Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 24

Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 24
24 MIÐVÍÍÚDÁg'iÍR 24.! 1997 ' MORGtJNBLÁÐID - 1 LISTIR í hremmingum næturinnar BÆKUR Skáldsaga BLÁNÓTTFRAMÍ RAUÐA BÍTIÐ eftir Helga Ingólfsson. Útg. Mál og menning 1997.212 bls. SJÁLFSKAPAÐAR hremm- ingar sem maðurinn lendir í mætti kalla söguþráðinn í þess- ari sögu Helga Ingólfssonar, sem er gefín út í kilju. Helgi hefur áður skrifað söguna Andsælis á auðnuhjólinu en hana hef ég ekki lesið. Höfundur leiðir okkur rakleitt inn í söguna, engar málalenging- ar; hinn mislukkaði og beiski blaðamaður og hálfpartinn sjení Gissur er staddur á krá í Reylq'a- vík og hefur ákveðið að detta í það. Þó svo hann viti að kona hans, prestsdóttirin Imba, sem er gædd ótrúlegu langlundargeði muni verða bæði mædd og leið ef hann kemur ekki heim á sæmi- lega kristilegum tíma. Þar sem þau búa hjá tengda- foreldrum hans, hinum geðstirða og hvimleiða presti Snorra sem hefur um skeið gengið með bisk- up í maganum er víst að næturg- öltrið muni hafa hinar verstu afleiðingar. Ekki ber að rekja söguþráðinn en óhætt að fullyrða að Gissur á eftir að kynnast ýmsu og ýms- um þessa nótt sem kemur honum óþyrmilega í bókstaflegri merk- ingu og æði vel líka á óvart. Aðalpersónan Gissur er dregin upp hröðum dráttum. Hann hefur aldrei verið metinn að verðleikum þessi náungi og þó hefur hann skrifað og skrifað og kona hans hefur umborið hann af stakri þolin- mæði. Sem er meira en hægt er að segja um guðstengdaföð- ur hans Snorra. Höfundur kann mæta vel að segja sögu. Einkum fram- an af rennur sagan vel, byggingin er í góðu lagi og ekki að sjá annað en fyrir höfundinum vaki að segja þessa nætursögu. Án préd- ikunar en þó kemst það til skila að það sem maðurinn lendir í og mætir á lífsleiðinni er kannski meira og minna það sem hann skapar sér sjálfur. Þau „ævintýri" næturinnar eru svo margþætt að þegar fer Helgi Ingólfsson að líða á varð ég ansi þreytt á þessu og var því sárafegin þegar Gissur komst loks í hús til skringilegheitakonunnar Elinóru kattakonu. Aftur á móti fannst mér Helgi lenda í verulegum vandræðum upp úr því, verðlaunasöguskrifin voru eins konar vandræðagang- ur og niðurlagið kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum - nema það eigi að sannfæra les- anda í eitt skipti fýrir öll hvað Elínóra var þrælrugluð. Persónusköpun höfundar er líka dálítið sérkenni- leg. Hann virðist leggja allt kapp á að lesanda líki alls ekki við persónum- ar og á það ekkert síður við um Gissur sjálfan en aðra í bókinni. Eina mann- eskjan sem er svona nokkuð notaleg er á hinn bóginn afskap- lega litlaus og leið- inleg þar sem er Imba eiginkona. Mér fannst ekki skrítið þó Gissuri hefði ekki vegnað sérlega vel, hann er svo ótútlegur hvern- ig sem á karakterinn er litið, svo dæmigerður leiðinda „lúser“ að hann er vís að klúðra líka því happi sem á hans fjörur rekur í lokin. Það er ýmislegt fyndið og skemmtilega skrifað en síðari hlutann hefði höfundur mátt hug- leiða upp á nýtt og skrifa síðan. Jóhanna Kristjónsdóttir Ástir Barböru KYIKMYNDIR Iláskölabíó BARBARA ★ ★ ★ Leikstjóri: Nils Malmros. Byggð á samnefndri skáldsögu Jorgen-Frantz Jacobsen. Kvikmyndataka: Jan Weincke. Aðalhlutverk: Lars Simons- en, Anneke von der Lippe, Jens Okking, Trond Hovik, Ove Petersen, Peter Reichardt, og Helene Egelund. 140 mín. Dönsk/F æreysk. Per Holst Filmproduktíon. 1997. PERSÓNA hinnar lífsglöðu og lo- stafullu Barböru (Anneke von der Lippe) er byggð á bókmenntalegri hugmynd um konu sem (karl)skáld hafa gaman af að nota til að velta sér upp úr eigin harmkvælum. Hún er villt eins og hafíð, lætur illa að stjóm, og hundsar lögmál föðurins baeði á jörðu sem á himni. Von der Lippe leik- ur þessa týpu alveg ágætlega, eins langt og hún nær, í þessari mynd Nils Malmros, en kvikmyndin er samt aldrei um hana heldur um karlmennina í kringum hana, enda eru það karlleik- arar Barböru sem hafa bitastæðari hlutverk að vinna með. Fyrstan skal nefna Lars Simonsen í hlutverki sérs Páls, þriðja eigin- manns Barböra. Hinir tveir fyrri vora einnig prestar og dóu fyrir aldur fram, líklega af áhyggjum vegna eiginkon- unnar. Myndin hefst á því að Páll kemur til Þórshafnar í Færeyjum og það fyrsta sem hann er varaður við er auðvitað Barbara, ekkja fyrirrenn- ara hans, svo það gefur auga leið að hann fellur fyrir henni þó það stríði gegn betri vitund hans. Myndin ætti í raun að heita Raunir séra Páls þar sem sagan fylgir honum lengst af og hann er helsta vitundarmiðja myndar- innar. Simonsen stendur sig með stakri prýði í hlutverkinu og skilar vel harmkvælum prestsins sem tekur áhættu og tapar. Auk séra Páls era þrír aðrir karl- menn sem leika veigamikil hlutverk í sögunni um ástir Barböra. Það era Heyde dómari (Jens Okking) sem er heillaður af henni en heldur sig samt í ákveðinni fjarlægð og verður að lok- um mikill örlagavaldur, Gabríel (Trond Hovik) sem er fullur öfundar út í hina ófáanlegu frænku sína og notar öll tækifæri til þess að níða hana niður, og loks heimsmaðurinn Andreas (Peter Reichardt) sem í leit að skyndikynnum flækist í vef sem hann ræður ekki við. Reyndar er hlut- verk Andreas örsmátt en hinir tveir leika þýðingarmikil hlutverk og skila þeim alveg sérstaklega vel. í kringum þessar lykilpersónur er síðan stór hópur aukapersóna sem fylgjast með, liggja á gægjum, og tala og pískra og syngja kvæði um hegðan heldrafólksins í Færeyjum. Barbara er nefnilega byggð á miklum róman og tekst Malmros af stakri lagni að koma sögunni til skila. Um- hverfí og útlit er unnið af mikilli natni, kvikmyndatakan er falleg, eins og hæfir skandinavískri búningamynd, og tónlistin bara einstaka sinni ofnot- uð. Það má einna helst kvarta yfír því að Malmros hefði mátt þétta og skerpa seinnihluta myndarinnar. Bar- bara er samt aldrei virkilega lang- dregin, enda getur maður alltaf horft á landslagið. Anna Sveinbjarnardóttir Barbara tældi menn meó sterkum ástríóum og leiddi þá til glötunar. Geró eftir sögu Jorgen-Franz Jacobsen sem byggó var á ævi hans. Stórbrotnasta og dýrasta mynd sem Danir hafa framleitt. B arb ar a Jólin eru alls staðar LJÓSMYNDARINN Spessi gengst fyrir sýningu á 15 ljós- myndaverkum sem hvert um sig hefur verið prentað i 1.000 ein- tökum sem nú berast með jóla- kveðju til fólks víðs vegar um landið. 15 fyrirtæki keyptu hvert um sig eitt verk af listamanninum sem siðan voru prentuð í 15.000 eintökum alls og send vildarvin- um fyrirtækjanna með ósk um gleðileg jól. Jólakort Spessa færa landsmönnum þann boð- skap að jólin séu alls staðar. „Viðfangsefni mín eru gjarnan hlutir sem fólk tekur allajafnan ekki eftir, þetta eru hversdags- leg fyrirbæri sem hverfa í um- hverfið,“ segir Spessi. „Hins vegar er það svo að beri maður sig eftir því að skoða þá hluti sem t.d. eldhúsið, baðherbergið eða svefnherbergið hafa að geyma þá reynast þeir oft mjög fallegir þegar þeir eru komnir í annað samhengi. Jólin eru alls staðar og þegar betur er að gáð þá eru ansi mikil jól í þessum myndum.“ 7 t

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.