Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 22

Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Jólin smeygja / • S ser mn 1 kommúnista- ríkið Kína Peking. Morgunblaðið. KOMMÚNISTASTJÓRNIN í Kína, sem að forminu til er land trúleysingja, opnaði luktar dyr til útlanda fyrir 18 árum eftir að landið hafði verið lokað fyrir er- lendum áhrifum í mannsaldur. Streittist hún mjög á móti er vestrænar jólahefðir tóku að heilla landsmenn, einkum af yngri kynslóðinni, fyrir um tveimur árum. Jólakortasending- ar til ættingja, kunningjafólks og annarra vina voru fordæmdar sem bruðl og verðmætasóun. Fordæmingin hefur engan hljómgrunn fengið og alltént ekki fengið stöðvað stríðan straum jólakorta um pósthúsin. Þvert á móti hefur straumurinn vaxið og víða hefur þurft að seija upp risastóra aukapóst- kassa til að taka við flaumnum. Og jafnvel háttsettir embættis- menn hafa heillast. Frá þeim berast kort þar sem ýmist er óskað gleðilegra jóla, gleðilegr- ar hátiðar eða góðs nýs árs. Ara- mótakveðjurnar hafa þó borist það löngu fyrir jól að engum dylst að þar er um að ræða jóla- kveðju undir rós. Og jólakortin fást á sífellt fleiri stöðum, allt frá litlum sölu- borðum á útimörkuðum til sér- verslana íburðarmikilla verslun- arhúsa. Og úrvalið er ótrúlegt, þar gefur að líta erlend kort með jólasveinum, jólatijám, englum eðajötum. Einnig hefðbundnar kínverskar teikningar og skraut- ritun með jóla- og nýárskveðjum undir. Kínverjar kaupa þau fyrr- nefndu en útlendingar kínversku teikningarnar, að sögn Zhangs Li í Friðarkringlunni, sem er stórt verslunarhús í Peking. Jólasamkvæmi út um allt Hin nýja jólastemmning í Kína á miklu minna skylt við fæðingu frelsarans en viðskipti og versl- un. f fyrra voru það einungis stór hótel í alþjóðlegum hótel- keðjum sem buðu upp á hátíðar- kvöldverð á aðfangadagskvöld og jólamáltíð á hádegi á jóladag. f ár fyrirfínnst ekki það hótel eða veitingahús með snefil af sjálfsvirðingu sem ekki býður upp á jóla-eitthvað. AUt frá 1. desember hafa þau boðið upp á jólahlaðborð frá morgni til kvölds og auglýst hátíðarveiting- ar á sjálfum jólunum. Þá eru verslunargötur stór- borganna fagurlega skreyttar í tilefni jólanna, með kúlulaga lömpum, jólatijám, jólasveinum og alls kyns jólamyndum. Versl- unarhúsin í Peking hafa og öll haft hljómsveitir eða kóra á sín- um snærum sem ieikið hafa eða sungið vinsæl og ómþýð jólalög daginn út og inn í þeirri von að laða viðskiptavini að. Myndast hefur vinsældalisti jólalaga og þar situr Heims um ból efst, ekki vegna innihalds textans heldur yndisþokka lagsins. Jólatréssala hefur aukist svo um munar en fyrst og fremst eru gervijólatré í boði og kosta þau frá 850 til 3.600 íslenskra króna. Lifandi tré eru sjaldgæf þótt þau standi í fordyri hótela, veitinga- og verslunarhúsa, en þau kosta frá 3.600 og upp í 11 þúsund krónur eftir stærð. Eftirtekt vekur, að fyrir þessi jól hafa blöð, útvarp og sjón- varpsstöðvar flutt ótal myndir og frásagnir um jólin, meira að segja um jólahald kristinna manna. Sýnt hefur verið frá jóla- guðsþjónustum í kristnum kirkj- um og jólatónleikum, allt frá flutningi á Messíasi eftir Handel eða ýmissa jólalaga. Finnar sendu jólasvein til Kína Jólasveinninn hefur einnig leikið stórt hlutverk í aðdrag- anda jólanna. Finnsk ferðamála- yfirvöld voru fijót til og sendu svein frá Helsinki og auglýstu komu hans til Peking rækilega í íjölmiðlum. Vakti hann mikla að- dáun meðal barna í þeim 12 skól- Morgunblaðið/Kong Qing Yan ALGENG sjón síðustu vikur í móttökusölum hótela og verslunarhús- um í Peking eru hljómsveitir og kórar að spila jólasálma og jólalög. um sem hann heimsótti og í fjölda verslunarhúsa þar sem hann hafði viðkomu. Átta kirkjur mótmælenda í Peking og 16 kirkjur kaþólskra hafa orðið að fjölga guðsþjónust- um um helming á aðventunni vegna aukinnar aðsóknar og hafa samt alltaf verið yfirfullar. Jólaguðsþjónusturnar í kvöld eru einnig tvöfalt fleiri en í fyrra og kirkjugestir hafa verið hvatt- ir til að koma tímanlega til að fá sæti, t.d. í Chong Wen Men, stærstu kirkju mótmælenda, sem rúmar tvö þúsund manns. Du prestur í næststærstu kirkju mótmælenda, Gangwashi, býst við allt að 10 þúsund gestum í jólamessur. Þar hefur sænskur kirkjukór sungið á hveiju kvöldi frá 14. desember, ætíð fyrir troðfullu húsi. Kínveijar hafa löngum fagnað komu nýs árs, sem gengur í garð samkvæmt kínversku tíma- tali 28. janúar, og þá eru m.a. gefnar gjafir. Nú þykir allt stefna í að jólin muni slá út nýársfögnuðinn og biðraðir vegna jólagjafakaupa við búðar- kassana í stórverslunum, bæði ríkis- og einkareknum, líklega síst verið styttri en í búðunum í Reykjavík. Utanaðkomandi fólki kemur þessi öra þróun á óvart en fyrir örfáum árum hefði víst engan órað fyrir því að Kínveij- ar myndu brátt halda jólin eins og á Vesturlöndum. Eini munur- inn er að jóladagarnir eru enn ekki frídagar f Kfna. Samstarf við Vesturlönd ekki borið árangur Moskva. Reuters. JEVGENÍ Prímakov, utanríkisráðherra Rúss- lands, sagði í gær að tilraunir Rússa til að koma á samvinnu á sviði öryggismála við Vesturlönd hefðu ekki borið árangur. í áramótakveðjum Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta, til vest- rænna leiðtoga, sem kynntar voru að hluta í gær, kemur hins vegar fram mun jákvæðara stöðumat. Forsetinn hóf aftur störf í Kreml í gær eftir að hafa verið frá vinnu í tvær vikur vegna kvefs og veirusýkingar. Forsetinn var á skrifstofu sinni í þrjár klukkustundir, áður en hann hélt aftur til Barvikha-heilsuhælisins, og átti fundi með flestum af sínum nánustu sam- starfsmönnum. Á blaðamannafundi, sem rússneski utanríkis- ráðherrann hélt í gær, sagði hann að við lok kalda stríðsins hafi hugmyndum um bandalag hinna gömlu óvina verið ákaft hampað. Með tíð og tíma hafi hins vegar mesti glansinn farið af þeim. „Tengslin tóku smám saman á sig mynd þess sem drottnar og þess sem drottnað er yf- ir,“ sagði Prímakov, sem tók við embætti utan- ríkisráðherra af Andrei Kozyrev í byrjun ársins 1996 en þá var aukin spenna farin að einkenna samskipti Rússlands og Bandaríkjanna. Eru ummæli Prímakovs í gær talin óbein gagnrýni á stefnu forvera síns í embætti. Rússum hefur gramist sú ákvörðun Atlants- hafsbandalagsríkjanna að veita fyrrum aðildar- ríkjum Varsjárbandalagsins aðild að NATO. Þá telja þeir Vesturlönd vilja skáka sér út í hom á vettvangi alþjóðastjómmála. Prímakov hefur áður gagnrýnt stefnu Kozyrevs gagnvart Vesturlöndum og haldið því fram að Rússar ættu að standa vörð um hags- muni sína af meiri festu. Jeltsín jákvæður Hann hélt því fram í gær að þessi stefnu- breyting væri þegar farin að bera árangur: „Rússland hefur ekki einungis sínar eigin áherslur í alþjóðamálum, við látum okkur ekki nægja að halda fánanum á lofti, við höfum varðveitt það hlutverk okkar að vera einn öfl- ugasti þátttakandinn á sviði alþjóðastjórn- mála.“ Sergei Jastrzhembskí, talsmaður Rússlands- forseta, las á blaðamannafundi í gær upp brot úr nýárskveðju Jeltsíns til vestrænna leiðtoga. í kveðju sinni til Bills Clinton Bandaríkjafor- seta fagnar forsetinn því að Rússar skuli hafa fengið aðild að fundum helstu iðnríkja heims (G-7), efnahagssamvinnuráðs Kyrrahafsríkja (APEC)og að náðst hafi samkomulag um af- vopnun og aukna samvinnu Rússa og NATO. „Mt ber þetta vott um skilvirka samvinnu Rússlands og Bandaríkjanna en án hennar væri ekki hægt að leysa eitt einasta stórt deilu- mál á alþjóðavettvangi,“ sagði í kveðju forset- ans. Jastrzhembskí sagði Rússa vonast eftir að geta tekið á móti Clinton í opinbera heimsókn á næsta ári og að vonir stæðu til að rússneska þingið myndi fyrst staðfesta START-2 sam- komulagið þannig að hægt væri að taka næsta skref á sviði afvopnunarmála. Ihugar NATO- aðild VIKTOR Klima, kanslari Austurríkis, útilokar ekki að landið falli frá hlutleysisstefnu sinni og gangi í Atlantshafs- bandalagið, að sögn dagblaðs- ins Salzburger Nachrichten í gær og áskilur sér frest til mars á næsta ári til að ákveða hvort sótt verði um aðild að bandalaginu. Austurrískir jafnaðarmenn hafa hingað til verið andvígir því að fallið verði frá hlutleysisstefnunni. Fjöldamorð- ingja sleppt HÆSTIRÉTTUR Danmerkur ákvað í gær að sleppa bæri 33 ára danskri konu, sem er sök- uð um að hafa myrt 22 vist- menn elliheimilis í Kaup- mannahöfn, úr fangelsi. Dóm- stóllinn hafnaði úrskurði um að konunni yrði haldið í gæslu- varðhaldi meðan málið yrði rannsakað þar sem ekki væri ástæða til að ætla að hún gæti spillt fyrir rannsókninni. Albönum hjálpað FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins sagðist í gær ætla að senda matvæli til um 7.500 íbúa á flóðasvæðum í norðurhluta Albaníu. Nokkur hundruð íbúar á svæðunum hafa þurft að flýja heimili sín vegna flóða í kjölfar mesta úr- hellis í Albaníu í 35 ár. Schneider í fangelsi JÚRGEN Schneider, sem um árabil var einn umsvifamesti fasteignabraskari Þýzkalands, var í gær fundinn sekur um stórfelld fjársvik og dæmdur í sex og ára og níu mánaða fangelsi. Honum var þó leyft að eyða jólunum heima hjá sér. Schneider hafði með brögð- um haft milljarða marka út úr helstu bönkum landsins. Umdeild jólaleyfí 160 hryðjuverkamönnum voru veitt jólaleyfi úr fangelsum á Norður-frlandi í gær. Á meðal þeirra var Patrick Magee, sem dæmdur var fyrir sprengjutil- ræði við hótel í Brighton þar sem Margaret Thatcher og ráðuneyti hennar voru við fundahald árið 1994. Leyfis- veitingin hefur valdið mikilli reiði meðal fómarlamba hryðjuverka. Börn smíða IKEA- húsgögn SÆNSKA sjónvarpsstöðin TV2 hélt því fram í fyrrakvöld að böm á Filippseyjum og í Ví- etnam hefðu smíðað húsgögn sem IKEA hefði selt. Undir- verktakar fyrirtækisins voru sagðir hafa staðið fyrir þessu og stjórnendur IKEA segjast ekki hafa heimilað að börn séu notuð til framleiðslunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.