Morgunblaðið - 08.01.1998, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HÁRKÚR, FJÖLVÍTAMÍN & STEINEFNI ESTER C
Fæst í mörgum heilsubúðum, apótekum og mörkuðum.
^r-PaHtot^
x t h '
''iiriiio fiír h='r.
oulr
Áhrifaríkur hárkúr
Vítamín, steinefni,
aminósýrur,
prótein og
valdar jurtir.
Hugsaðu vel um
hárið.
Healthilife
tryggir gæðin.
Náttúrulegt E-500
úr bestu efnum.
Öflug oxunarvörn
fyrir frumurnar.
_______Ester C_____
Margföld áhrif. Fer vel
í maga. EC-200, EC-500
og EC-Plus með zínki,
seleni, magnesíum og
kalki.
BÍO-SELEN UM&QÐIÐ
Sími 557 6610
STEINAR WAAGE
r
SKÓVERSLUN \
Teg. 20891
Verð: 7.995,-
Litur: Svartir. Stærðir: 36-41 Verð: 7.995,-
Ath. að í Kringlunm fást st. 42-46 Litur: Svartir. Stærðir: 36-41
5% staðgreiðsluafsláttur - Póstsendum samdægurs
V
STEINAR WAAGE ^
skóverslun/
SlMI 551 8519
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN ^
SÍMI 568 9212
J
8 vikna
árangursrík
fitubrennslunámskeið
hefjast mánudaginn 12. janúar.
• Skráning er hafin í síma 561 5100.
• Morgun-, dag- og kvöldhópar.
• Ath. Takmarkaður fjöldi.
og eei
Baálms
Skráning í síma
561 5100
BAÐHUSIÐ
heiliulind tyrir konur
BRAUTARHOLTI 20 SlMI 561 5100
fRwgtnifrfaftifr
- kjarni málsins!
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Skák á Sýn
MIG langar til að lýsa mik-
illi ánægju með skákskýr-
ingar Hermanns Gunn-
arssonar og Helga Olafs-
sonar sem hafa verið á
sjónvarpsstöðinni Sýn að
undanfórnu. Þessar skák-
skýringar hafa verið mjög
góðar og skemmtilegar en
þó er eitt atriði sem þess-
ir ágætu menn mættu
taka til athugunar þegar
þeir eru að lýsa skákum
og útskýra þær. Það er
hvernig þeir segja frá
leikjunum. Að mínu mati
segja þeir alltof hratt frá
og maður á í miklum erf-
iðleikum með að fylgjast
með hvað er að gerast á
skákborðinu. Ég er sjálf-
ur ekki mikill skáksnill-
ingur en mér finnst virki-
lega gaman að fylgjast
með skákskýringum og
pæla svolítið í stöðunum,
hvaða möguleikar eru fyr-
ir hendi og svo framvegis.
En það vantar tilfínnan-
lega að útskýra betur og
fara hægar í útskýring-
arnar til að hægt sé að
njóta skáklistarinnar til
fullnustu. Ég hef heyrt
það hjá mörgum sem hafa
fylgst með útsendingum
ykkar að þeir eru sam-
mála mér í þessu. Einnig
vita margir t.d. ekki í
fljótu bragði hvar C3-reit-
urinn er, og er það vegna
þess að það vantar að
merkja skákborðið með
reitaheitunum frá 1-8 og
frá A-H eins og gert er á
flestum skákborðum.
Þetta vill rugla menn svo-
lítið og er maður oft að
leita að reitnum sem verið
er að tala um og missir þá
stundum af miklu þegar
hratt er farið yfír skák-
skýringarnar. I lokin vil
ég koma á framfæri miklu
þakklæti til stjórnenda
þáttarins og eigenda Sýn-
ar fyrir gott framlag til
skákíþróttarinnar.
Kristján Berg.
Lélegt skaup -
„Kúrekar norðursins“
GUNNAR hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma þvi á framfæri að sér
hefði þótt áramótaskaupið
afspyrnulélegt í ár. Hann
vildi koma þeirri hugmynd
sinni á framfæri að á
næsta ári vröu Spaug-
stofumenn látnir sjá um
áramótaskaupið, það gæti
að minnsta kosti ekki
versnað.
Einnig vildi Gunnar vita
hvort einhver ætti mynd-
ina „Kúrekar norðursins".
Gunnar er í síma 893 5728.
Laxalýsi
KONA hafði samband við
Velvakanda og sagðist
hafa keypt sér laxalýsi
(Ultra Vit) í haust. Ætlaði
hún að kaupa það aftur en
segist hvergi hafa séð það í
verslunum. Vill hún vita
hvar hún geti fengið það
keypt.
Laufskálinn
ÉG vil taka undir það sem
birtist í Velvakanda um
þáttinn Laufskálann. Ég
var lengi að átta mig á því
að þátturinn sem ég var
að hlusta á væri Laufskál-
inn.
Annar hlustandi.
Tapað/fundið
Bfllykill í óskilum
BÍLLYKILL með fjar-
stýringu fannst á Brávalla-
götu fyrir nokkrum dög-
um. Uppl. í síma 551 5945.
Gylltur plastpoki!
GYLLTUR plastpoki tap-
aðist aðfaranótt laugar;
dagsins 16. nóvember. I
pokanum eru m.a. lykla-
kippa með fjarstýringu á
bíllykli og fleira smádót.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 557 2452 eða í
óskilamunadeild lögregl-
unnar, 569 9018.
SKAk
IJmsjnii Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á al-
þjóðlegu móti í desember
í Bar í Júgóslavíu. Það var
ekki haldið á bar. Bar er
nafnið á borginni.
Heimamaðurinn Dra-
goljub Velimirovic (2.515)
var með hvítt, en Grikk-
inn Spyridon
Skembris
(2.470) hafði
svart og átti
leik.
25. _ Bf3+!
og hvítur
gafst upp.
Eftir 25. Bxf3
_ Hxg6+ 26.
Bg4
Hxg4+ 27.
Kh3 _ Hg6 á
hann enga
vörn við hót-
uninni 28.
Hh8 mát. Úr-
slit mótsins:
1. Ulf And- SVARTUR
ersson 7V4 v. af 10 mögu-
legum, 2. Petar Popovic,
Júgóslavíu 51/2 v., 3._4.
Andrei Sokolov, Rússlandi
og Skembris 5 v. 5. B.
Ivanovic, Júgóslavíu 4 v. 6.
Velimirovic 3 v.
Heimsmeistaraeinvígið:
Sjötta skákin er tefld í
dag. Anand hefur hvítt. Ef
staðan verður 3-3 eftir
skákina í dag verða teflt
til þrautar á morgun og
umhugsunartíminn stytt-
mátar í fimmta leik.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
MORGUNBLAÐINU rétt fyrir
jól kom fram í frétt, að þriðji hver
íslenzkur læknir, sem væri í starfí í
dag, starfaði erlendis. Á milli 1.200
og 1.300 læknar eru að störfum í
dag og því er þessi fjöldi lækna er-
lendis á bilinu 400 til 500 manns.
„Læknar í Svíþjóð 1997“ heitir
vefsíða, www.arteeh.se/~gks/Lækn-
ar-Sverige.html, á veraldarvefnum.
Víkverja rak í rogastanz, er hann
var að vafra á vefnum á dögunum og
rakst á þessa síðu. Útprentuð er síð-
an hálft fimmta A4-blað þéttskrifað
með nöfnum, heimilisfangi og síma-
númerum 176 íslenzkra lækna, sem
búsettir eru í Svíþjóð.
Þvílíkur fjöldi í einu landi, Sví-
þjóð! Auðvitað getur verið að ein-
hverjir þessara lækna séu í fram-
haldsnámi, en fjöldinn er samt ótrú-
legur. Maður trúir varla eigin aug-
um, þegar þessi listi er skoðaður.
Þessi síða vakti athygli Víkverja
og því reyndi hann að fínna fleiri
slíkar síður. Þá kom upp sams kon-
ar síða, sem ber fyrirsögnina:
„Læknar í Noregi 1997“. Þessi síða
hefur sömu slóðina, nema hvað í
stað „Sverige" stendur „Norge“ og í
útprentun er hún tæplega hálft ann-
að A4-blað og á henni er 51 læknir.
I einu vetfangi fann Víkverji sem
sagt vefsíður með nöfnum 227 ís-
lenzkra lækna í þessum tveimur
löndum.
Nú geta menn velt fyrir sér þess-
um fjölda. Ætli flestir þessara aðila
séu ekki í hjónabandi og eigi
kannski einhver börn. Það getur því
vel verið að þama séu læknafjöl-
skyldur með 600 til 700 íslendinga.
Myndarlegur hópur það.
XXX
SKÖMMU fyrir jól var vinkona
Víkverja með í höndum ávísun,
sem stíluð var á Islandsbanka og
var upphæðin ekki há, innan við tíu
þúsund krónur. Hún var stödd á
Laugavegi og gekk því inn í Lands-
bankann og fór þar í biðröð. Þegar
að henni loks kom bað hún um að
ávísunin væri innleyst. Svör gjald-
kerans voru þá að ávísunin væri á
reikning í íslandsbanka og þangað
ætti viðkomandi að leita, þetta væri
Landsbankinn.
Hvers konar þjónustulund er
þetta hjá Landsbankanum? Hefur
þessi stærsti banki þjóðarinnar í
raun ráð á að vísa viðskiptavinum
sínum í aðra banka? Nú vill svo til
að þessi kona og eiginmaður henn-
ar eiga öll sín persónulegu banka-
viðskipti við Landsbankann. Hvað á
hún að halda þegar Landsbankinn
sýnir henni þá óbilgirni að senda
hana í annan banka, samkeppnisað-
ila Landsbankans. Víkverja fínnst
þetta vera í líkingu við að kæmi ein-
hver inn í segjum Nóatúnsverzlun
og vildi kaupa svínslæri, að af-
greiðslumaður þar segði: Svínslæri
fást einnig í Hagkaupi. Farðu og
kauptu lærið þar. Eitt er víst að
ekki myndi sá afgreiðslumaður
vera lengi í vinnu í Nóatúnsbúðun-
um.
En Landsbankinn virðist hafa ráð
á því að ýta viðskiptavinum sínum
inn í aðra banka og það þeim, sem
verið hafa í viðskiptum við Lands-
bankann í áratugi. Gott og vel -
Landsbankinn um það. Telji Lands-
bankinn ávísun, sem viðskiptavinur
hans er handhafí að sér óviðkom-
andi er það hans vandamál en ekki
viðskiptavinarins. Hann veit þá
einnig hvert hann á að fara til þess
að stunda bankaviðskipti sín. Samt
kallar þessi banki sig banka allra
landsmanna?!