Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 UR VERINU MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Morgunblaðið/Ásdís M&M KÚLURNAR verða nú seldar á ný í verslunum og eflaust mun Skittles sælgætið líka fást í búðum innan skamms. Þá mun úrvalið án efa aukast af kexi, eftirréttum og ís svo eitthvað sé talið til. Breytingar á aukefnareglugerð Um 80 ný efni bætast við auk- | efnalista FRÁ og með morgundeginum, 9. janúar, ganga í gildi breytingar á aukefnareglugerð sem tekur í öllum aðalatriðum mið af tilskipunum Evrópusambandsins. Þetta þýðir að 70-80 ný efni bætast við aukefnalistann sem fyrir er. „Sú breyting sem menn horfa mest til er að nú verða sjö litarefni, sem áður var óheimilt að nota, leyfi- leg,“ segir Ásmundur E. Þorkeisson matvælafræðingur hjá Hollustu- vemd. „Auk þess verða nú rýmkað- ar notkunarheimildir á ýmsum aukefnum. Þá verða auknar heim- ildir til notkunar á bragðaukandi efnum.“ Ásmundur segir að í kjölfar breyttrar aukefnareglugerðar komi úrval unninna matvæla líklega til með að aukast og þá sérstaklega hvað varðar sælgæti, bökunarvörur, di-ykkjarvörur, ís og eftirrétti. Ás- mundur segir breytingarnar vera róttækar en þegar hann er spurður hvort þær séu góðar með tilliti til hollustu segir hann að heimildir til notkunar á nítrötum, nítrítum og súlfítum séu óbreyttar frá því sem var og takmarkaðri en í Evrópu- sambandinu. „Heimildir til notkun- ar á litarefnum í kjötvörur era einnig takmarkaðri en í Evrópu- sambandinu. Við teljum að með því að hafa þessi ákvæði eins og á gamla listanum sé verið að koma veralega til móts við hollustusjónar- mið og neytendur. Súlfít geta valdið alvarlegu óþoli, nítröt geta um- myndast í nítrósamín sem sum hver eru talin krabbameinsvaldandi." Ásmundur bendir á að einhver hópur fólks sé með óþol gagnvart sumum þessara litarefna sem verið er að leyfa og fyrir þá era vöra- merkingar mjög mikilvægar. „Nú verður því skilyrðislaust framfylgt að allar merkingar séu í samræmi við merkingarreglugerð og Heil- brigðiseftirlit sveitarfélaga mun eft- ir sem áður sinna því hlutverki." Þá kemur fram hjá honum að heimild til notkunar á hverju efni er miðuð við svokallað daglegt neyslu- gildi. „Neyslugildið er ákveðin tala fyrir hvert efni sem hver einstak- lingur má innbyrða að jafnaði. Ef neytandinn borðar að jafnaði meira af tilteknu aukefni en neyslugildi leyfír getur það orðið heilsu hans hæ_ttulegt.“ Ásmundur segir að til að tryggja sem best að þessu sé framfylgt þá hafi auk viðmiðunar við neyslugildi sú kvöð fylgt aukefnalistanum að Hollustuvernd geri neyslukannanir reglulega og rannsaki neyslu á þessum efnum og geri þá tillögur að breytingum á aukefnalistanum ef ástæða þykir til. Innilegar þakkir sendi ég börnum mínum, œttingjum og vinum mínum sem glöddu mig með gjöfum, heimsóknum og heillaóskum á 80 ára afmœli mínu. Gleðilegt nýtt ár. Gœfan fylgi ykkur. Gunnar Arnason. BURSTAMOTTUR Urvalið er hjá okkur lýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001 IBESTAI Nýtt Kaffihúsið NYTT kaffíhús hefur verið opnað að Laugavegi 72. Það opnar klukkan ellefu á morgnana og er opið fram til hálftólf á virkum dögum og lengur um helgar. I fréttatilkynningu frá kaffihúsinu kemur fram að boðið sé upp á hamborgara, franskar kartöfl- ur, súpu og smurbrauð allan daginn og einnig hægt að fá kaffí, kakó og kökur. Kaffihúsið er með vínveit- ingaleyfi og lögð áhersla á að stilla verði í hóf. Eigendur kaffihússins era Garðar Rafn Sigurðsson og Jóhanna Þórðar- dóttir en þau ráku Grensásbæ í átta ár. SKEIFUNNI19 - S.568-1717 afsláttur V á tiflbodi REYSTI Aflanum landað í Sandgerði ÁRIÐ fór vel af stað hjá neta- bátunum í Sandgerði og fékkst góður afli í fyrstu róðrunum. Voru bátarnir að landa allt frá 8 og upp í 18 tonnum af góðum fiski á dag fyrstu vikuna. Nú er heldur farið að draga úr aflan- um og bátarnir að fá 2 til 3 tonn að meðaltaii eftir daginn. Smábátarnir hafa einnig fengið ágætt á línuna þegar þeir hafa komist til sjós, eitt og upp í þrjú tonn í róðri. Hér eru skipverjar á netabátnum Þorsteini KE að landa þremur tonnum af falleg- um þorski í Sangerðishöfn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Enn engin loðnuveiði í nót Leitað víða fyrir austan og norðan NÓTASKIPIN hafa enn ekki fengið afla á árinu og vora flest þeirra í höfn á Austfjörðum í gær vegna veðurs. Skipstjórnarmenn eru ekki bjartsýnir á veiðarnar næstu daga. Loðnuskip með flottroll hafa fengið lítilsháttar afla en loðnan þykir lé- leg. Kristbjöm Árnason, skipstjóri á Sigurði VE, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að búið væri að leita á mjög stóra svæði með öllum Austfjörðum og norður af Langa- nesi, allt út á 90 mílur frá landi. Hvergi hafi sést til loðnu. Krist- björn sagði janúarmánuð oft hafa verið mjög lélegan loðnuveiðimánuð en þá hafi menn yfirleitt séð loðnu- dreif hér og þar. „Nú sést ekki neitt. Menn era að vona að loðnan hafi dreift sér það mikið að tækin nemi það ekki. Hún gæti líka verið einhvers staðar annars staðar en á þessum hefðbundnu slóðum sem við höfum verið að leita á síðustu daga.“ Flottrollsskipin fengið loðnu Kristbjörn hefur ekki trú á að það verði mikil loðnuveiði í nót næstu daga. „Nú er vaxandi tungl og þá verður ekki eins dimmt á nóttinni. Loðnan kemur yfirleitt upp í sjó í myrkri. Tunglskinið var mikið að stríða okkur fyrir jólin, þá var heiðskírt og nánast dagbjart á næturna. Loðnan hélt sig þá á miklu dýpi,“ sagði hann. Fimm loðnuskip hafa verið að veiða loðnu í flottroll djúpt austur úr Dalatanga síðustu daga. Aflinn hefur verið misjafn, allt frá 20 tonn- um upp í 170 tonn í hali eftir 4 til 6 tíma tog. Loðnan hefur þótt heldur blönduð og mikið af smáloðnu með. Rannsóknaskipið Ámi Friðriks- son fann tvær síldartorfur í Reyðar- fjarðardýpi íyrr í vikunni en hefur ekki fundir meira. Síldin stendur djúpt og er ekki veiðanleg í nót. 577 þúsund tonn borist á land um áramót Um áramótin höfðu borist á land um 577 þúsund tonn af loðnu á yfir- standandi vertíð, samkvæmt tölum Samtaka fiskvinnslustöðva. Þar af hafa íslensk skip veitt um 523 þús- und tonn. Eftirstöðvar útgefms loðnukvóta eru þá rúm 461 þúsund tonn. Á vertíðinni var mest landað af loðnu hjá verksmiðju SR Mjöls á Siglufirði, rúmum 66 þúsund tonn- um. Tæpum 63 þúsund tonnum var landað hjá Síldarvinnslunnar hf. á Neskaupstað, um 54 þúsund tonn- um hjá HB hf. á Akranesi og tæp- um 47 þúsund tonnum hjá Hrað- frystihúsi Eskifjarðar. 3 sviptir veiðileyfi FISKISTOFA svipti þrjá báta veiðileyfí að áliðnum desember. Einn bátanna var þá sviptur veiði- leyfi öðru sinni á fiskveiðiárinu. Fiskistofa svipti Eldhamar GK 13 þann 16. desember vegna afla um- fram heimildir. Sviptingin gildir til 13. janúar. Þetta er í annað sinn sem Eldhamar er sviptur veiðileyfi vegna umframafla. Erlingur GK 212 var skiptur veiðileyfi af sömu sökun þann 23. desember, en skipið fél leyfi að nýju á aðfangadag er aflaheimildastaða þess hafði verið lagfærð. Loks svipti Fiskistofa Há- hyrning BA 233 leyfi þann 22. des- ember, þar sem hlut af afla skipsins hafi verið skotið undan vigt nokkru áður. Leyfissviptingin gildir frá ára- mótum til og með 21. janúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.