Morgunblaðið - 14.08.1997, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
t
Fjölskylduráðgjöf
Höfum opnað að nýju að loknu sumarleyfi.
Upplýsingar og tfmapantanir í sfma 562 1266.
Samvist - fjölskylduráðgjöf
Mosfellsbæjar og Reykjavíkurborgar.
s
p
T
A
NYTT KORTATIMABIL
BYRJAR í DAG
L
A
VEGI
íþrótta- og sportvörur á alla
fjölskylduna á frábæru verði.
VERÐDÆMI SKOR
Uppháir leðurskór nr. 25 til 36 ...........-kr. 990,-
Hlaupaskór með púða nr. 35 til 47.....kr. 2.990,-
Innanhússskór nr. 28 til 46 frá ......kr. 1.990,-
Barnaskór með riflás nr. 28 til 34....kr. 1.990,-
VERÐDÆMI FATNAÐUR
Glansgallar barna ..................................kr. 2.990,-
íþróttagallar XS til XXL________.....---------------kr. 2.990,-
Úlpur nr. 10,12 og 14_______________________.....—kr. 3.990,-
Úlpur nr. XS til XXL .....................................kn 4.990,-
Bómullarfatnaður öll nr.
barna- og fullorðins: Buxur, háskólabolir,
heilar hettupeysur, renndar hettupeysur,
regnfatnaður, sundfatnaður, töskur, bolir,
stuttbuxur o.fl. o.fl.
VIÐ RÚLLUM BOLTANUM TIL ÞÍN!
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ GERA GÓÐ KAUP.
OPIÐ í KVÖLD TIL KL. 21.00
Póstsenilum.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPART
I DAG
skAk
Umsjðn Margelr
Pétursson
Hg3+ — Bg7 (Lokin yrðu
sérlega falleg eftir 22. —
Kh7: 23. Dxh6+! - Kxh6
24. Rf5 tvískák og mát!)
23. Dxh6 - Hf7 24. Rf5!
og svartur gafst upp. Aðal-
hótun hvíts er auðvit-
að 25. Dh8 mát.
B andaríkj amaður-
inn Tal Shaked varð
heimsmeistari í opn-
um flokki 20 ára og
yngri. Hann hlaut 9 'A
v. af 13 mögulegum.
Mirumian frá Armen-
íu fékk jafnmarga
vinninga en var lægri
á stigum. 3.-5. Ban-
ikas, Grikklandi, Mov-
sesjan, Tékklandi og
Zhang Zhong, Kína 9
HVÍTUR leikur og vinnur,
STAÐAN kom upp á heims-
meistaramóti unglinga í
Zagan í Póllandi, sem lauk
í síðustu viku. Daninn Ni-
kolaj Pedersen (2.300)
hafði hvítt og átti leik, en
Diego Pereyra Arcua
(2.460) frá Argentínu, hafði
svart og lék síðast 20. —
Dd8—e8? sem reyndist mis-
ráðið:
21. Rf6+!! - Bxf6 22.
Helgi Áss Grétars-
son varð heimsmeistari í
þessum flokki árið 1994, en
að þessu sinni sendi Island
engan fulltrúa til leiks.
I flokki stúlkna 20 ára
og yngri sigraði enska
stúlkan Harriet Hunt ör-
ugglega.
Helgarskákmótið á Mjóa-
firði hefst á morgun. Upp-
lýsingar hjá Tímaritinu
Skák.
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu krakkar héldu tombólu nýlega til
styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn 1.349
krónur. Þau heita Kristján Ólafsson, Sigríður Ósk
Ólafsdóttir og Ásgeir Erlendsson.
ÞESSAR duglegu stelpur héldu tombólu nýlega til
styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn 6.363
krónur. Þær heita Guðbjörg Einarsdóttir, Guðbjörg
Ólafsdóttir, Harpa Snædís Hauksdóttir og
Jónína Þóra Einarsdóttir.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Myndavél
týndist
MYNDAVÉL af gerðinni
Samsung týndist í
Hveragerði helgina
13.-14. júlí sl. Ef skilvís
fmnandi sér þessa aug-
lýsingu er hann beðinn
að hringja i síma
426-8720 eða 426-7972.
Flíkur fundust í
Heiðmörk
BARNAPEYSA og full-
orðinspeysa fundust á
veginum syðst í Heið-
mörk, niður undir Vífils-
staðahlíð, sl. mánudag.
Upplýsingar í síma
553-6982.
Giftingarhringur
fannst
GIFTINGARHRINGUR
af karlmanni fannst um
helgina. Upplýsingar í
síma 567-1629 eftir kl.
17.
Fleiri
giftingarhringar
GIFTINGARHRINGUR
af karlmanni fannst í
Atlavík mánudaginn 4.
ágúst. Upplýsingar í
síma 567-5395.
Myndavél
tapaðist
NIKON myndavél tapað-
ist 9. ágúst á Morins-
heiði, Heljarkambi í'
Þórsmörk. Skilvís
fínnandi vinsamlega hafi
samband í síma
581-2369.
Barnaföt
týndust
BLÁR flísjakki og húfa
á tveggja ára dreng
týndust sl. fimmtudag,
líklega í Kringlunni eða
við Vesturbrún. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
565-7518.
Kvenhjól
týndist
BLEIKT Ice Fox kven-
reiðhjól, sem búið var að
úða ýmsum litum, týnd-
ist frá Hlíðarvegi 35 í
Kópavogi í sumar.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
564-1741.
Hálsmen týndist
GULLHÁLSMEN með
rauðum steini týndist á
höfuðborgarsvæðinu
fímmtudaginn 10. júlí.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 564-3993.
Sólgleraugu
fundust
SÓLGLERAUGU fund-
ust í versluninni Hjá
Hrafnhildi, Engjateigi 5,
Reykjavík, sl. sunnudag.
Upplýsingar eru gefnar
í versluninni eða í síma
581-2141.
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkveiji skrifar...
GOTT kaffi er gott, þegar það
er gott, var stundum haft
eftir gömlum manni á Norðurlandi.
Þetta má auðvitað segja um veðrið
líka. Þegar góðviðrisdagar eins og
sá sem rann upp nú á þriðjudaginn
koma, þykir öllum veðrið gott, þó
töluvert vanti á að hitinn nái 20
stigum. Vissulega er það gott veður
á okkar mælikvarða og það er at-
hyglivert að sjá, að í 16 stiga hita
og sólskini afklæðist landinn í stór-
um stíl og nýtur hlýindanna. í sama
hitastigi í útlöndum að sumri til
myndi íslendingurinn hins vegar
fussa og sveia yfir óheppni sinni
með veðrið, klæðast peysu og lík-
lega ylja sér á góðu kaffi í raunum
sínum.
xxx
ADÖGUM sem þessum keppast
fyrirtækin við að gefa frí
vegna veðurs eftir hádegið. Er það
í sjálfu sér af hinu góða, þar sem
fyrirtækin sinna ekki þjónustu af
því tagi að hennar sé daglega þörf.
Slíkt léttir starfsandann hjá fólkinu
og lipurð vinnuveitenda mun efa-
laust skila sér í þakklátara starfs-
fólki, sem gjarnan leggur sitt betur
að mörkum þá daga sem sólin læt-
ur ekki sjá sig. Þeir eru reyndar
miklu fleiri en hinir, svo frí í tvo
til þijá seinniparta á sumri - þeir
verða varla fleiri svo góðir - skilar
sér líklega ekki síður vel til at-
vinnurekandans en launþegans,
þegar upp er staðið.
Annars telur Víkveiji það beztan
kost að reyna að eyða sumrinu á
íslandi, þessum örfáu vikum sem
vænta má blíðviðris í stað þess að
þeysa þá í stórum flokkum til út-
landa og stikna þar í hita vel yfir
30 stigum. Það myndi á hinn bóg-
inn stytta skammdegið verulega
að fara í auknum mæli í vetrarfrí,
eða taka frí á haustin og vorin,
þegar veður eru válynd hér á landi,
en blíðlyndari ytra.
Reyndar er annar kostur og sá
góður líka, en það er að nota
sumarið til að kynnast eigin landi,
bæði byggð og hálendi, en þess er
vart kostur nema yfir hásumarið.
Þar er svo aftur galli að óhemju
dýrt er að ferðast um landið. Fjöl-
skyldufólk veigrar sé líklega lang-
flest við að gista á hótelum og
ekki viðrar alltaf til tjaldveru. Þá
hlýtur rándýr grillmaturinn á veit-
ingastöðum við hringveginn að
vera að gera hvern ferðamann vit-
lausan, en lítið annað er að fá.
Góður fiskur, kjötsúpa, svartfugl
og slíkur herramanns matur er
yfirleitt ekki á matseðlum þessara
staða, þó af nógu sé að taka. Vík-
veiji efast um að útlendir ferða-
menn njóti þess að koma hingað
til að slufsa í sig hamborgara og
pizzur, sem líklega er daglegt
brauð víða í samfélagi þjóðanna.
Þarna gefst reyndar einn góður
kostur, en það er bændagistingin.
Aðbúnaður í slíkri gistingu er oft-
ast góður og verði stillt í hóf.
Loks er þar í mörgum tilfellum
hægt að fá almennilegan mat á
vægu verði.