Morgunblaðið - 14.08.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997 25
Múr-
mansk-
hérað
►Stærð: 145.000 ferkílómetrar.
►íbúar: 1.030.100.
►Höfuðstaður: Múrmansk,
u.þ.b.420.000 íbúar.
►Aðalatvinnuvegir: Námu-
vinnsla, fiskveiðar, vélafram-
leiðsla, starfsemi tengd herstöðv-
um.
►Múrmansk á Kólaskaga er
sjálfsstjórnarhérað í Rússlandi
og tilheyrir Barentssvæðinu svo-
kallaða. Það á landamæri að
Noregi og Finnlandi.
►Fyrstu íbúarnir voru Samar,
sem komu til Kólaskagans fyrir
um 10.000 árum. Nú eru um 5.000
Samar á svæðinu. A 15.-16. öld
vaknaði áhugi Rússa á svæðinu
og var bærinn Kóla mikilvæg
hafnarborg. Heldur dró úr við-
skiptunum á næstu öldum en á
síðustu öld og í upphafi þessarar
hófst uppbygging þar að nýju,
enda náttúruauðlindir miklar.
Árið 1916 var borgin Múrmansk
stofnuð og hét hún í fyrstu Ro-
manov.
► Sjálfsstjórnarhéraðið Múr-
mansk á eigið þing og stjórn.
Héraðssljórinn fer með forystu
stjórnarinnar. Fyrstu lýðræðis-
legu héraðsstjóra- og þingkosn-
ingarnar fóru fram í desember
sl. en þá var Júrí Jevdokimov
kjörinn héraðsstjóri. Á þinginu
eiga ekki aðeins fulltrúar stjórn-
málaflokka sæti, því margir eru
óháðir eða fulltrúar einstakra
fag- og verkalýðsfélaga.
►Loftslag í Múrmansk er milt,
sé tillit tekið til þess hversu norð-
arlega það liggur. Meðalkuldi í
janúar er -r8 til -rl5 gráður en
á sumrin er hitinn að jafnaði 8-14
gráður en getur farið langt yfir
það. Gróðursæld er allnokkur,
fjöldi tijá-, beija- og mosateg-
unda vex á svæðinu og þar eru
ennfremur um 100.000 vötn.
►Árið 1994 voru mest viðskipti
við Noreg, bæði í inn- og útflutn-
ingi, um 15-18%.
► Atvinnuleysi er hvergi minna
í Rússlandi en í Múrmansk, en
þar er það 6,8%.
►Árið 1996 var samdráttur í
öllum greinum nema raforku-
framleiðslu. Iðnaðarframleiðsla
dróst saman um 2,3%, samdrátt-
ur í skógarhöggi var um 40%,
fiskvinnslu um 21%. Þá dró úr
fjárfestingum um 27% árið 1996,
mest í fiskvinnslu og samgöngum
á sjó. Félagslegar byggingafram-
kvæmdir minnkuðu um helming.
► Verðbólga var 128% á síðasta
ári. Símagjöld hækkuðu um 140%
á einu ári, samgöngur um 120%,
vatnsveitu- og sorpgjöld um 80%,
rafmagn um 70% og kol um
130%. Fyrirtæki töpuðu fjórfalt
meiru en árið á undan. Tap stór-
fyrirtækja jókst, að jafnaði um
92%.
►Tekjur heimilanna drógust
saman um 14% og fimmti hver
íbúi telst undir fátæktarmörkum,
sem eru rúmar 500.000 rúblur á
mánuði. Meðallaun fyrir iðn-
verkamann eru 2 milljónir rúblna
á mánuði.
► Heilsufar fer batnandi, nema
hvað berkla- og sýfilistilfellum
fjölgar.
► Dregið hefur úr glæpum en
um 60% þeirra eru þjófnaðir.
Alvarlegum glæpum hefur hins
vegar fjölgað og um 25% glæpa
eru raktir til mafíunnar.
Morgunblaðið/UG
„VIÐ höfum ekki efni á því að flytja héðan þótt við vildum. Við
erum aðkomufólk og hér er of kalt,“ segir Anna Pavlovna Ivano-
vitsj, sem stendur við hlið eiginmannsins, Vasselíj.
eru um 469.000 rúblur (um 5.200
ísl.kr). Vetrarskór, eins og börnin
vilja, kosta sömu upphæð.“
Tajsja segist fátt sjá jákvætt við
ástandið eins og það sé nú.
„Kannski fyrir takmarkaðan hóp en
ekki mig. Ég verð að vinna meira
og meira til að hafa í mig og á, ég
vinn á kvöldin og um helgar á kart-
öfluakri. Ég reyni að gera mitt
besta. í raun og veru sakna ég
gömlu Sovétríkjanna að mörgu
leyti, þá var að minnsta kosti hægt
að skipuleggja líf sitt og legga fyr-
ir.“
Almenningur heyrir um skelfi-
legt ástandið í umhverfismálum og
Tajsja segir þau vissulega skipta
sig máli. En þegar efnahagsástand-
ið er svo bágborið, hefur annað
óhjákvæmilega forgang. Það sem
henni finnst skipta einna mestu
máli er að ungu fólki verði gert
kleift að kaupa sér íbúðir. Framtíð
dótturinnar er óviss, hún er enn í
námi og framtíðardraumar Tajsju
og eiginmannsins fyrir hennar
hönd felast í því að senda dótturina
í nám í hönnun. „Hún teiknar vel
og ég myndi vilja hafa efni á því
að gefa henni kost á námi því
tengdu. En niðurstaðan verður lík-
lega sú að hún fer i eitthvert iðn-
nám. Það er eini raunhæfi kostur-
inn.“
Eins og svo margir aðrir Rússar
hefur Tajsja takmarkaða trú á
stjórnvöldum. Og hún hefur heldur
ekki mikla trú á því að ástandið
breytist til hins betra á næstunni.
„Ég veit ekki hvort að ég mun lifa
það að sjá ástandið hér breytast til
batnaðar en ég leyfi mér að vona
að börnin mín geri það.“
ar pottaplöntur á útsölu
allt að 50% afsláttur 3
Burknar
Kr. 299,-
Verð áður£98
Fíkus 100 sm
Kr. 999,-
Verð áður J098
Jukkur
Verð áður 72U *
Drekatré
Kr. 439,-
Verð áður
Friðarlilja
Kr. 499,-
Verð áður 9#8
Stofuaskur
Kr. 439,-
Verð áður
I
I
i
!
I
!
j
í
í
j
i
i
I
!
I
t
I
i
t
í
í
í
i
j
i
j
t
|
I
I
\
í
|
í
i
.
Heimild: Norðurlandaráð.