Morgunblaðið - 24.12.1997, Síða 76

Morgunblaðið - 24.12.1997, Síða 76
Tveir 'maðí í mánuði & HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA fSLANDS MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5601100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Mikil fasteigna- sala undanfarið FASTEIGNASALA hefur verið með mesta móti í þessum mánuði, en yfirleitt dregur úr íbúðasölu í desember, bæði vegna jólahátíðar- innar og ekki síður vegna veðráttu. Stundum er færð það þung á þess- um árstíma, að fólk á erfitt með að komast leiðar sinnar til þess að skoða eignir sem það hefur áhuga á. Að þessu sinni hefur veðráttan hins vegar verið óvenju hagstæð Jafnframt hefur eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði verið afar mikil nú í desember. Það þarf þó ekki að koma á óvart, því að þeir eru marg- f. _ ir, sem þurfa að ljúka kaupum fyrir w áramót af skattalegum ástæðum. „Það hefur verið mildl hreyfing á atvinnuhúsnæði yfirleitt í haust, bæði verzlunar-, skrifstofu- og iðn- aðarhúsnæði," sagði Jón Guð- mundsson, formaður Félags fast- eignasala. „Hvað varðar verzlunar- húsnæði, þá eru eftirsóttustu stað- irnir eins og áður Laugavegur, Kr- inglan og Skeifan. Sjálfur er ég um þessar mundir með tilboð í tvær eignir við Lauga- veg og er að ljúka frágangi á sölu á stóreign í Skeifunni. Þá er ég að ganga frá samningi á myndarlegu verzlunarplássi í Kringlunni. Auk þessa hef ég nýlega gengið frá sölu á stóru skrifstofuhúsnæði í Miðj- unni í Smárahvammslandi." Jón Guðmundsson sagði að mjög oft ættu stærstu sölurnar á atvinnu- húsnæði sér stað skömmu fyrir ára- mót. Það ætti m.a. rót sína að rekja til skattalegra ástæðna. Húsavíkurbær selur 10% hlut í FH ^•ÖíÚSAVÍKURBÆR hefur selt 10% eignarhlut í Fiskiðjusamlagi Húsa- víkur að nafnverði 62 milljónir króna á genginu 2,8. Söluverðið er 173,6 milljónir, en nafn kaupanda hefur ekki fengist gefið upp. Þetta sölugengi er töluvert hærra en það gengi sem verið hefur á bréfum fyr- irtækisins á Verðbréfaþingi undan- farið, en síðasta skráða gengi þar var 2,45. Verðbréfaþingi var til- kynnt um söluna í gærmorgun. Eftir söluna á Húsavíkurbær 32- 33% eignarhlut í fyrirtækinu. Fyrir rúmu ári átti bærinn rúmlega helm- ing hlutafjárs, en seldi fyrirtækinu sjálfu 10% hlut í fyrrahaust. Nú seldi bærinn hlutafé að nafnvirði 56 <C%_________________________ milljónir króna og Fiskiðjusamlagið 6 milljónir til viðbótar. Einar Njálsson, bæjarstjóri, sagði að leitað hefði verið eftir til- boðum í bréfin og tvö tilboð borist. Þessu tilboði, sem hefði verið nafn- laust, hefði verið tekið fyrir milli- göngu verðbréfafyrirtækis og hann vissi ekld enn hver væri kaupand- inn. Aðspurður hvórt til stæði að bærinn seldi meira af eignarhlut sínum í fyrirtækinu sagði hann að ekki hefði verið tekin fullnaðar- ákvörðun þar að lútandi, en í fjár- hagsáætlun bæjarins, eins og hún stæði eftir fyrri umræðu, væri gert ráð fyrir að selja hlutabréf að nafn- virði 50 milljónir króna til viðbótar. Morgunb!aðið/Ólavía Sigmarsdóttir Hreindýra- bóndi á grasafjalli Vaðbrekku, Jökuldal. Morgunblaðið. HJÓNIN í Klausturseli á Jökul- dal notuðu blíðuna fyrir jólin og fóru á grasafjall til að afla fjalla- grasa handa flmm hreindýrum sem þau halda. Hjónin Aðal- steinn Jónsson og Ólavía Sig- marsdóttir fóru stysta dag árs- ins til þessarar fjallagrasatekju á Hlíðarenda á utanverðri Lönguhlíð í Jökuldalsheiði. Mun það vera einsdæmi að tíð skuli vera svo góð um þetta leyti árs að grasatekja sé möguleg. Þegar heim var komið biðu strákarnir á bænum, þeir Ævar Þorgeir og Marteinn Óli Aðal- steinssynir, ekki boðanna og gáfu hreindýrunum að smakka þetta góðgæti. Gott var að fá hey í garðann til viðbótar við grösin og á myndinni eru þeir Ævar og Marteinn ásamt hrein- dýrunum Grími, Krapa, Kolgu, Baldursbrá og Sóleyju. Jdlafagnaður Verndar og Hjálpræðis- hersins JÓLAFAGNAÐUR Hjálp- ræðishersins og Vemdar verð- ur haldinn í dag, aðfangadag, í Herkastalanum, Kirkjustræti 2 í Reykjavík, og hefst með *' borðhaldi kl. 18. Allir þeir sem ekki hafa tök á að dveljast hjá vinum og vandamönnum á að- fangadagskvöld eru hjartan- lega velkomnir í jólafagnaðinn. ■< MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út sunnudaginn 28. desember. Mikil kaupmáttaraukning eftir kjarasamningana í vor Kaupmáttur mánaðar- launa jókst um 10,8% á ári KAUPMÁTTUR mánaðarlauna hjá landverkafólki innan Alþýðusam- bands Islands jókst að meðaltali um 10,8% frá öðrum ársfjórðungi ársins 1996 til annars ársfjórðungs þessa árs þegar nýir kjarasamningar höfðu tekið gildi. Mest hækkaði kaupmáttur verkakarla, eða um 16,3% en minnst hjá skrifstofukon- um, eða um 5,8%. Þetta kemur fram í launakönnun Kjararannsóknamefndar en niður- stöður hennar um tímabilið frá 2. ársfjórðungi 1996 til 2. ársfjórðungs 1997 liggja nú fyrir. Kemur íram í könnuninni, að heildarmánaðarlaun ASI-landverkafólks hækkuðu að meðaltali um 12,7% en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,9% þannig að kaupmáttur jókst um 10,8%. Meiri hækkun hjá verka- körlum en öðrum starfsstéttum stafar að hluta af þvi að hækkun á reiknigrunni yfirvinnu er mikil hjá þessum hópi og meðalvinnutími langur. Greitt tímakaup verkafólks í dag- vinnu hækkaði um 11,2% á sama tímabili og jókst kaupmátturinn því KJARARANNSQKNANEFND: BREYTINGAR Á LAUNUM 0G KAUPMÆTTI STARFSSTÉTTIR Vikulaun, 2. ársfj. 1996 Mánaðarlaun, 2. ársfj. 1996 Vikulaun, 2. ársfj. 1997 Mánaðarlaun, 2. ársfj. 1997 Hlutfallsleg breyting Breyting kaupmáttar Verkakarlar 29.600 kr. 128.100 kr. 35.000 kr. 151.500 kr. +18,3% +16,3% Verkakonur 21.100 kr. 91.400 kr. 23.100 kr. 100.100 kr. +9,5 % +7,6 % Iðnaðarmenn 41.000 kr. 177.500 kr. 45.000 kr. 194.800 kr. +9,7 % +7,8 % Afgreiðslukarlar 31.300 kr. 133.200 kr. 35.700 kr. 151.700 kr. +13,9 % +12,0% Afgreiðslukonur 23.100 kr. 98.000 kr. 26.200 kr. 111.300 kr. +13,6 % +11,7% Skrifstofukarlar 37.100 kr. 156.300 kr. 40.400 kr. 170.100 kr. +8,8 % +7,0 % Skrifstofukonur 28.600 kr. 120.500 kr. 30.800 kr. 129.600 kr. +7.6 % +5.8 % ASl-landverkaf. 30.100 kr. 129.500 kr. 33.900 kr. 145.900 kr. +12,7% +10,8% um 9,3%. Samkvæmt launakönnun- inni munaði þarna mest um kjara- samningana sem gerðir voru í mars 1997 og hækkaði greitt tímakaup landverkafólks innan ASÍ um 6,2% frá 1. ársfjórðungi 1997 til 2. árs- fjórðungs 1997 þegar nýir kjara- samningar höfðu tekið gildi. Samkvæmt úrtaki kjararann- sóknamefndar hækkaði tímakaup verkakarla, iðnaðarmanna og skrif- stofukarla um 10,8-12,1% milli ár- anna 1996 og 1997, en tímakaup verkakvenna, skrifstofukvenna og afgreiðslukarla hækkaði um 8,7-9,6%. Tímakaup afgreiðslu- kvenna hækkaði mest eða um 15,8% og skýrist það að nokkru leyti af breyttri aldurssamsetningu í úrtak- inu því það nær ekki til einstaklinga sem fá greitt vegna unglingataxta. 6,2% kaupmáttar- aukning 1996 Endanlegar niðurstöður fyrir ár- ið 1996 liggja einnig fyrir, og sam- kvæmt þeim hækkaði greitt tíma- kaup hjá landverkafólki ASÍ að meðaltali um 6,1% á milli áranna 1995 og 1996. Vísitala neysluverðs hækkaði um 2,3% á sama tíma þannig að kaup- máttur tímakaups í dagvinnu jókst um 3,8%. Heildarmánaðarlaun landverka- fólks hækkuðu hins vegar að meðal- tali um 8,6% milli áranna 1995 og 1996 og jókst kaupmáttur mánaðar- launa því um 6,2%.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.