Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Græn-
gresis leit-
að í janúar
NAUTGRIPIRNIR á bænum Bitru
í Hraungerðishreppi hafa gengið
úti í góðviðrinu í allan vetur og
hefur útigangan aldrei verið jafn
löng þar á bæ. Þeir hafa aðgang
að húsaskjóli og heyrúllu en best
fínnst þeim að fá sér tuggu af
grængresi sem enn má finna milli
þúfna.
Suður-
skautsfar-
arnir veð-
urtepptir
ÍSLENSKU suðurskautsfaramir,
Ólafur Öm Haraldsson, Haraldur Öm
Ólafsson og Ingþór Bjamason em
enn veðurtepptir í Patriot Hills-stöð-
inni við jaðar Suðurskautslandsins.
Vindur og slæmt skyggni hafa
hamlað flugi til stöðvarinnar síðustu
daga og samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu fyrirtækisins Adventure
Network Intemational í Chile fór að
snjóa síðdegis í gær og versnuðu þá
enn flugskilyrðin.
Talsmenn fyrirtækisins sögðust
þó vonast til þess að hægt væri að
senda Hercules-flutningaflugvél ein-
hvem tíma næstu daga til að sækja
íslensku suðurskautsfarana og aðra
ferðalanga sem nú dveljast í Patriot
Hills-stöðinni.
Morgunblaðið/RAX
Fataverksmiðjan Fasa
Saumar
300 bún-
inga fyrir
Cargolux
FATAVERKSMIÐJAN Fasa ehf.
hefur gengið frá samningum við
Cargolux um framleiðslu á nýjum
einkennisbúningum fyrir flugfé-
lagið. Gert er ráð fyrir að einkenn-
isbúningar félagsins verði allir
endurnýjaðir á næstu tveimur ár-
um og gæti þar verið um að ræða
búninga á allt að 300 starfsmenn.
Þá er ennfremur gert ráð fyrir því
í samningnum að Fasa annist eðli-
lega endurnýjun búninganna.
Að sögn forsvarsmanna fyrir-
tækisins þýðir þessi samningur
verulega aukningu á verkefnum
fyrirtækisins og veltu en þetta er í
fyrsta sinn sem fyrirtækið ræðst í
útflutning í einhverjum mæli.
Fasa hefur sinnt verkefnum
fyrir fluggeirann á undanfórnum
árum og m.a. saumað búninga fyr-
ir starfsmenn Flugleiða, hérlendis
og erlendis og saumað búninga á
starfsfólk Atlanta og íslandsflugs.
■ Saumar búninga/B8
♦ ♦♦
Fjórir
bíða líffæra-
flutninga
FJÓRIR íslendingar bíða þess að
komast í líffæraflutninga á Ríkisspít-
alanum í Kaupmannahöfn.
Allir bíða þeir eftir nýrum, að
sögn Páls Ásmundssonar yfírlæknis
nýmadeildar Landspítalans. Enginn
íslendingur bíður hins vegar eftir
lunga, hjarta eða lifur, að því best er
vitað.
Að sögn Páls bíða fyrrnefndir ís-
lendingar hér heima því ekki tekur
langan tíma að flytja þá út þegar
kallið kemur.
Fjögur utgerðarfyrirtæki sameinast Borgey hf. á Höfn
Samkomulag um geng-
ið 2,5 á hlutabréfum
STJÓRNIR Borgeyjar hf. á Höfn í Homafirði
og útgerðarfyrirtækjanna Fiskhóls ehf., Garð-
eyjar ehf., Mars ehf., Melavíkur ehf. og Perú
ehf. hafa komist að samkomulagi um samruna
félaganna með venjulegum fyrirvörum um sam-
þykki hluthafafunda. Samkvæmt samkomulag-
inu fá hluthafar í útgerðarfélögunum hlutabréf
í Borgey hf. á genginu 2,5 sem endurgjald fyrir
hluti sína.
Samruninn gæti orðið
um miðjan mars
„Við höfum náð samkomulagi um gengi á
hlutabréfunum á Borgey og samruna þessara
fyrirtækja. En það er hins vegar ekkert farið
að tala um eignarhlutföll að loknum samruna,"
segir Guðjón Þorbjörnsson talsmaður útgerð-
Ekkert farið að tala
um eignarhlutföll að
loknum samruna
anna fjögurra sem nú eru að sameinast Borg-
ey hf. „Samruninn er miðaður við nýliðin ára-
mót og nú liggur fyrir að ganga þarf frá árs-
reikningum allra fyrirtækjanna. Það tekur um
mánuð. Á grunni þeirrar útkomu verður svo
gengið frá samrunasamningi, hann kynntur og
auglýstur samkvæmt lögum. Eftir mánuð frá
því er svo hægt að halda þá hluthafafundi sem
þurfa að samþykkja samrunann. Það er því í
fyrsta lagi um miðjan mars sem af samrunan-
um getur orðið. Meira hef ég ekki að segja um
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sjómenn telja í dag
VONAST er eftir að úrslit úr at-
kvæðagreiðslu um boðun verk-
falls hjá Sjómannasambandinu
og Farmanna- og fiskimanna-
sambandinu liggi fyrir í kvöld
eða snemma á morgun. Verkfall-
ið er boðað 2. febrúar hafi ekki
náðst samningar fyrir þann tíma.
Enginn árangnr varð á sátta-
fundi sem LIU átti með Sjó-
mannasambandinu, Farmanna-
og fiskimannasambandinu og Al-
þýðusambandi Vestíjarða í gær
hjá ríkissáttasemjara, en á mynd-
inni sjást fulltrúar sjómanna og
útgerðarmanna á fundinum.
Næsti fundur verður á morgun
kl. 14. Vélsljórar koma til fundar
við viðsemjendur sína sama dag
kl. 11.
Elsti núlifandi
s
Islendingurinn er
104 ára 1 dag
VALFRÍÐUR Guð-
mundsdóttir frá
Heimaskaga á
Akranesi verður
104 ára í dag,
fimmtudaginn 8.
janúar. Hún er
elsti núlifandi ís-
lendingurinn og
hefur búið á Drop-
laugarstöðum í
Reykjavík undan-
farin fimm ár.
Valfríður er
dóttir hjónanna
Guðmundar Árna-
sonar útvegsbónda
á Hóli á Akranesi
og Sigurrósar Gunnlaugsdótt-
ur húsmóður. Valfríður ólst
upp á Heimaskaga hjá föður-
bróður sínum, Jóni Arnasyni
skipstjóra, og eiginkonu hans,
Valfríður
Guðmundsdóttir
Helgu Jóhannes-
dóttur húsmóður.
Valfríður giftist
Jóni Guðmunds-
syni útgerðar-
manni frá Eyri í
Ingólfsfirði á
Ströndum árið
1920, en hann lést
árið 1983. Þau
hjónin eignuðust
eina dóttur, Guð-
rúnu Möller. Hún
var gift Sigurði
Möller vélfræðingi
sem lést árið 1970.
Börn þeirra eru
tvö og barnabörn
fimm: Valfríður Möller, hjúkr-
unarfræðingur, sem á þrjár
dætur, og Jón S. Möller, bygg-
ingaverkfræðingur, sem á tvo
syni.
þetta mál að sinni,“ segir Guðjón Þorbjörns-
son.
Halldór Amason, framkvæmdastjóri Borg-
eyjar hf., segir um samkomulagið að eigendur
fyrirtækjanna hefðu metið það svo að þau væru
sterkari saman heldur en hvert í sínu lagi.
„Þetta verður öflugri rekstrareining svona
heídur en margar litlar,“ segir hann. í fréttatil-
kynningu frá Borgey hf. kemur fram að með
samrunanum verði til fyrirtæki sem ráði yfir
. veiðiheimildum sem jafngildi 6.400 tonnum af
þorski og að gott jafnvægi sé á milli veiðiheim-
ilda í uppsjávarfiskum og botnfisktegundum.
Næsta skref, að sögn Halldórs, er að ganga frá
sameiningunni og koma skipum félaganna til
veiða undir merkjum Borgeyjar. Það verði á
allra næstu dögum.