Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
í»ávé<juf
Starfsmenn borgarinnar byijaðir að safna sainaii jólatrjám
15 þúsund tré hirt upp af
götunni á næstu dögum
HAFIST var handa við það í gær að
safna saman jólatrjám á gangstétt-
um höfuðborgarinnar. Borgin hefur
boðið upp á þá þjónustu nokkur
undanfarin ár, að hirða jólatré strax
daginn eftir þrettándann.
Hjá gatnamálastjóranum í
Reykjavík fengust þær upplýsingar
að búist væri við því að 15 þúsund
tré yrðu hirt á næstu dögum og að
mestu gengið frá því verki fyrir
helgi.
Gámaþjónustan hf. tekur við öll-
um jólatrjám frá gatnamálastjóra, í
ár, auk þess sem hún tekur við þeim
trjám sem safnast saman í Hafnar-
firði. Hjá Gámaþjónustunni fengust
þær upplýsingar að jólatrén verði
notuð sem stoðefni í moltu sem þeir
séu að þróa.
Molta, sem er mjög næringarrík-
ur og kjarngóður lífrænn jarðvegs-
bætir, er búinn til úr grasi og
kurluðum trjágreinum. Hann má
ekki nota sem mold en gott er að
blanda honum við aðra mold og nota
sem áburð.
Molta brátt á markað
Þeir hjá Gámaþjónustunni eru
með nýjan 12 tonna tætara sem þeir
segja afkastamikið og gott tæki.
Jólatrén verði hins vegar ekki öll
kurluð strax heldur geymd sem
hráefni og tætt þegar not verða fyr-
ir þau í framleiðslunni. Moltuefni
Gámaþjónustunnar hefur verið
reynt af vinum og kunningjum og
vonast er til þess að hægt verði að
markaðssetja það áður en langt um
líður.
Á síðasta ári fékk Sorpa öll þau
tré sem starfsmenn gatnamála-
stjóra Reykjavíkur söfnuðu og var
fjöldi þeirra notaður til moltugerð-
ar. Einnig hafa nokkur bæjarfélög
kurlað niður þau tré sem þau hafa
safnað og notað í moltu.
Bandaríski flugherinn sendir
Þorsteini flugkappa boð
Heiðursgestur
á útskriftarhátíð
flughersins
BANDARÍSKI flugherinn hefur
boðið Þorsteini E. Jónssyni flug-
manni sem heiðursgesti til út-
skriftarhátíðar skóla bandaríska
flughersins í Alabama
í júní í sumar.
Margir þekktir flug-
menn hafa verið heið-
ursgestir á þessari há-
tíð, þeirra á meðal
Chuck Yeager, hinn
þekkti bandaríski til-
raunaflugmaður, sem
varð fyrstur tii þess
að rjúfa hljóðmúrinn,
en áður hafði hann
verið orustuflugmað-
ur. Þess má geta að
hann er ein aðalper-
sónan í bókinni The
Right Stuff, sem síðan
var gerð kvikmynd
eftir, en myndin fjall-
ar meðal annars um
upphaf geimferða Bandarfkja-
manna.
Þorsteinn, sem gjarnan er
nefndur flugkappi, á iangan flug-
feril að baki og var meðal annars í
breska flughemum á stríðsámn-
um, eins og kunnugt er. Þor-
steinn, sem nú er 76 ára gamall,
gékk í Konunglega breska flug-
herinn í apríl 1940 og var orr-
ustuflugmaður öll stríðsárin.
Hann gékk úr hernum í desember
1946. Hann flaug aðallega
Hurricane, Spitfíre og Mustang
orrustuflugvélum. Ævisaga Þor-
steins kom út fyrir fáum ámm og
var einnig þýdd á ensku.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Þorsteinn að hefð væri fyrir
því að bjóða flugmönnum til þess-
arar útskriftarhátíðar, sem væri á
Maxwell Airbase í Ala-
bama, en skólinn héti
United States Airforce
Staff College. „Þeir
bjóða alltaf einhverj-
um útlendum flug-
mönnum til þess að
vera viðstaddir sem
heiðursgestir. Mér
hefur hlotnast þessi
heiður, sem ég er nú
dálítið hissa á, en ég
þigg þetta auðvitað
með þökkum," sagði
Þorsteinn.
Höfðu lesið bókina
Hann sagði að haft
hefði verið samband
við sig skömmu fyrir
jól og honum boðið á hátíðina.
Meira vissi hann ekki um tildrög
boðsins að öðm leyti en því að
komið hefði fram að þeir hefðu
lesið ævisöguna og ákveðið að
bjóða honum. Þá hefði hann feng-
ið sendan lista yfir þá sem hefðu
verið á þessari hátíð og þeirra á
meðal mætti fínna ýmsa fræga
menn eins og Chuck Yeager og
fleiri háttsetta menn í flugheimin-
um. „Ég get ekki þóst hafa komist
með tærnar þar sem þeir era með
hælana. En það er samt sem áður
gaman að þessu fyrir mig og ég
ætla auðvitað að njóta þess,“ sagði
Þorsteinn einnig.
Þorsteinn Jónsson
Ökutæki
sem menga
lítið undan-
þegin gjald-
skyldu
LOGUM um vörugjald af öku-
tækjum var breytt á Alþingi
fyrir jól meðal annars í þá
vem að undanþiggja gjald-
skyldu þau ökutæki sem hafi í
for með sér hverfandi mengun
og séu knúin óhefðbundnum
orkugjafa, svo sem rafhreyfli
eða vetni.
Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra benti á þessa
lagabreytingu aðspurður um
hvort til greina kæmi að
breyta aðflutningsgjöldum að
bifreiðum knúnum metangasi,
en í Morgunblaðinu á sunnu-
dag kom fram að hægt væri að
knýja um þrjú þúsund bifreið-
ir með því metangasi sem til
fellur á sorphaugum höfuð-
borgarsvæðisins. Hann sagð-
ist hins vegar ekki vita hvað
munaði miklu á því að brenna
bensíni eða olíu annars vegar
og metangasi hins vegar hvað
varðaði losun gróðurhúsaloft-
tegunda.
Friðrik benti einnig á að
gjöld á bensíni og olíum stæðu
undir gerð og endurnýjun
vegakerfisins.
Verulegur hluti af verði
þessara orkugjafa væri þannig
til kominn og menn þyrftu að
hafa það í huga þegar þeir
bæra saman verð á bensíni og
olíum við verð á öðram orku-
gjöfum og reiknuðu út hag-
kvæmni ólíkra orkugjafa.
Prófkjör Reykjavíkurlistans verður haldið laugardaginn 31. janúar
28 keppa um
efstu 7 sætm
PRÓFKJÖR Reykjavíkurlistans
verður haldið laugardaginn 31. jan-
úar. í prófkjörinu verður kosið um
efstu sjö sæti listans en Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mun
skipa áttunda sætið. Flokkarnir
fjórir sem standa að R-listanum
hafa allir skilað inn tillögum sínum
um sjö einstaklinga hver, sem taka
þátt í prófkjörinu af hálfu flokk-
anna. Því munu 28 manns keppa um
sjö efstu sætin.
Að sögn Kristínar A. Árnadóttur,
fulltrúa borgarstjóra í fram-
kvæmdastjórn samráðs um Reykja-
víkurlista, verður prófkjörið opið
öllum Reykvíkingum og Kjalnesing-
um með kosningarétt sem lýsa yfir
stuðningi við R-listann. Áðspurð
sagði Kristín það ekki hafa verið út-
fært með hvaða hætti sú stuðnings-
yfirlýsing þyrfti að vara.
Vægi flokka ræður
úthlutun sæta
Þátttakendur í prófkjörinu eiga
þess annars vegar kost að merkja
við einhvem aðildarflokka Reykja-
víkurlistans og hins vegar að for-
gangsraða fimm einstaklingum í
sæti á listanum.
Vegið fylgi flokkanna mun ráða
úthlutun sæta á listanum. Sá flokk-
ur sem fær flest atkvæði fær fyrsta
sætið og svo koll af kolli en enginn
flokkur fær þó fleiri en eitt sæti fyrr
en allir flokkamir hafa fengið sæti á
listanum, skv. upplýsingum Kristín-
ar.
Prófkjörsframbjóðendur Fram-
sóknarflokksins eru: Alfreð Þor-
steinsson, Guðjón Ólafur Jónsson,
Guðrún Jónsdóttir, Óskar Bergs-
son, Sigfús Ægir Árnason, Sigrún
Magnúsdóttir og Þuríður Jónsdótt-
ir.
Frambjóðendur Kvennalista eru
Guðrún Erla Geirsdóttir, Kristín
Blöndal, Steinunn V. Óskarsdóttir,
Sólveig Jónasdóttir, Drífa Snædal,
Kolbrún Jónsdóttir og Ragnhildur
Helgadóttir.
Frambjóðendui- Alþýðubandalags
era Ámi Þór Sigurðsson, Guðrún
Ágústsdóttir, Helgi Hjörvar, Guð-
rún Kr. Óladóttir, Einar Valur Ingi-
mundarson, Kolbeinn 0. Proppe og
Sigrún Elsa Smáradóttir.
Frambjóðendur Alþýðuflokks eru
Bryndís Kristjánsdóttir, Helgi Pét-
ursson, Hrannar B. Arnarsson,
Magnea Marinósdóttir, Pétur Jóns-
son, Rúnar Geirmundsson og Stef-
án Jóhann Stefánsson.
BÖRNIN kunna vel að meta hátiðarhöldin.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
Skemmt-
unin í
fyrirrúmi
Sclfossi. Morgunblaðið.
ÞAÐ er af sem áður var á Sel-
fossi þegar ólæti einkenndu sein-
asta dag jóla, þeir tímar eru liðn-
ir og nú er situr skemmtunin í
fyrirrúmi.
Fjölskylduhátíð fór fram á
íþróttavellinum, þar vom saman
komnir álfar og jólasveinar
ásamt fjölda bæjarbúa. Samkór
Selfoss söng við undirleik Lúðra-
sveitar bæjarins og UMF Selfoss
stóð fyrir álfabrennu og glæsi-
legri flugeldasýningu, þeirri
stærstu í manna minnum.
Hátíðarhöldin hafa fest sig í
sessi í bæjarlífinu og það er sér-
staklega ánægjulegt fyrir börnin
sem kunna svo sannarlega að
meta uppákomur sem þessar.
Í
i
I