Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 6

Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 6
- 6 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Islenskur lax fékk bestu einkunn á ABC Morgunblaðið/Kristinn REYKTUR lax frá íslenskum matvælum fékk hæstu einkunn í bandarísku sjónvarpi. REYKTUR lax frá íslenskum matvælum fékk bestu einkuim í matgæðingaþætti á ABC sjón- varpsstöðinni í Bandarikjunum. Margar milljónir manna fylgjast með útsendingum sjónvarpsstöðv- arinnar og segir Snorri Finn- laugsson hjá Islcnskum matvæl- um að umfjöllunin sé gríðarleg auglýsing fyrir framleiðsluvörur fyrirtækisins. Matgæðingaþátturinn er send- ur út vikulega á miðvikudögum og var fjallað um laxinn 17. des- ember sl. Tekin voru fyrir fimm sýnishorn af reyktum laxi sem er á boðstólum, lax sem reyktur er í Bandaríkjunum, norskur og ís- lenskur. Reyktur lax íslenskra matvæla hefur vöruheitið Ice Food. Verðið á laxinum var 10-60 dollarar á pundið. Nokkrir af þekktustu matgæð- ingum vestra, Emeril Lagasse, matreiðslumeistari og höfundur uppskriftabóka, Jeffrey Steingar- ten, sem fjallar um mat í tímarit- inu Vogue og hefur skrifað bæk- ur um sama efni, sjónvarpsmað- urinn Burt Wolf og Sarah Moulton yfirmatreiðslumaður tímaritsins Gourmet. Oll gáfu þau Ice Food laxinum bestu einkunn og undruðust að verðið út úr A&P versluninni var aðeins 9,99 dollarar. Islensk matvæli hófu útflutning til Bandaríkjanna í ágúst 1996 og hafa selt þangað rúmlega 120 tonn af reyktum laxi. Síðustu mánuði hefur fyrirtækið sent einn fjörutíu feta gám í mánuði á þennan markað, 11,5 tonn af vöru. „Við höfum nær eingöngu einbeitt okkur að New York og New Jersey. Þessi umfjöllun gæti ýtt undir enn frekari sölu,“ sagði Snorri. Samkeppnisráð Ekki ástæða til íhlutimar vegna verðtilboðs á árskorti í sund SAMKEPPNISRÁÐ telur ekki til- efni til íhlutunar vegna tilboðs Medic Operating AB á árskorti í sund í Sundlaug Kópavogs í tilefni af opnun stöðvarinnar í húsnæði laugarinnar nú í haust. Sporthöllin kærði umrætt tilboð til samkeppn- isráðs þar sem fyrirtækið taldi að um undirboð væri að ræða sem Kópavogsbær hefði tekið virkan þátt í. I kæru Sporthallarinnar kemur fram að viðskiptavinum fyrirtæk- isins hafi fækkað um þriðjung í kjölfarið og grípa hafi þurft til uppsagna á starfsfólki vegna þess. Samkeppnisráð segir í áliti sínu að líkamsræktarstöðin greiði eðli- lega leigu fyrir húsnæði sitt í hús- næði sundlaugarinnar og ekkert bendi til þess að kostnaður sund- laugar Kópavogs vegna leigu lík- amsræktarstöðvarinnar á húsnæði og þjónustu hjá sundlauginni sé niðurgreiddur af annarri starfsemi laugarinnar. Þá segir í úrskurði samkeppnis- ráðs að ekki sé ástæða til íhlutunar vegna verðlækkunar Sundlaugar Kópavogs á árskortum enda líti ráðið svo á að öðrum fyrirtækjum muni bjóðast sambærileg kjör við kaup á ársmiðum í sund hjá sund- laug Kópavogs. I k [ Guðlaugur Gunnarsson kristniboði í Eþíópíu Jólaveðrið okkar er 35 stiga hiti og þurrkur „HÉR hefur verið óvenjulegf tíð- arfar, ekki nema 25 stiga hiti og rigning upp á hvem dag svo mér finnst erfitt að komast í jólaskap. Jólaveðrið okkar hér er 35 stiga hiti, þurrkur og sólskin,“ sagði Guðlaugur Gunnarsson, kristni- boði og fjármálastjóri í suðvestur sýnódu Mekane Jesús-kirlqunnar í Eþíópíu í samtali við Morgunblað- ið í gær. Guðlaugur hefur starfað í Eþíópíu fyrir Samband íslenskra kristniboðsfélaga frá árinu 1983 og með honum kona hans, Val- gerður Gísladóttir hjúkrunarfræð- ingur, og börn þeirra. Þau starfa nú í Arba Minch, sunnarlega í landinu, og halda nú þrettándu jól srn þar í landi. Böm þeirra á skólaaldri em í skóla norska kristniboðsins í Addis Abeba ásamt fleiri íslenskum bömum. Auk fjölskyldu Guðlaugs eru tvær aðrar íslenskar fjölskyldur við störf í Eþíópíu á vegum SÍK, hjónin Elísabet Jónsdóttir og Bjarni Gislason og Birna Gerður Jónsdóttir og Guðlaugur Gísla- son. Bjarni kennir við skólann í Addis Abeba en Guðlaugur sér um húsbyggingarmál fyrir kirkj- una og kristniboðsstarfið í hérað- inu Omo Rate syðst í Eþíópíu. „Við höfum þegar fengið sent jólahangikjötið að hcitnan og í dag slátruðum við sauði sem við fengum að gjöf frá Konsómönn- um,“ sagði Guðlaugur ennfremur. Ásamt þeim eru norsk hjón við störf í Arba Minch og sagði Guð- laugur fjölskyldurnar hittast um jólin. Hann kvaðst taka sér frí yf- ir hátíðina en Eþíópíumenn halda ekki jól fyrr en að hálfum mánuði liðnum. „Þá tökum við þátt í há- tíðinni með þeim svo að ég geri ráð fyrir að við höldum tvöföld jól!“ Vegna tíðarfarsins sagði Guð- laugur menn óttast mjög um upp- skeru því nú ríkja þurrkar og hiti í sunnanverðri Eþíópíu en alls ekki rigningar eins og verið hefði undanfarið. Sagði hann ljóst að víða hefðu akrar skemmst vegna flóða og þvi' væri tvísýnt um upp- skeru. Tveir sendifulltrúar Rauða krossins komnir heim Smá og stór kraftaverk EYGLÓ Ingadóttir hjúkrunarfræðingur og tvö ung systkini á spítalan- um í Lokichokio í Kenýa. Móðir barnanna lést af völdum skotsára og al- næmis og drengurinn ereinnig með alnæmi en systir hans er heilbrigð. TVEIR sendifulltrúar Rauða krossins eru nýlega komnir heim frá störfum í fjarlægum og stríðs- hrjáðum löndum, þær Eygló Inga- dóttir, sem var hálft ár í Kenýa, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem var eitt ár í Aserbaídsjan. Þórunn var sendifulltrúi Rauða kross Islands í Baku í Aserbaídsj- an, þar sem hún vann sem upplýs- ingafulltrúi fyrir Alþjóðasamband Rauða kross- og Rauða hálfmána- félaga. „Aðalverkefni alþjóðasambands- ins í Aserbaídsjan er tvíþætt. Það er annars vegar aðstoð við fólk sem hefur lent á vergangi í eigin föður- landi, hefur þurft að flýja átök í Aserbaídsjan, og er ennþá þar, en er þó ekki flóttamenn samkvæmt skilgreiningu Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Ástæða þess að þetta fólk hefur ekki getað snúið til síns heima er að enn er fimmt- ungur Aserbaídsjan hemuminn og friðarsamningar hafa ekki náðst milli Aserbaídsjan og Armem'u. Það voru alls um 600 þúsund manns sem flúðu þessi átök. Þetta fólk er um allt land, flest þó í Baku og stærri bæjum. Hluti þessa fólks er ennþá í flóttamannabúðum en Alþjóðasambandið rekur nokkrar svona búðir, fyrir alls um 35 þús- und manns. Tekur langan tíma að reisa allt úr rústum Hins vegar er svo um að ræða aðstoð við gamalt fólk, sem býr eitt og á enga nána aðstandendur. Þessi hópur er 30 þúsund manns og það fólk fær matarpakka fjórum sinnum á ári frá Rauða krossinum og Rauða hálfmánanum. Auk þess fá þeir veikustu, sem eru um 7 þús- und manns, líka aðstoð með lyf og aðhlynningu. Þetta er langveikt, gamalt og hrumt fólk sem er mjög illa statt, ekki beinlínis vegna stríðsins, heldur vegna hruns Sov- étríkjanna á sínum tíma. Þetta gamla fólk lenti í því að það sparifé sem það átti brann meira eða minna upp í óðaverðbólgunni í byrjun tíunda áratugarins. Nú hef- ur reyndar náðst svolítið efnahags- legt jafnvægi í Aserbaídsjan en þetta fólk stendur uppi slyppt og snautt og það tekur langan tíma að reisa efnahagskerfið, velferðar- kerfið og atvinnuvegina úr rúst- um,“ segir Þórunn og bætir við að ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir vann sem upplýsingafulltrúi fyrir Alþjóðasamband Rauða kross- og Rauða hálfmánafélaga í Baku í Aserbaídsjan. þó að margt hafi breyst til hins betra, sé fátæktin enn landlæg og margir þurfi eftir sem áður aðstoð með brýnustu nauðþurftir. Fólk sem kvartar ekki yllr smámunum Eygló er hjúkrunarfræðingur og vann á gjörgæsludeild sjúkrahúss- ins í Lokichokio í Kenýa, þar sem flestir sjúklingamir komu frá Suð- ur-Súdan, ungir hermenn með skotsár, brunasár og sár eftir jarð- sprengjur og oftast nær var liðinn langur tími frá því að menn særð- ust þar til þeir komust á spítalann. Hlutverk Eyglóar og annarra vestrænna sendifulltrúa á spítalan- um var m.a. að halda uppi gæðum hjúkrunar en megnið af starfsfólk- inu er lítið menntað í umönnun og tæknin mjög takmörkuð. „Við höfðum engin tæki til þess að meta ástand sjúklinganna, þannig að við urðum bara að nota augu og eyru,“ segir hún. „Þetta er upp til hópa geysilega elskulegt og hugdjarft fólk, sem kvartar ekki yfir smámunum. En vissulega var ei-fitt að horfa upp á ungt fólk missa úthmi, lamast og deyja, oftast langt frá ættingum sínum. Þama gerðust harmleikir, en líka kraftaverk, smá og stór, og það eru þau sem gera þetta að ótrúlega áhugaverðu starfl," segir Eygló, sem er ekki í nokkrum vafa um að hún eigi eftir að fara aftur út til hjálparstarfa á vegum Rauða krossins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.