Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjármálaráðherra segir eðlilega staðið að málum við innheimtu skattaskulda ÞÞÞ á Akranesi Óvíst hvað fæst upp í 154 milljóna kröfu Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins, hefur óskað eftir því að Ríkisendurskoðun rannsaki hvernig staðið var að innheimtu skattaskulda fyrir- tækisins ÞÞÞ á Akranesi. Friðrik Sophus- son fjármálaráðherra segir að ráðuneyti sitt hafí staðið eðlilega að meðferð mála. ÞÓRÐUR Þ. Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Bifreiðastöðvar ÞÞÞ á Akranesi, var dæmdur í Hæsta- rétti í skattsvikamáli fyrirtækisins til 50 millj. kr. sektargreiðslu og fangelsisvistar. Hefur þrotabúið verið tekið til gjaldþrotaskipta og nemur skattaskuld búsins í dag um 154 milljónum kr. að viðbættum dráttarvöxtum. Fjármálaráðherra segir eðlilegar skýringar á því að ráðuneytið lét ekki bjóða í tvö skuldabréf sem tekin höfðu verið fjárnámi, til tryggingar skatta- skuldinni. Að sögn Margrétar Frímanns- dóttur, formanns Alþýðubanda- lagsins, ætlar Alþýðubandalagið að óska eftir að Ríkisendurskoðun at- hugi hvernig staðið hefur verið að þessari innheimtu af hálfu dóms- og fjármálaráðuneyta og hvort um fleiri sambærileg mál sé að ræða. Skuldabréfin 87 millj. kr. að nafnvirði Skv. upplýsingum fjármálaráðu- neytis var álagning skatta á Þórð hækkuð í október 1995 í kjölfar skattrannsóknai- vegna rekstrar bifreiðastöðvar hans um rúmlega 140 millj. kr. að meðtöldu álagi og dráttarvöxtum. Þórður seldi rekst- ur bifreiðastöðvarinnar einkahluta- félagi sem stofnað var um rekstur- inn árið 1994 og var kaupverðið greitt með tveimur skuldabréfum að nafnvirði 87 millj. kr. Voru bréfin gefin út til 20 ára. í nóvember 1995 gerði sýslumaðurinn á Akranesi fjárnám í íbúðarhúsnæði Þórðar og umræddum skuldabréfum vegna skattaskuldanna. Skv. upplýsingum fjármálaráðuneytisins voru skulda- bréfin sett í innheimtu hjá Lands- bankanum og afborganir gengu til greiðslu upp í skattakröfuna. Þórður var dæmdur í Hæstarétti í júní sl. í 12 mánaða fangelsi og 50 milljóna kr. sekt. Voru níu mánuðir af refsingunni skilorðsbundnir en Þórður skyldi sæta 12 mánaða fangelsisvist ef sektin yrði ekki greidd í ríkissjóð innan fjögurra vikna. Sektin greidd á undan skattaskuld Fangelsismálastofnun fól sýslu- manni innheimtu sektarinnar en sýslumaður er einnig innheimtu- maður skattaskuldarinnar fyrir hönd ríkissjóðs. Sl. sumar krafðist Helgi V. Jónsson, hrl. lögmaður Þórðar, þess að greiðslur skv. um- ræddum skuldabréfum yrðu fyrst látnar ganga til greiðslu á 50 millj. ki’. dómssektinni áður en kæmi til greiðslu á skattaskuldunum. Öskaði sýslumaður eftir afstöðu fjármálaráðuneytisins til þessa og í svarbréfi ráðuneytisins segir að innheimta sekta heyri undir dóms- málaráðuneytið og fjármálaráðu- neytið geti ekki haft afskipti af því með hvaða hætti staðið sé að inn- heimtu sektarinnar. „Að því er varðar innheimtu á skattaskuldum Þórðar Þórðarsonar telur ráðu- neytið ekki ástæðu til að hafa sér- stök afskipti af því máli. Sýslumað- ur hlýtur að meðhöndla það mál í samræmi við þær reglur sem gilda um innheimtu á opinberum gjöld- um,“ segir m.a. í bréfi ráðuneytis- ins. Var einnig bent á að sýslumað- ur yrði sjálfur að taka afstöðu til þess hvort skuldari hefði rétt til þess að ráðstafa greiðslum af skuldabréfunum til greiðslu á sekt- inni. Skv. upplýsingum fjármálaráð- herra óskaði lögmaður ÞÞÞ eftir því við sýslumann að skuldabréfin yrðu tekin upp í greiðslu á sektinni og opinberum gjöldum en þeirri beiðni var hafnað. Engin heimild sé í lögum til að taka við skuldabréf- um til greiðslu á sköttum nema í sérstökum tilvikum. Markaðsvirði bréfanna talið 36 millj. kr. I september sl. breytti svo sýslu- maður fjárnámsgerðinni á þann veg að skuldabréfin og húsnæðið yrðu fyrst til tryggingar á greiðslu sektarinnar en eftir það til trygg- ingar á greiðslu skattaskuldanna. Var íbúðarhúsnæðið því næst selt á uppboði fyrir 7,5 millj. og gekk söluandvirðið upp í dómssektina. Einnig var auglýst uppboð á skuldabréfunum í nóvember sl. en skv. upplýsingum fjármálaráðu- neytisins hafði sýslumaður sam- band við ráðuneytið og spurðist fyrir um hvort hann ætti að bjóða í bréfin til að verja skattakröfuna. Ráðuneytið bað um frest og fékk fjármálafyrirtæki til að meta sölu- verðmæti bréfanna. Skv. óform- legu mati þess kom fram að verð- mæti bréfanna gæti verið nálægt 40% af nafnverði þeirra eða um 36 millj. kr. Fjármálaráðherra segir að þá hafi verið sýnt að ekki yrði unnt að fá fé til greiðslu á skatta- skuld Þórðar, þar sem sektar- greiðslurnar gengju fyrir og verð- mæti bréfanna dygði ekki fyrir öðru en þeim. Var sýslumanni til- kynnt að fjármálaráðuneytið óskaði ekki eftir að boðið yrði í bréfin fyrir þess hönd. Á uppboði 25. nóvember keypti svo sonur Þórðar skuldabréfin fyi'ir 50 þús- und kr. í seinasta mánuði var bú Þórðar tekið til gjaldþrotaskipta og bú- stjóri skipaður, sem mun kanna eignir búsins, ráðstöfun þeirra og skipta þeim milli kröfuhafa ef ein- hverjar eru. Sveinn Andri Sveins- son, hdl. sem skipaður hefur verið bústjóri, segir skiptameðferðina enn á byrjunarstigi og vildi því ekkert tjá sig um eignastöðu bús- ins. Skuldir við ríkið nálægt 200 millj. kr. Að mati fjármálaráðuneytisins eru skuldir búsins við hið opinbera í dag nálægt 200 millj. kr. skatta- skuldin nemur 154 millj. kr. að við- bættu álagi og dráttai’vöxtum en upp í skattakröfunar hafa þegar verið greiddar 26 millj. kr., sem eru afborganir og vextir af skulda- bréfunum tveimur á síðustu tveim- ur árum. Eftirstöðvar dómssektarinnar sem ógreiddar eru nema í dag 44 millj. kr. Að mati fjármálaráðu- neytis eru taldar líkur á að dóms- sektin fáist gi’eidd en óvissa er um hvað fæst upp í skattakröfu ríkis- ins. Anand verður að vinna í dag Eignasalan Ingólfsstræti 12, Reykjavík, sími 551 9540. Seljendur ath.: Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur allar gerðir fasteigna á söluskrá. Skoðum og verðmetum samdægurs. Góður sölutími framundan. Höfum kaupanda að góðri 3ja herb. íbúð í Norð- urmýrinni. Fleiri staðir miðsv. í borginnni koma til greina. Góð útb. Höfum kaupanda að góðri 2ja herb. íbúð í mið- borginni eða vesturbæ. Verð allt að 6 millj. Góð útb. í boði fyrir rétta eign. Höfum kaupendur að góðri 4ra herb. íbúð, gjarnan í austurbæ. Einnig góða 4-5 herb. íbúð m. bílskúr (gjarnan í lyftuhúsi). Góðar útb. i boði. Höfum kaupanda að hæð eða húsi í Þingholt- unum. Má þarfn. standsetn. Verðhugmynd allt að 18 millj. Góð útb. fyrir rétta eign. Höfum kaupanda að góðri sérhæð í Hlíðahv. Fleiri staðir koma til greina. Góð útb. Höfum kaupanda að góðu einbýli á einni hæð gj. í Garðabæ. Fleiri staðir koma til greina. Verð hugmynd allt að 18 millj. Höfum kaupendur að 2ja til 5 herb. ris- og kjíb. Mega í sumum tilf. þarfnast standsetningar. Mjög góðar útb. geta verið í boði. Höfum kaupanda að stórri sérhæð m. bílskúr miðsvæðis í borginni. Mjög góð útb. og góðar greiðslur í boði. SKAK OlymiHusafnið f Lausanne, 1.-9. janúar 1998 HEIMSMEISTARAMÓT FIDE Þeir Karpov og Anand gerður jafn- tefli í finimtu skák heimsmeistara- einvígisins. Staðan: Karpov 3 v., Anand 2 v. INDVERJINN Anand verður því að vinna sjöttu og síðustu skák- ina í dag til að knýja fram fram- lengingu. Hann hefur hvítt og mun örugglega leggja allt í sölumar fyr- ir sigur. Ef honum tekst það ætlun- arverk sitt verður teflt til þrautar á morgun og umhugsunartíminn styttur. Það verður við ramman reip að draga fyrir Anand, 28 ára, sem set- ið hefur sleitulítið að tafli í fjórar vikur og slegið út sex öfluga stór- meistara. Sem ríkjandi heims- meistari komst Karpov, sem er 46 ára, beint í úrslitaeinvígið þannig að aðstöðumunurinn er mikill. En það er ekki hægt að afskrifa Anand, sem býr yfir geysimikilli orku. Hann er algjör bindindismað- ur á vín og tóbak og borðar heldur ekki kjötmeti. Fisk fór hann ekki að leggja sér til munns fyrr en hann kom hingað til Islands fyrii’ nokkrum árum. Stutt er síðan hann kvæntist indverskri unnustu sinni og virðist það hafa haft góð áhrif á baráttuviljann. Fimmta skákin: Hvitt: Karpov Svart: Anand Slavnesk vörn 1. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rc3 - Rf6 4. e3 - e6 5. Rf3 - Rbd7 6. Dc2 Karpov hefur dálæti á þessu trausta afbrigði, en í fyrstu og þriðju einvígisskákunum lék hann 6. Bd3 sem er algengara. 6. - Bd6 7. Bd3 - 0-0 8. 0-0 - dxc4 9. Bxc4 - a6 10. Hdl - b5 11. Be2 Karpov breytir hér út af skák sinni við Zsuzsu Polgar, núverandi heimsmeistara kvenna, í Madrid 1992, en þá lék hann 11. Bfl. 11. - Dc7 12. Re4 - Rxe4 13. Dxe4 - e5 14. Dh4 - He8 15. Bd3 - h6 16. Bc2 - exd4 Það var óþarfi fyrir Anand að skýra línumar á miðborðinu. 16. - Bb7 kom mjög vel til greina. 17. Dxd4 - Bf8 18. b3 - Rf6 19. Dh4 19. - g5! Með þessum leik jafnar Anand taflið. Karpov ákveður nú að bjóða drottningakaup. Mannsfórnin 20. Rxg5? kemur ekki til greina vegna millileiksins 20. - De5! 20. Dg3 - Dxg3 21. hxg3 - c5 22. Bb2 - Bg7 23. Hd6 - Be6 24. Hadl - Hec8 25. BxfO Karpov tekur enga áhættu, en þvingar fram mikil uppskipti. 25. - Bxf6 26. Be4 - Ha7 27. Bd5 - Bxd5 28. Hlxd5 - Kg7 Línurnar hafa nú skýrst. Svarta staðan lítur dável út, með peða- meirihluta á drottningarvæng og biskup gegn riddara. En hvítu mennirnir eru ágætlega staðsettii’ og Karpov reynist ekki vera í neinni hættu. 29. Hd2 - Be7 30. Hb6 - Bd8 31. Hbd6 - Be7 32. H6d5 Hér sýnir Karpov mikið sjálfs- traust með því að hafna því að þrá- leika til jafnteflis. 32. - a5 33. Kfl - a4 34. Ke2 - axb3 35. axb3 - Ha3 36. b4 - Hc3 37. bxc5 - H3xc5 38. Hxc5 - Hxc5 39. Rd4 - Bf6 40. g4 - b4 41. Hb2 - Hc4 42. Kd3 - Hc3+ 43. Kd2 - Bxd4 44. exd4 - Hc4 45. Kd3 - Hc3+ 46. Kd2 - Hc4 47. Kd3 - Hc3+ 48. Ke4! Karpov er sannkallaður töfra- maður í endatöflunum. Nú verður Anand að tefla nákvæmt til að lenda ekki í vandræðum. 48. - b3 49. f3 - Kf6 50. d5 - Hc4+ 51. Kd3 - Hf4! 52. Hxb3 - Ke5 53. Hb6 - Kxd5 54. Hxh6 - Ke5 55. Ke3 - Ha4 og hér sömdu kapparnir um jafntefli, því umfram- peðið kemur hvíti að litlu haldi. Skemmtikvöld vegna HM Skemmtiklúbbur skákáhuga- manna hefur ákveðið að efna til skemmtikvölds fóstudaginn 9. jan- úar klukkan 20. Tilefnið er að sjálf- sögðu heimsmeistarakeppnin í skák. Þrír Islendingar tóku þátt í keppninni: Jóhann Hjartarson, Margefr Pétursson og Helgi Áss Grétarsson. Síðasta skemmtikvöld var haldið skömmu fyrir upphaf HM og þá fór Margeir Pétursson yfír skipulag hennar og gerði grein fyrir væntanlegum andstæðingum íslensku keppendanna. Að þessu sinni verður annar fulltrúi Islend- inga, Helgi Áss Grétarsson, gestur kvöldsins. Hann náði mjög góðum árangri er hann sló út Spánverjann Illescas og fróðlegt verður að heyra hvað hann hefur um heimsmeist- arakeppnina að segja. Þegar Helgi Áss hefur lokið fyr- irlestri sínum lýkur skemmtikvöld- inu með léttri hraðskákkeppni þar sem þátttakendum verður skipt í riðla eftfr styrkleika. Allir skáká- hugamenn eru velkomnir. Skemmtikvöldið verður haldið hjá Taflfélaginu Helli, Þönglabakka 1, Mjódd. Aðgangseyrir er kr. 500 og renn- ur ágóðinn til skákmótahalds hér á landi þar sem ungum skákmönnum er gefinn kostur á að spreyta sig gegn erlendum meisturum. Meðal skákmóta sem skemmtiklúbburinn hefur styrkt á undanfórnum mán- uðum eru Alþjóðlega Hellismótið og Guðmundar Arasonar mótið. Það var einmitt á þessum mótum sem Jón Viktor Gunnarsson tryggði sér alþjóðlegan meistara- titil. Skákþing Reykjavíkur Skákþing Reykjavíkur 1998 hefst sunnudaginn 11. janúar klukkan 14. Tefldar verða 11 um- ferðir eftir svissneska keifinu. Dagskráin er þessi: 1. sunnud. 11.1. kl. 14:00 2. miðvikud. 14.1. kl. 19:30 3. föstud. 16.1. kl. 19:30 4. sunnud. 18.1. kl. 14:00 5. miðvikud. 21.1. kl. 19:30 6. sunnud. 25.1. kl. 14:00 7. miðvikud. 28.1. kl. 19:30 8. fóstud. 30.1. kl. 19:30 9. sunnud. 1.2. kl. 14:00 10. miðvikud. 3.2. kl. 19:30 11. fóstud. 5.2. kl. 19:30 Tímamörk eru 1!4 klst. á 30 leiki og síðan 45 mínútur til að ljúka skákinni. Umferðum lýkur kl. 24 á virkum dögum, en kl. 18:30 ó sunnudögum. Peningaverðlaun eru fyrir þrjú efstu sætin á mótinu: 1. verðlaun kr. 60.000, 2. verðlaun kr. 30.000 og 3. verðlaun kr. 20.000. Þótttökugjald er kr. 2.500 fyrir 18 ára og eldri, kr. 1.500 fyrir 15 - 17 ára og kr. 1.000 fyrir 14 ára og yngri. Skráð er á mótið í símum TR 5681690 og 5813540, eða á faxi 5884113. Keppni í unglingaflokki Skák- þings Reykjavíkur hefst laugar- daginn 24. janúar kl. 14 og hrað- skákmót Reykjavíkur verður hald- ið 8. febrúar kl. 14. Margeir Pétursson Daði Örn Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.