Morgunblaðið - 24.12.1997, Síða 9

Morgunblaðið - 24.12.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 9 FRÉTTIR Norðmenn hóta að setja öll „íslensk SmugTiskip“ og útgerðir þeirra á svartan lista „Ný sprengja“ í samskiptum þjóðanna Islenskir ráðherrar og útgerðarmenn segja hótunina og ótrúlegan barnaskap n W/TZm h Kystens assríagsevis ri$Karen Ne 93*23.Í9Éft «HUNDELOGIKK.»( SIER UTENRIKSWIINISTER ASGRIMSSON: Norge svartelister islandske skrog ■ N’orsktí myndtó harnokengAng klAit & fb sinnene»kok pS terogredercsomhar ddun í <kt omstrídtc fiiket S SmutthuUet. og nciae dcm eventudte „NORSK stjórnvöld ætla að setja á svartan lista öll skip og útgerðir, sem stundað hafa veiðar í Smug- unni.“ Kom þetta fram í norska sjávarútvegsblaðinu Fiskaren í gær og þar sagði, að þetta hefði verið ákveðið þegar umsókn fær- eysks útgerðarfyrirtækis um veiði- leyfi innan norskrar lögsögu fyrir togarann Sverri Olafsson, sem áð- ur hét Stakfell ÞH 360, hefði verið hafnað. Sagði blaðið, að með þessu hefði ný sprengja sprungið í átök- unum milli Islendinga og Norð- manna eins og mjög hörð viðbrögð íslenskra ráðamanna sýndu. I við- tali við Morgunblaðið í gær sögðu þeir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Guðbrand- ur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Utgerðarfélags Akureyringa, að þetta nýjasta útspil Norðmanna væri ótrúlegur og raunar óskiljan- legur barnaskapur og kváðust ekki trúa, að honum yrði haldið til streitu. I Fiskaren kemur fram, að Stak- fellið og íýri-verandi eigandi þess, Hraðfrystistöð Þórshafnar, hafi að mörgu leyti haft forgöngu um veið- ar í Smugunni en síðan hafí skipið verið selt færeysku útgerðarfyi’ir- tæki, sem Hraðfrystistöðin eigi þó tæplega helming í. Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður á Fiskaren, sagði í viðtali við Morg- unblaðið, að fyrst hefði færeyska fyrirtækið sótt um, að Stakfellið fengi leyfi til að veiða úr færeysk- um kvóta innan norskrar lögsögu en því verið hafnað. Síðan hefði lið- ið nokkur tími og þá borist önnur umsókn frá fýrirtækinu fyrir togarann Sverri Olafsson. Sagði Magnús, að síðari umsóknin hefði farið mjög fýrir brjóstið á norskum yfíi’völdum, sem sökuðu Færey- inga um blekkingar og tilraun til að láta líta svo út, að um allt annað skip væri að ræða. Afstaða norskra yfii’valda bygg- ist á reglugerð um veiðar útlend- inga innan norskrar lögsögu en þar segir meðal annars, að neita megi þeim skipum og útgerðum, sem tekið hafí þátt í óheftum veiðum á alþjóðlegu hafsvæði, um veiðileyfi svo fremi veitt hafi verið úr físk- stofni, sem lúti norskri fískveiði- stjórn. Fiskaren segir, að geri norsk yf- irvöld alvöru úr þessum hótunum sínum, muni það hafa alvarleg áhrif á samskipti Islendinga og Norðmanna og hugsanlega á út- gerð margra skipa, sem seld hafi verið til annarra landa, þar á með- al til Noregs, Englands, Græn- lands og Rússlands. Um þessar mundir séu til dæmis tvö frysti- skip að veiðum í Barentshafi, sem íslenskar útgerðir eigi hlut í, og hafi annað áður verið í Smugunni. Þá eigi Samherji og ÚA stóran hlut í þýskum fýrirtækjum, sem veiði úr kvóta Evrópusambandsins í Barentshafi. Blaðið hefur eftir Ki-istjáni Ragnarssyni, fonnanni LÍÚ, að af- staða norskra yfirvalda sé „heims- met í fíflaskap“ og verði við þetta staðið, þurfi Norðmenn ekki að velta fyrir sér nýjum loðnusamn- ingi. Eftir Halldóri Asgrímssyni utan- ríkisi’áðheiTa er haft, að þetta sé rökleysa, sem geti komið í bakið á Norðmönnum sjálfum, og furðu- legt með tilliti til þess, að íslend- ingar og Norðmenn séu nú aftur farnir að tala saman. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hefur þau orð um í viðtali við blaðið, að Norðmenn séu dug- legir í að ráðast gegn smáþjóð eins og Islendingum en flýi með skottið á milli fótanna í hvert sinn sem ESB byrsti sig. Kveðst Þorsteinn ekki hafa neina trú á, að Norð- menn reyni að útiloka ESB-skip frá veiðum. Oskiljanlegar yfirlýsingar Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að yfirlýsing- ar Norðmanna væru varla svara- verðar og raunar óskiljanlegar. Að öðru leyti væri þetta Norðmönnum líkt og tengdist trúlega pólitíkinni hjá þeim, hugsanlega væntanleg- um samningum um loðnuna. Guð- brandur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri ÚA, kvaðst ekki vilja hafa mörg orð um þennan barnaskap Norðmanna og sagðist ekki trúa því, að þeir gerðu alvöru úr hótun- um sínum. Héraðsdómur Reykjavíkur Bílaumboð dæmt til að greiða stefgjöld HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur hefur dæmt bílaumboð til að greiða Sambandi tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF, og Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda, SFH, tæpar tólf þúsund krón- ur þar sem tónlist hafi verið leikin í húsakynnum bflaum- boðsins með þeim hætti að við- skiptamenn heyrðu hana. Aður hafa bílasala og hár- greiðslustofa verið dæmd til að greiða gjöld vegna tónlist- arflutnings í húsakynnum þein’a. Áttu það til að fikta 1 tækjunum Bílaumboðið sagði enga tón- list leikna í húsakynnum sín- um. I dóminum kemur fram, að í húsakynnunum var stand- ur með útvarpstækjum sem hægt var að kveikja á. Stand- urinn var settur upp fyrir nokkrum árum til kynningar á útvarpstækjum. Vitni, starfs- menn bílaumboðsins, hafi bor- ið að viðskiptavinir hafi átt það til að fikta í tækjunum og kveikja á þeim. Tónlist í 5 af 6 skiptum Dómurinn leit til framburð- ar þriggja starfsmanna STEF og SFH, sem sögðu að í fimm af sex skiptum sem þeir komu í bílaumboðið hafi tónlist verið leikin. / Islensk stúlka stýrir neðan- jarðarlest í Stokkhólmi ÞEIR eru örugglega ekki margir íslendingarnir sem hafa atvinnu af því að stýra neðanjarðarlest- um. I höfuðborg Svíþjóðar er þó íslensk stúlka, Helga Rut Valdi- marsdóttir, sem hefur þennan starfa. Hún er nýlega flutt til Stokkhólms frá Gautaborg, þar sem hún hefur átt heima frá sjö ára aldri. Henni líkar starfið Ijómandi vel og í fri'stundum kennir hún konum sjálfsvörn og heldur fyrirlestra gegn kynþátta- hatri. Vinnustaður Helgu Rutar er 150 metrar að lengd eða átta vagnar. Og í fremsta vagninum situr hún og stýrir öllu saman. Stundum koma upp vandamál, eins og til dæmis fyrir skömmu þegar eiturlyfjaneytandi réðst á gamla konu í einuin vagninum. Þá varð Helga Rut að stansa og skerast í leikinn. Þar kom sjálfs- varnarkunnáttan sér vel. 30% neðanjarðarlestarstjóra í Stokkhólmi konur Lestarstjórn hefur hingað til ekki verið dæmigert kvennastarf, en að sögn Helgu er nú markvisst unnið að því hjá neðanjarðarlest- unum í Stokkhólmi að auka hlut kvenna í stéttinni og þær hvattar til að sækja um. Nú eru um það bil 30% neðanjarðarlestarstjóra í Stokkhólmi konur. Helga liefur kynnst nokkrum af þeim konum sem hafa unnið lengst við lestar- stjórn og segir þær sterkar og skemmtilegar konur. Helga er 23 ára gömul, fædd í Reykjavík, en átti heima í Bol- HELGA Rut Valdimarsdóttir varð stúdent fyrir þremur ár- um. Nú er hún neðanjarðarlest- arstjóri í Stokkhólmi. ungarvík frá fjögurra til sjö ára aldurs, þegar hún fluttist til Gautaborgar ásamt móður sinni, BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar samþykkti nýlega að setja á stofn þriggja manna vinnuhóp til þess að vinna að stefnumörkun varðandi íjölnota íþróttahús í bænum. I vinnuhópnum verða einn full- stjúpföður og systkinum. Helga fluttist til Stokkhólms í mars sl. og vann á leikskóla í sumar. Það fannst henni ekkert sérstaklega gaman og því ákvað hún að slá til þegar vinkona hennar, sem er lestarsljóri, hvatti hana til að sækja um hjá neðan- jarðarlestunum. Alls sóttu 400 manns uin, af þeim fór um helm- ingur í atvinnuviðtal og læknis- skoðun og þeir 40 sem sluppu í gegnum hana fóru í greindarpróf og viðtal hjá sálfræðingi. Að því loknu voru ekki nema 12 manns eftir, sem fóru í fimm próf, skrif- leg jafnt sem verkleg. Allt þetta stóðst Helga með glans og fékk vinnuna. Styttist í tölvustýrðar lestir Hún var á tæknibraut í menntaskóla og hefur unnið á verkstæði og það hefur komið sér vel, því hún þarf að geta gert við ef eitthvað bilar, sem er nokkuð algengt þar sem vagn- arnir eru orðnir gamlir. En nú styttist í að tölvustýrðar lestar leysi þær gömlu af hólmi - og þá tekur við það spennandi verkefni lijá Helgu að læra á þær. trúi minnihluta bæjarstjórnar og tveir frá meirihluta. Samþykkt var jafnframt að semja við VSÓ ráð- gjöf og Verkfræðistofu Njarðvíkur um að vinna með vinnuhópnum að málinu. Fjölnota hús á Reykjanes? Lyfjaverð hefur lækkað frá 1996 VERÐ á lyfjum til íslenskra sjúk- linga hefur almennt lækkað frá árs- byrjun 1996, bæði lyfseðilsskyldum lyfjum og lausasölulyfjum. Þetta kom fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi. Guðmundur Arni Stefánsson, þingmaður Alþýðuflokks, spm-ðist fyrii’ um þróun lyfjaverðs, og kemur fram í svai’i Ingibjargar Pálmadótt- ur heilbrigðisráðherra að lyfjavísi- taia, sem mælir breytingar á opin- beru hámarksverði lyfja hefur lækk- að um 6,6% frá i. janúar 1996. Ástæður þessa eru einkum taldar þær að innflutningsverð hefm- lækk- að vegna þess að íslenska ki’ónan hefur styrkst gagnvart helstu lyfja- innflutningsmyntum nema breskum pundum, hámarksverði í heildsölu og smásölu vai- breytt í byrjun þessa árs og samkeppni hefur verið í sölu lyfja á viðmiðunarverðski’á. Verð hefur lækkað á þessu tíma- bili á 20 mest seldu lyfjunum að und- anskyldum þremur sem keypt eru inn í breskum pundum. Er meðal- lækkunin 14%. Þá benda kannanir til þess að verð sem sjúklingur greiðir fyrir lyf sé að jafnaði lægra en greiðsluhluti hans er samkvæmt ákvörðuðu hámarksverði. Verkjalyf og reykingalyf seljast mest Þingmaðurinn spurði hvort frjáls verðlagning og auknar heimildir til upplýsinga og kynningai- á lyfjum hefðu aukið neyslu lyfja sem seld væru án lyfseðils. Af svai’i ráðherra má ráða, að aukning í sölu þessara lyfja hafi numið 9% milli ái-anna 1994 og 1995 og 14% milli áranna 1995 og 1996. Er þessi breyting sögð skýrast að mestu leyti af sölu tveggja lyfja, verkjalyfsins Parkódíns og lyfsins Nicorette, sem er hjálparefni til að hætta reykingum. I svari ráðheira kemur fram það mat, að auknar heimildir til upplýs- inga og kynningar hafi aukið sölu þessai’a tveggja lyfja. Gleðilegjól! Lokað laugardaginn 27. desember hj&QýGufiihiUi ^ Fnniatpini F cími FR' Engjateigi 5, sími 581 2141.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.