Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 69
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Jólatréð frá Hamborg
Fyrirlestur
um „Lucky
Thirteen“
EGILL Sæbjörnsson heldur fyrir-
lestur um ferðaakademíuna „Lucky
Thirteen" miðvikudaginn 10. des-
ember kl. 12.30 í húsnæði Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands í
Laugarnesi.
í tilkynningu segir: „Lucky
Thirteen er myndlistarakademía
sem var sett saman af 12 myndlist-
arnemum og myndlistarmönnum á
Norðurlöndunum síðasta vor. Til-
gangurinn var að kanna hugsanlegt
form á fijálsum myndlistarskóla
sem hefði ekkert fast húsnæði og
þátttakendur byggju ekki á sama
staðnum. í sumar fékk hópurinn
styrk frá Norræna menningarsjóðn-
um og ferðaðist á milli ellefu nor-
rænna borga þar sem þetta form
var kannað. í fyrirlestrinum verður
sagt frá ferðalaginu, niðurstöðun-
um og því starfi sem hefur komið
í kjölfarið.“
Egill Sæbjörnsson er starfandi
myndlistarmaður, þátttakandi í
Lucky Thirteen, búsettur á íslandi.
Fyrirlestrinum eru áætlaðar 45-60
mín. og er hann öllum opinn.
Tískusýning á
Kaffi Reykjavík
TÍSKUSÝNING verður haldin á
Kaffi Reykjavík í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 11. desember, kl.
21.30.
Sýndur verður dömufatnaður frá
versluninni Corsicu, Laugavegi 46,
og herraföt frá versluninni Herra-
mönnum, Laugavegi 41. Einnig
verða sýndir pelsar frá Eggert feld-
skera, Skólavörðustíg, og gleraugu
frá Linsunni, Aðalstræti 9.
Kynnir kvöldsins er Heiðar Jóns-
son. Módelsamtökin sýna. Tilboð
verður á mat. Hljómsveitin Hunang
leikur fyrir dansi til kl. 1.
Evrópusamtarf
um starfs-
menntun
LANDSSKRIFSTOFA Leonardo á
Islandi og framkvæmdastjóri Evr-
ópusambandsins boða til þriggja
funda fimmtudaginn 11. desember
nk. í veitingastofu Tæknigarðs,
Dunhaga 5.
Kl. 9-10.30 verður kynningar-
fundur um Leonardo da Vinci
starfsmenntaáætlunina. Lýst verð-
ur eftir umsóknum um styrki frá
Leonardo da Vinci starfsmennta-
áætlun Evrópusambandsins. Greint
verður frá hvaða áhersluatriði verða
við val á verkefnum. Bein útsending
um gervihnött verður frá Brussel
og geta gestir beint spurningum
þangað með símbréfi eða tölvupósti.
Kl. 10.30-11.30 verður Ijar-
skiptafundur með sendiherra Evr-
ópusambandsins í Noregi og á ís-
landi. Fulltrúar Leonardo skrifstof-
anna í Noregi og á Islandi ræða
við sendiherrann um samskiptin við
Evrópusambandið og þjónustu
sendiráðsins við ísland og Noreg.
Kl. 11.30-14 verður aðalfundur
Sammentar þar sem Garðar Vil-
hjálmsson, skrifstofustjóri hjá
IÐJU, og Ingi Bogi Bogason, kynn-
ingarfulltrúi Samtaka iðnaðarins,
flytja framsöguerindi um þátttöku
launþega, atvinnurekenda og
fræðslustofnana í menntamálum
atvinnulífsins.
Fjallað um
hamingjuna í
Keflavíkurkirkju
í KYRRÐAR- og fræðslustund í
Keflavíkurkirkju kl. 17.30 í dag,
fimmtudag, mun Vilhjálmur Árna-
son, heimspekingur, fjalla um ham-
ingjuna. Allir velkomnir.
KVEIKT var á jólatrénu frá Ham-
borg á Miðbakkanum við Reykja-
víkurhöfn laugardaginn 6. desem-
ber. Uwe Hergl, sendiráðsritari í
þýska sendiráðinu, afhenti tréð
Hannesi Valdimarssyni, hafnar-
stjóra og forseta borgarstjórnar,
Sigrúnu Magnúsdóttur, sem
tendraði ljósin á trénu. Einnig var
viðstödd Kristín Hjálmtýsdóttir,
framkvæmdastjóri Þýsk-íslenska
verslunarráðsins.
Þetta er í 32. skiptið sem jóla-
tré er sent frá Hamborg en það
Jólafundur
LAUF
LAUF, samtök áhugafólks um
flogaveiki, verður með jólafund
fimmtudaginn 11. desember kl.
20.30 í sal Félags heyrnarlausra,
Laugavegi 26. Gengið er inn Grett-
isgötumegin.
Sr. Jón Þorsteinsson, sóknar-
prestur á Mosfelli, fer með hug-
vekju og segir frá dvöl sinni í Betle-
hem á jólunum 1986. Sigurður
Trausti stjórnar söng. Boðið verður
upp á heitt súkkulaði og jólabakk-
elsi á vægu verði.
Skákfélag Ak-
ureyrar heldur
skákmót
SKÁKFÉLAG Akureyrar heldur
skákmót í kvöld, fimmtudaginn 11.
desember.
Mótið er opið öllum 45 ára og
eldri. Tímamörk eru 15 mínútur á
skák fyrir hvern keppanda. Mótið
verður haldið í skákheimili Skákfé-
lags Akureyrar og hefst klukkan 20.
Aðventukaffi
og handverks-
markaður
í Gjábakka
HIÐ árlega aðventukaffi eldri borg-
ara í Kópavogi verður í Gjábakka í
dag, fimmtudaginn 11. desember,
og hefst dagskráin kl. 14.
Meðal efnis má nefna að sr. Krist-
ján Einar Þorvarðarson flytur að-
ventuhugleiðingu, Söngvinir, kór
aldraðra í Kópavogi, syngur undir
stjórn Sigurðar Bragasonar, Gunnar
Dal og Magnús Óskarsson lesa úr
nýútkomnum bókum sínum Með
bros í bland og í dag varð ég kona
og Þorgeir og söngfuglarnir stjórna
fjöMasöng.
Á sama tíma bjóða eldri borgarar
handverk sitt til sölu í Gjábakka.
Þar verða á boðstólum margir eigu-
legir munir og einnig handunnir
munir sem henta til jólagjafa, segir
í tilkynningu.
Gjábakki er öllum opinn meðan
húsrúm leyfir og án endurgjalds.
Iskjarnar og
eðlisfræði
EÐLISFRÆÐIFÉLAG íslands
stendur að fyrirlestraröð þar sem
ungir eðlisfræðingar kynna við-
er gjöf frá sölu- og auglýsinga-
stofu hafnarinnar í Hamborg
Hafen Hamburg Verkaufsförder-
ung und Werbung e.V.“ og sent
til Islands af félagasamtökunum
Wikingerrunde í Hamborg og
Hamburger Gesellschaft e.V
Fyrsta jólatréð frá Hamborg
kom til Reykjavíkur árið 1965.
Árleg afhending jólatrésins er
þakklætisvottur til íslenskra sjó-
manna fyrir matargjafir til barna
í Hamborg á árunum eftir seinni
heimsstyijöldina.
fangsefni sín. Fyrirlestrarnir eru
öllum opnir.
Fimmtudaginn 11. desember
heldur dr. Þorsteinn Þorsteinsson,
Alfred Wegener Institut Bremer-
haven, gestur við Raunvísindastofn-
un, erindi sem nefnist: ískjarnar
og eðlisfræði í Lögbergi, stofu 101,
kl. 16.15.
f fréttatilkynningu segir: „Könn-
un ískjarna, sem boraðir hafa verið
á Grænlandsjökli á undanförnum
árum, hefur aukið mjög við þekk-
ingu á veðurfarssveiflum, gróður-
húsaáhrifum og jökulskriði, auk
þess sem eldgosasaga íslands hefur
verið rakin til nokkurrar hlítar í
kjörnunum. í fyrirlestrinum verður
lýst eðlisfræðilegum aðferðum sem
beitt er við þessar rannsóknir og
gerð grein fyrir helstu niðurstöðum
þeirra."
LEIÐRÉTT
Röng fyrirsögn
RUNÓLFUR Ágústsson skrifaði
grein í Morgunblaðið í gær, sem
hann sendi blaðinu í gegnum alnet-
ið. Af tæknilegum ástæðum skilaði
hvorki fyrirsögn né upphaf greinar-
innar sér í sendingunni. Því var
fyrirsögn samin hér á ritstjórn
Morgunblaðsins. Runólfur vildi hins
vegar hafa fyrirsögnina: „Ingvi
Hrafn Jónsson".
Inngangurinn, sem féll niður er
svohljóðandi: „Ingvi Hrafn Jónsson,
fréttastjóri útvarps Matthildar,
sendir mér kveðju með grein hér í
Morgunblaðinu laugardaginn 6.
desember sl. Þar sakar hann mig
um að stjórna „ófrægingarherferð"
gegn sér á síðum fjölmiðla. Vegna
þessarar greinar tel ég rétt að upp-
lýsa „fréttastjórann" og lesendur
Morgunblaðsins um nokkur atriði."
Beðizt er velvirðingar á þessu
brengli á grein Runólfs.
Þorbjörg Bjarnar þýddi
ævisögu Peres
í umsögn um ævisögu Símonar
Peres í blaðinu á þriðjudaginn láð-
ist að geta þýðanda bókarinnar sem
er Þorbjörg Bjarnar Friðriksdóttir.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Ekki greidd atkvæði um
Laugaveg 53 b
VEGNA fréttar af fundi í skipu-
lagsnefnd á þriðjudag vill Guðrún
Zoéga borgarfulltrúi taka fram að
ekki voru greidd atkvæði um leyfi
til að reisa nýtt hús að Laugavegi
53 b heldur var málinu frestað.
Einnig að búið er að afgreiða fýrir
löngu leyfi til að rífa gömul hús sem
fyrir eru á lóðinni, það er nýbygg-
ingin sem enn er verið að fjalla um.
Gömlu íslensku
jólasveinarnir í
Þjóðminjasafninu
NU LIÐUR að því að jólasveinarn-
ir komi til byggða. Stekkjastaur
er væntanlegur til Reykjavíkur
eldsnemma föstudagsmorguninn
12. desember.
Hann heimsækir Þjóðminja-
safnið þann dag kl. 14 og þar
verður væntanlega fyrir fjöldi
barna til þess að taka á móti hon-
um. Þeirra á meðal eru krakkarn-
ir í barnakór Rimaskóla í Grafar-
vogi sem ætla að syngja nokkur
lög við raust til þess að tryggja
það að Stekkjastaur finni safna-
húsið við Hringbraut, segir í
fréttatilkynningu frá Þjóðminja-
safninu.
Ennfremur segir: „Jólasvein-
arnir koma síðan einn af öðrum í
safnið kl. 14 alla daga til jóla í
þessari röð: Stekkjastaur, Gilja-
gaur, Stúfur, Þvörusleikir, Potta-
skefill, Askasleikir, Hurðaskellir,
Skyrgámur, Bjúgnakrækir,
Forstjóri
Norræna
hússins
kveður
FORSTJÓRI Norræna hússins Tor-
ben Rasmussen og kona hans Else
Lauridsen flytja aftur til heima-
lands síns, Danmerkur, hinn 14.
desember eftir fjögurra ára starf í
Norræna húsinu. Börn þeirra Sidsel
og Johan hafa einnig verið með
þeim hér á landi og stundað nám
í Melaskólanum og Hagaskólanum.
Torben og Else taka á móti vinum
og samstarfsfólki í Norræna húsinu
föstudaginn 13. desember kl.
17-20.
Gluggagægir, Gáttaþefur, Kjöt-
krókur en Kertasníkir kemur á
aðfangadag jóla kl. 11 ef hann
verður ekki seinn fyrir. Þess er
vænst að fólk fjölmenni til þess
að taka á móti þessum séríslensku
jólavættum sem þykja einstæð
fyrirbæri í veröldinni og sífellt
fleiri erlendir fjölmiðlar leita sér
upplýsinga um. Söngálfurinn Her-
mes kemur á sama tíma til þess
að spila undir og stýra söng safn-
gesta. Gömlu íslensku jólasvein-
arnir munu síðan eftir heimsókn
í Þjóðminjasafnið leggja leið sína
í Kringluna til þess að hitta fólk
í fjölmenni.
Þess má geta sérstaklega að
Þjóðminjasafnið hefur fyrir til-
mæli frá aðstandendum heyrnar-
lausra barna fengið táknmálstúlk
til þess að vera í safninu mánudag-
inn 15. desember þegar Þvörus-
leikir kemur.“
TORBEN Rasmussen, Else
Lauridsen og börn þeirra
Sidsel og Johan.
Tiskuverslun vlNesveg,
Seltjarnarnesi s. S61 1680
Urval af
fallegum
drögtum
og settum
OPIÐ ALLA DAGA TIL JOLA
Mán.-fös. kl. 10-18
Laugardag kl. 10-16
Sunnudag kl. 13-17