Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 73
BRIPS
Umsjön Guömundur Páll
Arnarson
NORÐMENNIRNIR Hel-
ness og Helgemo eru vand-
virkir vamarspilar. Hér eru
þeir í AV í vörn gegn fjóram
spöðum. í suðursætinu er
Daninn Christiansen, en
spilið er frá undanúrslitum
HM í Túnis:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ 5
¥ KG42
♦ K87653
♦ 94
Vestur Austur
♦ K97 ♦ Á6
¥ D10953 IIIHI ¥ Á876
♦ Á2 111111 ♦ DG9
♦ 1075 ♦ G632
Suður
♦ DG108432
¥ -
♦ 104
♦ ÁKD8
Sagna er ekki getið í
mótsblaðinu að öðra leyti
en því að Helness í vestur
doblaði fjóra spaða. Hann
kom síðan út með tígulás.
Sagnhafí á níu slagi og
það era gildrar í vöminni
við hvert fótmál. Heiness
skipti yfir í trompsjöu í öðr-
um slag, enda hugsanlegt
að sagnhafi gæti nýtt sér
tromphundinn í borði til að
stinga lauf. Helgemo drap
á ásinn og spilaði laufi.
Christiansen tók með ás og
sótti trompkónginn. Nú
virðist vörnin hljóta að fá
slag á lauf í lokin, en ekki
er allt sem sýnist. Ef Hel-
ness spilar til dæmis lauftíu
eða trompi til baka, þving-
ast austur í Jáglitunum í
lokastöðunni. í stöðunni er
nauðsynlegt að spila tígli
til að skera á sambandið við
blindan. Og það gerði Hel-
ness.
Christiansen drap, fór
heim á lauf og renndi niður
ölium trompunum. Talning-
in var í lagi hjá Norðmönn-
unum og í lokastöðunni
henti Helgemo hjartaás til
að halda í gosann annan í
laufi. Einn niður.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbams
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
Sent í bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj-
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík.
ÍDAG
ÁRA afmæli. í dag,
fimmtudaginn 11.
desember, verður sjötugur
Friðgeir Kristjánsson,
húsasmíðameistari, Arn-
arheiði 2, Hveragerði.
Eiginkona hans er Jórunn
Gottskálksdóttir. Þau
hjónin taka á móti gestum
laugardaginn 13. desember
frá kl. 15 í Golfskála Golf-
klúbbsins í Gufudal við
Hveragerði.
Ljósmyndastofa Suðurlands.
BRÚÐKAUP. Gefin vora
saman 21. júní í Stokkseyr-
arkirkju af sr. Úlfari Guð-
mundssyni Guðný Rúna
Bjarkarsdóttir og Stefán
Ragnar Magnússon.
skAk
Umsjðn Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á af-
mælismóti skákfélagsins í
Asker í Noregi í nóvember.
Norski stórmeistarinn Ein-
ar Gausel (2.540) var með
hvítt og átti leik, en Daninn
Bjarke Kristensen (2.430)
hafði svart.
38. Bxh6! - Rxe4 (Eftir
38. - gxh6 39. Hg8+ -
He8 40. Hxe8+ - Kxe8 41.
Hg8+ - Ke7 42. Hg7+ fell-
ur svarta drottningin) 39.
Hxg7 - Dc3 40. Hg8+ -
He8 41. Hxe8+ - Kxe8
42. Hg8+ - Ke7 43. Bf8+
- Kd8 44. Bxd6 mát
Úrslit á mótinu urðu:
1.-3. Gausel, Peter Heine
Nielsen, Danmörku og Mik-
hail Rytsjagov, Lettlandi 6
v. af 9 mögulegum, 4. Djur-
huus, Noregi 5 v. 5.-6.
Bjarke Kristensen og Johan
Hellsten, Svíþjóð 4 7» v.,
7.-8. Igor-Alexandre Nat-
af, Frakklandi og Berge
Östenstad, Noregi 4 v., 9.
Ralf Ákesson, Svíþjóð 3 'h
v. og 10. Svein Johanness-
en, Noregi 17» v.
Heimsmeistaramótið í
Hollandi: Önnur umferðin
hefst í dag.
HÖGNIHREKKVÍSI
„ Jiann gleypii. Onda.f/auiuna mlna?
COSPER
GERI ég ekkert til að vinna fyrir heimilinu? Ég veit
ekki betur en ég safni flöskum sjö daga vikunnar.
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú stendur upp til varnar
þeim sem minna mega sín
og líður ekkert óréttlæti.
Hrútur
(21.mars- 19. apríl)
Nú er rétti tíminn að breyta
til, ef þú ert í fasteignahug-
leiðingum. Gefðu þér tíma
til tómstunda.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert hugmyndaríkur
þessa dagana og ættir að
koma þér á framfæri við
rétta aðila. Þú hefur skyld-
um að gegna í kvöld.
Tvíburar
(21. maí- 20. júnl) í»
Nýjar hugmyndir freista
þín en gættu þess að þær
beri þig ekki ofurliði. Kvöld-
inu er best varið með fjöl-
skyldunni.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) Hlfé
Það á ekki við þig að
staðna, og ef sú er raunin,
þarftu að leita leiða til að
breyta því. Lyftu þér upp.
Ljón
(23. júlf — 22. ágúst)
Þú þarft virkilega að halda
utanum budduna núna og
vera eins hagsýnn í inn-
kaupum og þú mögulega
getur.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þú hefur mörg járn í eldin-
um og þarft að skipuleggja
tíma þinn til að koma öllu
í verk. Lofaðu ekki upp í
ermina á þér.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Haltu þig fyrir utan deilu-
mál í vinnunni. Þú þarft á
öllu þínu þreki að halda til
að koma ákveðnu verkefni
frá.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú ættir að gefa þér tíma
til að heimsækja fólk sem
þú hefur ekki hitt lengi.
Hafðu ekki óþarfa áhyggj-
ur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Það er eins og ýmsir mögu-
leikar opnist þér í starfi.
Treystu á sjálfan þig og
láttu eðlisávísun þína ráða.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Settu það á oddinn að end-
urskoða samband þitt við
þína nánustu. Þá geturðu
snúið þér að öðram hlutum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þér gengur eitthvað erfið-
lega að koma þér að verki
framan af degi en óvæntar
fréttir munu koma þér í
gang.___________________
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) tSE
Þú verður fyrir traflun af
ýmsu tagi í dag og þarft
að loka þig af til að klára
verkefni dagsins. Vertu
ákveðinn.
Stjömuspána ú að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Teg. 20628
St. 31-41
Svartir
kr.
Teg. 0
St. 31-40
og hvítt lakk
kr. 3.500
SKÓVERSLUNIN
á frábærum golfvörum
Barna- og unglingakylfur • byrjendasett
golfskór • hanskar • boltar • regngallar ofl. ofl.
Opið frá 1. - '24 desember
IVirka daga 14 - 191
Laugardaga og sunnudaga 13-18
Þorláksmessu 13-24
Aðfangadag 9-12
Leitið ráðgjafar fagmanns
GOLFVERSLUN
Sigurðar Péturssonar
GRAFARHOLTI REYKJAVÍK
Sími 587 2215