Morgunblaðið - 24.12.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 25
LISTIR
Kátir dagar í
Bústaðakirkju
TOMLIST
111 jómdiskar
KIRKJUTÓNAR
Tónlistarlíf í Bústaðakirkju.
Bjöllukór, barnakór, æskulýðs-
hljómsveit, kvennakórinn Glæð-
urnar, Kirkjukór Bústaðakirkju.
Guðni Þ. Guðmundsson, orgel.
Hljóðritað í Bústaðakirkju vor
og haust 1997, en lög nr. 5, 8,
10, 14, 21 og 28 voru hljóðrituð
í Víðistaðakirkju 19. maí
1997. Upptaka og hljóðvinnsla:
Halldór Víkingsson. Fram-
leiðsla: Broadcrest, London.
Sóknarnefnd Bústaðakirkju.
Fermata 1997.
EF ÞESSI hljómdiskur er vitn-
isburður um tónlistarlíf í Bústaða-
kirkju, þar sem eru starfandi
barnakór, bjöllukór, kvennakór og
kirkjukór - að ógleymdri æsku-
lýðshljómsveit, .þá virðist það vera
ansi fjörugt og skemmtilegt fyrir
þátttakendur, en að sama skapi
leiðinlegt fyrir tónlistarunnendur
- ég tala nú ekki um þá sem eru
handgengnir alvöru kirkjutónlist
og kirkjusiðum. Má vera að tón-
listarstarf unga fólksins í sókninni
treysti „persónulegt samband og
tengsl þeirra við almennt kirkju-
starf‘, en hvort það er „mikilvægt
tónlistarinnar vegna“ eða eigi yfir-
leitt erindi á tónlistarmarkaðinn
fæ ég með engu móti skilið. Ekki
nóg með að lögin séu annaðhvort
ómerkileg - eða gerð ómerkileg,
flutningurinn er yfirleitt skelfing
lítilfjörlegur og „á lágu plani“,
einsog sagt er. Undantekning er
þó prelúdían, fúgan og ciaconan
eftir Buxtehude í góðum flutningi
organista kirkjunnar (og stjórn-
anda kirkjukórs, bjöllukórs og
hljómsveitar). Drottinn er minn
hirðir er ekki illa sungið af Hönnu
Björk Guðjónsdóttur, Kristínu
Sædal Sigtryggsdóttur og Olöfu
Asbjörnsdóttur, en gallinn er sá
að þetta er bara „banalt“. I bljúgri
bæn er það líka, hvað sem hver
segir. Og negrasálmar eiga ekki
heima í íslenskri kirkjutónlist,
ekki frekar en Can-can eða
Fascination. Svo ekki sé minnst á
Ta-ra-ra-boom de-ay!
Oddur Björnsson
HLUTABRÉFAS JÓÐURINN
AUÐLIND HF.
-besta ávöxtun hlutabréfasjóða síðastliðin sjö ár
Síðastliðin sjö ár hefur Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf. skilað bestu
ávöxtun sambærilegra sjóða á Islandi. Sjóðurinn einkennist af virkri
stýringu á innlendu hIutabréfasafni og umtalsverðri eign í erlendum
verðbréfum. Ávallt er leitast við að draga úr sveiflum á gengi og
minnka áhættuna. Árið 1997 héldu eigendur Auðlindabréfa áfram að
njóta betri ávöxtunar en þeir sem bundu fé í öðrum hlutabréfasjóðum.
Tryggðu þér skattafslátt fyrir áramót
Boðgreiðslur VISA/EURO - afgreiðsla með einu símtali
SPARISJÓÐIRNIR
KAUPÞING HF
Sölustaðir Auðlindarbréfa: Sparisjóðirnir um land allt. Kaupþing Norðurlands hf, Skipagötu 9, Akureyri, sími 462 4700. Kaupþing hf, Ármúla 13A, sfmi 515 1500
Eldsneytissjálfsala
sem opnir eru allan
sólarhringinn er að
finna á eftirtöldum
Shellstöðvum:
Birkimel
Öskjuhlíð
Garðabæ
Kleppsvegi
Laugavegi
Reykjanesbraut
Suðurfelli
Vesturlandsvegi
Skógarhlíð
IVliklubraut
norðan og
sunnan megin
Gylfaflöt
í Grafarvogi