Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 42
~^42 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐRUN HELGA SIGURBJÖRNSDÓTTIR + Guðrún Helga Sigurbjörns- dóttir fæddist í Reykjavík þann 6.10. 1917. Hún lést á Droplaugarstöð- um 30. desember siðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigurbjörn Agúst Jónsson, ættaður frá Bjargi, Akranesi, f. 1.8. 1894, d. 9.2. 1922, og Ragnheið- ur Helgadóttir frá Uppkoti á Akranesi, f. 18. nóvember 1896, d. 9. janúar 1979. Sigur- björn faðir Guðrúnar dó er hún var á þriðja ári, og ólst hún upp í Sandgerði hjá móður sinni Ragn- heiði og stjúpföður Jóhannesi Ei- ríkssyni, seinni manni Ragnheið- ar, ættuðum frá Horni í Skorra- dal, f. 12. febrúar 1895, d. 27. des. 1949. Guðrún átti þijú hálfsystkini, Siguijón er lést í desember 1970, Bergeyju er lést í september . 1995 og Laufeyju er lifir systkini sin. Fyrri maður Guðrúnar var Garðar M. Pálsson, f. 10.8. 1903, d. 13.8. 1982. Þau eignuðust fjögur börn saman, elstur var Sigurpáll, f. 5.11. 1934, d. 6. júlí 1995. Dóttir hans er Margrét, f. 10.2. 1967, hennar börn eru Þórunn Lilja, f. Elsku systir mín, þinn dagur er runninn upp eins og hann gerir jjhjá okkur öllum. Alltaf kemur dauðinn okkur í opna skjöldu og ávallt sárt þegar hann knýr á dyr 9.12. 1992, Tinna Alicia, f. 4.6. 1995, og Sigfríð Dís, f. 9.9. 1997. Grétar, f. 5.7. 1936, kvæntur Kristínu Huldu Ey- feld, f. 29.1. 1936, þau eru barnlaus. Lilja, f. 19.4. 1942, d. 19.7. 1942. Haf- steinn, f. 4.12. 1944, kvæntur Hildi Páls- dóttur, f. 7.6. 1947. Börn þeirra eru Guðrún Bryndís, f. 4.2. 1969, gift Einari Brynjólfssyni, f. 5.8. 1966. Dætur þeirra eru Hildur Karen, f. 29.4. 1990, og Hjördís Ósk, f. 21.2. 1994. Lilja Sigrún, f. 1.5. 1974, Hafsteinn Garðar, f. 12.5. 1995. Eftirlifandi eiginmaður Guð- rúnar er Sigurbjörn Sigurpáls- son, f. 15.1. 1917, ættaður frá Egg í Hegranesi, Skagafírði. Þau eignuðust eina dóttur, Hafdísi, f. 24.7. 1953. Hennar dætur eru Guðrún Svava Hjartardóttir, f. 22.11. 1972, sambýlismaður hennar er Haukur Ófeigsson, f. 30.3. 1973, og eiga þau einn son, Eyþór Daða, f. 4.9. 1997. Hjördís Anna Hjartardóttir, f. 2.11. 1978. Guðrún var mestan hluta ævi sinnar húsmóðir í Reykjavík. Utfór Guðrúnar verður frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. eins og við báðar þekkjum. Með þessari kveðju langar mig að kveðja þig en maður á kannski ekki mörg orð á svona sorgar- stundu. Hjartkær systir, hniginn er hinsti ævidagur, hugljúf minning lifir og skín sem geisli fagur um yndislegu og góðu æskuárin heima og öll þín mörgu gæði, er liðnar stundir geyma. I ástarþökk og trega eg kveð þig heilu hjarta hjá mér vakir minningin hlýja, fagra og bjarta um elskulega systur og yljar gegnum tárin við okkar hinstu kveðju og blessa liðnu árin. Sigurbjörn minn, guð gefi þér og þínum styrk á þessari sorgar- stundu og megi hann ávallt fylgja ykkur. Laufey Jóhannesdóttir. I dag kveð ég kæran vin, Guð- rúnu Helgu Sigurbjörnsdóttur eða Dúnu eins og hún var jafnan köll- uð. Kynni mín af Dúnu ná aftur til þess er ég var unglingur. Við Haf- steinn sonur hennar höfðum bund- ist vináttuböndum sem hafa ekki slitnað síðan. Eg varð fyrir því að missa móður mína fjórtán ára gamall og þá stóð ekki á Dúnu að opna mér heimili sitt og hlúa að mér á sinn óeigingjarna hátt. Það er skemmst frá því að segja að ég varð heimagangur á heimili Dúnu öll mín unglingsár og hef átt tryggð hennar og vináttu og mikil samskipti við hana síðan. Eg bý í dag að umhyggju hennar sem hún ávallt sýndi mér og vildi hafa sagt henni það með meira afgerandi hætti en ég gerði á meðan hún lifði. Dúna var ákaflega sérstök kona. Hún átti sérlega fallegt heimili sem hún annaðist af stakri prýði. Þá duldist mér ekki hve hlýtt var á milli hennar og Hafsteins sonar hennar alla tíð sem m.a. mátti merkja á þeim mörgu ferðalögum sem þau hjón fóru með Hafsteini og konu hans bæði innanlands og er- lendis. Þessara ferða naut Dúna + Guðný Þóra Árnadóttir fæddist í Reykjavík 18. október 1915. Hún lést á Vífils- staðaspítala aðfara- nótt 31.12. síðastlið- v inn. Foreldrar henn- ar voru Anna Þórð- ardóttir, ættuð úr Rangárvallasýslu og Ámi Þórðarson, ættaður frá Læk í Ölfusi. Eftirlifandi systir Guðnýjar er Sigríður Þóra Árna- dóttir. Eftirlifandi börn Guðnýjar eru: Guðmundur Arnar Gunnarsson, Sigríður Gunnhildur Kristjánsdóttir og Árni Hafþór Kristjánsson. Utför Guðnýjar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. £> Salka Valka lifir í minningu okk- ar, sem tókum lífsreynslu kreppu- kynslóðarinnar í arf. Guðný Þóra var Salka Valka. Hún var fædd við Laugaveginn í fyrra stríði. Kreppu- árin voru hennar blómaskeið. Hún var árinu eldri en Alþýðu- flokkurinn. A táningsárunum varð hún ástfangin af hugsjón jafnaðar- stefnunnar. Þeirri æskuást var hún trú allt sitt líf. Okkur hefur alltaf fundist að hún ætti heima í samtök- um ungra jafnaðarmanna, grósku þeirra sem horfa með bliki æskunn- ar í augum til langþráðrar framtíð- 5 ar. Hún var bara táningsstelpa þegar heimskreppan herjaði á alþýðuheimilin í Reykjavík, eins og annars staðar um heimsbyggðina. Hún vissi frá upphafi, hvað það var að eiga sér drauma, sem aldrei gátu rætzt, eins og Haukur Morthens söng fyrir hennar munn. Og Einar Már rifjar nú upp fyrir makráðum afkomend- um, í Fótsporum á himnum. Hún vissi af eigin lífsreynslu, ungri og brothættri, að sitt er hvað gæfa og gjörvileiki. Hún fékk í vöggugjöf fegurð, at- gervi og lífsfjör, sem ekkert gat bugað. Kreppan var hennar blóma- skeið, því að það er á krepputímum sem maðurinn sjálfur, í allri sinni nekt, er veginn og metinn að verð- leikum. Þá verður oft lítið skradd- arans pund. Hún var Salka Valka, sem leyfði börnunum að koma til sín en bann- aði þeim það ekki. Hún var Salka sem breiddi út saltfiskinn, þegar líf- ið var saltfiskur. Hún var blómarós- in í Alþýðubrauðgerðinni, þegar vort daglega brauð var spurning um líf eða dauða. Hún var fangseljan í verstöðinni, á Suðurnesjum og vestur á fjörðum. Og hún var gestgjafinn örláti í Bjarkarlundi, sem tók fagnandi þreyttum ferðalöngum þegar þeir leituðu skjóls undan ygglibrún vest- fírzkra fjallvega. Þar bar fundum hennar og okkar Bryndísar saman fyrst. Upp frá þeirri stundu vorum við vinir. Eftir á að hyggja þá þekkti ég hana fyrir, þótt ég vissi það ekki fyrr en löngu seinna. Þær voru þre- menningar, Guðný Þóra og Aldís, tengdamóðir mín, ættaðar frá Hrauni, sumir mundu segja Litla- Landi, í Ölfusi. Konur af þessari ætt hafa erft fríðleik og þokka af ómennsku álfakyni. Þær gera hreysi að höll. Þær eru drottningar í álögum. En hafið hamdi þær til að skilja mennsk örlög. Um þau forlög ræddum við stundum, hólpin af Þorskafjarðarheiði á rökkvuðum haustkvöldum. Þeirra nátta er gott að minnast. Hún giftist snemma í seinni heimsstyrjöldinni og eignaðist fjög- ur börn. Frumburðurinn lézt í bemsku. Barnabömin fylla postula- töluna, tólf talsins. Eftir 16 ára hjónaband skildi Guðný Þóra við mann sinn. En aldrei hvarflaði það að henni að segja skilið við æskuást- ina sína - hugsjón jafnaðarstefn- unnar. Henni var hún trú til dauða- dags. Blómarósin í Alþýðubrauðgerðinni var lífið og sálin í félagsskap ungra jafnaðarmanna. Hún gekk fremst í kröfugöngunni lsta maí; í talkómum gegn nazistum og söngkómum á Al- þýðusambandsþingum. Hún var ekki bara í stjómum kvenfélags Alþýðu- flokksins og verkakvennafélagsins Framsóknar. Hún var lífið og sálin í félagsskapnum. Hún var alltaf boðin og búin að gera það sem gera þurfti fyrir hugsjónina. Hún lét sig aldrei vanta á fundi. Hún sinnti ávallt kall- inu: félagsfundir, kosningar, flokks- þing - „mitt er þitt og þitt er mitt, þú veizt hvað ég meina“. Og ævin- lega með glettni í auga, bros á vör og bjartsýni í farangrinum. Hún létti okkur hinum lundina og hvatti okkur til dáða. Og svo var hún svo falleg. Það birti til þar sem hún fór. Þar sem saman fer fegurð, glaðværð, örlæti og gæzka. Þar er glatt á hjalla og þar er gott að vera. Við Bryndís þökkum fyrir samfylgdina. Jón Baldvin og Bryndís. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd '*** greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. GUÐNÝÞÓRA ÁRNADÓTTIR mjög. Hún var mjög geðgóð og að- laðandi kona og það var reisn yfir því hve hún hafði sig vel til alveg fram í andlátið þrátt fyrir hve Park- inson veikin hafði gengið nærri henni. Það var fjölskyldu hennar og vinum sárt að horfa upp á. Minningarnar eru margar á þeim tæplega fjörutíu ánim sem við höfum átt samleið. I hugann koma t.d. ferðir á kappleiki upp á Akranes þaðan sem hún var ættuð, ferðir norður í land á sumrin með fjölskyldunni og fjölskylduboðin sem hún hélt. Þó er hér fátt eitt talið. Dúna laðaði fólk að sér. Hún var skemmtileg og viðræðugóð og var vel heima í flestu því sem bar á góma. Ég á eftir að sakna allra þeirra stunda sem við áttum saman en jafnframt gleðjast yfir þeim mörgu góðu minningum sem þessi góða kona skilur eftir. Eiginmanni, börnum, tengda- börnum og barnabörnum Dúnu vil ég votta mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja þau í sorg þeirra. Margs er aó minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Olafur Þór. Kveðja Er við höfðum haldið hátíð ljóss og friðar og mitt í önnum áramóta- undirbúnings barst okkur andláts- fregn Guðrúnar Helgu Sigur- björnsdóttur. Það er margs að minnast frá því er við kynntumst fyrst fyrir um hálfum þriðja áratug er við tengdumst fjölskyldubönd- um og hófum að fylgja þeim ferli er tilheyrir slíkum tengslum svo sem skímar-, afinælis-, fermingar- og útskriftarathöfnum. Því miður átti Dúna, eins og hún var kölluð, við vanheilsu að stríða um árabil en lét sig aldrei vanta er fjölskyldan og vinir komu saman til þess að fagna þessum viðburðum og hafði hún mikla ánægju af þessum samveru- stundum með ástvinum sínum. Síð- asta athöfnin í fjölskyldunni var skím langömmubarns hennar á haustdögum nýliðins árs og voru það síðustu samfundir okkar. Við vottum eftirlifandi eiginmanni, Sig- urbirni, Hafdísi og dætmm Guð- rúnu Svövu og Hjördísi Önnu, Haf- steini, Hildi og fjölskyldum okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning hennar. Aðalsteinn Dalmann Októsson og fjölskyldur. Nú þegar ég kveð hana Dúnu, eins og ég kallaði hana alltaf, birt- ist mér í minni þessi góða og glað- væra manneskja. Kona sem var mér einhvers staðar mitt á milli mömmu og ömmu, ef til vill var hún hvora tveggja. Vegna vinskap- ar við dóttur hennar, hana Hafdísi, átti ég því láni að fagna að teljast heimagangur hjá henni. Fyrst á Rauðarárstígnum síðan í Fellsmúl- anum. Þar sem foreldrar mínir unnu langan vinnudag eins og gekk og gerðist og gerist enn hjá svo mörgum átti ég alltaf vísan sama- stað hjá Dúnu. Þeir vora ófáir dag- amir þegar við Hafdís, samferða heim úr skólanum, komum heim til hennar og ég kynntist þeirri hlýju og gestrisni sem Dúna og eftirlif- andi maður hennar, hann Bubbi, létu svo ríkulega í té. Þetta varð mitt annað heimili. Alltaf velkomin, alltaf aufúsugestur hvort heldur um hátíðir sem virka daga. I barnsminni varst þú alltaf sönn og góð. Þegar ég nú kveð þig nú í bili standa eftir gleðidrifnar minn- ingar sem þegar þar að kemur við munum gantast með, verði ég svo lánsöm að komast á þann stað sem ég veit að þú ert nú á. Kæri Bubbi, böm, bamabörn og barnabarnabarn, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur með von um að minningin um Dúnu gefi ykkur kjark og styrk um ókomin ár. Hvað boðar nýárs blessuð sól? Hún boðar náttúrunnar jól, hún flytur líf og líknarráð, hún Ijómar heit af Drottins náð. Sem Guðs son forðum gekk um kring, hún gengur ársins fagra hring og leggur smyrsl á lífsins sár og læknar mein og þerrar tár. Ó, sjá þú Drottins björtu braut, þú bam sem kvíðir vetrar þraut: í sannleik hvar sem sólin skín er sjálfur Guð að leita þín. (Matthías Jochumsson.) Helen Gunnarsdóttir. Elsku amma, það er svo erfitt að kveðja þig, við söknum þín svo sárt. Minningarnar era svo margar sem við geymum í hjarta okkar, við getum huggað okkur við þær. Það var alltaf svo gott að koma til þín, þú tókst á móti okkur með hlýja brosinu þínu og straukst okk- ur um vangann með hlýju og mjúku höndunum þínum, það þótti okkur svo blítt og gott. Við munum svo vel eftir þegar við vorum lítil, þú sagðir okkur sögur og söngst fyrir okkur „Komdu og skoðaðu í kistuna mína“ og „Siggi var úti“ og þegar þú tókst í höndina á okkur og sagð- ir „Fagur, fagur fiskur í sjó“; þetta gerðir þú best af öllum. Það sem þér fannst skemmtileg- ast að gera var að fara á gömlu dansana með honum afa og auðvit- að allar utanlandsferðirnar sem við fóram saman. Við ferðuðumst út um allan heim, þér fannst best að vera þar sem hlýtt var, eins og á Italíu og Spáni, þar naust þú þín með sólarolíu, sólgleraugu, sand og sjó. Elsku amma gull, eins og við kölluðum þig stundum, það var vegna þess hversu góð þú varst við okkur og alla hina, einnig vegna þess hversu vel til höfð þú varst alltaf, með vel lakkaðar neglur og nýlagað hárið, þú hefur kennt okk- ur svo mikið í gegnum árin sem við eigum eftir að minnast um ókomna tíð. Elsku amma gull við söknum þín. Við viljum kveðja þig með þessu ljóði. Og ljúft sem liðinn draumur ein löngun vitjar mín, aó krjúpa á hjamið kalda og kyssa sporin þín En stundum kemur þögnin og þylur gömul Ijóð. þá þrái ég enn að þakka hvað þú varst mild og góð. (Tómas Guðmundsson.) Elsku afi, pabbi, Grétar, Hafdís og aðrir ástvinir, megi Guð styrkja okkur í þessari miklu sorg. Guðrún Bryndís Hafsteins- dóttir, Lilja Sigrún Hafsteins- dóttir, Hafsteinn Garðar Haf- steinsson. Elsku amma, eftir langvarandi veikindi ertu nú horfin frá okkur og hefur öðlast hvfld og frið. Við minnumst ætíð þess tíma er við bjuggum á heimili^ykkar afa ásamt foreldram okkar. A þeim tíma vora þær ófáar stundirnar sem við eyddum saman. Eftir að foreldrar okkar stofnuðu sitt eigið heimili voru heimsóknirnar til þín og afa afar tíðar. Þú naust þess að dekra við okkur og aldrei fór svo að við færum heim ómettar. Þú kenndir okkur margt sem við tökum með okkur sem veganesti út í lífið og okkur er ofarlega í huga þessi litla bæn sem þú æfðir með okkur. Vertu Guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú jafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. Við þökkum fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum með þér, elsku amma Dúna. Guðrún og Hjördís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.