Morgunblaðið - 14.08.1997, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Menningarnótt í miðborg Reykjavíkur verður haldin öðru sinni nk. laugardagskvöld
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MENNINGARNÓTT í miðbænum lýkur með flugeldasýningu
í Reykjavíkurhöfn á miðnætti.
FRÁ menningarnótt í fyrra. Myndin er tekin í verslun Máls og menningar en
þá sem nú var gestum boðið upp á fjölbreytta menningardagskrá.
Listir langt
fram á nótt
MENNINGARNÓTT í mið-
borginni verður haldin
öðru sinni í Reykjavík
laugardaginn 16. ágúst.
Áhersla er lögð á að menningarnótt-
in sé viðburður sem öll flölskyldan
getur tekið þátt í. Hátíðin verður
sett með ávarpi borgarstjóra og
skemmtidagskrá við allra hæfi á Ing-
ólfstorgi kl. 17. Lokaathöfn fer fram
við Reykjavíkurtjöm kl. 23.30 þaðan
sem gengið verður fylktu liði að
Reykjavíkurhöfn en formlegri dag-
skrá lýkur á miðnætti með flugelda-
sýningu úr höfninni. Með því að efna
til menningarnætur í miðborginni
vill Reykjavíkurborg beina athyglinni
að margþættri menningarstarfsemi
sem býðst í borginni.
Fram kemur hjá forsvarsmönnum
menningarnætur í miðborginni að
það hafi verið sérstaklega ánægju-
legt að fínna hversu jákvæðar undir-
tektir menningamóttin 1996 hefur
hlotið og skynja vilja aðila á vett-
vangi menningar, þjónustu og versl-
unar, starfandi á miðborgarsvæðinu,
til að taka þátt í komandi menningar-
nótt. Verkefnisstjóri er Harpa
Björnsdóttir, myndlistakona, og seg-
ist hún hafa notið þess við undirbún-
ing hátíðarinnar nú hversu vel hafi
tekist til í fyrra. Undirbúningstími
hafi verið lengri nú og þess gæti í
víðamikilli dagskrá hátíðarinnar.
Samstarf fjölda aðila í
miðbænum
Fyrirmynd menningarnætur er
sótt erlendis frá. Harpa segir menn-
ingarnóttina vera um 10 ára gamalt
fyrirbrigði sem tekið hefur verið upp
víða á Norðurlöndunum og í Kaup-
mannahöfn hafi verið haldin menn-
ingarnótt sl. 4 ár. Dagskráin í
Reykjavík er með sama sniði og þar
og Harpa tekur fram að það er ekki
Reykjavíkurborg sem býður upp á
þessa hátíð heldur vinna íjölmargir
aðilar í miðbænum saman að fram-
kvæmd menningarnætur. „Þetta er
eins og partí þar sem allir leggja
einhvað til og svo kemur bara í ljós
hvað úr verður, Reykjavíkurborg
boðar til samkvæmisins og öllum er
fijálst að mæta,“ segir Harpa. „Við
viljum beina kastljósinu að þeirri
menningarstarfsemi sem rekin er í
miðbænum og við vitum af reynslu
síðustu menningarnætur að til hátíð-
arhaldanna kemur fullt af fólki sem
alla jafnan sækir ekki menningarvið-
burði á borð við myndlistarsýningar
en kemst vonandi á bragðið nú.“
Einsöngslög og opin listasöfn
til miðnættis
Dagskrá menningarnætur hefst
snemma dags, með opnun myndlista-
sýningar Davids Askevold og Árna
Haraldssonar, sem er hluti af ON
Iceland 1997, á Kjarvalsstöðum kl.
14 og tónleikunum „íslenska ein-
söngslagið" sem hefjast í Borgarleik-
húsinu kl. 14.30, með flesta efnileg-
ustu söngvara landsins innanborðs
undir stjórn Jónasar Ingimundarson-
ar, píanóleikara.
Myndhöggvaraféiagið opnar sýn-
ingu kl. 14 í tilefni af 25 ára afmæli
félagsins og boðið er upp á kaffí í
húsnæði félagsins, Nýlendugötu 15.
í Norræna húsinu verður bama-
leikritið „Lofthræddi örninn hann
Örvar“ sýnt kl. 14 og kl. 17.
Listasafn ASÍ, Ásmundarsal,
Freyjugötu 41, sýnir verk ívars Val-
garðssonar. Safnið er opið frá ki. 14
til 23.
Listasafn Einars Jónssonar,
Skólavörðuholti, er opið milli kl. 13
og 22. Heimili Einars í tumi safnsins
verður þá jafnframt opið og kl. 21
mun blásarakvintett Capúthópsins
leika í safninu.
í Listasafni íslands við Fríkirkju-
veg eru þijár sýningar; Erlend graf-
ík í eigu safnsins, Frumkvöðlar í ís-
lenskri málaralist og Sögn j sjón,
myndlist og miðaldabækur íslands.
Safnið er opið kl. 17 til 23 og leið-
sögn verður um sýninguna Sögn í
sjón kl. 20 og 21.30. Dagskrá fyrir
börn verður frá kl. 18 til 23.
Á Árbæjarsafni er opið kl. 17 til
22. Þar stendur yfir sýningin Reykja-
víkj - ljósmyndir og ljóð.
Á Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b,
opnar kl. 20 sýningin Færur/Sposta-
menti, ítölsk samtímalist. Áshildur
Haraldsdóttir, flautuleikari, fljríur
tónleika í safninu kl. 22. Einhvern
tíma um nóttina flytur Dominico
Bulja síðan gjöminginn Perforazione.
Á Þjóðminjasafni íslands stendur
yfír sýningin Kirkja og kirkjuskrúð.
Borgarbúum gefst kostur á að taka
þátt í tíðargjörð í litlu miðaldakirkj-
unni sem reist hefur verið inni í safn-
inu sérstaklega fyrir sýninguna.
Náttsöngur (completorium) hefst
stundvíslega kl. 21. Munu borgarfull-
trúinn Árni Sigfússon og forseti
borgarstjómar Guðrún Ágústsdóttir
taka þátt í honum.
í Þjóðarbókhlöðunni er sýningin
Ísland - Himnaríki eða helvíti? Þar
eru til sýnis rit með skrifum erlendra
aðila um ísland og íslendinga á liðn-
um öldum. Hljómsveitin Fástína leik-
ur fyrir gesti kl. 20. Þjóðarbókhlaðan
er opin milli kl. 17 og 22.
Gönguferðir um miðbæinn
undir leiðsögn arkitekts
Byggingalistadeild á Kjarvalsstöð-
um gengst fyrir stuttum gönguferð-
um um miðbæinn undir leiðsögn
Péturs H. Ármannssonar, arkitekts,
kl. 14 og 18. Lagt er af stað frá
aðalinngangi Ráðhúss Reykjavíkur.
Grafíkiistamenn efna til sýningar
á verkum sínum í húsnæði félagsins,
Tryggvagötu 15. KI. 18-19 verður
þrykkt risagrafíkþrykk með valtara
á planinu fyrir framan húsið.
Á Sjónarhóli, Hverfisgötu, stendur
yfir sýning á verkum Gunnars Karls-
sonar frá kl. 14 til 24.
Gallerí Ingólfsstræti 8 sýnir verk
þýsku listakonunnar Lore Bert frá
kl. 17 til 24.
í Gallerí 20 fermetrar, Vesturgötu
20, verður opnuð kl. 16 sýning
kanadíska listamannsins Robin Peck,
þátttakandi á gerninga- og mynd-
bandahátíðinni ON Iceland 1997.
Opið er til miðnættis.
í Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15,
er sýning á portrettljósmyndum Sig-
ríðar Ólafsdóttur. Dagskrá til minn-
ingar um sextíu ára afmæli Dags
Sigurðarsonar hefst kl. 21. Meðal
annarra munu ljóðskáldin Bragi Ól-
afsson, Margrét Lóa og Sjón lesa
úr eigin verkum.
Á Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6, er
að ljúka sýningu Gunnars J. Straum-
lands á olíumyndum og pennateikn-
ingum. Sýningin verður opnuð kl.
14 og verður opin svo lengi sem
gesti ber að garði.
Gallerí Fold við Rauðarárstíg býð-
ur upp á sérstaka dagskrá, frá kl.
17 til kl. 1 eftir miðnætti, í tilefni
menningarnætur. Sýndar verða í
fyrsta sinn opinberlega tæplega 30
frummyndir Halldórs Péturssonar af
jóla- og tækifæriskortum sem gefin
voru út á 6. áratugnum. Þekkt lista-
fólk mun sýna notkun grafíkpressu
sem Gallerí Fold hefur eignast en
var áður í eigu Guðmundar Einars-
sonar frá Miðdal. í kynningarhorni
gallerísins sýnir írski listamaðurinn
Victor Richardson pastelmyndir. Þá
ætla Iistamenn að vera við vinnu sína
í galleríinu á menningarnótt, rétt
eins og í fyrra.
Gallerí Borg, Aðalstræti 6, gengst
fyrir dagskrá í samvinnu við Aðal-
stöðina, frá kl. 14 til 24. Ýmsir tón-
listamenn koma fram í húsnæði gall-
erísins og útvarpað verður beint frá
Aðalstöðinni.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70, er
opið frá kl. 10 til 24. Birna Matthías-
dóttir, myndlistakona, sýnir grafík-
verk og meðlimir gallerísins kynna
verk sín, listræna minjagripi og min-
íatúra. Boðið verður upp á tónlist og
aðrar uppákomur.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9, er opið frá kl. 10 til miðnættis.
Helga Kristrún Hjálmarsdóttir opnar
þar sýningu kl. 20.
Gallerí Hlust, s. 5514348, býður
upp á ávarp Charles Manson.
í Gallerí Barmi ber Hannes Hólm-
steinn Gissurason verk eftir Finn
Arnar Arnarson myndlistarmann.
Gallerí Sýnibox, í porti Nýlista-
safnsins, er sýning EIsu D. Gísladótt-
ur, Flower Power.
Gallerí Gúlp! verður á Lækjartorgi.
Gallerí Undir Pari verður hvergi
og allsstaðar.
Listhandverk kynnt á opnum
vinnustofum
Lista- og handverksfólk opnar
vinnustofur sínar og verslanir á
menningarnótt. Gallerí Kóbolt, bak-
hús við Laugaveg 55, Snegla-listhús,
Grettisgötu 7, Kirsubeijatréð, Vest-
urgötu, Kogga-listhús, Vesturgötu
5, Krít, vinnustofa og gallerí í Hlað-
varpanum, Áfram Veginn, ísafoldar-
húsinu og Gler og Gijót, Skólavörðu-
stíg 17, eru opin frá 10 til 24. Smíð-
ar og skart, Skólavörðustíg 16a hef-
ur opið frá 18 til 2 eftir miðnætti
og sýnir Villt í vasann, _verk leirlista-
kvennanna Höllu Ásgeirsdóttur,
Guðnýjar Hafsteinsdóttur og Auð-
bjargar Bergsveinsdóttur.
Kvölddagskrá í kirkjum
í miðbænum
Á menningarnótt í fyrra voru tón-
leikar í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Þar verður nú tónlistarflutningur
undir stjórn Marteins H. Friðriksson-
ar og samkoma undir stjórn sr. Jak-
obs Agústs Hjálmarssonar kl. 22.30
til ,23.30.
í ár hefur Hallgrímskirkja einnig
skipulagt dagskrá í tilefni kvöldsins.
Hefst hún með klukknaspili og lúðra-
blæstri úr tumi kirkjunnar kl. 17.45.
Vesper-aftansöngur hefst kl. 18. Um
kvöldið skiptist á orgelleikur og kór-
söngur, hálftíma í senn og hefst á
heila tímanum, og lýkur með náttsöng
kl. 23 til 23.30. Þá verður leikið á
óbó til miðnættis er dagskrá lýkur.
Umsjón með flutningnum hefur Hörð-
ur Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju.
Kristskirkja við Landakot verður
opin allan daginn. Kl. 18 er Maríu-
messa, messa lesin á þýsku og kl.
19 hefst hátíðlegur aftansöngur til
heiðurs Móður Guðs (Solemn ves-
pers), undir stjórn biskups kaþólska
safnaðarins á Islandi, séra Jóhannes-
ar Gijsen. Sungið verður á latínu.
Miðnætursýning verður í Loft-
kastalanum, Seljavegi 2, í tilefni
menningarnætur. Þá verður sýnt
leikritið Veðmálið eftir Mark Medoff
í uppsetningu Leikfélags íslands og
hefst sýning kl. 23.
Höfuðpaurar sýna í Borgarleik-
húsinu leikritið Hár og Hitt kl. 20.
Söngleikurinn Evíta verður í
Gamla Bíói kl. 20. Evítustræti og
Argentína steikhús sjá um grillveislu
og uppákomur í Ingólfsstræti kl.
16-18.
Tónleikar í gamla
Sjálfstæðishúsinu
Tónleikar verða í gamla Sjálfstæð-
ishúsinu, Sigtúni við Austurvöll frá
kl. 18 til 24. Hér er á ferðinni sann-
kölluð tónlistarveisla í umsjón Ás-
hildar Haraldsdóttur, flautuleikara,
sem fengið hefur til liðs við sig fjöl-
marga tónlistarmenn.
Hitt húsið gengst fyrir tónleikum
á Ingólfstorgi kl. 21 til 22.30. Götu-
leikhúsið verður á staðnum og hljóm-
sveitirnar Botnleðja, Maus og Quaha-
rashi skemmta gestum. Þá verður
opið hús hjá Hinu húsinu og starfsem-
in kynnt með ýmsum uppákomum.
Fjölmargir veitingastaðir og kaffi-
hús verða opin fram eftir á menning-
arnótt í miðbænum og boðið upp á
tónlistaratriði og uppákomur. I Ráð-
húskaffi verður sýndur leikþátturinn
Frátekið borð eftir Jónínu Leósdóttur
kl. 21. Ráðhúsið er opið frá kl. 9 til
24. Þar er nú sýningin Nordiske
nærbilleder sem kemur frá Kaup-
mannahöfn. Dansflokkurinn HAGÍ
sýnir suðurameríska dansa. Kvik-
myndin Rokk í Reykjavík verður sýnd
kl. 19 í boði íslensku kvikmyndasam-
steypunnar.
Landsbanki íslands býður gestum
og gangandi að skoða listaverk í
aðalbanka, Austurstræti 11. Tvær
ferðir verða farnar um húsakynni
bankans kl. 17 og 18.30 undir leið-
sögn Aðalsteins Ingólfssonar, list-
fræðings. Þar má meðal annars líta
veggmyndir Jóns Stefánssonar og
Jóhannesar Kjarval.
Ýmsar uppákomur verða um
miðbæinn allan. Götuleikhópurinn
Afreksmenn og örlagavaldar flytur
leikþáttinn Alfreð mikli við Bernhöft-
storfu kl. 22. Hjálpræðisherinn verð-
ur með útisamkomu á Lækjartorgi
kl. 20 og 22. Á útitaflinu, Bernhöfts-
torfu, tefla skákmeistarar með lif-
andi taflmönnum úr KR og Val kl.
18. Hópur ungra arkitekta hannar
rými við Ingólfstorg og götuleikhúsið
sér um að karnivalsstemmning verði
ríkjandi við Klapparstíginn.
Mál og menning við Laugaveg
býður upp á fjölbreytta menningar-
dagskrá á kaffihúsinu Súfistanum á
annarri hæð verslunarinnar. Dag-
skráin hefst kl. 17 og stendur til kl.
1 eftir miðnætti. Þar keumur fram
Söngkvartettinn Vire Cantantes, rit-
höfundar Máls og menningar lesa
úr verkum sínum og Steinunn Birna
Ragnarsdóttir og Þorsteinn Gauti
Sigurðsson, píanóleikarar, Auður
Hafsteinsdóttir, fiðluleikari, og
Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleik-
ari leika fyrir gesti. Hljómsveitin
Rússíbanar lætur að sér kveða um
kvöldið og dagskrá lýkur með tón-
leikum kvennahljómsveitarinnar
Ótukt á skyggninu fyrir ofan versl-
unina sem hefjast á miðnætti.