi
Segull Reykiavík
Siemensbgðin Akureyri
Straumur Isafirði
Sveinn Guðmundsson Egilsst.
Mánaðartilboð
1.08.97 - 01.09.97
20%
af matarfötum
áður tiu!
Hvíta stellið 40 cm fat fer. 6.425, &r. §.140
Menuett 36 cm fat.......fer. 6.670, Isr. §.3S@
Clio/Cantata 39 cm fat..fer. 11.600, fer. $.280
Mokkasett 6 manna.......kr. 23.050, fer. ll.§2§
Eldföst mót.........................“50%
DONALDS
við Faxaíen - Suðurlandsbraut 52
Sími 553 6622
5'
Srtur Nielsen
y
VELVAKANDI
Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-13 frá mánudegi til föstudags
Netfang: elly@mbl.is
Athyglisverð
auglýsing
SVAVAR hafði samband
við Velvakanda og vildi
hann lýsa yfir ánægju sinni
með atvinnuauglýsingu
sem birtist í Morgunblað-
inu fyrir nokkru frá banda-
ríska sendiráðinu. Það sem
honum þótti athyglisvert
við auglýsinguna, og hann
segist ekki hafa séð í aug-
lýsingu frá íslenskum aðil-
um, var að talað var um í
auglýsingunni að ekki
skipti máli hjá umsækjend-
um hver trúarbrögð, litar-
háttur eða aldur þeirra
væri. Vildi hann að íslensk-
ir auglýsendur tækju sér
þetta til fýrirmyndar.
Góð fiskbúð
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi: „Mig langar til
að lýsa ánægju minni rneð
fiskbúðina í Nethyl 2. Ég
hef aldrei komið í fískbúð
þar sem allt er svona 1.
flokks. Þegar komið er inn
i búðina berst á móti manni
fersk lykt, allt er mjög
snyrtilegt og kæliborðið
mjög girnilegt. í kæliborð-
inu er mikið úrval af fiski
og unnum fiskvörum og
þjónustan í búðinni er til
fyrirmyndar."
Ánægður viðskiptavinur.
Fyrirspurn
FYRIR u.þ.b. tveimur
árum heyrði ég um unga
konu sem saumaði glugga-
tjöld úr sparikjólum. Ég
hef mikinn áhuga á að
hafa samband við konu
þessa, mig minnir að hún
byggi við Lokastíg eða á
því svæði. Ég bið hana eða
einhvern, sem þekkir hana,
að hringja í síma
482-1091.
X-Files þættir
KRISTÍN hafði samband
við Velvakanda og er hún
að leita að þáttum af
X-Files, sem sýndir voru á
Sýn 27. júlí og 3. ágúst.
Þættirnir eru nr. 29 og 30.
Ef einhver getur liðsinnt
henni og lánað henni upp-
töku af þáttunum þá vin-
samlega hafið samband í
síma 557-8986.
Tapað/fundið
Demantshringur
tapaðist
ÞÝSK kona á ferðalagi í
Borgarfirði tapaði dem-
antshring í Borgarfirðin-
um, annaðhvort á Lýsuhóli
eða í Hymunni. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 554-5545.
Barnaúlpur
týndust
GRÆN barnaúlpa, á 4 ára,
tapaðist í Mjódd í júní og
marglit, rauð, blá og gul
nælonúlpa, á 4 ára, tapað-
ist í vesturbænum í lok
júlí. Þeir sem hafa orðið
varir við úlpurnar eru
beðnir að hringja í síma
561-2107, Ingibjörg.
Barnatvíhjól
fannst
B ARNATVÍHJ ÓL fannst í
Hólahverfi í Breiðholti.
Uppl. í síma 557-6232.
GSM-sími fannst
GSM-SÍMI fannst við
Grensásveg laugardaginn
2. ágúst. Uppl. í síma
562-2339.
Dýrahald
Svört læða týndist
á Langholtsvegi
4 MÁNAÐA læða, svört
og með hvítan díl undir
kverkinni, týndist frá
Langholtsvegi 14 þriðju-
daginn 29. júlí. Þeir sem
hafa orðið varir við kisu
hafí samband í síma
568-0494.
Fuglabúr
fæst gefins
FUGLABÚR og fylgihlutir
fást gefins. Uppl. í síma
554-5115 (Þórunn).
Öll óþðrf dvöl I
skýlunum cr
óheimil.
HEILRÆÐI
Ferðamenn!
Vinsamlega gangið
vel um neyðarskýli
Slysavamafélagsins.
Notiö ekki búnaö
þess nema nauðsyn
kreQi.
,.i/
KOMUM HEIL HEIM
Pennavinir
SKÁK
Umsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp í B-
flokki á alþjóðamótinu í
Biel í Sviss sem lauk í síð-
ustu viku. Gerald
Hertneck (2.525), Þýska-
Iandi, hafði hvítt og átti
leik gegn Englendingnum
Joe Gallagher (2.525) sem
nú teflir fyrir Sviss.
29. Hxg7+! - Rxg7 30.
Bd5+ - Re6 31. Hxf8+ -
Kxf8 og svartur gafst upp
án þess að bíða
eftir 32. De7+ -
Kg8 33. Bxe6
en þá tapar
hann öllu liði
sínu eða verður
mát.
Úrslit í A-
flokki í Biel: 1.
Anand 7 v. af
10 mögulegum,
2. Karpov 6 ‘A
v., 3. Gelfand
5'/2 v., 4. Lauti-
er 4 'h v., 5.
Milov 4 v. og 6.
Pelletier 2‘A v.
í B-flokki sigraði Alex-
ander Onísjúk frá Úkraínu
með miklum yfirburðum.
Hann hlaut 8 'A v. af 10,
en þeir Gallagher, Hertneck
og Rússinn Kobalja komu
næstir með 5 v.
Helgarskákmót hjá
Taflfélagi Reykjavíkur um
helgina. Mótið hefst í kvöld
kl. 19.30 í félagsheimili TR,
Faxafeni 12. Verðlaun eru
20, 12 og 8 þús. Teflt verð-
ur í kvöld frá 19.30-22.30,
þijár atskákir, á morgun
kappskákir frá 10-14 og
17-21 og á sunnudag frá
10.30-14.30 og 17-21.
FIMMTÁN ára pólskur
piltur með margvísleg
áhugamál:
Michael Prawdrik,
Ul. Jarzebinowa 5,
16-300 Augustow,
Poland.
TUTTUGU og sjö ára
þýskur karlmaður með
mikinn ísiandsáhuga:
Andreas Lilienthal,
P.O. Box 1241,
D-27702 Osterholz-
Scharmbeck,
Germany.
HVÍTUR leikur og vinnur.
Víkveiji skrifar...
SVO virðist sem allmargir lands-
manna eigi erfitt með að læra
að umgangast náttúruna með þeirri
virðingu, sem henni ber. Alltof oft
birtast fréttir af akstri utan vega á
viðkvæmum svæðum, slæmri um-
gengni við helztu náttúruperlur
okkar og um helztu auðlind okkar,
hafið.
Nýlega hefur komið fram að
fiskislóðin út af Garðskaga er lík-
ust sorphaugi. Slík er umgengnin
að sorpið flýtur þar eins og mý á
mykjuskán og veldur það ekki að-
eins slæmri mengun, heldurtorveld-
ar leit að sjófarendum í nauð.
Það er alveg einstök skammsýni
sjófarenda að menga sína eigin
fiskislóð með þessum hætti að ekki
sé talað um að draga einnig úr
möguleikum á þvi að þeir finnist,
lendi þeir í nauð. Það ætti ekki að
vera vorkunn nokkrum manni að
ganga þannig um að sómi sé að.
Það er engum sjómanni vorkunn
að hirða upp eftir sig ruslið og koma
þvi á móttökustöðvar fyrir sorp í
landi. Umgengni af þessu tagi er
til skammar en vonandi er þar um
fáa syndaseli að ræða, sem koma
óorði á heila stétt vandaðra sjó-
manna, sem umgangast hina við-
kvæmu auðlind okkar á réttan hátt.
Það ætti i raun og veru ekki að
vera þörf fyrir reglugerðir og lög
um losun úrgangsefna og sorps á
hafi úti. Hveijum sem er ætti að
vera ljós nauðsyn þess að halda
hafinu hreinu. Það hefur ætíð verið
talin heimska að slátra gullgæs-
inni, en með mengun hafsins og
slæmri umgengni um það, eru menn
ekki að gera neitt annað.
xxx
ANNAR þáttur i umgengninni
um auðlindir hafsins er skyn-
samleg nýting fiskistofnanna. Á
síðustu áratugum hefur okkur af
og til borið af leið og við veitt
meira en skynsamlegt má teljast
úr ýmsum helztu nytjastofnum okk-
ar. Það skýrist fyrst og fremst af
ónógri þekkingu á vexti og við-
gangi fiskistofnanna, en sú þekking
er nú fyrir hendi í vaxandi mæli.
Þekking fiskifræðinga okkar er orð-
in mikil og rannsóknir þeirra góður
grunnur til að byggja á tillögur um
hæfilegan afla helztu fiskitegund-
anna. Þennan grunn má þó bæta
með nánari samvinnu við sjómenn,
sem þekkja manna bezt til afla-
bragða og hegðunar fisksins.
Sjómenn verða þó að gæta þess
að þá beri ekki af leið vegna
skammtíma hagsmuna. Það kann
vel að vera að mikið sé um þorsk
um þessar mundir, en sé ekki farið
varlega, er voðinn vís. Víkveiji telur
að sígandi lukka sé bezt í þessum
efnum. Það getur varla borgað sig
að taka þá áhættu til að kýla vömb-
ina í dag, að kunna að þurfa að
búa við hallæri á morgun.