Morgunblaðið - 24.12.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 27
LISTIR
Blóðheitir skuggar
í GALLERÍI Ingólfsstræti 8 stendur
yfir sýning á verkum Haraldar Jóns-
sonar. Innvortis nefnist sýningin
sem stendur til 11. janúar og hana
er hægt að skoða inn um glugga
gallerísins yfir hátíðarnar.
Innvortis verður útvortis.
Franski myndlistarmaðurinn Serge
Comte kemst svo að orði í grein
sem hann ritar með sýningunni
undir yfirskriftinni Að kryfja líf.
„Á gólfinu liggja hlutir með óskil-
greinanlegu og framandi lagi sem
endurtekur sig eins og óleysanlegt
púsluspil. Sýningarvél varpar blóð-
heitum skyggnum út í rúmið, i átt
að „hinurn," með hægum tilviljana-
kenndum takti...“ í verkum sínum
hefur Haraldur fengist við hin
ýmsu ytri áreiti á líkamann, en við-
fangsefnið nú er innviðir líkamans
sjálfs.
Holrými líkamans, s.s. talfæra
og æxlunarfæra, verða sjálfstæð
form og endurtaka sig í samræð-
um/samræði á gólfi sýningarsalar-
inns. í hringekju sýningarvélarinn-
ar eru slidesmyndir af blóði. Vélin
hefur öðlast lif, með taktfastri
reglu blikkar rautt ljósið, og blóð-
rásin sogar áhorfandann inn í göng
sín.
Samræður og samræði eru ná-
skild orð í íslenskri tungu. Lista-
maðurinn segir að í samræðum búi
auðvitað alltaf ákveðið daður við
Morgunblaðið/Ásdís
HARALDUR Jónsson sýnir í
Galleríi Ingólfsstræti 8.
viðmælandann. „Þessi verk lýsa
augnablikinu áður en allt gerist,
Hvað svo sem það síðan leiðir af
sér, - skilning eða nýtt líf. Samræð-
ur eru þannig séð fyrsta stig sam-
ræðis. Þú horfir, talar, snertir."
Hann líkir vinnu sinni við lestur á
lífinu. Mörg merkingarlög mynda
eina heild, rétt eins og setningar
mynda heillegan texta. Skrif eru
jafn mikil myndlist í hans huga og
listaverkin, hann er einfaldlega að
safna táknum fyrir áhorfandann
að lesa. „Sumum finnst verkið
rómantískt og ég get alveg verið
sammála því. Þetta er hárómantísk
sýning. Rauða ljósið felur líka í sér
félagslega skírskotun, rautt ljós
segir okkur að stoppa, bíða og
horfa. Ég er að biðja áhorfandann
um 15 sekúndur af athygli. Á opn-
uninni tepptist umferð um þröngan
gang salarins sökum fólksfjöldans
og allt í einu urðu áhorfendur aug-
ljóslega hinn aðilinn í samræðum
og samræði við verkið og á þeirri
stundu átti ákveðinn getnaður sér
stað,“ segir Haraldur. „Oft er það
þannig að þegar hlutirnir eru ein-
faldir í framsetningu verður skír-
skotun þeirra víð. Merkingin býr í
samhengi hlutanna. í verkum mín-
um er gjarnan skírskotun til stærra
samhengis, hvort sem það er til
samfélagsins eða listasögunnar,
Goya eða íslenskrar dagblaða-
menningar."
Hann segir að það að fara á
myndlistarsýningu eigi að vera
mjög sterk sjónræn upplifun, áhorf-
andinn eigi ekki að vera samur á
eftir. „Þetta er afstaða mín til lífs-
ins og ég fann það á opnuninni að
fleiri voru sama sinnis."
Nýjar plötur
• ICELANDIC church music:
The HuUgTÍmskirkja Motet
Choirer í flutningi Mótettukórs
Hallgrímskirkju
og Sigrúnar
Hjálmtýsdóttur
sópransöng-
konu, undir
stjórn Harðar
Áskelssonar.
Á plötunni
eru verk eftir
Atla Heimi
Sigrún Sveinsson, Jón
Hjálmtýsdóttir Nordal, Jón
Hlöðver Áskelsson, Þorkel Sigur-
bjömsson, Jónas Tómasson, Gunn-
ar Reynir Sveinsson, Hjálmar H.
Ragnarsson, Hörður Áskelsson,
Róbert Abraham Ottósson.
Platan er úrNorthern Lights
diskaröð ARSIS-CLASSICS.
Dreifingannast Japis. Verð: 1.999
kr.
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
tyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu iagerrýma.
Pjónusta - jickking - ráðgjnf. Aratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Sirazsœzzr
SUNDABORQ 1. RVK • SlMI 568 3300 • FAX 568 3305
Gail flísar
-T
llS :É
Stórhöfða 17, vlð GulUnbrú,
sími 567 4844
RÍKISÚTVARPÐ
Zlppíýsitifjar um fjöí6reytta jóCa- op
nýársdapjsfaá Útvarps opj Sjónvarps er að
finna í te?(tavarpi opj á fieimasíðu
tRikjs útvarpsi ns!
SíeCstu cfajjsfjártiðir verða sencCir út á
stuttbyCgju, CangbyCgju og á netinu.
http://www.ruv.is