Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 49
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
LINA DALROS
GÍSLADÓTTIR
+ Lína Dalrós Gísladóttir
fæddist i Bolungarvík 22.
september 1904. Hún lést á
Landspítalanum 14. desember
síðastliðinn og fór útför hennar
fram frá Hólskirkju í Bol-
ungarvík 20. desember.
Elsku amma mín.
Við vissum það báðar að þú
værir á förum. Samt var ég ekki
tilbúin þegar að því kom. En nú
veit ég að þér líður betur, laus við
þjáningar síðustu daga. Við fjöl-
skyldan þín finnum söknuðinn en
varðveitum í hjörtum okkar minn-
ingarnar.
Alla tíð þurftir þú að hafa mikið
fyrir lífínu. Þú varst ekki nema 26
ára þegar Jóhann afi dó, einstæð
með sex börn og þurftir þú þá að
láta móður mína frá þér til Reykja-
víkur. Það voru þér erfið spor en
þú harkaðir af þér eins og þú þurft-
ir oft að gera, það var ekki í þínum
anda að bogna eða gefast upp.
Þegar ég var fjögurra ára þá var
ég send til þín og Jóns, seinni
mannsins þíns, vegna veikinda föð-
ur míns og var ég hjá ykkur í eitt
og hálft ár eða þar til ég byijaði í
skóla. Sennilega höfum við þá
tengst böndum sem aldrei slitnuðu.
Ég man enn eftir því hvað mér
fannst mikill snjór þennan vetur í
Bolungarvík en ég hafði aldrei séð
svona mikinn snjó í Reykjavík. Þá
áttuð þið heima í litla húsinu sem
stóð við fjöruna en þegar það var
rifið þá fluttuð þið á Skólastíg 23
þar sem þið bjugguð þar til þið
fóruð á Sjúkrahúsið í Bolungarvík
fyrir um þremur árum. I garðinum
á Skólastígnum áttir þú þínar bestu
stundir. Þar plantaðir þú óteljandi
tijám og blómum af miklum dugn-
aði og hlýju. Garðurinn var stolt
þitt og meira að segja ræktaðir þú
jarðarber sem tókst vel hjá þér.
Þar varst þú flestar stundir og eft-
ir að þú fluttir á sjúkrahúsið var
það þér mikils virði að komast heim
til að fylgjast með blómunum og
litla húsinu þínu. Fyrir 30 árum
flutti ég til Isafjarðar og var það
okkur mikil ánægja að geta verið
nær hvor annarri. Ég og fjölskylda
mín komum oft í heimsókn til þín
og Jóns og alltaf var okkur tekið
með einstakri hlýju. Heita súkkul-
aðið þitt er mér í fersku minni og
alltaf lumaðir þú á einhveiju góð-
gæti með.
Þegar þú varst sjötug komu
börnin þín vestur og við fórum öll
saman í Hólskirkju þar sem þú
hélst yngri dóttur minni undir
skírn. Þar varst þú í upphlutnum
þínum sem var þinn aðalspari-
klæðnaður alla tíð. Tuttugu og
tveim árum seinna varst þú búin
að gefa mér silfrið úr honum og
saumaði ég mér nýjan upphlut á
mig og var ég í honum þegar mitt
fyrsta bamabam var skírt. Það
þótti þér mjög vænt um.
Alla tíð varst þú mikil handa-
vinnukona, og vom það ófá sokka-
pörin og vettlingamir sem þú pijón-
aðir og gafst afkomendum þínum.
Og ekki má gleyma útsaumnum
og annarri handavinnu sem þú
gerðir. í fyrrasumar þegar litla
barnabamið mitt fæddist þá pijón-
aðir þú sokka og vettlinga og einn-
ig málaðir þú á vöggusett fyrir
hann.
Síðustu vikurnar voru þér erfiðar
og veit ég að þú varst farin að finna
kraftana dvína, og þegar ég kom
til þín í síðustu viku sagðist þú
vera farin að telja dagana. Þó svo
að ég vissi innst inni að þú værir
að fara þá bjóst ég ekki við því
svona fljótt.
Elsku amma, mig langar að
kveðja þig með hluta úr ljóði sem
þú leyfðir mér eitt sinn að skrifa
upp eftir þér. Ljóðið er eftir föður
þinn, Gísla Jónsson, en hann orti
það um þig þegar þú varst lítil
stúlka. Ég veit það, elsku amma
mín, að loksins hefur þú fengið
hvíld, hvíldina sem þú hefur svo
sannarlega þráð.
Fríðikala faldalín,
flestir tala um gæði þín,
íjörs um bala bjarta skín
blessuð dalarósin mín.
Elsku amma, hafðu þakkir fyrir
allt.
Þín
Linda Rós Kristjónsdóttir.
SIG URSTEINN
GUNNARSSON
+ Sigursteinn Gunnarsson
fæddist i Reykjavík hinn
15. júlí 1953. Hann lést á heim-
ili sínu í Reykjavík hinn 7.
desember síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Dómkirkj-
unni 15. desember.
Elskulegi mágur.
Þegar ég hugsa til þín líða minn-
ingarnar yfir hugskjáinn eins og
myndband. Ein sú fyrsta er, þegar
þú komst upp í Hraunbæ til
mömmu. Þá var Silla í Noregi við
nám f félagsráðgjöf. Þú spurðir
mömmu hvort þú mættir ekki læra
í herberginu hennar Sillu, þér yrði
svo ansi vel ágengt, þegar þú lærð-
ir þar inni. Það hefur áreiðanlega
verið skipulagsandinn hennar Sillu
í herberginu, sem kom þér svona
vel áfram í bókunum. A þessum
árum var ég í námi í Röntgen-
tæknaskólanum. Við vorum oft
samtímis hjá mömmu bæði að lesa.
í pásum var talað um allt milli him-
ins og jarðar. Ég uppgötvaði þá
hvílíkan gimstein Silla mín hafði
fundið.
+ Högni Halldórsson fæddist
á Patreksfirði 12. maí
1931. Hann lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur sunnudaginn 14.
desember síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju 22. desember.
Elsku Högni frændi minn.
Ég sit hér og hugsa til þín og á
mjög erfitt með að skrifa þessar
línur, því mér finnst svo óraunveru-
legt að þú sért farinn svona fljótt
frá okkur. Það er margt sem kem-
ur upp í hugann á stundum sem
þessum en mig langar til að kveðja
þig hinsta sinn með nokkrum af
þeim minningum sem mér eru
kærastar.
011 mín uppvaxtarár bjóst þú og
þín vndislera kona Rósa hér á Patró
í Sunnuhlíðinni vorum við saman
komin um páska. Þið svilamir fóruð
í útsýnisflug yfír Eyjafjörðinn, en
við systur biðum á jörðu niðri og
fylgdumst með. Við vorum því fegn-
astar þegar þið vomð lentir aftur.
En óskaplega fannst þér gaman um
sumar í Gufudalnum í Hveragerði.
Þar var fjölskyldan saman komin í
heila viku. Við vomm einstaklega
heppin með veður alla vikuna. Það
var grillað, farið í gönguferðir, flog-
ið módelum, farið á hestbak og
sungið og spilað á kvöldin.
Þorrablótin á veturna. Þau byij-
uðu fyrst heima í stofunni í
Brautarásnum hjá mömmu og
Sigmari stjúpföður okkar systkina,
en hópurinn sem vildi vera með
stækkaði ört. Söngurinn og spilið
þróaðist frá því að vera þú með
gítarinn og upp í magnaða hljóm-
sveit. Þar með þurftum við að flytja
okkur með þorrablótin út í bæ, og
hljómsveitaræfingamar upp í sum-
arbústað. Eitt sinn er við vomm
að æfa uppi í bústað, gerðist dálít-
ið undarlegt atvik. Barið var frekar
harkalega á dymar hjá okkur og
og mér er sérstaklega minnisstætt
að á þessum tíma ársins bámm við
út jólakortin. Það var alltaf gaman
að koma til ykkar á Bmnnana,
hlaupa upp mjóu stéttina, afhenda
kortið og aldrei brást það að þú
gafst okkur eitthvað gott úr skál
áður en við héldum áfram.
Fyrir nokkm fluttuð þið til Hafn-
arijarðar og þá bjó ég líka um tíma
í Reykjavík ásamt manninum mín-
um, honum Edda. Þá komum við
oft í heimsókn til ykkar en hefðum
viljað koma oftar, því alltaf voruð
þið hress og kát þegar þið tókuð á
móti okkur. Við fundum aldrei fyr-
ir þessu svokallaða kynslóðabili, þú
og Eddi, fóruð bara inn í stofu að
horfa á fótbolta eða box, en ég og
Rósa sátum inni í eldhúsi og töluð-
um um daginn og veginn. Þið voruð
stundum hissa að svona ungt fólk
fyrir utan stóð ung stúlka grátandi
og virtist í mikilli geðshræringu.
Hún kom til að biðja okkur að
hjálpa sér því hesturinn hennar
væri sokkinn í mýrina og aðeins
hausinn stæði upp úr. Allir hljóm-
sveitarmeðlimir mku upp til handa
og fóta, gripu með sér snæri og
planka, hlupu niður eftir en þar
þurfti hópurinn fyrst að vaða á til
þess að komast að. Við mokuðum
frá hestinum með bemm höndum
og röðuðum okkur í kringum hann,
settum planka undir að framan.
Eftir smá brölt og gusugang náðist
hesturinn upp. Viku seinna fékk
hljómsveitin konfektkassa frá
þakklátri stúlku. Við spiluðum á
árshátíðum og þorrablótum. Við
fómm í hljóðver og tókum upp
nokkur lög, sem era okkur nú óend-
anlega dýrmæt.
Elsku vinur, ég þakka þér af
alhug fyrir hlýjuna og þolinmæð-
ina, þegar við áttum erfítt og þurft-
um einhvern til að tala við.
Ég þakka þér fyrir það sem þú
varst börnunum okkar. Við biðjum
góðan Guð að styrkja Sillu systur,
því hennar er missirinn mestur.
Guð geymi þig, þar sem þú geng-
ur á móti ljósinu, uppfullur af
áformum eins og alltaf.
Þín mágkona,
Hansína.
nennti að heimsækja ykkur, en
sannleikurinn er sá að við höfðum
mikla ánægju af því. Síðar þegar
litli drengurinn okkar, hann Daníel
Andri, fæddist lituð þið nánast á
hann sem ykkar eigin afkomanda
og verst þykir mér að hann eigi
ekki eftir að sjá þig meir, elsku
Högni minn.
Ég gæti haldið áfram í marga
daga að rifja upp minningar tengd-
ar þér, en læt þessar fáu línur
duga. Með tárin í augunum votta
ég þér virðingu mína og þakka þér
liðnar samvemstundir. Jafnframt
vil ég votta þér, Rósa, mína dýpstu
samúð, s_em og afkomendum ykkar
Högna. Ég veit að jólin verða ykk-
ur erfíð, sérstaklega með það í
huga að á svipuðum tíma í fyrra
fórst ástkær sonur ykkar og bróð-
ir, hann Vignir, í hörmulegu sjó-
slysi. Ljósi punkturinn er þó sá að
núna em feðgarnir sameinaðir á
góðum stað.
Við á Patró hugsum til ykkar
og biðjum fyrir ykkur í þeirri von
að það hjálpi örlítið.
Guðrún Ósk.
HÖGNI
HALLDÓRSSON
SAFNAÐARSTARF
Jólastund við
kertaljós
SUNNUDAGINN 28. desember kl.
17 verður jólastund í Bessastaða-
kirkju. Álftaneskórinn undir stjórn
Johns Speights syngur jólasöngva
og á milli verður fjölbreytt jóladag-
skrá í tali og tónum. Kórinn leiðir
söng kirkjugesta í þekktum jólalög-
um sem_ allir taka þátt í.
Auk Álftaneskórsins verður þetta
meðal efnisatriða: Birgir Thomsen
flytur jólahugvekju, Snorri Heimis-
son leikur á fagott, Magnhildur
Gísladóttir les ljóð, Lenka Matéová
leikur á orgel, Sveinbjörg Vil-
hjálmsdóttir syngur einsöng, Anna
Ólafsdóttir Bjömsson les jólasögu
og böm úr Tónlistarskóla Bessa-
staðahrepps spila jólalög. Aðgangs-
eyrir rennur í sjóð til kaupa á píanói
í Haukshús. Ókeypis er fyrir böm.
Jól o g áramót
í Laugames-
kirkju
JÓLAHÁTÍÐIN rís hæst í hugum
okkar þegar við hugsum um kirkju-
legar hátíðir. Jólin em hátíð ljóss
og friðar í orðsins fyllstu merkingu.
í Laugameskirkju verður að venju
reynt að vanda mjög til hátíðar-
haldsins um leið og við reynum að
koma til móts við þarfir sem flestra.
Á aðfangadag verða tvær guðsþjón-
ustur í kirkjunni. Kl. 16 verður fjöl-
skylduguðsþjónusta með einföldu
en hátíðlegu formi, jólasöngur,
brúður og jólaguðspjallið. Hrafn-
hildur Karla Jónsdóttir og Sunna
Dís Másdóttir leika á flautur. Síð-
degisguðsþjónusta á aðfangadag
hefur verið í nokkur ár og gefíst
mjög vel, enda hæfír hún vel ungu
fólki með böm. Kl. 18 verður hefð-
bundinn aftansöngur. Frá kl. 17.35
syngur Drengjakór Laugames-
kirkju undir stjóm Friðriks Kristins-
sonar, en drengimir syngja einnig
í aftansöngnum ásamt Kór Laugar-
neskirkju. Tvísöng syngja Laufey
G. Geirlaugsdóttir og Inga Þóra
Geirlaugsdóttir.
Á jóladag verður hátíðarmessa
kl. 14. Kór Laugarneskirkju syngur
og Laufey G. Geirlaugsdóttir syng-
ur einsöng. Á annan dag jóla verð-
ur skímarguðsþjónusta kl. 14. Kór
Laugarneskirkju syngur. En sunnu-
daginn milli jóla og nýárs verður
jólaskemmtun bamanna kl. 14, en
hún hefst með stuttri helgistund í
kirkjunni. Konur úr mömmumorgn-
um undirbúa og stjóma skemmtun-
inni. Á gamlárskvöld verður aftan-
söngur kl. 18. Kór Laugameskirkju
syngur og einsöngvari verður Bára
Kjartansdóttir.
Prestur í öllum guðsþjónustunum
verður Jón Dalbú Hróbjartsson og
organisti Gunnar Gunnarsson.
Djassguðs-
þjónusta
SUNNUDAGINN 28. desember nk.
kl. 14 verður haldin guðsþjónusta
þar sem Tríó Bjöms Thoroddsens
og Sigurðar Flosasonar leikur djass
blandaðan þjóðlegri tónlist.
Morgunblaðið/Kristinn.
f
Óhætt er að segja að athyglis-
vert verður að fylgjast með þeim
félögum í Grafarvogskirkju þennan
sunnudag milli jóla og nýárs.
Dr. Siguijón Ámi Eyjólfsson hér-
aðsprestur annast guðsþjónustuna.
Miðnæturguðs-
þjónusta í Húsa-
víkurkirkju á að-
fangadagskvöld
AUK hins hefðbundna aftansöngs
kl. 18 á aðfangadag verður efnt til
miðnæturguðsþjónustu í kirkjunni -
í fyrsta skipti á aðfangadagskvöld
og hefst hún kl. 23. Vonir standa
til að Húsvíkingar fjölmenni til
guðsþjónustunnar svo að hún fest-
ist í sessi sem annar tveggja góðra
kosta fyrir sóknarböm sem hafa
áhuga á því að sækja guðsþjónustu
á aðfangadag. í þessari guðsþjón-
ustu verður ekki um hefðbundið
messutón að ræða. Þess í stað verð-
ur lögð áhersla á almennan söng
kirkjugesta við hljóðfæraundirleik.
Auk organistans Pálínu Skúladótt-
ur þá munu þeir feðgar Lazlo og
Marton Czenek leika undirleik á
hom. Lára Sóley Jóhannsdóttir leik-
ur á fiðlu. Sigurður Hallmarsson les
ljóð og jólasögu og sóknarprestur
les jólaguðspjallið og flytur hug-
vekju og bænargjörð.
Á aðfangadag verður aftansöng-
ur kl. 19 og miðnæturguðsþjónusta
kl. 23.30. A jóladag verður hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14, hátíðarguðs-
þjónusta í Miðhvammi kl. 15.30 og
hátíðarguðsþjónusta á sjúkrahúsinu
kl. 16.20. Á gamlársdag verður
aftansöngur kl. 18, Guðmundur
Guðmundsson héraðsprestur mess-
ar. Organisti er Pálína Skúladóttir.
Jólamessa
Kvenna-
kirkjunnar
JÓLAMESSA Kvennakirkjunnar
verður í Seltjamameskirkju sunnu-
daginn 28. desember kl. 20.30.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
prédikar. Hallfríður Ólafsdóttir
flautuleikari og Þómnn Guðmunds-
dóttir söngkona flytja jólalög. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir almennan
söng við undirleik Svanhvítar Hall-
grímsdóttur. Kaffí á eftir í safnað-
arheimilinu.
c
Grafarvogskirkja. 28. des. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Brúðurnar í
jólaskapi. Jólasöngvar. Umsjón
Hjörtur og Rúna. Organisti Hörður
Bragason. Prestamir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3. Að-
fangadagur, aftansöngur kl. 23.30.
Laugardaginn 27. des. kl. 11 f.h.
Samkoma. Björgvin Snorrason
prédikar.
Iljálpræðisherinn. Aðfangadag
jóla kl. 18. Jólamatur og jólafagnað-
ur. Jóladag kl. 14, hátíðarsam-
koma. Majóramir Turid og Knut r
Gamst stjóma og tala. Annan í jól-
um kl. 14. „Norsk julegudstjeneste"
í Seltjarnameskirkju. Laugardag-
inn 27. des. kl. 15, jólafagnaður
fyrir eldri borgara. Sr. Frank M.
Halldórsson talar. Sunnudagur 28.
des. kl. 14. Jólafagnaður fyrir börn.
Kl. 20 hjálpræðissamkoma. Mánu-
dag kl. 20. Jólafagnaður fyrir her- .
menn og samheija.