Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Á GRÁI kötturinn eftir að gjalda meistaranum rauðan belg fyrir gráan með því að minnast
gömlu góðu stundanna fyrir Dabba?
Mikill hiti frá logandi bátunum á Rifí
Hugsanlegar skemmdir
á fleiri bátum
KOMIÐ hafa í ljós skemmdir á öðr-
um bátum en þeim þremur sem
eyðilögðust í eldsvoða í höfninni á
Rifi aðfaranótt miðvikudags í síðustu
viku. Heiðar Baldvinsson, sem á Asa
EA 36, telur að hitinn frá eldhafinu
hafi hugsanlega skemmt stýrishúsið
á báti sínum.
„Báturinn lá hinum megin bryggj-
unnar þar sem bátamir brunnu og
voru ekki nema þrír metrar á milli
þeirra,“ sagði Heiðar í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Sjö belgir á
síðu bátsins hitnuðu og afmynduðust
og plastkar afturá var farið að
bráðna. Það hefur bara verið mín-
útuspursmál hvenær kviknaði í hon-
um og fleiri bátum. Plastið í hlið
stýrishússins er skemmt því þegar
það hitnar svona breytast eiginleikar
þess, rakinn kemst í það og þannig
fúnar það mjög fljótt."
Þeim megin bryggjunnar sem Asi
lá var annar bátur, Heiðrún, sem
Heiðar telur einnig að hafi skemmst
og segir hann þessar skemmdir
verða metnar eftir hátíðarnar. Heið-
ar býr á Grenivík en hefur síðustu
tvö árin gert út annars staðar frá og í
Tekinn á
123 km
hraða
ÖKUMAÐUR var tekinn á
123 km hraða á Skutulsfjarð-
arbraut á ísafirði rétt eftir
miðnætti á mánudagskvöld.
Var hann sviptur ökuleyfi á
staðnum.
Að sögn lögreglunnar á ísa-
firði er mikil umferð um ísa-
fjörð og nágrenni en vegir þar
um slóðir eru auðir og hefur
umferð gengið vel. Þar sem
maðurinn vai- tekinn í fyrra-
kvöld er leyfður 60 km hraði
og var hann sviptur ökuleyfi
um stundarsakir.
Morgunblaðið/Guðlaugur Wlum
TALIÐ er að nokkrir bátar í Rifshöfn hafi skemmst vegna hita þegar
kviknaði þar í þremur bátum á dögunum.
vetur hefur hann róið frá Rifi. Hann
sagðist einnig hafa sett björgunar-
bátinn í skoðun því hugsanlegt væri
að límingar og annað hefði gefið sig.
Hefði getað farið miklu verr
Talið er að verðmæti bátanna sem
eyðilögðust sé milli 20 og 30 milljónir
króna. Heiðar kvaðst ekki geta gisk-
að á hversu mikið myndi kosta að
skipta um hlið í stýrishúsinu á sínum
báti ef hún yrði dæmd ónýt. „Þetta
hefði allt getað farið miklu verr og
heppilegt að veður var gott og að
eldsins varð vart svo fljótt. Það hefði
kviknað í mun fleiri bátum ef logandi
bátana hefði rekið víðar um höfnina
og það er ljóst að menn lögðu sig í
hættu við slökkvistarfið," sagði
Heiðar að lokum.
Reglur settar um
Gunnarsstofnun
BJÖRN Bjamason menntamála-
ráðherra hefur kynnt ríkisstjóm
reglur, sem settar hafa verið um
Gunnarsstofnun að Skriðuklaustri.
Em reglumar settar á gmnd-
velli gjafabréfs Gunnars Gunnars-
sonar skálds og Franziscu Gunn-
arsson, konu hans, frá 11. desem-
ber 1948.
Stofnunin á m.a. að leggja rækt
við bókmenntir með áherslu á rit-
verk og ævi Gunnars Gunnarsson-
ar, reka dvalarstað fyrir lista- og
fræðimenn, stuðla að atvinnuþróun
á Austurlandi, efla rannsóknir á
austfirskum fræðum, stuðla að al-
þjóðlegum menningartengslum og
standa fyrir sýningum og öðmm
listviðburðum.
Gunnar og Franzisca gáfu ís-
lenska ríkinu bújörðina
Skriðuklaustur í Fljótsdal ásamt
öllum húsum og mannvirkjum,
gögnum og gæðum og var kveðið á
um það að jarðeignin skyldi vera
ævarandi eign íslenska ríkisins,
sem bæri að hagnýta til eflingar
menningu.
Ráðuneytið skipaði þriggja
manna stjóm fyrir Gunnarshús og
er Helgi Gíslason, framkvæmda-
stjóri, Helgafelli, formaður hennar.
Stjómin samdi tiilögur að þeim
reglum, sem nú hafa verið settar.
Hún á afmæli á jólunum
Heklaða dúkk-
an kom mest
á óvart
Guðrún Jósefsdóttir
HVERNIG ætli það
sé að eiga afmæli á
sjálfan aðfangadag
jóla? Hún Guðrún Jósefs-
dóttir, sem verður tólf ára í
dag, aðfangadag, segir að
það sé skemmtilegt að eiga
afmæli á jólunum og bætir
við að sér hafi aldrei leiðst
það.
„Mér hefur alltaf þótt
mjög gaman að eiga af-
mæli á jólunum. Þá er ég
búin að halda upp á afmæl-
ið og þegar kemur að sjálf-
um afmælisdeginum emm
við svo búin að skreyta allt
hjá okkur og gera jólalegt.
Állt er orðið hreint og fínt.
Við fáum síðan góðan mat
að borða og amma mín og
móðurbróðir minn koma til
okkar í heimsókn og borða
með okkur jólamatinn. Svo
fæ ég líka aukapakka sem er frá-
bært þó að bróðir minn sé ekki
alltaf ánægður með það.“
- Hvenær heldurðu upp á af-
mælið þitt?
„Eg held oftast upp á afmælið
mitt fyrstu vikuna í desember og
býð þá til mín bekkjarsystrum,
vinkonum og þeim úr fjölskyld-
unni sem komast. Við fömm í
leiki og spjöllum saman.
Mamma og pabbi bíða oft
fram eftir desember með að gefa
mér afmælisgjöf og síðan fæ ég
líka afmælisgjafir á jólunum frá
frænkum mínum sem búa úti á
landi og komast ekki í afmælis-
veisluna mína. Ég á því eigin-
lega afmæli tvisvar á ári, stund-
um þrisvar, því oft fæ ég afmæl-
isgjöfina frá mömmu og pabba á
afmælisdegi pabba sem er 18.
desember."
-Færðu ekki afmæliskveðjur
ájólunum?
„Jú venjulega hringja ættingþ
ar og vinir í mig á aðfangadag. í
fyrra beið ég og beið eftir að fá
hringingu en síminn var aldrei
til mín. Afmælisdagurinn minn
gleymdist alveg. Fólk hefur lík-
lega haft svo mikið að gera að
það mundi ekki eftir þessu. Það
var dálítið skrítið og ég varð svo-
lítið vonsvikin.“
- Hvaða afmælisgjöf hefur
komið þér mest á óvart?
„Afmælisgjöfin sem ég fékk
fyrir nokkrum dögum frá
mömmu og pabba. Ég fór nefni-
lega með mömmu að kaupa
dúkkuhöfuð og vissi ekkert hvað
hún ætlaði að gera við það. Þeg-
ar þau gáfu mér afmælispakk-
ann kom dúkka í ljós sem
mamma hafði sjálf
heklað úr bláu og
rauðu garni. Hún hafði
heklað bieikan kjól og
sett dúkkuna í hann.
Dúkkan var síðan með
burðarpoka og þar í var önnur
lítil dúkka. Mér þótti mjög vænt
um þessa afmælisgjöf.11
- Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera ájólunum?
„Mér finnst eiginlega allt
gaman og hlakka til jólanna. Þó
held ég að mér finnist lang-
skemmtilegast að borða góðan
jólamat. Við erum alltaf með
hangikjöt með jafningi, kartöfl-
um, rauðkáli, grænum baunum
og jólaöli. Á eftir fáum við ís og
þegar við erum búin að opna
pakkana okkar kemur mamma
með afmælistertu handa okkur
og heitt súkkulaði."
- Hvernig undirbýrðu jólin?
►Guðrún Jósefsdóttir er fædd
í Reykjavík hinn 24. desember
árið 1985. Hún er dóttir hjón-
anna Karítasar Sigurlaugs-
dóttur og Jósefs Agústar Guð-
jónssonar. Bróðir hennar er
Sigurlaugur Guðjón Jósefsson
sem er tíu ára gamall.
Guðrún er nemandi í 7-RÞ í
Langholtsskóla.
„Ég hjálpa mömmu að baka
og stundum reyni ég að hjálpa
henni við að þrífa líka. Síðan
skreytum við og ég og bróðir
minn fóndrum mikið. Fyrir þessi
jól bjuggum meðal annars til
langa músastiga sem við
skreyttum með og fullt af öðru
jólaskrauti."
- Er eitthvað sérstakt sem þig
langar til að fá í jólagjöf?
„Þegar ég hélt upp á afmælið
mitt í byrjun desember langaði
mig rosalega í tölvudýr og ég
fékk kisu tölvudýr í afmælisgjöf.
Það fékk ég frá mömmu og
pabba og þá fékk ég eiginlega
óskina mína uppfyllta. Svo fékk
ég líka jólatré í afmælisgjöf,
naglalakk, reykelsi og reykelsis-
bakka.
Heyrðu, jú mig langar annars
mikið í bókina Bert og bað-
strandagellumar í jólagjöf. Bert
bækurnar finnast mér mjög
skemmtilegar."
Guðrún segist stundum verða
yfir sig spennt þegar jólin eru að
koma. „Ég veit þá ekkert hvað
ég á af mér að gera og verð
stundum dálítið æst. Svo verður
allt rólegt þegar aðfangadagur
er búinn.“
- Er einhver afmælis-
dagur sérstaklega
minnisstæður?
„Já afmælisdagur-
inn minn í fyrra var
alveg sérstakur.
Snemma um morguninn, einmitt
þegar ég mátti sofa út, ruddist
bróðir minn, Sigurlaugur Guð-
jón, með látum inn til mín.
Stuttu seinna komu mamma og
pabbi. Þau sungu síðan öll fyrir
mig afmælissönginn og vöktu
mig þannig.“
- Ertu með þessu að segja að
þú viljir helst að þau láti ógert
að vekja þig á þennan hátt aft-
ur?
„Nei alls ekki. Mér fannst
þetta mjög gaman og hefði ekk-
ert á móti því að þau vektu mig
svona aOa mína afmælisdaga. Þá
er þetta eins konar jólaafmælis-
vekjaraklukkan mín.“
Skemmtileg-
ast að borða
jólamatinn